Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Vaktirnar, það er ekkert hægt að toppa þær“

Pétur Jóhann Sig­fús­son hefur skemmt lands­mönnum opin­ber­lega 20 ár, eða allt frá því að hann var val­inn fyndn­asti maður Íslands 1999. Pétur segir verk­efnin hafa komið fyr­ir­hafn­ar­laust upp í hend­urnar á honum og ára­tug­ina tvo hafa flogið áfram. Hann segir það trufla sig lítið að vera lands­þekktur og er þakk­látur fyrir hlut­verk sitt, bæði í leik og starfi.

„Vaktirnar, það er ekkert hægt að toppa þær“
Pétur Jóhann Sig­fús­son

„Tíminn hefur flogið áfram og margt búið að ger­ast á þessum tíma,“ segir Pétur sem und­ir­býr þessa dag­ana uppi­stand þar sem hann mun líta yfir fer­il­inn, hlut­verkin sem hann hefur skapað og einka­lífið.

Pétur mun standa einn á svið­inu. „Ég ætla bara að vera einn, ætla að horfa yfir far­inn veg og drepa niður fæti hér og þar á ferl­inum. Reyndar fer ég óhjá­kvæmi­lega lengra aftur í tím­ann, af því maður er búinn að reyna að remb­ast við að vera fynd­inn og það hafa skap­ast margar aðstæður í gegnum tíð­ina sem gaman er að staldra við og rýna aðeins í.“

Pétur er fæddur á Sauð­ár­króki 21. apríl 1972 og þegar hann var ungur að árum skildu for­eldrar hans. „Ég var mjög ungur og man í raun ekk­ert eftir því eða hvað ég var nákvæm­lega gam­all, þetta er snúið,“ segir Pétur, sem rifjar þó upp að hann flutti með móður sinni, stjúp­föður og bróður í Vest­ur­bæ­inn og byrj­aði í sex ára bekk í Ísaks­skóla.

„Svo flutti ég í Garðabæ og var öll mín upp­eld­isár í Garðabæ. Ég gerði til­raun við Fjöl­brauta­skóla Garða­bæjar, en hætti svo bara þegar ég var búinn að slugs­ast þar í fjórar annir.“

Pétur á þrjá albræður og þegar for­eldrar hans skildu var hópnum skipt í tvennt, tveir fylgdu móð­ur­inni og tveir föð­urnum til Vopna­fjarðar, þar sem faðir hans var prestur í mörg ár.

„Ein­hverra hluta vegna þá bara var þetta svona. Eftir því sem árin liðu og við urðum eldri þá fórum við að stjórna sam­skipt­unum sjálfir og þau eru tölu­vert mikil í dag,“ segir Pétur en tvö systk­ini til við­bótar bætt­ust í hóp­inn. „Ég á fjóra bræður og eina systur, það er best að gleyma ekki neinum,“ segir hann og telur á fingrum sér.

Mynd / Hallur Karlsson

Bóknámið vék fyrir bílaáhuga

Pétur er ekki mennt­aður og lauk ekki stúd­ents­prófi. „Eftir fjórar annir í slugsi í Fjöl­braut kom ég út með 40 ein­ingar sem tald­ist nú ekki mikið.“ En hvað var það sem tafði hann svona frá nám­inu? „Ég var voða mik­ill bíla­kall og er enn þá og fannst mik­il­væg­ara á þessum árum að eiga flottan bíl, GTI-bíl eða eitt­hvað og þetta ein­hvern veg­inn yfir­tók námið þannig að bíl­arnir urðu alltaf fleiri og fleiri og dýr­ari og dýr­ari og það þurfti að borga meira af þeim. Þannig að ég þurfti alltaf að vinna meira og meira sem end­aði með því að ég þurfti að fara út á vinnu­mark­að­inn sem ég bara gerði og fór að vinna við hitt og þetta.“

Fyrsta alvöru­starfið var vinna við skreið í Hafn­ar­firði, en hann seg­ist nú ekki hafa tollað lengi þar. Eftir vinnu við stand­setn­ingu bíla hjá Heklu bíla­um­boði, lá leið Péturs í BYKO í Hafn­ar­firði og þar var hann í næstum átta ár, þar til hann sló í gegn sem fyndn­asti maður lands­ins og nýr atvinnu­fer­ill hófst. „Ég byrj­aði í timb­ur­söl­unni í ein­hver ár, fór svo í búð­ina, og þegar upp var staðið var ég búinn að vera í næstum öllum deildum,“ segir Pétur, sem lík­lega hefði aldrei hætt í BYKO, hefði vinur hans ekki skráð hann í keppn­ina um Fyndn­asta mann Íslands.

En af hverju taldi vin­ur­inn þig eiga heima í þeirri keppni? „Alltaf þegar við vin­irnir hitt­umst þá var ég að remb­ast og reyna að vera fynd­inn og ein­hverra hluta vegna lenti ég oft í ein­hverjum skemmti­legum aðstæðum og þeir höfðu gaman af að heyra mig segja frá því sem henti mig í dag­legu lífi. Ég var alltaf að reyna að gera dag­inn skemmti­legri, stytta dag­inn ef svo má að orði kom­ast, og þeim fannst ég bara góður sögu­maður og uppi­stand á þessum árum var í ein­hverri upp­sveiflu. Við horfðum mikið á uppi­stand og grín og grín­myndir og ein­hverjum þeirra fannst greini­lega að ég ætti heima í keppn­inni. Ég sjálfur á ekk­ert allt of oft frum­kvæðið þannig að þeir tóku fram fyrir hend­urnar á mér í þessu.“

Pétur bætir við að hann hefði lík­lega aldrei skráð sig sjálfur en þegar sím­talið kom frá skipu­leggj­endum keppn­innar þá ákvað hann að kýla á þetta og taka þátt.

Pétur Jóhann Sig­fús­son hefur skemmt lands­mönnum opin­ber­lega 20 ár.

Hitað upp fyrir fyrrverandi nörd

Keppnin sam­an­stóð af und­an­úr­slita­kvöldum og í dóm­nefnd sat meðal ann­ars Jón Gnarr, sem á sama tíma var að setja upp sýn­ing­una Ég var einu sinni nörd, í Loft­kast­al­anum. „Eftir að hafa séð mig á und­an­úr­slita­kvöld­inu þá bað hann mig um að hita upp fyrir sig. Þarna var ég bara starfs­maður í bygg­inga­vöru­verslun en honum fannst það auka­at­riði og mér fannst þetta rosa­lega mikil upp­hefð.“

Svo fór að sýn­ing­arnar urðu 40-50 tals­ins og hit­aði Pétur upp á þeim öllum. „Það var rosagaman, mér fannst það gríð­ar­lega spenn­andi að fá að vera í kringum þennan mann, enda var ég búinn að hlusta á Tvíhöfða í mörg mörg ár.“

Í jan­úar 2000 voru Tvíhöfði, Jón Gnarr og Sigurjón Kjart­ans­son, að opna eigin útvarps­stöð, Radíó, og fengu þeir Pétur í lið með sér. „Þeir máttu gera það sem þeir vildu og fengu mig til að vera með útvarps­þætti. Þar sem ég kunni ekki á neina takka þá fengu þeir tækni­mann með mér, Þórð Helga Þórð­ar­son, Dodda litla, og við vorum saman í fjögur og hálft ár með þátt alla virka daga frá klukkan 15-19.“

„Alla vega einu sinni leit út fyrir að ég væri að fara að lenda undir hnífnum“

Náði að tala yfirmann frá uppsögn

Pétur rifj­aði upp nýlega í við­tali á útvarps­stöð­inni K100 síma­hrekk sem hann gerði Jóni Axel Ólafs­syni, þáver­andi yfir­manni hans hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu, en Pétur var fast­ráð­inn þar 1999. Varð Jón Axel svo pirr­aður þá yfir hrekknum að hann sagði Pétur ekk­ert þurfa að mæta oftar, hann væri rek­inn. Pétur mætti hins vegar gal­vaskur dag­inn eftir. En var hann rek­inn oftar en einu sinni og var hann ein­hvern tíma rek­inn í alvöru?

„Þessi skemmt­ana- og fjöl­miðla­bransi hefur alltaf verið þannig að þú veist í raun­inni aldrei hvenær þú lendir undir hnífnum og það var alla vega einu sinni sem leit út fyrir að ég væri að lenda undir hnífnum. Ég man mjög vel eftir þessu þar sem Jón Axel var með upp­sagn­ar­papp­írana til­búna á borð­inu. Ég náði að telja hann ofan af upp­sögn­inni því ég var sann­færður um að þó að félagið vildi ekki hafa mig í útvarpi, þá væri örugg­lega hægt að nýta mig í annað,“ segir Pétur en þaðan lá leið hans yfir á sjón­varps­skjái allra lands­manna.

„Ég, Sigurjón og Jón, Auddi og Sveppi, vorum allir undir sama hatti hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu. Auddi og Sveppi voru búnir að vera í dágóðan tíma tveir með þætt­ina 70 mín­útur og vildu fá þriðja mann­inn með sér. Það var Auddi sem var sann­færður um að ég væri sá maður, ég kom fyrst sem gestur og á end­anum var ég kom­inn með þeim í þætt­ina.“

Áður en það gerð­ist voru fimm­menn­ing­arnir búnir að skrifa saman fyrri þátta­röð Svína­súp­unnar, sem er leikin sketsa­sería. „Þetta var árið 2003-2004, ég man þetta ekki nógu vel,“ hvíslar Pétur um leið og hann hallar sér fram.

En þarna varstu orð­inn rúm­lega þrí­tugur, hvernig var að vera full­orð­inn maður í fífla­gangi og gríni alla daga?

„Já þetta er góð spurn­ing vegna þess að ég þurfti alveg oft að harka af mér. Auddi og Sveppi voru eitt­hvað yngri en ég og mér fannst alveg margt af því sem við vorum að gera mjög erfitt. Við vorum að gera fárán­lega hluti, fara í Kringl­una með falda mynda­vél, taka áskor­anir, drekka ógeðis­drykki og það tók mig alveg langan tíma að finna takt­inn í þessu. Margt af því sem við vorum að gera var alveg stjarn­fræði­legt: drekka fleiri lítra af vatni og pissa á sig stand­andi á höndum og fara í gegnum bíla­þvotta­stöð á sund­bol, bara svo við tökum tvö dæmi. Mér fannst margt af þessu bara virki­lega erfitt en þeir kýldu þetta áfram. Við þurftum að fylla 70 mín­útna þátt á hverju kvöldi þannig að það var eng­inn tími til að staldra við og spá og spek­úlera.“

Kom aldrei upp sú hugsun hjá þér: Hvað er ég að gera hérna full­orð­inn maður?

„Þeir byrj­uðu mjög snemma nátt­úr­lega að keyra á: „þú ert bara gam­all maður, það er fyndið,  þú ert svo asna­legur,“ og við geng­umst bara upp í því. Ég öðl­að­ist ómet­an­legan vin­skap í þessum strákum, við erum allir góðir vinir og heyr­umst á hverjum degi enn þann dag í dag. Sama með Jón Gnarr, það er maður sem ég heyri mjög oft í.“

Pétur segir verk­efnin hafa komið fyr­ir­hafn­ar­laust upp í hend­urnar á honum og ára­tug­ina tvo hafa flogið áfram.

Vaktirnar verða að veruleika

Eftir aðra þátta­röð af Svína­súp­unni með fram þátt­unum 70 mín­útur, kynnti Helga Rós Hannah, bún­inga­hönn­uður þátt­anna, Pétur fyrir mann­inum sínum, Ragnari Braga­syni leik­stjóra, sem fékk Pétur til að leika í tveimur þátta­röðum af Stelp­unum, sem einnig voru sket­sa­þættir.

„Ragnar fór að segja mér frá þess­ari hug­mynd, bens­ín­stöðva­hug­mynd, sem hann og Jón Gnarr voru að spá í löngu löngu áður. Stöð 2 féllst á fram­leiðsl­una og ég, Ragnar, Jón Gnarr og Jóhann Ævar Grímsson hand­rits­höf­undur komum inn, ásamt Jörundi Ragn­ars­syni. Við skrif­uðum Næt­ur­vakt­ina í byrjun árs 2007 og í kjöl­farið Fanga­vakt­ina, Dag­vakt­ina og síðan kvik­mynd­ina Bjarn­freð­ar­son. Það tók alveg þrjá, fjóra, fimm þætti fyrir áhorf­endur að kveikja á Næt­ur­vakt­inni, grínið er svona hægt tempó.“

Eftir Vakt­irnar tóku við fleiri þátt­araðir: Hlemma­vídeó, Heimsendir, Borg­ar­stjór­inn, Hreinn Skjöldur, svo nokkrar séu nefndar, auk bíó­mynda: Astrópía með Sveppa og Ragn­hildi Stein­unni, Stóra planið þar sem voru fanta­leik­arar eins og Benedikt Erlings­son, Eggert Þor­leifs­son, Ingvar E. Sig­urðs­son og Hilmir Snær Guðnason. „Þegar ég horfi til baka er list­inn nán­ast enda­laust og þetta hafa verið því­lík for­rétt­indi að vinna að öllum þessum verk­efnum og með öllu þessu fólki,“ segir Pétur og aðspurður um hvað standi upp úr, hikar hann ekki á svari: „Það eru nátt­úr­lega Vakt­irnar, það er ekk­ert hægt að toppa þær.“

Með fram þessu öllu hefur Pétur tekið að sér veislu­stjórn og uppi­stand. „Það hefur verið ríkur þáttur með öllu öðru og ég hef verið mikið í því allt frá því ég varð fyndn­asti maður Íslands 1999.“

Hann segir draum hafa orðið að veru­leika þegar hann skrif­aði Svína­súp­una á sínum tíma. „Að fá að skrifa, leika og fara í bún­ing, þetta var allt svo fram­andi og svo sturlað fyrir svona gaur eins og mig sem var alltaf búinn að vera með þessa löngun í koll­inum og í mag­anum. Gaur sem var búinn að reyna við Leik­list­ar­skól­ann, gaur sem var alltaf eitt­hvað að gösl­ast.“

Þegar Pétur starf­aði í BYKO sótti hann um að kom­ast í Leik­list­ar­skól­ann en fékk höfnun. „Ég var svo viss um að ég ætti heima þarna og það væri bara forms­at­riði fyrir mig að sækja um. Mér fannst að þeir hefðu bara átt að hringja í mig og bjóða mér inn en að sjálf­sögðu er stað­reyndin önnur og þetta var og er nátt­úr­lega bara strembið nám. Ég er enn í dag viss um að það hefði hjálpað mér að ein­hverju leyti að fara í gegnum námið en ég veit það auð­vitað ekki þar sem ég komst ekki inn og reyndi aldrei aftur. Ég varð kannski að ein­hverju leyti fúll að kom­ast ekki inn og fór í svona kuð­ung.“

Þrátt fyrir að löng­unin til að leika og skemmta hafi kraumað í Pétri strax í Fjöl­braut gekk hann hvorki í leik­list­ar­klúbb­inn né kvik­mynda­klúbb­inn og seg­ist lítið hafa tranað sér fram í skóla. „Ég var ekki þessi athygl­is­sjúki gæi sem þurfti ein­hvern veg­inn að láta vita af sér, ég var ekki beint sú týpa, en samt var alltaf stutt í fífla­gang­inn.“

Hann tók samt þátt í flestu, var í hand­bolta og fót­bolta til 12-13 ára ald­urs, átti marga vini og seg­ist aldrei hafa verið útundan eða strítt, en á sama tíma furð­uðu kenn­arar hans sig á hvar hann væri. „Kenn­ar­arnir sögðu alltaf við mömmu: „hann er að horfa á mig, hann er að horfa á töfl­una, en hann er ein­hvers staðar ann­ars staðar. Hann er svo prúður og góður, aldrei að trufla kennsl­una, alltaf eins og ljós en það fer ekk­ert inn, hann fær bara 2 og 3 í öllu. Hausinn á mér var eitt­hvað annað að hugsa, ég bara man ekki hvað. Ég yrði 100% greindur með athygl­is­brest í dag, ég væri á öllum töfl­unum. En það fór samt fullt inn, ég er læs og tala fal­lega íslensku og skrifa sæmi­lega, ekk­ert sér­stakur í reikn­ingi samt.“

„Ég hef alltaf verið dálítið mik­ill í kjaft­inum en á ekk­ert endi­lega inni fyrir því“

Fullur á fyrsta uppistandi

Pétur rifjar upp að Steinn Ármann Magn­ús­son, leik­ari, grínisti og Rad­íus­bróðir, hafi verið við­skipta­vinur í BYKO. „Ég var alltaf að reyna að heilla hann upp úr skónum, alltaf eitt­hvað að reyna að hræra í honum og þegar ég horfi til baka var ég örugg­lega hálf­p­irr­andi.“

Í árs pásu frá BYKO, þegar Pétur réði sig í vinnu við að keyra út bjór sá hann aug­lýs­ingu á Kaffi Firði í Hafn­ar­firði um uppi­stand með Steini Ármanni. „Og ég kastaði fram við eig­anda stað­ar­ins: „Á ég ekki bara að koma og hita upp fyrir hann?“ sem er svona ekta ég. Ég var oft, og hef alltaf verið, dálítið mik­ill í kjaft­inum en á ekk­ert endi­lega inni fyrir því.“ En eig­and­inn tók mig á orð­inu þannig að ég mætti og fékk mér nokkra bjóra þar sem ég var svo stress­aður. Og þetta var bara alveg hrika­legt, því ég fékk mér aðeins of marga og hélt að það myndi hjálpa mér sem það gerði ekki. Steinn Ármann reyndi að passa mig, enda eldri og gáf­aðri maður og mun reynd­ari í skemmti­brans­anum en ég en í minn­ing­unni var þetta svona ekki mjög vel heppnað.“

Pétur segir það trufla sig lítið að vera lands­þekktur og er þakk­látur fyrir hlut­verk sitt, bæði í leik og starfi.

Sannfærður um að Sigrún væri karlmaður

Pétur er trú­lof­aður Sigrúnu Hall­dórs­dóttur en þau kynnt­ust 2007. „Ég á eftir að gift­ast henni, við þurfum að finna dag­inn í það. Við kynnt­umst á Netinu, þegar Næt­ur­vaktin var nýbyrjuð í sýn­ingu, á Myspace og hún bara sendi mér skila­boð þar hún Sigrún mín,“ segir Pétur og segir þau hafa talað saman þar til að byrja með, langt fram á nætur í marga daga og vikur.

„Ég hélt að Sigrún væri bara ein­hver karl með mynd af konu. Á mynd­unum var hún allt of sæt til að vera eitt­hvað að tékka á mér“

„Ég var svo­lítið tregur, ég treysti ekki Netinu og hélt að Sigrún væri bara ein­hver vöru­bíl­stjóri, eða þú veist, bara ein­hver karl með mynd af konu. Af því á mynd­unum var hún alltof sæt til að vera eitt­hvað að tékka á mér. Og ég var viss um að þetta væri eitt­hvert rugl. En svo kom tíma­punkt­ur­inn þar sem við ákváðum að hitt­ast og hitt­umst í fyrsta skipti bara heima hjá mér í kaffi og svo síðan leiddi bara eitt af öðru. Ég hélt hún væri bara eitt­hvað sturluð í hausnum sko, nei djók! sem við erum nátt­úr­lega öll.“ „Bara mis­mikið,“ skýtur blaða­maður inn í sem Pétur sam­sinnir.

Tólf árum seinna eru þau enn saman og stutt í afmælið þeirra segir Pétur, þann 7. októ­ber. Þau eiga hvort sína dótt­ur­ina úr fyrri sam­böndum, báðar fæddar 1999 með níu daga milli­bili, og saman eiga þau son fæddan 2011. Sigrún er mannauðs­stjóri í Bláa lón­inu og í stabílli vinnu meðan Pétur starfar „út um allt og alls staðar í vinnu hjá sjálfum mér.“

Er kannski sam­bandið svo­lítið þannig líka? „Hún er klett­ur­inn.“

Er hún klett­ur­inn meðan þú ert fiðr­ildið? „Já svo­lítið, samt þýðir nafnið mitt klettur, þannig að ég er örugg­lega að ein­hverju leyti klettur hjá henni, ætli við séum ekki klettur hjá hvort öðru. Hún er nátt­úr­lega óþrjót­andi styrkur og leið­beinir mér alltaf, ég get alltaf leitað til hennar.“

Mynd / Hallur Karlsson

Hvernig finnst krökk­unum að eiga þekktan pabba, til dæmis þegar þið farið að kaupa í mat­inn?

„Þau láta það lítið trufla sig,“ segir Pétur og bætir við að það trufli hann sjálfan ekki heldur. „Í raun­inni ekki, vegna þess að það hefur alltaf verið svo­lít­ill vað­all á mér, ég er gjamm­andi oft. Það er pínu­lít­ill bóndi í mér, það er mín skynjun á sjálfan mig að ég kalli á svolitla athygli. Fyrst þú nefndir mat­vöru­verslun, þá finnst mér til dæmis mjög fyndið að fara fremstur í röð­ina á kass­anum, þó að engum öðrum finn­ist það fyndið, bara til að sjá við­brögð fólks. „Ég er Pétur Jóhann Sig­fús­son, ég er nátt­úr­lega frægur og hlýt því að fara fremst.“

Er lífið alltaf grín, hef­urðu lent í drama eða áföllum? „Nei sem betur fer og ég vil meina að ég sé mjög hepp­inn að því leyti. Ég hef misst afa og ömmur eins og aðrir, en aðrir nákomnir eru á lífi og heil­brigðir. Ég bara minn­ist þess ekki að hafa lent í neinu áfalli.“

Sérðu fyrir þér að vinna við grínið alla ævi eða ertu með plan b, datt þér til dæmis aldrei í hug að verða prestur eins og pabbi þinn?

„Í Fjöl­braut þegar ég var að hugsa um hvað ég ætti að verða leiddi ég hug­ann að ýmsu og alls konar námi. Ég ætl­aði að verða leik­ari og sótti þess vegna um í Leik­list­ar­skól­anum, eins og ég sagði áðan. Mig lang­aði líka til að verða flug­maður, öll tæki og tól hafa alltaf heillað mig; skip, flug­vélar, bátar, bílar, þyrlur, þannig að ég fór í flug­nám sem gekk ekki þar sem þegar upp var staðið þá var flug­tím­inn bara of dýr. Á þessum tíma kost­aði hann 70-80 þús­und kall eða eitt­hvað. Mig hefur alltaf langað í skip­stjórn­ar­rétt­indi, ég er ekki enn þá búinn að haug­ast í það. Prests­nám, ég hugs­aði þangað, sama með gull­smíði. Þrátt fyrir bíla­á­hug­ann þá lang­aði mig ekki í bif­véla­virkjun. Þetta var meira svona: „hvað er töff?“ Mér fannst flug­menn vera töff, ég ætl­aði að vera með sól­gler­augu og verða flug­maður. Svo bara er ég ekki töff sem er ákveð­inn faktor í þessu.“

Mynd / Hallur Karlsson

„Pappírs Pési dúkkar upp hér og þar“

Pétur lék á sínum tíma í aug­lýs­ingum fyrir Hagkaup og í versl­unum stóðu pappa­spjöld af honum og enn þann dag í dag fær hann spurn­ing­una um hvort hann eigi Hagkaup.

„Öllum þessum spjöldum var stolið og þau hafa dúkkað upp víðs vegar um landið, mjög oft þegar ég var með uppi­stand. Ég fór með sýn­ing­una Pétur Jóhann óheflaður um landið og þá voru áhorf­endur stundum að mæta með Pappírs Pésa á sýn­ing­una. Spjöldin leyn­ast öll ein­hvers staðar.“

Pétur seg­ist oft fá spurn­ingar þegar hann sækir son sinn í skól­ann. „Krakk­arnir spyrja mig oft­ast að því hvort ég eigi Hagkaup og hvort ég sé enn að vinna þar og þegar ég svara neit­andi, þá spyrja þeir af hverju ég hafi hætt. Þið verðið bara að spyrja Hagkaup að því.“

Er leyfi­legt að gera grín að öllu? Sem dæmi þá hafa uppi­stand­arar í Banda­ríkj­unum fengið mikla gagn­rýni á sig fyrir að gera grín að minni­hluta­hópum.

„Já ef mér finnst eitt­hvað fyndið þá nota ég það en ég er fljótur að henda því út ef það fellur í grýttan jarð­veg. Sem betur fer hef ég ekki lent oft í því enda er ég ekki að reyna að stuða eða vera sjokker­andi með mínu gríni. Ég reyni yfir­leitt að forð­ast að fjalla um við­kvæm mál­efni og minni­hluta­hópa. Ég er meira bara að taka fyrir dag­legt líf, það sem fólk er að gera og velkj­ast í. Reyna að sjá kómísku og gleði­legu hlut­ina í þessum dag­legu verk­efnum sem við venju­lega fólkið erum í og hvað við getum gert til að gera þetta skemmti­legra, mér finnst oft gaman að rýna í það. Ég þrífst mest á því að gleðja og það er alltaf loka­tak­markið hjá mér.“

Pétur Jóhann Sig­fús­son Mynd / Hallur Karlsson

Hefur flest komið upp í hend­urnar á þér? Já eig­in­lega, þetta er svo­lítið þannig, ég hef verið ótrú­lega hepp­inn. Ég hætti 1. júlí hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu (nú Sýn) þar sem ég hef verið frá 1999. Ég hef alltaf haft ein­hvern stöð­ug­leika en þetta er ekki svo mik­ill munur að vera sjálf­stæður, þar sem ég hef alltaf verið pínu­lít­ill ein­yrki, frjáls­ræðið núna er samt mun meira.“

Gætirðu farið í 8-16 vinnu á skrif­stofu bara svona við að raða papp­írum? „Nei ekki í að raða papp­írum, vinnan yrði helst að vera við eitt­hvað skap­andi. Maður skoðar alltaf allt sem kemur upp, 8-16 skap­andi vinna, já, já allan dag­inn klár í hana. Ég held ég muni alltaf remb­ast við það að skapa eitt­hvað.“

Líkt og ára­tugirnir tveir hefur við­talið flogið áfram og Pétur þarf að rjúka á næsta stað. „Er klukkan orðin hálf? Vá maður, þetta er fljótt að líða, er ein­hver fyr­ir­sögn í þessu, hver verður fyr­ir­sögnin?“ spyr hann blaða­mann, sem er enn ekki búinn að ákveða hana. „Það gæti líka verið fyr­ir­sögnin: „Hver verður fyr­ir­sögnin, spurn­ing­ar­merki.“ Annars er ég nátt­úr­lega algjör­lega skoð­ana­laus, oft­ast, það er hrika­legt.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi