Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta er afreksfólk“

Breyta þarf afstöðu Íslands til Grikk­lands og Ítalíu, sem hafa hingað til verið metin „örugg“ af stjórn­völdum. Þau reka „harð­línu­stefnu“ í útlend­inga­málum, segir Magnús Davíð Norðdahl lög­maður og kallar eftir mann­úð­legri nálgun við börn á flótta.

„Þetta er afreksfólk“
|Magnús Davíð Norðdahl

Magnús Davíð Norðdahl lög­maður er fljótur að svara þegar hann spurður að því hvort á Íslandi sé rekin mann­úð­leg stefna í mál­efnum flótta­fólks. „Nei,“ segir hann, „ekki gagn­vart börnum á flótta. Það að við skulum taka hérna tveggja, þriggja, fjög­urra og upp í 18 ára börn og end­ur­senda þau til landa á borð við Grikk­land og Ítalíu, þar sem aðstæður eru jafnslæmar og raun ber vitni, það eitt og sér er ómann­úð­legt.“ Magnús segir öllum sem þaðan koma bera saman um að aðstæður fyrir flótta­fólk á Grikk­landi og Ítalíu séu hræði­legar; margir búi á göt­unni og fái enga félags­lega aðstoð og lág­marks­heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta stað­festa skýrslur alþjóð­legra sam­taka. „Hræðsla fólks,“ segir Magnús, sem hefur unnið fyrir fjölda hæl­is­leit­enda, „er ekk­ert síður að vera sent aftur Grikk­lands eða Ítalíu; það getur verið alveg jafnógn­vekj­andi og að fara aftur til heima­lands­ins.“

Íslensk stjórn­völd hafa litið svo á að Grikk­land og Ítalía, sem eru meðal þeirra Evr­ópu­landa sem straumur flótta­fólks fer fyrst um, séu „örugg“ ríki. Það er, að ekk­ert sé því til fyr­ir­stöðu að end­ur­senda fólk þangað, meðal ann­ars á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Magnús hefur farið með mörg mál sem hafa ratað í fjöl­miðla og vakið hneykslan almenn­ings, til dæmis mál Safari-fjöl­skyld­unnar og Sarwari-feðganna, en mál af því tagi hafa iðu­lega unn­ist á tækni­legum for­sendum. Hann segir fjöl­miðlaum­fjöllun og þrýst­ing frá almenn­ingi hafa skipt sköpum fyrir þetta fólk, sem hefði ella verið sent burt athuga­semda­laust.

Magnús hefur sjálfur unnið með fimm barna­fjöl­skyldum, sem saman telja 12 börn. „Manni finnst stundum eins og stjórn­völd fari fram með fauta­skap og beri sig ekki nógu mann­úð­lega við með­ferð mála þar sem um er að ræða hæl­is­leit­endur sem eru börn,“ segir hann. „Það þarf bæði að laga máls­með­ferð­ina og eins ætti, að mínum dómi, að veita fleiri börnum hæli hér á landi.“ Fólkinu líði hræði­lega; óvissan sé oft óbæri­leg og margir greindir með áfallastreituröskun. „Fólk sér enga fram­tíð. Það bara lítur svo á að ef það verði flutt úr landi þá sé þetta búið.“

Upplifa öryggi og stöðugleika í fyrsta sinn á ævinni

Hann segir ljóst að hingað til lands komi margir sem eigi ekki að fá hæli en hann eigi enn eftir að kynn­ast fjöl­skyldu­fólki sem honum þætti ekki eiga að fá að vera um kyrrt. Þá er Magnúsi sér­stak­lega umhugað um vel­ferð barn­anna. „Þessi börn hafa ekk­ert gert, þau eru sak­laus. Þau upp­lifa kannski í fyrsta sinn á ævinni öryggi, fá að ganga í skóla og læra og eign­ast vini og mynda félags­legt net. Þau þurfa ekki að vera óör­ugg vegna ofbeldis eða vegna stöðu fjöl­skyld­unnar. Og að vera síðan send úr landi eftir þessa upp­lifun er nátt­úr­lega þyngra en tárum taki.“

Flótta­fólk sem hingað leitar fær aðstoð Rauða kross­ins í sam­skiptum sínum við Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála en leitar til Magnúsar og ann­arra sem sér­hæfa sig í mála­flokk­inum þegar það hefur fengið neitun á báðum stjórn­sýslu­stigum. Magnús segir dæmin sýna að það geti skipt sköpum fyrir fólk að leita til lög­manns en í lok síð­asta árs tókst honum að fá brott­flutn­ingi frestað þegar klukku­stundir voru til stefnu. Sú fjöl­skylda er enn hér á landi. Hann segir bráð­nauð­syn­legt að stytta máls­með­ferð­ar­tím­ann en ekki síður að breyta þeirri afstöðu að Grikk­land og Ítalía séu örugg lönd fyrir flótta­fólk.

„Það er póli­tísk ákvörðun að skil­greina Grikk­land og Ítalíu sem örugg ríki að senda hæl­is­leit­endur til,“ segir Magnús. Spurður að því af hverju ekk­ert breyt­ist þrátt fyrir ítrek­aða hneykslan almenn­ings vegna ein­stakra mála, bendir hann á stjórn­völd. „Ja, hver fer með mála­flokk­inn?“ spyr hann og bætir því við að það sé ekk­ert laun­ung­ar­mál að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn reki harð­línu­stefnu í inn­flytj­enda­málum. „Það er alltaf verið að hugsa um þetta: Ef við hleypum þess­ari fjöl­skyldu inn á þessum for­sendum, þá koma 100 aðrar í sömu stöðu þegar þetta spyrst út.“

Er það rétt?

„Mun hæl­is­leit­endum fjölga? Já. Er það hættu­legt eða nei­kvætt? Nei,“ svarar Magnús. „Þetta er fólk sem við viljum fá. Það flúði frá heima­bæjum sínum, úr ömur­legum aðstæðum, og komst við illan leik til Evrópu; ég tala nú ekki um til Íslands. Það er afrek út af fyrir sig. Þetta er afreks­fólk, margt af þessu fólki sem hingað kemst. Og sam­fé­lagi okkar er greiði gerður með því að veita fleirum hæli hér á landi.“

Konan á kvenna­deild Land­spít­al­ans.

„Einstaklega fautalegt og ómannúðlegt“

„Þetta er ein­stak­lega fauta­legt og ómann­úð­legt að fram­kvæma brott­vísun á konu sem er þetta langt gengin,“ segir Magnús um mál albönsku kon­unnar sem var flutt úr landi í vik­unni, komin 36 vikur á leið. Konan sem var stödd hér á landi ásamt manni sínum og tveggja ára barni, fékk vott­orð á kvenna­deild Land­spít­al­ans nokkrum klukku­stundum áður en hún var flutt á brott um að hún þjáð­ist af stoð­kerf­is­verkjum, sem gerðu flug erfitt. Yfirvöld ákváðu hins vegar að fara eftir eldra vott­orði sem fékkst hjá heilsu­gæsl­unni, þess efnis að heilsu­fars­lega væri ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að hún flygi.

Mat Magnúsar rímar við yfir­lýs­ingu Rauða kross­ins en þar sagði meðal ann­ars að brott­vís­unin hefði verið í and­stöðu við ráð­legg­ingar heils­gæsl­unnar um að þung­aðar konur í áhættu­hópi ættu ekki að fara í flug eftir 32. viku með­göngu. Konan til­heyrði þeim hópi vegna fyrri með­göngu. „Brott­vísun er þving­unar­úr­ræði sem getur valdið mik­illi streitu og kvíða. Streita á móður getur haft alvar­legar og óaft­ur­kræfar afleið­ingar fyrir hana og ófætt barn hennar,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni. Rauði kross­inn sagði ekki for­svar­an­legt að túlkun Útlend­inga­stofn­unar eða rík­is­lög­reglu­stjóra gæti ráðið úrslitum um hvort brott­flutn­ingur færi fram eða ekki. Brott­vís­unin hefði ekki verið mann­úð­leg.

„Ég er svo hrædd og þreytt, svo ofboðs­lega þreytt. Ég er svo stressuð yfir því að eitt­hvað komi fyrir barnið mitt,“ sagði konan í sam­tali við Stundina þegar fjöl­skyldan var komin til Albaníu. Þá sagð­ist hún ótt­ast að það hvernig staðið var að brott­flutn­ingnum myndi hafa áhrif á and­lega líðan tveggja ára barns­ins til lengri tíma. Fjöl­skyldan fékk að dvelja hjá vina­fólki en konan sagð­ist von­ast til að fá að snúa aftur til Íslands þegar málið væri búið í ferli hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina