Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Namibíumenn reiðir vegna Samherjamálsins

Namibískur blaða­maður segir Namib­íu­menn búa sig undir frek­ari upp­ljóstr­anir í tengslum við meinta mútu­þægni þar­lendra ráða­manna. Hún segir ein­stak­linga tengda stjórn­ar­flokknum hafa efn­ast á kostnað almennra borg­ara árum saman. Aðgerðasinni segir málið skammar­legt.

Namibíumenn reiðir vegna Samherjamálsins

Almenn­ingur í Namibíu er reiður, segir blaða­mað­ur­inn Jemima Beukes, sem skrifar um stjórn­mál fyrir Namibian Sun. Beukes hefur verið að fylgj­ast með Sam­herj­a­mál­inu og segir reið­ina stafa af því hversu mikið vanda­mál spill­ing sé í land­inu, þar sem ein­stak­lingar með póli­tísk tengsl séu að hagn­ast á kostnað almennra borg­ara. Bernhard Esau, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Sacky Shang­hala dóms­mála­ráð­herra sögðu af sér í síð­ustu viku í kjöl­far fjöl­miðlaum­fjöll­unar um að þeir hefðu þegið mútur fyrir kvóta til handa Samherja og þá greindu namibískir fjöl­miðlar frá því að reikn­ingar Shang­hala og Tamson Hatuikulipi, tengda­sonar Esau, hefðu verið frystir. Á mið­viku­dag lét James Hatuikulipi, frændi Tamson, af störfum sem stjórn­ar­for­maður sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor.

Namib­íu­menn ganga til kosn­inga 27. nóv­em­ber næst­kom­andi og að sögn Beukes þykir gagn­rýnendum rík­is­stjórn­ar­innar mútu­hneykslið end­ur­spegla stjórn­ar­hætti Swapo-flokks­ins. „Auk þess standa nú yfir einir mestu þurrkar í sögu Namibíu, þar sem 700 þús­und manns hafa skráð sig fyrir matar- og annarri neyð­ar­að­stoð á sama tíma og ráð­herrar og hátt­settir aðilar innan sjáv­ar­út­vegs­ins eru sak­aðir um að hafa þegið hund­ruð millj­ónir Namib­íu­dala í mútur. Á þessum tíma vitum við ekki hversu langt málið nær. Namib­íu­menn eru á því að fleira eigi eftir að koma í ljós,“ segir Beukes.

„Það er skammar­legt að sjá fáeina ein­stak­linga efn­ast til að lifa í mun­aði á kostnað barna sem hafa ekki mat að borða. Á kostnað barna sem eiga ekki kost á því að sækja skóla og fólks sem fær ekki lyf á sjúkra­húsum.“

Hún segir frétt­irnar þó ekki hafa komið á óvart, þar sem Swapo njóti tveggja þriðju meiri­hluta á þingi og ein­stak­lingar tengdir flokknum hafi í ára­tugi efn­ast á auð­lindum rík­is­ins. Fjöldi spill­ing­ar­mála hafi komið upp á síð­ustu árum. „Það er almenn óánægja með nefnd­ina sem á að taka á spill­ing­ar­málum, þar sem hún er álitin bit­laus hundur sem elt­ist bara við „litlu fisk­ana“. Það er afar brýnt að hand­tökur verði fram­kvæmdar og ljósi varpað á hverjir aðrir eiga hlut að máli.“

Til marks um stjórn­ar­kreppu
Spill­ingu hefur verið mót­mælt í höf­uð­borg­inni Windhoek eftir að Sam­herj­a­málið komst í hámæli en aðgerðasinn­inn Sandy Tjaronda segir málið sorg­legt og recur það til stjórn­ar­kreppu sem hann segir ríkja í land­inu. „Það er skammar­legt að sjá fólk taka sér svona mikið fé í eigin vasa, sem hefði ann­ars getað gert svo mikið fyrir landið. Það er skammar­legt að sjá fáeina ein­stak­linga efn­ast til að lifa í mun­aði á kostnað barna sem hafa ekki mat að borða. Á kostnað barna sem eiga ekki kost á því að sækja skóla og fólks sem fær ekki lyf á sjúkra­húsum.“

Tjaronda segir for­set­ann virð­ast ófæran um að láta ráð­herra sína axla ábyrgð. „Í hvert sinn sem upp kemur hneyksli af þessum toga virð­ist for­set­inn valda­laus og það vekur alvar­legar spurn­ingar. Þetta fólk sagði sjálft af sér, það var ekki látið fara af for­set­anum. For­set­inn hlýtur að vita að ef þú hefur vald til að skipa fólk þá hefur þú líka vald til að láta fólk fjúka. En ef þú beitir ekki svip­unni til að reka fólk þá hlýtur það að vekja spurn­ingar um leið­toga­hæfni þína.“

Íslenskur skip­stjóri hand­tek­inn í Namibíu
Við­skipta­blaðið greindi frá því í gær að skip Samherja væru enn við veiðar við Namibíu. Haft var eftir Björgólfi Jóhanns­syni, starf­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, að enn væri stefnt að sölu starf­sem­innar í land­inu og að Samherji væri til­bú­inn til að starfa með öllum opin­berum aðilum að rann­sókn hins svo­kall­aða Sam­herj­a­máls.

„Við viljum ekki draga neitt undan í því. Við munum starfa með öllum þeim yfir­völdum sem þess óska og þau munu fá aðgang að gögnum eins og þau telja sig þurfa.“ Þá greindu fjöl­miðlar í Namibíu frá því í gær að Arn­grímur Brynj­ólfs­son, skip­stjóri Heinaste, hefði verið hand­tek­inn vegna ólög­legra veiða innan land­helgi Namibíu. Heinaste er í eigu félags þar sem Samherji er hlut­hafi og stað­festi Björgólfur frétt­irnar í sam­tali við RÚV og Bylgjuna. „Þetta er reyndar ekki mál sem er í sjálfu sér á vegum Samherja.

Þetta er namibískt félag sem Arn­grímur er að starfa hjá,“ sagði Björgólfur við Bylgjuna. Sögðu fjöl­miðlar Arngrím hafa verið hand­tek­inn ásamt rúss­neskum kollega sínum, í aðgerðum sem namibísk stjórn­völd hafa staðið fyrir síð­ustu miss­eri. Var þeim gert að greiða jafn­virði 830 þús­und íslenskra króna í trygg­inga­gjald og afhenda vega­bréf sín. Arn­grímur vildi ekki tjá sig um málið við blaða­mann Vísis. Þá vildi Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem vék tíma­bundið sem for­stjóri Samherja í kjöl­far umfjöll­unar Kveiks og Stund­ar­innar um Sam­herj­a­skjölin, ekki stað­festa hvort Arn­grímur starf­aði fyrir félagið í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina