Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Miklu magni flugelda stolið frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi – „Tjónið er gríðarlegt“

Miklu magni flugelda stolið frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi – „Tjónið er gríðarlegt“

Jóla­fríið snýst að mestu um kær­leika og frið. Ljóst er að ekki voru allir á þeim nótum í jóla­frí­inu því brot­ist var inn í hús­næði Hjálp­ar­sveitar skáta í Kópavogi nú um jólin og miklu magni flug­elda stolið frá sveit­inni. Flug­eld­arnir voru geymdir í læstum gám fyrir utan björg­un­ar­mið­stöð sveit­ar­innar á Kársnesi, og var brot­ist inn í hann og heilu bretti af flug­eldum stolið.

„Verðmæti flug­eld­anna er að minnsta kosti tvær millj­ónir króna og tjónið er gríð­ar­legt,“ segir Aðal­steinn Maack, for­maður Hjálp­ar­sveitar skáta í Kópavogi. Flug­elda­sala er ein helsta tekju­lind sveit­ar­innar, líkt og ann­arra björg­un­ar­sveita Slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjargar.

Flug­eld­unum sem var stolið eru stórar tertur, þar af margar sér­merktar Hjálp­ar­sveit skáta í Kópavogi, svokölluð afmælisterta sveit­ar­innar sem var keypt inn í tak­mörk­uðu magni, en sveitin fagn­aði 50 ára afmæli sínu 4. nóv­em­ber. „„Skott­ertur sem við létum merkja okkur sér­stak­lega í til­efni 50 ára afmæl­is­ins. Þær eru auð­þekkj­an­legar og eiga ekk­ert að vera í sölu. Þannig að ef ein­hver er að bjóða slíkt, þá er aug­ljóst að það er illa fengið. Alla vega fyrir 28. des­em­ber,“ segir Aðal­steinn.

Tjónið er ekki síður til­finn­inga­legt fyrir með­limi sveit­ar­innar eins og fram kemur á Facebook-síðu hennar, sem hafa unnið hörðum höndum allan des­em­ber mánuð í sjálf­boða­vinnu að und­ir­bún­ingi flug­elda­söl­unnar, en í Hjálp­ar­sveit skáta í Kópavogi eru um 400 með­limir.

Síðustu menn yfir­gáfu hús­næði sveit­ar­innar á aðfanga­dag eftir leit við erf­iðar aðstæður á Suð­ur­landi.
Þegar komið var í hús­næðið í dag kom þjófn­að­ur­inn í ljós, ljóst er því að þjóf­ur­inn eða þjófarnir hafa athafnað sig á þessum tíma. „Við vorum í útkalli á aðfanga­dag. Þá voru und­an­farar frá okkur að síga í Dyr­hólaey. Við teljum að þá hafi þetta verið á sínum stað. Þannig að þjófn­að­ur­inn hefur átt sér stað frá Þor­láks­messu­kvöldi og þangað til í morgun.“

Hjálp­ar­sveit skáta biður  alla þá sem hafa ein­hverjar upp­lýs­ingar um málið að hafa sam­band við lög­reglu, en einnig má senda skila­boð í gegnum Facebook-síðu sveit­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við