Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vildi sjálfur losna við gömlu karlana

Styrmir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, segir allt tal um erjur innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins úr lausu lofti gripið, það sé eðli­legt að ræða mis­mun­andi skoð­anir innan flokks. Hann skilji vel það unga fólk sem vilji losna við gömlu karl­ana úr póli­tík­inni, hann hafi hugsað þannig sjálfur um tví­tugt. Þeir gömlu viti hins vegar sínu viti.

Vildi sjálfur losna við gömlu karlana
Mynd / Hallur Karlsson||||||

Styrmir er í ítar­legau við­tali við Mannlíf. Þar ræðir hann stöð­una á fjömiðla­mark­aði, sína per­sónu­legu hagi og stjórn­málin.

Nú heyr­ast þær raddir að kyn­slóð Styrmis sé búin að fá sín tæki­færi og ætti nú að bakka og leyfa yngri kyn­slóðum að taka við, hvað finnst honum um þá skoðun?

„Þetta er mjög áhuga­verð spurn­ing,“ segir hann og brosir. „Ég skil þetta unga fólk mjög vel vegna þess að ég hugs­aði nákvæm­lega eins þegar ég var rúm­lega tví­tugur. Ég man að ég var að ganga vestan úr Háskóla niður í bæ og allt í einu skaut niður í koll­inn á mér þeirri hugsun að það yrðu að verða kyn­slóða­skipti í Sjálf­stæð­is­flokknum, gömlu karl­arnir yrðu að hverfa á braut. Þá voru gömlu karl­arnir í mínum huga Bjarni heit­inn Bene­dikts­son, Jóhann Hafstein og Ingólfur á Hellu og allir þeir. Mér fannst þeir búnir að vera þarna allt of lengi og nú væri kom­inn tími á nýtt fólk. Fyrir til­viljun hafði ég heyrt John F. Kennedy flytja sína frægu ræðu „Ich bin ein Berliner“ í Berlín og mér fannst við ungir Sjálf­stæð­is­menn verða að eign­ast okkar eigin Kennedy sem við sáum margir hverjir í Geir Hall­gríms­syni sem þá var orð­inn borg­ar­stjóri í Reykja­vík.

Styrmir Gunn­ars­son skilur vel það unga fólk sem vill losna við gömlu karl­ana úr póli­tík­inni.

Þannig að ég skil full­kom­lega hvernig unga fólkið í dag hugsar um okkur gömlu karl­ana, en við þetta er því að bæta að næstu ár á eftir fékk ég tæki­færi til að fylgj­ast náið með Bjarna heitnum Bene­dikts­syni leiða okkur í gegnum djúpa efna­hagslægð. Ástæðan var sú að ég hafði gift mig og tengda­faðir minn var fyrr­ver­andi þing­maður Sam­ein­ing­ar­flokks alþýðu –Sós­í­alista­flokks­ins, Finnbogi Rútur Valdi­mars­son. Þeir Bjarni voru nánir vinir og allt í einu var ég kom­inn í það hlut­verk að vera sendi­sveinn á milli þeirra og upp­götv­aði hversu mik­il­vægt það var að hafa sterk tengsl og traust á milli verka­lýðs­for­ingja og ráð­herra.

„Þannig að ég segi bara að við, gömlu karl­arnir í dag, erum ekki að sækj­ast eftir nokkrum völdum í Sjálf­stæð­is­flokknum…“

Þarna lærði ég það að þetta með kyn­slóða­skiptin var ekki alveg eins ein­falt og ég hafði haldið og að gömlu karl­arnir sem ég taldi að ættu að hverfa á braut vissu sínu viti. Þannig að ég segi bara að við, gömlu karl­arnir í dag, erum ekki að sækj­ast eftir nokkrum völdum í Sjálf­stæð­is­flokknum, við erum bara í mál­efna­legri bar­áttu. Og ég held að miðað við fylg­is­stöðu flokks­ins þá væri ekk­ert vit­laust af hinni ungu for­ystu­sveit hans að hlusta svo­lítið á okkur. Þau þurfa að átta sig á því að meiri­hlut­inn af því fylgi flokks­ins sem þó er eftir er meðal eldri kjós­enda og það kann ekki góðri lukku að stýra að hunsa skoð­anir þeirra.“

Lestu við­talið í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina