Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég vissi ekki betur en ég væri bólusettur“

Eiríkur Brynj­ólfs­son var í fríi á Fil­ipps­eyjum þegar hann smit­að­ist af misl­ingum. Óaf­vit­andi um smitið flaug hann heim, kom til lands­ins með vél Icelandair þann 14. febr­úar og fór til Egils­staða með Air Iceland Connect dag­inn eftir. Nokkrir af sam­far­þegum hans smit­uð­ust. Hann seg­ist ekki geta áfellst sjálfan sig enda hafi hann talið sig bólu­settan og veltir fyrir sér hvað hafi mis­farist þegar hann átti með réttu að fá þessar sprautur.

„Ég vissi ekki betur en ég væri bólusettur“

„Ég var í fríi á Fil­ipps­eyjum í tæpan mánuð, fór þangað til þess að hitta nýja fjöl­skyldu, dvaldi einkum í Manila en fór í þónokkrar ferðir út frá borg­inni,“ segir Eiríkur Brynj­ólfs­son en hann veikt­ist af misl­ingum í ferð­inni. Eins og fram kemur í inn­gangi ferð­að­ist Eiríkur heim til Egils­staða með Icelandair og síðan Air Iceland Connect um miðjan síð­asta mánuð og í kjöl­farið smit­uð­ust fleiri ein­stak­lingar af þessum stór­vara­sama sjúk­dómi. Heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa brugð­ist við meðal ann­ars með því að auka til muna aðgengi að bólu­setn­ingum og hvetja fólk til þess að kanna hvort það sé bólu­sett eða ekki.

Máttlaus með blússandi hita

Eiríkur segir að hann hafi ekki kennt sér nokk­urs meins þann tíma sem hann dvaldi á Fil­ipps­eyjum og hann hafi því ótví­rætt ekki smit­ast fyrr en rétt áður en hann fór heim.

„Það var ekki fyrr en ég var á leið­inni heim sem ég fór að finna fyrir slapp­leika, en það er mik­il­vægt fyrir fólk að hafa í huga að maður finnur ekki fyrir ein­kennum á meðan maður er smit­beri, en þá byrjar þetta sem svona frekar mein­leys­is­legir vind­verkir. Það var reyndar svona öllu meira en maður á venj­ast, en ég fann að ég var ekk­ert voða­lega hress, án þess þó að vera eitt­hvað óskap­lega veikur. Daginn eftir að ég kom til Íslands var ég þó orð­inn enn slapp­ari en grun­aði ekki annað en að ég hefði náð mér í ein­hverja smá­flensu, enda hafði ég heyrt að það væri ein slík í umferð.“

Mér fannst ég satt best að segja vera alveg að drep­ast.

Eiríkur rifjar upp að það hafi svo ekki verið fyrr en dag­inn eftir að hann kom heim til Egils­staða sem hafi farið að bera aðeins á útbrotum. „Ég tók fyrst eftir þessu á hönd­unum á mér, fann að ég var orð­inn ansi veikur, enda treysti ég mér ekki lengur til þess að fara út úr húsi. Daginn eftir var ég svo orð­inn enn veik­ari og útbrotin farin að fær­ast í auk­ana og þá hætti mér nú aðeins að lít­ast á blik­una. Mér fannst ég satt best að segja vera alveg að drep­ast, var mjög slæmur í mag­anum og staulað­ist á sal­ernið, en lenti svo bölv­uðu basli með að kom­ast aftur til baka inn í rúm. Þannig að ég var orð­inn mjög mátt­laus og með blússandi hita enda mæld­ist ég með fjöru­tíu og eins stigs hita sem er víst ansi mikið fyrir full­orð­inn mann.“

Eiríkur var greindur með misl­inga á sjúkra­hús­inu á Norð­firði og var þá strax lát­inn fara suður í ein­angrun. Eftir að búið var að senda hann heim komu upp fylgi­kvillar og hann boð­aður rak­leiðis suður aftur.

Súrefnisgjöf og einangrun

Eiríkur segir að hann hafi í þessu eymd­ar­lega ástandi haft sam­band við sína fyrr­ver­andi, enda séu þau góðir vinir, og beðið hana um að kaupa inn fyrir sig þar sem hann treysti sér ekki út úr húsi og allt tómt á heim­il­inu eftir langa fjar­veru.

„Þegar hún kom vorum við svo sam­mála um að það væri best að ég færi til læknis sem ég og gerði. Lækn­ir­inn hlust­aði mig og setti mig svo strax í súr­efni, enda var ég far­inn að anda asna­lega, því súr­efn­is­upp­takan var lítil og ég far­inn að líta út eins og lík. Lækn­ir­inn var fyrst viss um að ég væri með lungna­bólgu og sendi mig með sjúkra­bíl á sjúkra­húsið í Nes­kaup­stað en grein­ingin var þá ekki komin á hreint. Þegar komið var í Nes­kaup­stað voru lækn­arnir greini­lega aðeins farnir að átta sig á stöð­unni og þar var ég strax settur í ein­angrun.

Fljót­lega vað þeim ljóst að þetta væru mögu­lega misl­ingar og þá var strax ákveðið að senda mig suður á sjúkra­hús, því ein­angr­un­ar­að­staðan er ekki nægi­lega góð fyrir austan. Þannig að mér var skutlað aftur út í sjúkra­bíl sem brun­aði með mig upp á Egils­staði þar sem mér var komið í sjúkra­flug suður. Þetta var bölvað vesen, maður var búinn að vera á þessu mikla ferða­lagi og þurfti svo að halda áfram að ferð­ast og það alveg fár­veikur,“ segir Eiríkur og hlær nú aðeins við til­hugs­un­ina þar sem þetta er um garð gengið.

Var ekki bólusettur

Eiríkur lá á sjúkra­húsi í Reykja­vík í tæpa viku og hann segir að sjúk­dóms­grein­ingin hafi óneit­an­lega komið honum á óvart.

„Ég bjóst satt best að segja við því að vera bólu­settur fyrir þessu eins og flestir Íslend­ingar. En þegar ég kann­aði þetta kom í ljós að ég var ekki bólu­settur. Ástæðan er sú að þegar ég var lít­ill var pabbi í skóla í Noregi og ég flakk­aði mikið á milli landa, var ýmist hjá honum í Noregi eða mömmu á Íslandi. Við það var eins og þetta hefði mis­farist. En svo veit ég satt best að segja ekki hvort ég var bólu­settur þegar ég var tólf ára eða ekki. Eitthvað virð­ist þetta í hið minnsta hafa verið aðeins laust í reipn­unum á þessum tíma því sumir jafn­aldrar mínir hafa verið bólu­settir við tólf ára ald­ur­inn en ekki allir.“

….þegar ég var lít­ill var pabbi í skóla í Noregi og ég flakk­aði mikið á milli landa, var ýmist hjá honum í Noregi eða mömmu á Íslandi.

Aðspurður um hvernig hann horfi til þess­ara mála í dag segir Eiríkur að það græði eng­inn á því að reyna að finna ein­hvern söku­dólg. „Það kemur engum að gagni. Það er eng­inn betur settur eftir það, heldur verðum við fyrst og fremst að reyna að gera betur.“

Eiríkur segir að sumir þeirra sem standa honum nærri hafi þurft að bregð­ast við og þá einkum þeir sem eiga ung börn. „Það voru nokkrir sem þurftu að fara í sjálf­skip­aða ein­angrun til þess að vera vissir um að vera ekki smit­berar. En málið er líka að þetta er sjúk­dómur sem fæst okkar þekkja í dag og því er fólki eðli­lega brugðið þegar þetta kemur upp.“

Sá allt í móðu

Eins og Eiríkur bendir á þá er ekki til nein lækn­ing við misl­ingum og bólu­setn­ingin því þeim mun mik­il­væg­ari. „Þar sem það er ekki til nein lækn­ing þá fékk ég engin lyf á sjúkra­hús­inu en ég var með vökva í æð vegna þess að lík­am­inn var gjör­sam­lega upp­þorn­aður. Það voru alveg ein­hverjir lítrar sem þurfti að dæla í mig og svo þurfti ég reglu­lega að væta munn­inn því ann­ars lá tungan þarna skrælnuð við góm­inn á mér. Þetta var mjög skrítin reynsla.“

Eftir að Eiríkur hafði dvalið á sjúkra­húsi í tæpa viku og var kom­inn aftur heim til Egils­staða voru veik­indi hans þó enn ekki öll að baki. „Málið er að það er fjöldi eft­irkvilla sem getur fylgt því að fá misl­inga og þeir geta verið alvar­legir. Mér var því sagt að ég yrði að hringja suður ef ég færi að finna fyrir ákveðnum ein­kennum. Þar er einkum verið að horfa til þess að það geta mynd­ast slæmar bólgur í heil­anum.

Það leynir sér ekki að Eiríkur er rólegur að eðl­is­fari og við­ur­kennir að hafa í raun lítið kippt sér upp við misl­inga­smitið. Mynd / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Þegar ég var kom­inn austur var ég enn hálf­slappur eftir öll þessi veik­indi en hélst þó þokka­legur fram á annan dag heima en þá fór ég að sjá allt í móðu. Ég er nær­sýnn, þannig að alla jafna sé ég vel það sem er nálægt mér, en á þessum tíma­punkti var hrein­lega allt í móðu. Það var mjög skrítið að upp­lifa það.

Þannig að ég hringdi og var þá skipað að koma strax suður sem ég og gerði að sjálf­sögðu. En sem betur fer reynd­ist þetta ekki alvar­legt heldur heldur ein­hvers konar skemmd sem getur komið á horn­himn­una í kjöl­far misl­inga. Þannig að ég var sendur aftur heim með augn­dropa og krem og þetta jafn­aði sig á nokkrum dögum.“

Hættan er til staðar

Það leynir sér ekki að Eiríkur er rólegur að eðl­is­fari og við­ur­kennir að hafa í raun lítið kippt sér upp við þetta.

„Nei, ég var nú ósköp rólegur yfir þessu. Var heldur ekki að velta fyrir mér hvað fólk hefur verið að segja á sam­fé­lags­miðlum, það er bara eins og það er. Það verður alltaf til fólk sem er til­búið til þess að kenna öðrum um allt og ekk­ert og það er ekki til neins að vera að fara á hlið­ina yfir þannig umræðu. Mér finnst nær að reyna bara að vera fram­bæri­leg mann­eskja og gera sitt besta.“

Aðspurður seg­ist hann ekki finna fyrir sam­visku­biti yfir því að hafa smitað aðra. „Það er auð­vitað mjög leið­in­legt að heyra um smit­aða ein­stak­linga, sér­stak­lega börn, en ég get ekki áfellst sjálfan mig fyrir það þar sem ég var viss um að ég væri bólu­settur fyrir misl­ingum.“

Hann bendir á að hann hafi áður farið í ferða­lög og þá fengið bólu­setn­ingar fyrir lifr­ar­bólgu og fleiri sjúk­dómum en minn­ist þess ekki að þetta hafi komið til umræðu. „Það getur vel verið að ég hafi verið spurður, sem ég minn­ist ekki, en þá hefði ég örugg­lega sagst vera bólu­settur, því ég stóð í þeirri trú. En þegar maður býr í svona litlu landi og fámennu sam­fé­lagi þá kannski gerir maður ráð fyrir því að við séum öll á sama stað hvað þetta varðar og er ekk­ert að velta þessu fyrir sér. Lifir svona í smá­sjálfs­blekk­ingu með þetta sem er auð­vitað ekki gott.

En svo eru auð­vitað fleiri sjúk­dómar en misl­ingar sem við verðum að hafa í huga. Eins þurfum við að auka vit­und um þessi mál út frá því að hingað sækja sífellt fleiri ferða­menn og það geta auð­vitað borist með þeim sjúk­dómar. Það segir sig sjálft að það hlýtur að auka hætt­una.

En fyrst og fremst finnst mér þó mik­il­vægt að for­eldrar sýni þá ábyrgð að láta bólu­setja börnin sín.

Þessi veik­indi mín eru vissu­lega góð áminn­ing til minnar kyn­slóðar og einnig þeirra sem eldri eru um að fylgj­ast betur með okkur og vera viss um að hafa þessa hluti í lagi. Það eru auð­vitað fleiri en ég sem lifa í þeirri trú að þeir séu bólu­settir en eru það svo í raun ekki. En fyrst og fremst finnst mér þó mik­il­vægt að for­eldrar sýni þá ábyrgð að láta bólu­setja börnin sín því það er eina raun­veru­lega leiðin til þess að stöðva útbreiðslu þess­ara sjúk­dóma.“

Myndir / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi