Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kynþáttafordómar eru að aukast

Þau Pape Mamadou Faye, Árni Sig­ur­geirs­son og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir hafa upp­lifað kyn­þátta­for­dóma á eigin skinni frá blautu barns­beini. Þau eru stöðugt látin finna fyrir því að upp­runi þeirra geri þau frá­brugðin öðrum Íslend­ingum.

Kynþáttafordómar eru að aukast
Pape

Pape, Árni og Sanna eru sam­mála um að hat­urs­orð­ræða og for­dómar séu að aukast og vilja að gripið verði til ráð­staf­ana til að hefta útbreiðslu þeirra sem allra fyrst.

Pape Mamadou Faye

Pape Mamadou Faye flutti til Íslands frá Senegal ell­efu ára gam­all.

Pape hefur und­an­farin ár spilað með Víkingi í Ólafsvík og komst í fréttir fyrr í sumar þegar hann tjáði sig um þau ummæli Björg­vins Stef­áns­sonar, leik­manns KR, að það væri svo stutt í villi­mann­seðlið hjá svarta mann­inum eftir atvik í leik sem Björgvin var að lýsa. Pape segir þau ummæli hafa haft djúp­stæð áhrif á sig, en það sem kannski hafi sært mest hafi verið hve margir voru til­búnir að rétt­læta þau og gera lítið úr þeim.

„Ég varð reiður, ég við­ur­kenni það, og enn reið­ari vegna við­bragð­anna.“

„Ég hef áður farið í svona við­töl og sagt frá minni reynslu,“ segir hann. „Og ég hef upp­lifað að margir trúa mér ekki. Halda því blákalt fram að svona hlutir ger­ist ekki á Íslandi. Mér finnst mjög und­ar­legt að fólk sem aldrei hefur lent í neinu svona taki þá afstöðu, hvers vegna ætti ég að vera að ljúga þessu? Þetta við­horf er svo hættu­legt. Það kom svo vel í ljós í þessu atviki með Björgvin í sumar, það voru nán­ast allir til­búnir til að verja hann og gera lítið úr þessum ummælum, en þetta hafði mikil áhrif á mig og ég átti erfitt með svefn þetta kvöld. Ég varð reiður, ég við­ur­kenni það, og enn reið­ari vegna við­bragð­anna. Það virt­ist öllum finn­ast þetta allt í lagi.“

Árni Sigurgeirsson

Árni Sig­ur­geirs­son var ætt­leiddur frá Indónesíu af íslenskum for­eldrum þegar hann var fjög­urra mán­aða gam­all. Hann hefur aldrei þekkt annað en íslenskt umhverfi, hefur aldrei komið til Indónesíu einu sinni, og segir það því hafa verið nokkuð skondið þegar hrópað var á hann að koma sér heim þegar hann var á gangi á Lauga­veg­inum.

„Ég svar­aði sall­ar­ó­legur að ég væri nú einmitt að drífa mig heim í Garða­bæ­inn,“ segir hann og glottir. „Það þagg­aði mjög snögg­lega niður í þeim sem æpti.“

Spurður um upp­vaxt­ar­árin í Mos­fellsbæ, hvort hann hafi orðið fyrir for­dómum þar sem barn, seg­ist hann auð­vitað hafa fundið fyrir þeim stundum og þá aðal­lega þegar hann var að keppa í hand­bolta.

„Maður var alltaf skil­greindur út frá húð­litnum á vell­inum.“

„Það var eng­inn í mínum árgangi ætt­leiddur,“ segir hann. „Enda var það ekki orðið algengt á þeim tíma. Ég var eini brúni strák­ur­inn í bekknum og á þeim tíma gerði ég mér enga grein fyrir því hvað for­dómar voru, en það kom fyrir að maður varð fyrir ein­hverju for­dóma­tengdu aðkasti. Ég var mikið í íþróttum og alltaf einn af hópnum en þegar kom að keppn­is­leikjum í hand­bolt­anum var maður oft kall­aður ýmsum nöfnum, bæði af krökkum í hinum lið­unum og for­eldr­unum á lín­unni. Það var reyndar tekið fyrir þetta á end­anum en það var þó nokkuð algengt að leik­menn hins liðs­ins væru hvattir af áhorf­endum til að „taka svarta blett­inn úr umferð“ og svo fram­vegis. Maður var alltaf skil­greindur út frá húð­litnum á vell­inum. Sem betur fer voru þjálf­arar og aðrir for­eldrar fljótir að bregð­ast við og þetta varð smám saman minna áber­andi.“

Sanna Magdalena Mörtudóttir

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi fór ung að verða fyrir kyn­þátta­for­dómum sem hún segir að hafi aðal­lega verið í formi for­vitni en hún hafi ekki séð það þá, hafi áttað sig á því þegar hún líti til baka.

Sanna seg­ist hafa verið svo „heppin“ að hafa ekki orðið fyrir mjög grófum kyn­þátta­for­dómum, en það sé auð­vitað fárán­legt að líta á það sem heppni.

„Ég hef ekki orðið fyrir mjög ljótum eða ofbeld­is­fullum for­dómum,“ útskýrir hún. „Það var kallað á eftir mér „hey, negri, ég skeit á þig áðan,“ og svona komment, en aðal­lega er þetta for­vitni, fólk spyr hvaðan ég sé, hvort ég sé ætt­leidd, furðar sig á því hvað ég tali góða íslensku og alls konar svona spurn­ingar, jafn­vel frá ókunn­ugu fólki.

Ég hef alltaf litið svo á að ég hafi verið heppin, en ég er auð­vitað farin að sjá það núna að það segir mikið um ástandið í þessum málum að líta á það sem heppni að verða ekki fyrir ofbeldi vegna lit­ar­haft míns.“

Lestu viðtölin í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Förðun / Emil­í­anna Valdi­mars­dóttir förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ