Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýr „Hefnandi“ erfðafræðinnar

Nýjar vonir hafa vaknað í kjöl­far upp­ljóstr­unar vís­inda­manna um að þeir hafi fundið nýja aðferð við að gera breyt­ingar á erfða­efni. Þeir segja að mögu­lega verði hægt að lag­færa 89% þeirra 75 þús­und stökk­breyt­inga sem vitað er að leiða til ýmissa sjúk­dóma.

Nýr „Hefnandi“ erfðafræðinnar
„Þetta er augna­blik til að standa upp og klappa.“

Vís­inda­menn hafa fundið leið til að gera nákvæm­ari og örugg­ari breyt­ingar á erfða­efni en áður hefur þekkst. Í um sjö ár hefur verið not­ast við svo­kall­aða CRISPR/Cas9-tækni, sem hefur verið lýst sem skærum sem klippa á kjarn­sýru­keðj­una til að gera til­ætl­aðar breyt­ingar. Sú tækni hefur reynst nokkuð mis­tæk en nýju aðferð­inni, prime edit­ing, hefur verið lýst sem rit­vinnslu­for­riti sem hægt sé að nota til að skipta um eða eyða heilum bútum af DNA eða leið­rétta stakar „staf­setn­ing­ar­villur“ í þeim millj­örðum bók­stafa, eða kirna, sem mynda erfða­mengi manns­ins.

Aðferðin felur í sér að sam­eina tvö ensím, Cas9 og svo­kall­aðan víxl­rita, og „for­rita“ RNA-sam­eind til að beina ens­ímunum á réttan stað. En í raun má segja að hún jafn­ist á við að ýta á Ctrl-F til að finna text­ann sem þú vilt breyta, ýta á Ctrl-C og svo Ctrl-V til að líma inn nýja text­ann, eins og blaða­maður BBC kemst svo skemmti­lega að orði.

Einn vís­inda­mann­anna, dr. David Liu, segir aðferð­ina marka upp­haf fremur en enda, þar sem langur vegur sé fyrir höndum. Tekist hefur að gera 175 breyt­ingar á manns­frumum á til­rauna­stofu, meðal ann­ars breyt­ingar sem fólu í sér við­gerð á genum sem valda sigð­korna­blóð­leysi og Tay-Sachs-sjúk­dómnum. Liu segir vonir standa til að prime edit­ing muni gera mönnum kleift að lag­færa um 89% þeirra 75 þús­und stökk­breyt­inga sem vitað er að leiða til ýmissa sjúk­dóma. Þá er horft til þess að hægt verði að gera breyt­ingar á tauga­frumum sem er ekki hægt með CRISPR-tækn­inni.

Bið í að aðferðinni verði beitt í lækningaskyni

„Þetta er augna­blik til að standa upp og klappa,“ sagði Fyodor Urnov, erfða­verk­fræð­ingur við Uni­versity of California, í sam­tali við NPR. „Fyrir erfða­verk­fræð­inga er þetta dálítið eins og að nýr Avenger hafi gengið til liðs við okkur. Einhver sem býr yfir ofur­kröftum sem þörf er á. Það er ekki nógu djúpt í árina tekið að segja að maður sé spenntur,“ bætti hann við.

Upp­götv­un­inni sem greint var frá í tíma­rit­inu Nature á mánu­dag, var almennt fagnað af vís­inda­sam­fé­lag­inu en menn voru þó á einu máli um að nokkur bið yrði á því að hægt væri að nota aðferð­ina í lækn­inga­skyni. Þá mun hún ekki koma í stað­inn fyrir CRISPR-tækn­ina, þar sem hún er áfram heppi­legri til gera breyt­ingar á stærri hlutum erfða­efn­is­ins. Prime edit­ing mun hins vegar bjóða upp á meiri nákvæmni.

„Ef þú hugsar um CRISPR eins og flug, flug­vél, þá er þessi nýja aðferð eins og þyrla,“ útskýrir Urnov. „Hún flýgur líka og kemur þér frá stað A á stað B. En það eru ákveðnir hlutir, eins og að lenda á Salesforce-turn­inum hér í San Francisco, þar sem þyrla hentar betur en flug­vél.“

Nánar má lesa um málið í nýjasta Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta