Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Fórnarlamb kynþáttafordóma og mansals fær ekki efnismeðferð

Til stendur að vísa ungri konu frá Nígeríu úr landi ásamt sjö mán­aða barni, að öllu óbreyttu. Konan flúði heima­land sitt til að verða ekki neydd í hjóna­band, sætti man­sali á Ítalíu og and­legu og lík­am­legu ofbeldi. Í stefnu gegn rík­inu segir að lög og reglur skyldi íslensk stjórn­völd til að taka ákvarð­anir sem eru barn­inu hennar, ef ekki henni, fyrir bestu.

Fórnarlamb kynþáttafordóma og mansals fær ekki efnismeðferð
Í Nígeríu tíðkast ennþá að þvinga stúlkur í hjóna­band gegn vilja þeirra.

Í gær fór fram aðal­með­ferð í máli ungrar konu gegn íslenska rík­inu til ógild­ingar á úrskurðum kæru­nefndar útlend­inga­mála og ógild­ingar á ákvörð­unum Útlend­inga­stofn­unar. Stjórn­völd hafa neitað að taka umsókn kon­unnar og barns hennar um alþjóð­lega vernd á Íslandi til efn­is­með­ferðar og hyggj­ast vísa þeim úr landi, þrátt fyrir að hún hafi flúið heima­land sitt til að verða ekki þvinguð í hjóna­band og hafa verið seld man­sali á Ítalíu. Barn hennar fædd­ist í maí á þessu ári.

Fram kemur í gögnum máls­ins að konan sem er frá Nígeríu hafi misst for­eldra sína ung og að systk­ini hennar hafi viljað gifta hana sem fyrst. Hún mót­mælti án árang­urs og flúði til Ítalíu en þegar þangað kom var henni tjáð að hún ætti að búa hjá konu sem fylgdi henni leið­ina og vinna fyrir hana til að greiða fyrir. „Var henni skipað að fara út á dag­inn ásamt öðrum stúlkum sem bjuggu hjá kon­unni og stunda vændi á göt­unni,“ segir í stefn­unni. Konan unga hafi ítrekað verið beitt ofbeldi en ef hún reyndi að flýja var vel­ferð fjöl­skyldu hennar í Nígeríu ógnað.

Konan upp­lifði mikla for­dóma vegna húð­litar síns á Ítalíu. Hrækt var á hana og hún grýtt. Þá var hún látin drekka vökva sem átti að koma í veg fyrir þungun. Við lækn­is­skoðun kom í ljós að hún gekk með tví­bura en hún missti annað fóstrið.

„Stefn­andi byggir á því að það sé ekki hags­munum barns­ins fyrir bestu að hún sé end­ur­send ásamt móður sinni til Ítalíu, þar sem við þeim blasir óvissa og óör­yggi, fátækt, kyn­þátta­hatur, for­dómar, ofbeldi og mis­munun.“

Fórnarlamb kynþáttafordóma, mansals og ofbeldis

Í gögnum máls­ins segir einnig að and­leg heilsa kon­unnar sé ekki góð og að ekki hafi verið tekið nægj­an­legt til­lit til þess við máls­með­ferð stjórn­valda. Þar segir að úrskurðir kæru­nefnda útlend­inga­mála og ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar um að senda hana aftur til Ítalíu, þar sem hún er með dval­ar­leyfi til 2021, hafi verið ólög­mætir og ógild­an­legir. Fjöldi regla hafi verið brotnar við með­ferð máls­ins, nið­ur­staðan sé efn­is­lega röng og brotið á grund­vall­ar­mann­rétt­indum kon­unnar og barns­ins.

Ítrekað er að konan sé fórn­ar­lamb kyn­þátta­for­dóma og mansals og að hún hafi orðið fyrir and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Þá muni hún ekki fá nauð­syn­lega aðstoð á Ítalíu, þar sem aðstæður séu veru­lega slæmar, þar sem hún sé ein­stæð móðir af erlendum upp­runa. „Samkvæmt þeim skýrslum sem kæru­nefnd útlend­inga­mála vís­aði til í úrskurði sínum verður ráðið að for­dómar í garð fólks af erlendum upp­runa sé vanda­mál á Ítalíu og hafa ítölsk stjórn­völd verið gagn­rýnd harð­lega vegna aðbún­aðar flótta­manna og umsækj­enda um alþjóð­lega vernd þar í landi,“ segir m.a. í stefn­unni.

Þá er sér­stak­lega vikið að rétt­indum barns­ins en börn telj­ist óum­deil­an­lega ávallt til sér­stak­lega við­kvæms hóps umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. Íslenskum stjórn­völdum sé skylt að hafa ávallt það sem barni er fyrir bestu í for­gangi þegar teknar séu ákvarð­anir um mál­efni þess, sam­kvæmt íslenskum barna­lögum, barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og til­skipun Evr­ópu­þings­ins.

„Stefn­andi byggir á því að það sé ekki hags­munum barns­ins fyrir bestu að hún sé end­ur­send ásamt móður sinni til Ítalíu, þar sem við þeim blasir óvissa og óör­yggi, fátækt, kyn­þátta­hatur, for­dómar, ofbeldi og mis­munun. Stefn­andi og barn hennar verða að öllum lík­indum heim­il­is­laus verði þeim gert að snúa aftur til Ítalíu og óvíst er hvort þær munu hafa aðgang að félags­legri þjón­ustu, heil­brigð­is­kerf­inu og skóla­kerf­inu,“ segir í stefn­unni.

„Stefn­andi byggir á því að það sé ekki hags­munum barns­ins fyrir bestu að hún sé end­ur­send ásamt móður sinni til Ítalíu, þar sem við þeim blasir óvissa og óör­yggi, fátækt, kyn­þátta­hatur, for­dómar, ofbeldi og mis­munun.“

Magnús Davíð Norðdahl

Bjartsýnn á jákvæða niðurstöðu

„Mál umbjóð­anda míns er nú rekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur en nið­ur­stöðu er að vænta fyrir jól. Ég er bjart­sýnn á jákvæða nið­ur­stöðu í mál­inu,“ sagði Magnús Davíð Norðdahl lög­maður, í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Mannlífs.

„Það er ill­skilj­an­legt af hverju mál þetta þurfti að fara fyrir dóm, þar sem aðrir hæl­is­leit­endur í svip­aðri stöðu og umbjóð­andi minn hafa fengið efn­is­með­ferð í sínum málum. Einnig var óskað eftir beiðni um end­ur­upp­töku máls­ins hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála en engin svör hafa enn sem komið er borist þaðan, þrátt fyrir rekstur þessa máls fyrir dómi og að fram­kvæmd brott­vís­unar er yfir­vof­andi. Það er mín skoðun að mál þetta hafi ekki fengið sann­gjarna með­ferð hjá stjórn­völdum og ekki hafi verið tekið til­hlýði­legt til­lit til hags­muna móður og ekki hvað síst barns­ins. Fleiri umbjóð­endur mínir eru í svip­aðri stöðu og eru mál sumra þeirra þegar komin fyrir dóm.“

Í við­tali við Mannlíf sem birt­ist 8. nóv­em­ber sl. sagði Magnús að stjórn­völd sýndu stundum ekki nógu mannúð við með­ferð mála þar sem börn kæmu við sögu. Hann sagði raunar ómann­úð­legt að senda börn aftur til Grikk­lands og Ítalíu, þar sem aðstæður væru jafnslæmar og raun ber vitni. Þessu væri hægt að breyta. „Það er póli­tísk ákvörðun að skil­greina Grikk­land og Ítalíu sem örugg ríki að senda hæl­is­leit­endur til,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco