Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hvert mannsbarn veit að Sjálfstæðisflokkurinn og fulltrúar hans eru frægir fyrir spillingu og sérhagsmunagæslu“

„Hvert mannsbarn veit að Sjálfstæðisflokkurinn og fulltrúar hans eru frægir fyrir spillingu og sérhagsmunagæslu“
Dóra Björt Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi

„Hverjum datt í hug að næsta útspil Sjálf­stæð­is­flokks­ins væri að tengj­ast félagi sem hefur stundað það að múta stjórn­mála­fólki fátækrar þjóðar til þess að eiga auð­veld­ara með að arð­ræna hana og neita svo að borga af arðrán­inu skatta? Flokk­ur­inn þekkir það vel að fela pen­inga í aflands­fé­lögum til þess að þurfa ekki að borga rétt­láta skatta. Ég hélt að sjálf­stæð­is­menn létu sér duga að arð­ræna okkur Íslend­inga. En nei, betur má ef duga skal til þess að fóðra þessa ómett­andi græðg­ismask­ínu sem þekkir engin tak­mörk,“ segir Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn og for­maður mann­rétt­inda-, nýsköp­unar- og lýð­ræð­is­ráðs Reykja­víkur í pistli í Mannlíf.

Greinir Dóra Björt frá því að fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar hafi Píratar sagt að þeir vildu ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum því Píratar treystu honum ekki.

„Þetta fannst full­trúum flokks­ins ósmekk­legt og kröfð­ust rök­stuðn­ings. En ég hló nú bara enda veit það hvert manns­barn að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og full­trúar hans eru frægir fyrir spill­ingu og sér­hags­muna­gæslu. Það er orðið dag­legt brauð að sýnt sé fram á spill­ingu kjör­inna full­trúa stærsta flokks lands­ins án þess að það hafi neinar afleið­ingar. Pælið í því hvað það er klikkuð stað­reynd.“

Segir Eyþór ekki koma heiðarlega fram

„Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ist eiga að fá að sitja áfram þar sem risa­spill­ing­ar­mál er rann­sakað og vinur ráð­herr­ans er höf­uð­paur máls­ins í félagi sem ráð­herr­ann teng­ist beinum hætti. Eyþór Arnalds, odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið marg­saga. Hann hefur hvorki komið heið­ar­lega fram né lagt spilin á borðið og þó hefur hann fengið fjöl­mörg tæki­færi til þess,“ segir Dóra Björt og bætir við að Eyþór hafi rokið af borg­ar­stjórn­ar­fundi þegar hún vakti máls á Sam­herj­a­mál­inu.

„Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins virð­ist eiga að fá að kom­ast upp með að fá að gjöf hund­ruðir millj­óna frá félagi sem allt bendir til að hafi mútað stjórn­mála­fólki án þess að hann þurfi að svara fyrir það. Þá hlýtur bara allt að vera leyfi­legt í Sjálf­stæð­is­flokknum. Svo gera sjálf­stæð­is­menn lítið úr okkur pírötum fyrir að ljá máls á þeirri ein­földu stað­reynd fyrir kosn­ingar að þeim sé ekki treystandi.“

„Mark­miðið er að almenn­ingur venj­ist spill­ingu sem ósköp eðli­legum hluta af stjórn­mál­unum. Það nýjasta í vopna­búri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fer að verða kunn­ug­legt stef er að segja þá sem benda á spill­ingu og ósið­legt athæfi hafa brotið siða­reglur.“

Sjálfstæðisflokkur beitir klassískum varnarviðbrögðum

Dóra Björt segir klass­ísk varn­ar­við­brögð Sjálf­stæð­is­flokks­ins vera að gera lítið úr gagn­rýni og sýna af sér hneykslun og móðg­un­ar­girni. „Mark­miðið er að almenn­ingur venj­ist spill­ingu sem ósköp eðli­legum hluta af stjórn­mál­unum. Það nýjasta í vopna­búri Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem fer að verða kunn­ug­legt stef er að segja þá sem benda á spill­ingu og ósið­legt athæfi hafa brotið siða­reglur,“ segir Dóra Björt og segir Eyþór Arnalds hafa lýst því yfir að hana skyldi draga fyrir for­sætis­nefnd því hún hafi brotið siða­reglur með því að benda á stað­reyndir.

„En siða­reglur eru ekki, eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist halda, sam­komu­lag stjórn­mála­stéttar um sam­trygg­ingu sem hægt er að nota til að þagga niður í gagn­rýni og eðli­legum spurn­ingum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er flokkur sér­hags­muna, spill­ingar og yfir­gengi­legrar græðgi. Full­trú­arnir svífast einskis. Við lof­uðum að vinna ekki með Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir kosn­ingar og höfum aldrei séð eftir þeirri ákvörðun. Allra síst und­an­farna daga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi