Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sveinn Andri í óþökk Arion Banka

Arion banki hefur farið fram á að Sveinn Andri Sveins­son hæsta­rétt­ar­lög­maður verði settur af sem skipta­stjóri þrota­bús WOW air vegna van­hæfis.

Sveinn Andri í óþökk Arion Banka
Sveinn Andri Sveins­son.

Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka, stað­festir í sam­tali við Mannlíf að bank­inn hafi óskað eftir því að Sveinn Andri Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og nýskip­aður skipta­stjóri þrota­bús WOW air, verði settur af vegna van­hæfis. Hann stað­festir einnig að það teng­ist ágrein­ingi bank­ans við bústjóra þrota­bús tölvu­fyr­ir­tæk­is­ins Data Cell þar sem Arion er stærsti kröfu­haf­inn. Sveinn Andri er skipta­stjóri í því búi.

„Ég vil að öðru leyti ekki tjá mig um þetta. Málið er bara í far­vegi og við ætlum ekki að reka það í fjöl­miðlum,“ segir Haraldur í sam­tali við Mannlíf en Arion banki er, eins og kunn­ugt er, einn af stærstu kröfu­höf­unum í þrotabú flug­fé­lags­ins WOW air. Þegar WOW air varð gjald­þrota skuld­aði félagið bank­anum á annan millj­arð króna.

Þótt Arion banki hafi farið fram á að Sveinn Andri verði settur af sem skipta­stjóri þrota­bús WOW air, gæti það orðið snúið. Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður hjá LEX lög­manns­stofu, segir að mikið þurfi til að skipta­stjóri þrota­bús sé settur af eftir að hafa verið skip­aður.

Þannig að það þarf mikið til, ein­hvers konar klúður í starfi.

„Það þarf mikið til. Það eru ákvæði í lögum um gjald­þrota­skipti sem segja að við­kom­andi þurfi að brjóta af sér í starfi eða vera með stór­kost­lega slæ­lega fram­göngu. Und­an­fari er yfir­leitt á þá leið að sett hafi verið fram aðfinnsla við hér­aðs­dóm á störfum við­kom­andi og að Hér­aðs­dómur hafi fall­ist á rétt­mæti aðfinnsl­anna. Ef Hér­aðs­dómur telur að þessar aðfinnslur séu nægi­lega miklar getur dóm­ari sett við­kom­andi af. Þannig að það þarf mikið til, ein­hvers konar klúður í starfi,“ segir Arnar.

Umdeild ákvörðun

Eins og áður hefur komið fram í fjöl­miðlum hefur ákvörðun Símonar Sig­valda­sonar, dóm­stjóra Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, að úthluta þrota­búi WOW air til Sveins Andra og Þor­steins Ein­ars­sonar einnig valdið titr­ingi innan lög­manna­stétt­ar­innar síð­ustu daga. Hver lög­mað­ur­inn á fætur öðrum hefur komið fram í fjöl­miðlum og gagn­rýnt skip­an­ina. Þung orð hafa fallið um ógagn­sæi og spill­ingu innan Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Lög­menn­irnir Kristrún Elsa Harð­ar­dóttir og Saga Ýrr Jóns­dóttir sögðu í Frétta­blað­inu að skipan hans væri und­ar­leg í ljósi þess að hann væri umdeildur vegna fyrri emb­ætt­is­gjörða sem skipta­stjóri yfir öðrum stórum búum. Þar vísa þær til þess að fjögur félög kærðu hann nýlega, m.a. Mjólk­ur­sam­salan og Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands, vegna þrota­bús EK1923.

Áslaug Björg­vins­dótt­ir, lög­maður og fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari, sagði í við­tali á mbl.is að ógagn­sæi ríki hjá dóm­stól­um um skip­an skipta­stjóra og eft­ir­lit dóm­stóla með þeim. Kvart­anir vegna starfa skipta­stjóra ber­ist reglu­lega en ekk­ert sé birt opin­ber­lega um það ef dóm­ur­inn finni að störf­um skipta­stjóra eða víki þeim úr starfi, ólíkt því sem gild­ir um önn­ur mál fyr­ir dóm­stól­um.

Lög­mað­ur­inn Þórður Már Jónsson gengur lengra í færslu á Facebook og sakar Hér­aðs­dóm um að úthluta Sveini bestu bit­unum eftir henti­semi.

„Ég veit ekki hvað maður á að halda um þetta, en ein­hverjir eru farnir að nefna orðið spill­ing. Ég veit ekki hvað ég á að halda per­sónu­lega, en það er ljóst að eitt­hvað er ekki eins og það á að vera. Bara alls ekki. Hvers vegna það er þori ég ekki að segja til um. Það verða aðrir að geta í eyð­urnar með það,“ segir Þórður m.a. í færsl­unni og í Morg­un­út­varpi Rásar 2 sagði hann: „Það er ekk­ert gagn­sæi sem er haft að leið­ar­ljósi við þessar úthlut­anir og skip­anir.“

Símon Sig­valda­son hefur vísað ásök­unum Þórðar á bug í sam­tali við Vísi og sór jafn­framt af sér nokkur tengsl við Svein Andra sem gæfi honum til­efni til þess að hygla honum sér­stak­lega.

Mynd / Kristinn Magn­ús­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð