Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það kom aldrei annað til greina en að gefa henni þetta frelsi“

Ronja Sif Magn­ús­dóttir er átta ára lífs­glöð trans stelpa sem var full­viss um sitt rétta kyn um svipað leyti og hún fór að tala. Hún fékk nýtt nafn þegar hún var fjög­urra ára og hefur blómstrað síðan sem er ekki síst að þakka víð­sýni for­eldr­anna og frá­bærum við­tökum sam­fé­lags­ins í kringum þau. Hindr­an­irnar eru samt æði margar fyrir trans fólk og ein þeirra er þátt­taka þeirra í íþróttum og sundi.

„Það kom aldrei annað til greina en að gefa henni þetta frelsi“
Ronja Sif Magn­ús­dóttir.||

Fjöl­skyldan býr á sveitabæ í Flóa­hreppi. Faðir Ronju, Magnús Bald­urs­son, er vél­virki hjá kæl­ismiðj­unni Frost og móðir hennar, Stefanía Ósk Bene­dikts­dóttir, er leið­bein­andi í leik­skól­anum Krakka­borg. Ronja á tvö systk­ini, Ásdísi Evu, tólf ára, og Sölva Þór, fjög­urra ára, sem er á leik­skól­anum Krakka­borg. Þær systur ganga í Flóa­skóla og Ronja æfir frjálsar íþróttir og glímu með íþrótta­fé­lag­inu Þjótanda.

„Hún æfði fim­leika í fyrra með ung­menna­fé­lagi Stokks­eyrar og henni hefur verið tekið vel hjá báðum félögum. Hún hefur keppt á einu litlu fim­leika­móti og keppti þá með stelp­unum. Hún fer í klefa með stelp­unum og það gerir hún einnig í leik­fimi og sundi í skól­anum. Hún fer inn á sal­ernið í klef­anum til að fara í sund­fötin. Henni finnst það sjálfri best. Eins og er hafa ekki komið upp nein vanda­mál,“ segir Stefanía og er hæstá­nægð með mót­tök­urnar sem Ronja hefur fengið í sam­fé­lag­inu í kringum þau.

Ronja Sif með for­eldrum sínum og systk­inum, Ásdísi Evu, tólf ára, og Sölva Þór, fjög­urra ára. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Hún seg­ist ekki vita hvernig staðan gagn­vart öðru hér­lendu trans íþrótta­fólki sé, telur það geta verið mis­jafnt eftir íþrótta­fé­lögum. „En upp­lifun okkar með allt sem teng­ist Ronju hefur verið góð. Auðvitað á að koma eins fram við alla. Ég ráð­legg for­svars­fólki allra íþrótta­fé­laga að taka trans börnum eins og þau eru, gefa þeim tæki­færi á þeirra for­sendum og útbúa bún­ings­að­stöðu sem þau upp­lifa sig örugg í. Þetta eru bara börn. Ég hef heyrt nei­kvæðar sögur, til dæmis af trans stelpu sem átti ekki að fá að spila með stelp­unum því hún væri svo sterk­lega vaxin.

Það er ósann­gjarnt þegar trans fólki að neitað um þátt­töku í keppnum og íþróttum

Ég á erfitt með að trúa þessu, ég meina, erum við ekki öll mis­jafn­lega vaxin? Ætti að banna strák að keppa í fót­bolta því hann væri of hávax­inn eða of lág­vax­inn? Þetta þarf ekki að vera svona flókið – bara að leyfa öllum að vera eins og þeir eru og æfa íþróttir með þeim sem þá langar til. Við erum of gjörn að setja allt í ein­hver fyr­ir­framá­kveðin hólf. Ronja stundar íþróttir sér til gam­ans og er ekk­ert endi­lega með ein­hverja atvinnu­mennsku í huga núna en ef hún yrði til­neydd að hætta íþrótta­iðkun vegna ein­hverra reglu­gerða myndi henni auð­vitað ekki líða vel. Það er ósann­gjarnt þegar trans fólki að neitað um þátt­töku í keppnum og íþróttum. Og varð­andi til dæmis sund­staði, þar sem sund­menn­ing er mikil hér á landi, þá er málið litlu flókn­ara en að bæta við unisex-klefum. Gera þannig ráð fyrir öllum,“ segir Stefanía og á þar við kyn­hlut­lausa ein­stak­lings­bún­ings­klefa sem eru sums staðar í notkun en þeir hafa til dæmis veitt trans og kynsegin fólki ákveðið skjól bæði gegn árásum og háði. Þessir klefar hafa gert sumu trans fólki, sem ann­ars forð­ast sund, kleift að geta farið þangað á ný.

Við lýstum barn­inu okkar fyrir henni og eftir gott spjall var okkur sagt að hún væri skóla­bók­ar­dæmi um trans stelpu. Við ættum bara að gefa henni frelsi til að vera eins og hún vildi vera.

Frelsi og nýtt nafn eftir fræðslu

Þrjú ár eru síðan Ronja fékk frelsi til að vera stelpa en aðspurð segir Stefanía að Ronja hafi sagst vera stelpa frá því hún fór að tala að ein­hverju viti.

„Um þriggja til fjög­urra ára ald­ur­inn var hún farin að stel­ast í fötin hjá systur sinni, setti buff á höf­uðið til að nota sem sítt hár og vildi nán­ast bara klæð­ast sokka­buxum og stutt­buxum því það virk­aði líkt og hún væri í pilsi. Þegar hún var rúm­lega fjög­urra ára fórum við á fund með for­svars­fólki leik­skól­ans sem vildi ræða hegðun hennar við okkur. Starfs­fólk deild­ar­innar vissi ekki hvernig það átti að svara henni því hún sagð­ist vilja vera stelpa. Það vildi heyra hvernig við svöruðum henni og sam­ræma þannig gerðir okkar allra. En málið var að við vissum heldur ekk­ert hvernig við áttum að tala við hana né hvað við áttum að segja. Við hittum sál­fræð­ing sem benti okkur á að fá fund með Sigríði Birnu Vals­dóttur, ráð­gjafa hjá Sam­tök­unum ´78, sem er sér­hæfð í mál­efnum trans barna og -ung­menna,“ segir Stefanía og þau fengu fund með henni í lok nóv­em­ber 2015. Eftir hann gerð­ust hlut­irnir hratt.

Strax í des­em­ber var hún farin að klæð­ast kjólum og milli jóla og nýárs var hún komin með nýtt nafn.

„Við lýstum barn­inu okkar fyrir henni og eftir gott spjall var okkur sagt að hún væri skóla­bók­ar­dæmi um trans stelpu. Við ættum bara að gefa henni frelsi til að vera eins og hún vildi vera. Við ættum einnig að segja öllum nákomnum frá frels­inu sem við gáfum henni. Tala við starfs­fólk leik­skól­ans og halda for­eldra­fund til að fræða for­eldra deild­ar­innar. Við keyrðum heim úr bænum frekar ringluð enda vorum við ekki alveg viss um hvað trans væri. Auðvitað viljum við börn­unum okkar það besta í heim­inum svo það kom aldrei annað til greina en að gefa henni þetta frelsi. Eftir að hún fékk það gerð­ist allt rosa­lega hratt. Strax í des­em­ber var hún farin að klæð­ast kjólum og milli jóla og nýárs var hún komin með nýtt nafn.“

Gengu í gegnum sorgarferli

Með fram því að sjá stelpuna sína blómstra í nýfengnu frelsi gengu for­eldrar Ronju samt sem áður í gegnum ákveðið sorg­ar­ferli sem Stefanía segir eðli­legt í þessum aðstæðum. „Fyrst fannst mér ég eig­in­lega ekki mega vera sorg­mædd því Ronja var miklu ham­ingju­sam­ari og við höfðum í raun ekk­ert misst. Hluti af fræðsl­unni sem við fengum hjá Sam­tök­unum ´78 var að sorg­ar­ferlið væri eðli­legt og við ættum að leyfa okkur að fara í gegnum það. Við vorum komin með fram­tíð­ar­sýn af strák sem á stuttum tíma var orðin stelpa.“

Eins og fyrr segir tók sam­fé­lagið breyt­ing­unni vel strax frá byrjun. Leik­skól­inn breytti nafn­inu strax í tölvu­kerf­inu, breytti öllum merk­ingum á hólfum og skúffum. Það sama má segja þegar Ronja byrj­aði í skóla – nafn­inu var breytt áður skóla­árið hófst og fræðsla var haldin fyrir starfs­fólkið.

„Þar sem lögin banna Þjóðskrá að breyta nafni milli kynja fyrr en kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli er komið ákveðið langt á veg verðum við að semja við hverja stofnun fyrir sig um nafna­breyt­ingu. Heilsu­gæslu­stöðin hefur til dæmis einnig breytt nafn­inu í kerf­inu þeirra fyrir Ronju. Ég veit ekki hvað liggur að baki þessum lögum en þannig er staðan og ekk­ert sem við getum gert að svo stöddu. Okkur finnst þetta mjög leið­in­legt, það hlýtur að vera hægt að leyfa nafna­breyt­ingu milli kynja með ein­hverjum skil­yrðum, ein­hverjum reglum um að fólk geri þetta ekki enda­laust fram og til baka. Það er ekki gaman fyrir þessa ein­stak­linga að fara til dæmis inn á heil­brigð­is­stofnun og vera kall­aðir upp með sínu gamla nafni, hvað þá að þurfa að hafa sitt gamla nafn í skil­ríkjum á borð við vega­bréf. Það er ein­fald­lega bara sárt fyrir þá,“ segir Stefanía.

Þegar Ronja fer að kom­ast á kyn­þroska­ald­ur­inn þarf hún að fá tíma hjá BUGL (Barna- og ung­linga­geð­deild Land­spít­al­ans) og hitta geð­lækni til að fá sam­þykki fyrir „blockerum“, eins og það kall­ast, sem stoppar kyn­þrosk­ann hennar. „Hún má ekki fara í neina aðgerð fyrr en hún er orðin sjálf­ráða og því alveg tíu ár í að hún megi breyta nafn­inu sínu í Þjóðskrá. Sem er virki­lega langur tími. Þangað til er það undir náð og mis­kunn skóla­yf­ir­valda, hvort hún verður kölluð Ronja í sínum skólum í fram­tíð­inni eða ekki. Til dæmis var hræði­legt að heyra um þegar skóla­yf­ir­völd í Mennta­skólaum við Sund neit­uðu að breyta nafni trans stráks­ins Dalvins Smára Imsland í kerfi sínu. Ein­stak­lingar sem vinna á svona stofn­unum ættu ekki að láta for­dóma bitna á aðilum sem eru ekki innan rammans.“

„Og varð­andi til dæmis sund­staði, þar sem sund­menn­ing er mikil hér á landi, þá er málið litlu flókn­ara en að bæta við unisex-klefum. Gera þannig ráð fyrir öllum.“

Svarar fullum hálsi

Stefanía segir að þau hafi lært mikið á þessum fjórum árum, mest hjá Hugrúnu Vign­is­dóttur sál­fræð­ingi og Sigríði Birnu hjá Sam­tök­unum ´78 sem hafi verið ómet­an­legar í þessu ferli. Einnig þótti þeim afar fróð­legt að sækja ráð­stefn­una Undir regn­bog­anum, ráð­stefnu um mál­efni trans barna á Íslandi sem haldið var í Iðnó í mars á síð­asta ári. „Þar fengum við að heyra í for­eldrum ungrar trans stelpu. Það er alltaf gott að vita að maður er ekki einn í svona stöðu. Einnig heyrðum við sögu ungra trans ein­stak­linga. Þau voru virki­lega hug­rökk að standa fyrir framan fullan sal af fólki og segja sína sögu.“

Flestir ætt­ingjar og vinir fjöl­skyld­unnar brugð­ust vel við frelsi Ronju þótt sumir hafi tekið frétt­unum með tor­tryggni í fyrstu. „Flestir tóku þessu vel og Ronja veitti því litla eft­ir­tekt að ein­hverjir væru ósáttir, ef svo má að orði kom­ast. En ef hún var ein­hvern tím­ann kölluð strákur svar­aði hún fullum hálsi að hún væri stelpa. Stóra systir Ronju, Ásdís Eva, tók þessu ótrú­lega vel. Það eina sem trufl­aði hana í þessu öllu voru áhyggjur af því að Ronju yrði strítt. Ronja hefur alveg lent í ein­hverjum árekstrum í skól­anum en þá fengum við góð ráð hjá Hugrúnu. Hún lét okkur kenna Ronju hvernig væri best að tækla þegar börn rifja upp að hún hafi verið strákur. Ronja ræður þá hvort hún vilji svara eða segja að hún vilji ekki ræða þetta.

For­eldrar mínir voru ekki sátt fyrst þegar við létum þau vita af frels­inu sem við gáfum Ronju. Þeim fannst við ýta undir þetta og við lentum í smárifr­ildi sem varð til þess að engin sam­skipti urðu okkar á milli í níu mán­uði. Þá veikt­ist mamma, fékk krabba­mein í háls, og fór í bráða­að­gerð. Eftir erfitt bata­ferli var hún komin með ventil til að geta tjáð sig. Þarna átt­uðum við okkur á að lífið væri of dýr­mætt til að eyða því í ein­hverja fýlu. For­eldrar mínir fóru að taka Ronju eins og hún er og allt hefur verið gott milli okkar síðan. En það fannst svo aftur krabba­mein hjá mömmu síð­asta vor og hún tap­aði þeirri bar­áttu 14. ágúst 2018.“

Ronja Sif fékk nýtt nafn þegar hún var fjög­urra ára og hefur blómstrað síðan. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Flóahreppur frábær

Þau hjónin hafa bjarta fram­tíð­ar­sýn fyrir Ronju. „Trans börn eru bara eins og öll önnur börn. Þrátt fyrir að ýmsar hindr­anir geti orðið í veg­inum sjáum við fram­tíð Ronju í björtu ljósi. Vissu­lega höfum við ein­hverjar áhyggjur eins og eðli­legt er að for­eldrar hafi af börnum sínum en ekk­ert endi­lega meiri áhyggjur af Ronju en af hinum börn­unum okkar. Munu þau verða fyrir ein­elti? Hvernig mun þeim ganga í skóla? Og svo fram­vegis. Við sjáum ein­stak­lega skap­andi og frjálsa stelpu sem fer sínar eigin leiðir í líf­inu. Hún er virki­lega sterk og ekk­ert stoppar hana í að verða sú mann­ekja sem hún vill verða.

Með því að vera opin um mál­efnið von­umst við til að geta frætt aðra.

Við hjónin erum afskapa­lega ánægð með sam­fé­lagið sem við búum í. Flóa­hreppur er lítið sam­fé­lag og ég held að það sé ástæðan fyrir því að henni var tekið svona vel. Það eru allir vinir og félagar hérna. Ég tel að öll fræðsla sé góð. Fordómar eru ekk­ert annað en fáfræði. Við höfum alltaf verið opin með ferlið sem við gengum í gegnum með Ronju og von­andi hjálpar það öðrum for­eldrum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við tjáum okkur opin­ber­lega. Við höfum einnig sagt sögu okkar á fræðslu­fundum Hugrúnar Vign­is­dóttur og hitt aðra for­eldra í sömu stöðu. Með því að vera opin um mál­efnið von­umst við til að geta frætt aðra. Umræðan og fræðslan er orðin meiri í dag og fólk því opn­ara fyrir öllum ein­stak­lingum hvort sem þeir eru trans, sam­kyn­hneigðir eða eitt­hvað annað. Við vitum ekki hvernig Ronju hefði verið tekið fyrir til dæmis 20 árum síðan. Sjálf tökum við bara einn dag í einu og vinnum úr þeim verk­efnum sem koma upp, þegar þau koma upp og höfum því litlar áhyggjur af fram­tíð­inni. Vonandi verður fólk orðið enn fróð­ara um trans og hnökrarnir færri þegar Ronja verður orðin eldri. Við höfum upp­lifað afar fátt nei­kvætt eða leið­in­legt gagn­vart henni Ronju Sif og fyrir það erum við þakk­lát.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina