Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aðstandendur geta orðið líkamlega veikir vegna streitunnar

Halldóra Jón­as­dóttir, áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi hjá SÁÁ, segir fíkni­sjúk­dóma hafa mikil áhrif á aðstand­endur þeirra ein­stak­linga sem glíma við fíkn. Streitan sem mynd­ast innan fjöl­skyldna vegna fíkni­sjúk­dóma getur orðið til þess að aðstand­endur verða veikir og finna fyrir lík­am­legum kvillum vegna álags.

Und­an­farið hafa fíkni­sjúk­dómar verið mikið í umræð­unni og stundum hefur verið talað um að fíkni­far­aldur geisi hér á landi. Á árinu 2018 voru inn­lagnir á sjúkra­húsið Vog 2.275 og í byrjun árs voru um 570 ein­stak­lingar á biðlista eftir inn­lögn vegna fíkni­sjúk­dóma.

Fíkni­sjúk­dómar hafa mikil áhrif, ekki bara hjá þeim ein­stak­lingum sem glíma við sjúk­dóm­inn heldur einnig hjá aðstand­endum þeirra.

Halldóra Jón­as­dóttir er áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi hjá SÁÁ. Hún hefur í gegnum tíð­ina haldið utan um fjöl­skyldu­með­ferðir SÁÁ og þekkir vel hvaða áhrif fíkni­sjúk­dómar hafa á aðstand­endur þess ein­stak­lings sem glímir við fíkn.

Spurð út í fjöl­skyldu­með­ferðir SÁÁ segir Halldóra: „Við höldum nám­skeið tvisvar í viku í fjórar vikur í senn fyrir aðstand­endur fólks með fíkni­sjúk­dóma. Það eru lokuð nám­skeið en svo bjóðum við líka upp á við­tals­þjón­ustu. Á Vogi eru svo sér­stakir for­eldra­hópar fyrir for­eldra þeirra ung­linga sem eru að glíma við fíkn. Þar er boðið upp á fræðslu og hóp­starf.“

Í þessu starfi SÁÁ er fólk frætt almennt um fíkni­sjúk­dóm­inn, áhrif hans og með­virkni að sögn Halldóru.

„…breyt­ingin sem verður á fíkl­inum verður til þess að jafn­vægið í fjöl­skyld­unni fer úr skorðum.“

„Það er gott fyrir aðstand­endur fólks með fíkni­sjúk­dóma að hitt­ast og ræða saman. Það sem ger­ist oft er að aðstand­endur verða mjög upp­teknir af fíkl­inum og ástand­inu. Ég segi stundum að fjöl­skyldur séu eins og órói; breyt­ingin sem verður á fíkl­inum verður til þess að jafn­vægið í fjöl­skyld­unni fer úr skorðum og aðstand­end­urnir fara að leit­ast við að ná ein­hverju jafn­vægi. Þá getur verið gott að ræða við aðra sem eru í svip­uðum sporum.“

Beðin um að lýsa nánar því sem ger­ist gjarnan hjá aðstand­endum og ást­vinum þeirra sem glíma við fíkni­sjúk­dóma segir Halldóra: „Það sem ger­ist oft er að það skap­ast mikið streitu- og spennu­á­stand. Hegðun þess sem er í neyslu, það er alveg sama hvort það er for­eldri, barn, maki eða ein­hver annar, skapar mikið óör­yggi hjá fólk­inu í kring. Aðstand­endur fara þá oft í það að reyna að hafa stjórn á þeim sem er að glíma við fíkn og þannig skap­ast mikil spenna.“

Halldóra segir hræðslu­til­finn­ingu vera algenga hjá aðstand­endum þess sem er í neyslu. „Hræðsla um að við­kom­andi fari sér að voða.“

„Alltaf skapast þessi spenna innan fjölskyldunnar“

Halldóra segir það vissu­lega vera breyti­legt eftir aðstæðum hvaða áhrif fíkni­sjúk­dómar hafa innan fjöl­skyldna. „Það skap­ast auð­vitað ólíkar aðstæður eftir því hvernig ein­stak­ling­ur­inn hagar sér undir áhrifum og eftir því á hvaða aldri við­kom­andi er. En alltaf skap­ast þessi spenna innan fjöl­skyld­unnar.“

Aðstand­endur þeirra sem glíma við fíkni­sjúk­dóma setja sjálfan sig gjarnan í annað sæti að sögn Halldóru. „Fólk verður stöðugt upp­tekið af líðan og hegðun ann­arrar mann­eskju. Sama hver hún er. Svo fer fólk að reyna að stjórna líðan og hegðun ein­stak­lings­ins og þá fer fólk smátt og smátt að setja sjálfan sig til hliðar.“

Halldóra tekur fram að ráð­gjafar SÁÁ geti ekki sagt fólki hvað sé nákvæm­lega hægt að gera í þeim erf­iðu aðstæðum sem hafa mynd­ast. „Oft er fólk orðið svo þreytt og vill bara fá ein­hvern leið­ar­vísi en við eigum hann ekki til. Það sem hjálpar fólki þó mikið er að hitta annað fólk í sömu stöðu og ræða hlut­ina. En auð­vitað getur verið rosa­lega sárt og vont að fá þetta svar; að það sé engin ein lausn til.“

„Fólk verður bara að meta hlut­ina hjá sjálfu sér og skoða hvar það treystir sér til að setja mörkin.“

Halldóra segir ómögu­legt að segja að eitt­hvað sé rétt eða rangt í þeirri stöðu sem mynd­ast þegar ást­vinur er far­inn að mis­nota áfengi eða fíkni­efni. „Það er ekk­ert endi­lega eitt­hvað rétt eða rangt sem fólk getur gert því ástandið er svo ein­stak­lings­bundið. Við segjum fólki t.d. ekki að henda börn­unum sínum eða mökum út af heim­il­inu ef neyslan er farin úr bönd­unum hjá við­kom­andi. Fólk verður bara að meta hlut­ina hjá sjálfu sér og skoða hvar það treystir sér til að setja mörkin.“

Hvað mörk varðar segir Halldóra oft vera vanda­samt að finna jafn­vægi. „Fólk vill vera góður við þann sem er í neyslu án þess að ýta undir hegð­un­ina. Fólk vill hjálpa ást­vinum sínum en kannski ekki gera of mikið fyrir hann. Í þessu sam­hengi erum við að tala um fólkið sem okkur þykir vænst um en það verður svo mikil skekkja í sam­skiptum þegar annar aðil­inn er í neyslu og traustið er gjarnan farið.“

Skömm algeng tilfinning

Halldóra segir algengt að aðstand­endur haldi að þeir geti með ein­hverjum aðferðum komið í veg fyrir að ást­vinur þeirra mis­noti áfengi eða lyf eða að neyslan sé þeim að kenna. „Algengt sé að for­eldrar kenni sér um neyslu hjá ung­ling­unum sínum og reyni að finna ein­hverja ástæðu fyrir að ung­ling­ur­inn fór út í neyslu. Fólk reynir að skilja hvað það gerði vit­laust. Á sama tíma reyna sumir for­eldrar að telja sér trú um að þetta sé kannski eðli­legt, að allir ung­lingar séu að gera þetta.“

Halldóra segir skömm líka vera algenga til­finn­ingu hjá aðstand­endum. „Þegar fólk skamm­ast sín er hætta á að það leiti sér ekki hjálpar eða stuðn­ings og fari frekar að fela ástandið. Skömmin veldur því svo oft að fólk leitar sér ekki hjálpar fyrr en allt er komið í þrot.“

Markmiðið er að fræða

Spurð út í hvert mark­miðið með fjöl­skyldu­með­ferð SÁÁ sé segir Halldóra: „Markmið okkar er að fræða fólk um fíkni­sjúk­dóma og með­virkni og að hjálpa því að átta sig á að það er ekki því að kenna að fólkið þeirra er í neyslu. Að það fái þá vit­neskju um að þetta er sjúk­legt ástand sem mynd­ast. Með­virkni er ekki skil­greind sem sjúk­dómur en það er sjúk­legt ástand og aðstand­and­inn getur orðið veikur. Það geta meira að segja komið fram lík­am­leg ein­kenni eftir alla streit­una. Mark­miðið er að fólk fái fræðslu og upp­lýs­ingar og geti unnið sig út frá því. Það hjálpar yfir­leitt mjög mikið.“

Halldóra segir sam­tal geta gert ótrú­lega hluti. „Að tala við ein­hvern getur breytt mjög miklu. En það er ekki þar með sagt að allt sé orðið gott aftur og ástandið lag­ist. En það er vissu­lega gott að fá upp­lýs­ingar.“

Upp­lýs­ingar um fjöl­skyldu­með­ferð SÁÁ er að finna á vef sam­tak­anna.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi