Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Már Gunnarsson hlýtur Kærleikskúluna 2019

Afhend­ing Kær­leikskúl­unnar 2019 fór fram á Kjar­vals­stöðum kl. 11. Monika Abendroth hörpu­leik­ari setti athöfn­ina með hörpu­leik. Áslaug Guð­rún­ar­dóttir kynn­ingar- og mark­aðs­stjóri Lista­safns Reykja­víkur sagði frá lista­manni Kær­leikskúl­unnar 2019.

Már Gunnarsson hlýtur Kærleikskúluna 2019
Már Gunn­ars­son

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir var kynnir á athöfn­inni og systir hennar, Nína Kristín Sig­ur­björns­dóttir, sá um að afhenda hand­hafa Kær­leikskúl­unnar 2019 sína við­ur­kenn­ingu en Nína Kristín er meðal gesta Reykja­dals. Allur ágóði af sölu Kær­leikskúl­unnar rennur til starfs í þágu barna og ung­menna sem koma í sum­ar­búð­irnar Reykja­dal.

Bjöllukór Val­gerðar flutti ljúfa tóna og loks flutti hand­hafi Kær­leikskúlu árs­ins, Már Gunn­ars­son eitt lag.

Framúrskarandi fyrirmynd

Már Gunn­ars­son sund­kappi og tón­list­ar­maður er hand­hafi Kær­leikskúl­unnar 2019. Már er fram­úr­skar­andi fyr­ir­mynd og hefur stjórn Styrkt­ar­fé­lags lamaðra og fatl­aðra ákveðið að veita honum Kær­leikskúl­una í ár. Ólöf Nordal lista­kona gerir Kær­leikskúl­una sem heitir SÓL ÉG SÁ.

Allur ágóði af sölu Kær­leikskúl­unnar rennur til Reykja­dals, sumar- og helg­ar­búða fyrir fötluð börn og ung­menni.

View this post on Instagram

Nína og Áslaug afhentu hina árlegu Kær­leikskúlu á Kjar­vals­stöðum í dag. Allur ágóði Kær­leikskúl­unnar rennur fer í að styrkja sum­ar­búð­irnar í Reykja­dal. Már Gunn­ars­son, sund­maður sem stefnir óðum á Ólymp­íu­leika fatl­aðra í Tokyo 2020 tók við kúl­unni. Már er ekki bara góður sund­maður heldur tók hann lagið á píanó og söng frum­samið lag. Hæfi­leika­búnt sem vert er að fylgj­ast með! 🎄🎉

A post shared by Magnús Sig­ur­björns­son (@sigurbjornsson) on Dec 4, 2019 at 5:21am PST

Blindan engin hindrun

Árlega velur stjórn Styrkt­ar­fé­lags lamaðra og fatl­aðra hand­hafa Kær­leikskúl­unnar. Hún er veitt fram­úr­skar­andi fyr­ir­mynd fyrir störf í þágu fólks með fötlun. Már Gunn­ars­son er tví­tugur afreks­maður í sundi og tón­list­ar­maður. Það er álit stjórnar Styrkt­ar­fé­lags­ins að Már sé ein­stök fyr­ir­mynd. Hann er blindur en lætur það ekki hindra sig í að ná mark­miðum sínum. Þrátt fyrir ungan aldur er Már afrek­s­í­þrótta­maður og marg­faldur Íslands­met­hafi í baksundi í fötl­un­ar­flokki S11, flokki blindra.

Már sló tíu Íslands­met á heims­meist­ara­móti fatl­aðra í sundi í sept­em­ber auk þess sem hann vann til brons­verð­launa í 100 metra baksundi. Þá náði hann fram­úr­skar­andi árangri á íslands­móti Íþrótta­sam­bands fatl­aðra í 25 metra laug en hann var þrisvar á tíma sem er undir núgild­andi heims­meti. Már setur markið hátt, hann stefnir á að kom­ast á Ólymp­íu­mót fatl­aðra í Tókýó árið 2020 og ætlar sér að vinna til gull­verð­launa í 100 metra baksundi.

Már er einnig tón­lista­maður. Nýverið sóp­aði hann að sér við­ur­kenn­ingum á Söngvakeppni Lions­klúbbs­ins fyrir blinda sem haldin var í Póllandi. Már var í þriðja sæti í keppn­inni en hann sló í gegn meðal áheyr­enda og var val­inn vin­sæl­asti kepp­and­inn. Að auki fékk hann verð­laun frá Félagi frétta­manna í Póllandi. Már er ekki bara ein­stök fyr­ir­mynd fyrir íþrótt­menn með fötlun, heldur er jákvæðni hans og stað­festa eft­ir­tekta­verð og eitt­hvað sem allir geta til­einkað sér.

Ólöf Nordal og Kær­leikskúlan

Fingurnir skrifuðu Sólarljóð og hreyfðust aldrei síðan

Ólöf Nordal hefur skapað Kær­leikskúl­una SÓL ÉG SÁ. Verkinu fylgir þjóð­saga en Ólöf mun útskýra verkið nánar á Afhend­ingu Kær­leikskúl­unnar í dag. Hér er sagan sem fylgir verk­inu: Þegar Sæmundur fróði lá bana­leg­una og mönnum virt­ist hann and­aður hreyfð­ust á honum þrír fing­urnir á hægri hend­inni sem vildu þeir taka um eitt­hvað. Lengi voru menn í efa um hvað slíkt hefði að þýða; loks­ins voru ýmsir hlutir bornir að fingr­unum, en þeir héldu áfram að hreyfast þangað til þeim var feng­inn penni, þá beygði sig einn fing­ur­inn utan um hann; síðan var réttur pappír hinum fingr­unum, og beygði sig annar fing­ur­inn að honum; þá var nú sjálf­sagt að fá hinum þriðja blek­bytt­una. Eftir það skrif­uðu fing­urnir Sól­ar­ljóð og þegar þeim var lokið slepptu þeir rit­fær­unum og urðu mátt­vana og hreyfð­ust aldrei síðan.

Ólöf er afkasta­mik­ill lista­maður og eru verk hennar fjöl­breytt. Hún er höf­undur margra úti­lista­verka og minn­is­varða á opin­berum vett­vangi, má þar nefna Geir­fugl­inn í Skerja­firði, Vitid ér enn – eda hvat? í and­dyri Alþing­is­húss­ins, Brí­et­ar­brekku við Þing­holts­stræti og umhverf­is­lista­verkið Þúfu á Granda. Nú stendur yfir yfir­lits­sýn­ing í Lista­safni Reykja­víkur á verkum Ólafar. Titill sýn­ing­ar­innar er ÚNGL og spannar tæp­lega þrjá­tíu ára feril hennar. Ólöf hefur gefið Styrkt­ar­fé­lagi lamaðra og fatl­aðra Kær­leikskúl­una SÓL ÉG SÁ og allur ágóði af sölu hennar rennur til sum­ar­búð­anna Reykja­dals.

Kær­leikskúlan 2019

Ævintýri og ógleymanlegar minningar í Reykjadal

Sala Kær­leikskúl­unnar skipar stóran sess í fjár­öfl­un­ar­starfi Styrkt­ar­fé­lags lamaðra og fatl­aðra. Þetta er í sautj­ánda sinn sem félagið gefur út Kær­leikskúl­una en margir af fremstu lista­mönnum þjóð­ar­innar hafa lagt félag­inu lið með því að skapa lista­verk á gler­kúl­una.

Kær­leikskúlan SÓL ÉG SÁ kemur í versl­anir um land allt laug­ar­dag­inn 7. des­em­ber. Sölu­að­ilar kúl­unnar taka enga þóknun fyrir söl­una. Því rennur allur ágóði af sölu Kær­leikskúl­unnar óskiptur til sum­ar­búð­anna í Reykja­dal. Þangað koma fötluð börn og ung­menni alls staðar að af land­inu. Dvölin börn­unum og fjöl­skyldum þeirra afar mik­il­væg en mikið er lagt upp úr því að skapa ævin­týri og ógleym­an­legar minn­ingar hjá þeim gestum sem þar dvelja.

Fjölbreytt safn listaverka

Styrkt­ar­fé­lag lamaðra og fatl­aðra hóf útgáfu Kær­leikskúl­unnar árið 2003 og er SÓL ÉG SÁ því sautj­ánda kúlan. Úr er orðið fjöl­breytt safn lista­verka eftir marga af okkar þekkt­ustu lista­mönnum.

Fyrri lista­menn Kær­leikskúl­unnar eru Erró, Ólafur Elíasson, Rúrí, Gabríela Frið­riks­dóttir, Eggert Pét­urs­son, Gjörn­inga­klúbb­ur­inn, Hreinn Frið­finns­son, Katrín Sig­urð­ar­dóttir, Yoko Ono, Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir, Ragnar Kjart­ans­son, Davíð Örn Hall­dórs­son, Ragna Róberts­dóttir, Sigurður Árni Sig­urðs­son, Egill Sæbjörns­son og Elín Hans­dóttir. Hægt er að nálg­ast eldri Kær­leikskúlur í net­versl­un­inni: www.kaerleikskulan.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð