Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eina spurningin sem ég fékk ekki svar við var: „Hvar er mamma núna?“

Arnar Sveinn Geirsson hefur á síð­ustu miss­erum vakið athygli fyrir skrif um for­eldramissi en sjálfur varð hann fyrir því að missa móður sína aðeins ell­efu ára gam­all.

Eina spurningin sem ég fékk ekki svar við var: „Hvar er mamma núna?“
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Mamma dó í maí árið 2003 eftir í senn langa en snarpa bar­áttu við krabba­mein ef svo má segja. Hún var aldrei lengi á spít­ala eða mikið sjá­an­lega veik þannig að ég man ekki mikið eftir henni mjög veikri, helst svona tvær síð­ustu vik­urnar áður en hún dó. Hún greind­ist fyrst 1993, þegar ég var tveggja ára, af brjóstakrabba og lækn­að­ist af honum en veikt­ist svo aftur 1998 og glímdi við það mein þar til hún féll frá,“ segir Arnar.

Óvissa býr til ótta

Arnar segir að vissu­lega hafi hann verið ungur þegar þetta gerð­ist en svo hafi hann farið að átta sig á því í seinni tíð að börn viti og geri sér meira grein fyrir hvað sé í gangi en aðrir halda. „Auðvitað kunni ég ekk­ert að tjá mig ell­efu ára gam­all eins og á þurfti að halda en ég fann samt leiðir. Maður vissi hvað var að ger­ast, hvað það þýddi að mamma væri dáin sem var auð­vitað gríð­ar­legt áfall.

Það góða var að það var hægt að svara öllum mínum spurn­ingum. Svara því af hverju mamma dó. Hvort allt hafi verið reynt. Hvar hún yrði jörðuð. Og öllum slíkum spurn­ingum sem á mann sækja, nema þess­ari einu stóru: Hvar er mamma núna? Það var ekki hægt að svara þeirri spurn­ingu.

„… það sem gerð­ist hjá mér í þessu er að það var hægt að svara öllum mínum spurn­ingum. Svara því af hverju mamma dó. Hvort allt hafi verið reynt. Hvar hún yrði jörðuð. Og öllum slíkum spurn­ingum sem á mann sækja, nema þess­ari einu stóru: Hvar er mamma núna?“

Einhver sagði að hún væri á himnum, annar að hún væri með englunum eða að hún væri búin að fæð­ast aftur og þannig má áfram telja. Allt í einu fóru sem sagt að koma ólík og óljós svör og við það mynd­að­ist ákveðin óvissa sem síðan byrj­aði að naga mann. Það leiddi til ótta því maður hræð­ist það sem maður ekki veit eða skilur. Þetta bjó það heldur betur til hjá mér og þessi hræðsla við dauð­ann magn­að­ist svo með árunum. En svo kom að því fyrir rúmu ári síðan að ég lenti loks­ins á vegg sem ég gat ekki brotið niður. Þegar sú sjálfs­vinna byrj­aði þá kom ýmis­legt í ljós og margir hlutir urðu skýr­ari en þeir voru áður.“

Setti á mig pressu

Arnar Sveinn segir að hann hafi vissu­lega fengið aðstoð þegar móðir hans féll frá. „Pabbi gerði allt sem honum datt í hug og fór bæði hefð­bundnar og óhefð­bundnar leiðir í þeim efnum. Bara til þess að reyna að finna ein­hverja leið til þess að hjálpa mér því það var svo­lítið skrítið hvað ég var sterkur og glaður þrátt fyrir þetta allt. Það var bara leið sem ég ákvað að fara algjör­lega ómeð­vitað, sá fyrir mér að svona kæm­ist ég í gegnum þetta, af því að ég var ein­fald­lega ekki til­bú­inn á þeim tíma.“

Arnar Sveinn Geirsson hefur vakið athygli fyrir skrif um for­eldramissi.

Aðspurður um hvers vegna Arnar Sveinn hafi svo valið að tjá sig opin­ber­lega um móð­ur­miss­inn segir hann að eftir tíma hjá sál­fræð­ingi í upp­hafi síð­asta árs hafi eitt­hvað gerst.

„Þetta var magn­aður tími. Ég var á ein­hvern hátt til­bú­inn á þessum tíma­punkti og út frá því byrj­aði ég að rekast á alls konar hindr­anir sem ég vissi ekki áður að væru þarna. Hvort sem það var sorg, sökn­uður eða sam­visku­bit. Mér hefur alltaf þótt gott að skrifa um það sem ég hugsa og á gott með koma hugs­unum mínum frá mér í rit­uðu máli. Þannig að ég fór þá leið, þegar ég fór að finna fyrir ákveðnum til­finn­ingum, að ég reyndi að setja þær niður á blað. Fór svo með þessi skrif til sál­fræð­ings­ins og henni fannst þetta það gott að hún bað mig um leyfi til þess að fá að sýna sínum skjól­stæð­ingum þetta en að sjálf­sögðu nafn­laust. Það fannst mér sjálf­sagt og fór þá að hugsa að kannski væru ein­hverjir þarna úti sem væru kannski ekki komnir á þennan stað sem gætu notið góðs af þessu. Svo var það líka keppn­is­mað­ur­inn í mér sem neit­aði alfarið að snúa til baka. Nú væri ég far­inn af stað og með því að gera þetta opin­ber­lega setti ég á mig þá pressu sem til þurfti til þess að halda áfram að fara fram á við.“

Ætlaði að vera glaður og sterkur

Arnar Sveinn bendir á að þetta sé engu að síður veg­ferð sem haldi alltaf áfram. „Þetta er bara lífið. Ekki bara ferð frá a til b og það er eitt­hvað sem ég er alveg búinn að sætta mig við og er í raun ánægður með. Ég er alltaf að fara á nýja og nýja staði og upp­lifa eitt­hvað nýtt. Finna ein­hverjar til­finn­ingar sem ég hef ekki fundið áður. Ef svo kemur að því að ég eign­ist börn þá er ég viss um að þar komi fullt af nýjum stöðum sem muni rifja upp alls­konar minn­ingar og teng­ingar.“

Hann segir að stað­ur­inn sem hann sé á núna sé bara óskap­lega góður miðað við þann sem hann var á fyrir rúmu ári síðan. „Það er hreint ótrú­legt hvað það hefur margt gerst á þessu ári miðað við árin á undan. Það finnst mér alveg magnað, hversu langt maður getur farið á skömmum tíma þegar maður virki­lega leyfir sér það. Gefur sér tæki­færi til þess að vera sá sem maður er en ekki fyrir fram ákveðin per­sóna sem maður hefur ákveðið að vera.

„Ég ætl­aði bara að vera jákvæður, glaður og sterkur, sama hvað, en komst síðan að því á erf­iðan hátt að það er ekki hægt. Það er ekki hægt að velja sér bara það góða.“

Ég ætl­aði bara að vera jákvæður, glaður og sterkur, sama hvað, en komst síðan að því á erf­iðan hátt að það er ekki hægt. Það er ekki hægt að velja sér bara það góða. Til þess að vera ham­ingju­samur, að mínu mati núna í hið minnsta, þarf allt að vera til staður. Þú ert ekki ham­ingju­samur nema að þú verðir líka stundum fúll, reiður eða líði illa. Lífið er bara þannig. Staðan á mér er því þannig að ég er bara góður en á nóg inni.“

Sjá einnig: „ Þetta er ólækn­andi sjúk­dómur og ég vill að mínir nán­ustu geti rætt þetta“

Sjá einnig: „Það er eng­inn sem grípur mann“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi