Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Það er ekki gott að búa í angist“

Alnæmið hefur aldrei verið gert upp í íslensku sam­fé­lagi, segir Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona. Hún segir sög­una komna í und­ar­legan hring; orðin hommi og lesbía séu að hverfa. Það sé mik­il­vægt að þekkja for­tíð­ina og ekki síður að vera und­ir­bú­inn fyrir bakslag.

„Það er ekki gott að búa í angist“
Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir

„Nei, ég er ekki hinsegin,“ svarar Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir kvik­mynda­gerð­ar­kona eftir að hafa starað íhugul á gólfið í stutta stund. Hrafn­hildur prýðir for­síðu nýjasta Mannlífs.

Við sitjum í huggu­leg­heitum á vinnu­stofu Hrafn­hildar í Gufunesi, þar sem hún leggur loka­hönd á síð­ustu þætt­ina í þátta­röð­inni Svona fólk, sögu homma og lesbía á Íslandi. Eða rétt­ara sagt, sögu sam­kyn­hneigðra frá því að þeir fóru að stíga fyrstu skrefin út úr skápnum.

Þætt­irnir eru á dag­skrá Rík­is­út­varps­ins á sunnu­dögum og hafa fengið afar góðar við­tökur. Þeir eru afrakstur 27 ára við­leitni til að skrá­setja og varð­veita sam­tíma­heim­ildir um bar­áttu homma og lesbía; erf­ið­leik­ana, átökin og sigr­ana. En þar sem Hrafn­hildur hefur alltaf verið opin­ská um afstöðu sína til orðs­ins hinsegin, þá liggur bein­ast við að spyrja hvort heitið Svona fólk sé upp­reisn gegn hinsegin. „Nei,“ svarar hún, „hinsegin kemur síðar til sög­unnar í mínum tímara­mma.“ Tit­ill­inn Svona fólk varð til á tíunda ára­tugnum sem heiti á því sem átti upp­haf­lega að verða mynd í fullri lengd, segir hún. „En ég upp­lifi sjálfa mig ekki sem hinsegin og mér finnst það vera útúr­snún­ingur; það lýsir ekki minni upp­lifun.“

Það er í raun tákn­rænt að hefja sam­tal okkar á smá­vegis inn­gangi um orða­notkun en snemma í þátt­unum er sagt frá því þegar tals­menn Sam­tak­anna ´78 fóru með aug­lýs­ingu til RÚV og horfðu á þegar starfs­maður strik­aði yfir orðin hommi og lesbía og setti kyn­vill­ingar í stað­inn. Það tók tíma og barn­ing að fá það í gegn að nota hommi og lesbía en nú segir Hrafn­hildur þau aftur orðin útlæg. Nú sé allt hinsegin, hjá Sam­tök­unum ´78 „og ég þurfti að leið­rétta RÚV á dög­unum. Við erum komin í mjög und­ar­legan hring,“ segir hún og hristir haus­inn.

„Það er ekki gott að búa í angist“

Sagan sem sögð er í þátt­unum nær aftur til byrjun átt­unda ára­tug­ar­ins en það var alnæm­is­far­ald­ur­inn sem varð til þess að Hrafn­hildur hóf að taka upp við­töl og við­burði

„Fyrsta við­talið sem ég tók, 1992, var við góðan vin minn, Björn Braga Björns­son, Bjössa, og hann var að lýsa fyrir mér aðstæðum sínum. Þá var um líf og dauða að tefla því að hann var dáinn tveimur árum seinna. Þannig að okkur lá á að skrá og varð­veita harða reynslu,“ útskýrir Hrafn­hildur.

Sam­kyn­hneigðar ástir hafa auð­vitað alltaf verið til en Hrafn­hildur segir að undir lok sjö­unda ára­tug­ar­ins hafi kyn­lífs­bylt­ing hipp­anna gefið til­efni til að halda að umburð­ar­lyndi væri að aukast. Það mark­aði tíma­mót þegar hommar, les­b­íur og dragdrottn­ingar í New York gerðu upp­reisn á götum úti sum­arið 1969, sem kennd er við Stonewall. Þá urðu straum­hvörf í sög­unni. Vandinn byrjar þegar fólk fór að vilja skil­greina sig og lifa líf­inu opin­ber­lega.

„Þetta var svo rosa­legt mál og þær svo agaðar af þögn­inni að það hálfa hefði verið nóg.“

„Það er ekki gott að lifa í ang­ist. Fólk vill fá að deila gleði sinni og sorgum og það er kannski það sem er sárs­auka­full­ast að horfa á, til dæmis sög­una sem hún Nanna segir í fyrsta þætti. Þær ást­kon­urnar voru algjör­lega í felum og það sá ég meðal kvenna sem ég hitti hér á landi upp úr 1980. Þetta var svo rosa­legt mál og þær svo agaðar af þögn­inni að það hálfa hefði verið nóg,“ segir Hrafn­hildur.

Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir safn­aði heim­ildum fyrir Svona fólk í 27 ár.

Nanna Úlfs­dóttir þjóð­fé­lags­fræð­ingur lýsir því mjög átak­an­lega í þátt­unum hvernig það var að verða ást­fangin af konu þegar hún var um tví­tugt: „Allt er þetta í felum. Og í þögn­inni. Og það getur hver maður gert sér í hug­ar­lund hvert þrek maður þarf að hafa til að leyna sínum feg­urstu, dýpstu og sterk­ustu til­finn­ingum án þess að mega nokkurn tíma, raun­veru­lega, láta þær í ljósi.“

„Þetta líf hugn­að­ist mér ekki,“ segir Hrafn­hildur.

Hún, líkt og fleiri hommar og les­b­íur á þessum tíma, hélt utan.

Hrafn­hildur hafði vitað frá unga aldri að hún var „eitt­hvað öðru­vísi“ en þegar hún kom út úr skápnum mætti hún helst for­dómum í fót­bolt­anum. Fjöl­skyldur tóku því mis­vel þegar nákomnir stigu það erf­iða skref að opin­bera kyn­hneigð sína og þá mættu sam­kyn­hneigðir miklum for­dómum í sam­fé­lag­inu; var sagt upp bæði hús­næði og atvinnu. Í þátt­unum er ekki mikið gert úr ofbeld­inu en það var sann­ar­lega til staðar, segir Hrafn­hildur, og stundum kost­uðu for­dóm­arnir menn lífið. Hún nefnir atvik þar sem maður var ginntur ofan í kjall­ara og hellt yfir hann salt­pétri. Hann lést viku síðar.

Lestu viðtalið við Hrafnhildi í heild sinni í Mannlífi.

Myndir / Unnur Magna
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur Yves Sant Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina