Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hér er friður eins og ég hef aldrei upplifað áður“

Elín Richter, Sindri Bjarka­son og Amíra Snærós Jabali og skóla­systk­ini þeirra berj­ast nú fyrir því að skóla­systir þeirra, Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar, verði ekki vísað úr landi. Fjöl­skyldan þráir að setj­ast hér að eftir líf á flótta en von hennar um mann­sæm­andi líf fer ört þverr­andi.

„Hér er friður eins og ég hef aldrei upplifað áður“
|||||||

Þegar blaða­mann ber að garði í Haga­skóla eru þar þrjú ung­menni á sínu síð­asta ári við skól­ann. Það er bjart yfir þeim og þau hafa margt að ræða sín á milli enda eru þau þessa dag­ana að velja hvaða fram­halds­skóla þau vilja sækja að grunn­skól­anum loknum. Þetta er um margt fyrsta stóra ákvörð­unin í líf­inu sem er þeirra, ekki síður en for­eldr­anna, en það er líka ákveð­inn skuggi yfir þessu spjalli um bjarta fram­tíð­ar­drauma því þeir eru ekki ætl­aðir öllum skóla­systkin­unum. Ung­mennin eru þau Elín Richter, Sindri Bjarka­son og Amíra Snærós Jabali en öll þrjú hafa þau ásamt fleiri skóla­systk­inum komið að und­ir­skrifta­söfnun og bar­áttu fyrir því að skóla­systur þeirra, Zainab Safari, og fjöl­skyldu hennar, verði ekki vísað úr landi.

Sindri Bjarka­son er meðal þeirra sem eiga sæti í réttinda­ráði Haga­skóla. „Þar er mark­miðið að stuðla að rétt­indum barna og reyna að sjá til þess að íslensk stjórn­völd starfi eftir Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Forsenda und­ir­skrifta­söfn­un­ar­innar er að íslensk stjórn­völd hafa í tvígang hafnað því að taka mál fjöl­skyld­unnar til efn­is­legrar með­ferðar og þar með að skoða mögu­leik­ann á því að þau eigi þess kost að setj­ast að hér á landi. Að halda áfram að ganga hér í skóla, lifa, starfa og verða nýtir þjóð­fé­lags­þegnar. Forsenda höfn­un­ar­innar er að fjöl­skyldan hafi þegar fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi en þar sem málið er ekki tekið til skoð­unar er ekki horft til þess hvaða líf og fram­tíð bíður þeirra þar. Fjöl­skyldan sem um ræðir sam­anstendur af Zainab, Shahnaz, móður hennar, og Amir, tólf ára gömlum bróður hennar, og er eins­dæmi að kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi höfnun á efn­is­legri með­ferð á máli ein­stæðrar móður. Von fjöl­skyld­unnar um mann­sæm­andi líf fer því ört þverr­andi.

Þau eru heppin að fá að búa hérna í þessu landi

Líf á eilífum flótta
Fljót­lega bæt­ist Zainab í hóp­inn og sest hjá skóla­systk­inum sínum sem taka vel á móti henni. Hún virð­ist vera frekar feimin og döpur en það er engu að síður eft­ir­tekt­ar­vert að hinir krakk­arnir virð­ast eiga á ágætt með að ná til hennar og fá hana til þess að brosa. Zainab er afgönsk að upp­runa en hefur þó aldrei búið í sínu stríðs­hrjáða heima­landi, heldur er hún fædd á flótta í Íran árið 2004. Hún bendir reyndar á að eftir þar­lendu tíma­tali sé hún fædd árið 1384.

Amíra Snærós Jabali, Elín Sara Richter, Zainab Safari og Sindri Bjarka­son hittu ljós­mynd­ara og blaða­mann Mannlífs í Haga­skóla. Mynd / Aldís Páls­dóttir

„Þegar ég fædd­ist í Íran voru for­eldrar mínir á flótta undan stríð­inu í Afganistan og þar er enn stríð. Þannig að það er fátt sem bendir til þess að það komi til með að breyt­ast. Við vorum í tólf ár í Íran og Amir bróðir minn er líka fæddur þar en hann er tveimur árum yngri en ég. Lífið í Íran var skelfi­legt og þess vegna ákváðu for­eldrar mínir að leggja á flótta til Evrópu í von um betra líf og ein­hverja fram­tíð, sér­stak­lega fyrir mig og bróður minn.“

Ferðin frá Íran til Evrópu var gríð­ar­lega erfið enda fóru þau fyrst fót­gang­andi frá Norður-Íran eftir erf­iðum vegum og fjal­lendi til Tyrk­lands en þaðan tókst þeim svo að kom­ast með báti til Grikk­lands. Þegar þangað var loks­ins komið tók þó ekk­ert annað við en von­brigði og skelfi­legar aðstæður.
Zainab segir að fyrst eftir að þau komu til Grikk­lands hafi þau verið sett á hót­el­her­bergi en það hafi aðeins varað í nokkra mán­uði á meðan verið var að setja upp flótta­manna­búðir þangað sem þau voru svo flutt í fram­hald­inu. En lífið í flótta­manna­búð­unum reynd­ist vera í alla staði skelfi­legt. „Þetta var ekki gott líf. Það var mikið um drykkju í flótta­manna­búð­unum og var stöðugt verið að slást og berj­ast um alla hluti. Það var ömur­legt.“

Skóla­syst­urnar Zainab Safari og Elín Sara Richter. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Hér á hún gott líf
Á meðan Zainab segir frá hlusta hin ung­mennin af athygli og það leynir sér ekki að þau finna til með henni en á sama tíma er þetta líf eitt­hvað sem er þeim ákaf­lega fram­andi. Aðspurð um hvaða áhrif það hafi á þau að hlusta á sögu skóla­systur sinnar segir Amíra Snærós að óneit­an­lega geri þetta þau döpur. „Það gerir okkur leið að hún hafi þurft að ganga í gegnum þetta og í raun að nokk­urt barn þurfi að þola það sem hún og bróðir hennar hafa mátt þola.“

Und­ar­legt að ein­hverjum finn­ist að við megum ekki hafa okkar skoðun og leggja ein­hverjum lið sem skiptir okkur máli. Það var ekki heldur þannig, eins og ein­hverjir hafa haldið fram, að for­eldrar okkar stýrðu okkur í þessu.

Sindri bætir því við að þó að þau hafi hugsað út í þessi mál áður en þau kynnt­ust Zainab hafi kynnin við hana breytt miklu. „Maður hefur aldrei upp­lifað þetta svona nálægt sér áður en það að heyra svona sögu frá ein­hverjum sem maður er far­inn að þekkja breytir svo ótrú­lega miklu.“
Elín tekur undir þetta og segir að það geri þetta raun­veru­legt. „Svona er þetta komið svo nálægt að það gerir þetta raun­veru­legt og að vanda okkar allra en er ekki bara eitt­hvað sem við sjáum í frétt­unum eða aðrir tala um.“

Aðspurð um hvernig þeim hafi orðið við þegar þau fréttu að Zainab og fjöl­skylda hennar yrðu að öllum lík­indum send aftur til Grikk­lands, stendur ekki á svari hjá Elínu. „Fyrst og fremst urðum við leið og von­svikin vegna þess að hér á hún loks­ins gott líf, ekki síst þegar maður hugsar um allt sem hún hefur þurft að ganga í gegnum og hvað bíður hennar ef hún verður send aftur til Grikk­lands.“

Amíra Snærós bætir við: „Það gerir mig líka þakk­láta fyrir það líf sem ég hef alist upp við þegar maður kynn­ist ein­hverjum sem hefur mátt þola það sem hún hefur mátt þola, og þá langar mann líka til þess að reyna að hjálpa fleirum sem eru í sömu aðstæðum.“

Zainab, móðir hennar og bróðir komu til Íslands síð­ast­liðið haust en faðir hennar er týndur á götum Grikk­lands eftir að hafa glímt við alvar­legt þung­lyndi um skeið en í raun er ekk­ert vitað um afdrif hans. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Okkar réttur og skoð­anir
Zainab, móðir hennar og bróðir komu til Íslands síð­ast­liðið haust en faðir hennar er týndur á götum Grikk­lands eftir að hafa glímt við alvar­legt þung­lyndi um skeið en í raun er ekk­ert vitað um afdrif hans. Þrátt fyrir að sam­kvæmt lögum beri ríkjum að sinna þeim flótta­mönnum sem hafa fengið alþjóð­lega vernd til jafns við eigin þegna er það þó alls ekki raunin í Grikk­landi. Herfi­legt efna­hags­á­stand í land­inu á síð­ustu árum á sinn þátt í því og við slíkar aðstæður blossa oft upp kyn­þátta­for­dómar, skipu­lögð glæp­a­starf­semi með fíkni­efna­sölu og vændi á götum borg­anna og þannig mætti áfram telja.

Þar er mark­miðið að stuðla að rétt­indum barna og reyna að sjá til þess að íslensk stjórn­völd starfi eftir Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ísland er aðili að þessum sátt­mála og á þar af leið­andi að fara alltaf eftir honum.

Stað­reyndin er að þetta eru að öllum lík­indum þær götur og þær aðstæður sem bíða Zainab og fjöl­skyldu hennar verði þau send aftur til Grikk­lands og þess vegna ákváðu sam­nem­endur hennar í Haga­skóla að grípa til sinna ráða. Amíra Snærós segir að það sé ekki boð­legt að leggja á Zainab að hverfa aftur til þessa lífs í Grikk­landi. Sindri og Elín taka undir þetta en bæði eiga þau sæti í réttinda­ráði Haga­skóla. Elín segir að mark­miðið með aðgerðum sé ein­falt. „Við viljum bara halda þeim á Íslandi, til þess að þeim líði vel og að þau séu örugg.“
Sindri bendir á að fyrir þeim sé þetta einmitt hlut­verk réttinda­ráðs­ins. „Þar er mark­miðið að stuðla að rétt­indum barna og reyna að sjá til þess að íslensk stjórn­völd starfi eftir Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ísland er aðili að þessum sátt­mála og á þar af leið­andi að fara alltaf eftir honum.“

Amíra Snærós var ein af þeim sem kom að und­ir­skrifta­söfn­un­unni. Hér eru þær vinon­urnar, hún og Zainab. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Amíra Snærós var ein af þeim sem kom að und­ir­skrifta­söfn­un­unni og hún segir að þau hafi mikið hugsað um hvernig mætti ná til stjórn­valda og fá þau til þess að taka mark á því sem þau voru að koma á fram­færi. „Við ákváðum að gera þetta svona form­lega en ekki bara á Facebook til þess að það leyndi sér ekki að okkur er alvara og við söfn­uðum 6200 und­ir­skriftum.“ Aðspurð um hvað þeim hafi fund­ist um að það hafi borist athuga­semdir við þetta frá ein­hverjum for­eldrum þá stendur ekki á svari: „Við vorum fyrst og fremst von­svikin. Und­ar­legt að ein­hverjum finn­ist að við megum ekki hafa okkar skoðun og leggja ein­hverjum lið sem skiptir okkur máli. Það var ekki heldur þannig, eins og ein­hverjir hafa haldið fram, að for­eldrar okkar stýrðu okkur í þessu. Það var alls ekki þannig. Við erum alveg með okkar skoð­anir og getum komið þeim á fram­færi sjálf.”

Gott fyrir alla
Á meðan krakk­arnir segja frá bar­áttu sinni fyrir Zainab horfir hún þögul í gaupnir sér og lætur lítið fyrir sér fara. Aðspurð um hvað henni finn­ist um Ísland og það sem á daga hennar hefur drifið síðan hún kom hingað í sept­em­ber segir hún að hér hafi henni strax liðið vel. „Hér er friður. Friður eins og ég hef aldrei upp­lifað áður. Mér finnst líka vera fal­legt hérna og að fólkið sé ham­ingju­samt vegna þess að það brosir og er vina­legt.

Það er eflaust fínt að koma til Grikk­lands sem ferða­maður og skoða landið, eiga pen­inga og vera að ferð­ast, en það er ekki það sem bíður okkar. Það Grikk­land sem bíður okkar er allt annað og þar er ekki gott að búa.

Það er svo margt sem er öðru­vísi en það sem ég hef átt að venj­ast hingað til. Eins og þegar ég kom í skól­ann fannst mér skrítið að hér væri kenn­ari fyrir hvert og eitt fag. Einn kenn­ari kom og kenndi ensku, annar stærð­fræði o.s.frv. Það hef ég aldrei upp­lifað áður. Í Íran og á Grikk­landi var alltaf bara einn kenn­ari sem kenndi allt, en við bróðir minn fengum reyndar ekki að vera í skóla í Grikk­landi nema í nokkra mán­uði.“

Aðspurð um íslensku krakk­ana stendur ekki á svari. „Þau eru góð,“ og svo hlæja þau öll eins og að annað svar hefði verið úti­lokað. „Ég var auð­vitað feimin við þau fyrst en mér hefur verið vel tekið. Þau eru heppin að fá að búa hérna í þessu landi, finnst mér.“

„Hvað getum við gert? Hvað getum við ekki gert?“ svara þau nán­ast einum rómi og það leynir sér ekki að þau hafa langt frá því lagt árar í bát í bar­átt­unni fyrir Zainab. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Við þetta berst talið að því að sumir hafi haft á orði að Íslend­ingar geti ein­fald­lega ekki tekið við öllum sem hingað leita og þess vegna séu hæl­is­leit­endur sendir aftur burt. Að Íslend­ingar geti ein­fald­lega ekki tekið að sér að bjarga öllum en um það hefur Sindri sitt­hvað að segja. „Ég held að við getum í fyrsta lagi tekið á móti miklu fleirum en við gerum núna. Það er eitt að taka ekki við flótta­mönnum en annað að senda þá úr landi eftir að þeir hafa dvalið hér í nokkurn tíma og þá jafn­vel gengið hér í skóla og eign­ast eitt­hvað líf eins og Zainab.“ Skóla­systur hans taka undir þetta og minna á að þetta hljóti að horfa öðru­vísi við þegar um börn er að ræða. Þau eru líka öll sam­mála um það að stjórn­völd þurfi að standa sig miklu betur. „Við þurfum að koma betur fram við þá sem vilja, nei, ég meina neyð­ast, til þess að koma til Íslands og vilja eiga hér frið­sam­legt líf. Við þurfum líka að leyfa fólki að vinna og bæta þannig sinn eigin hag og okkar sem sam­fé­lags. Það er gott fyrir alla.“

Að eiga sér fram­tíð eða ekki
En hvað getið þið gert fleira til þess að leggja ykkar af mörkum? „Hvað getum við gert? Hvað getum við ekki gert?“ svara þau nán­ast einum rómi og það leynir sér ekki að þau hafa langt frá því lagt árar í bát í bar­átt­unni fyrir Zainab.

Aðspurð um hvort þau telji að það sé hlustað á það sem þau hafi fram að færa segja þau að það sé vissu­lega tekið eftir þeim ef eitt­hvað er að marka fjöl­miðla, en eins og Sindri segir „á svo eftir að koma í ljós hvort það er hlustað af þeim sem ráða.“ Elín tekur undir þetta og minnir á að það sé dap­ur­legt að hugsa til þess að Zainab verði kannski send í burtu með skömmum fyr­ir­vara og sé þá allt í einu komin á göt­una í Grikk­landi. „Það er ömur­legt og á ekki að þurfa að ger­ast.“

Amíra Snærós og Zainab í Haga­skóla. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Zainab segir að óneit­an­lega sé hún hrædd við það sem ger­ist næst. „Ef við verðum send aftur til Grikk­lands eigum við okkur ekk­ert líf. Þar eigum við enga fram­tíð. Það er eflaust fínt að koma til Grikk­lands sem ferða­maður og skoða landið, eiga pen­inga og vera að ferð­ast, en það er ekki það sem bíður okkar. Það Grikk­land sem bíður okkar er allt annað og þar er ekki gott að búa.“
Zainab segir að stuðn­ingur skóla­systk­in­anna hafi glatt hana mikið. „Þetta gerir mig ham­ingju­sama. Það er gott að finna stuðn­ing og að allt þetta fólk reynir að hjálpa til. Núna vona ég bara að ég og mamma og bróðir minn fáum að vera hérna áfram og eign­ast fram­tíð. Það er draum­ur­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina