Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Í núverandi aðstæðum sé ég enga gleði“

Ásrún Fanný Hilm­ars­dóttir er 19 ára ein­stæð móðir, sem er að byrja að fóta sig í líf­inu eftir með­ferð. Hún hefur sótt um fjár­hags­lega aðstoð í heimabæ sínum vegna aðstæðna sinna, en fengið höfnun. Fjár­hags­erf­ið­leikar og óvissa um fram­tíð­ina, valda því að kvíð­inn sem hún hefur glímt við frá unga aldri tekur yfir. Gleðin í lífi Ásrúnar er þó dóttir hennar sem hún seg­ist elska meira en allt.

„Í núverandi aðstæðum sé ég enga gleði“
|38. tbl. 2019

Ásrún leigir íbúð á 230 þús­und krónur á mán­uði og eftir að hún hætti með barns­föður sínum og þarf ein að standa skil á leig­unni ræður hún ekki við hana, enda ekki verið með neinar tekjur eða fjár­hags­styrk í langan tíma. Hún hefur tvisvar sótt um fjár­hags­að­stoð hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ og fengið synjun í bæði skiptin þar sem hún er með vinnu. Hún seg­ist ekki viss um hvort hún hefði fengið fjár­hags­að­stoð­ina ef hún væri atvinnu­laus.

„Ég fékk ekki greitt fæð­ing­ar­or­lof þar sem ég hafði ekki unnið í 12 mán­uði sam­fleytt áður, en ég fékk styrk í tvo mán­uði, um 70 þús­und á mán­uði frá Fæð­inga­or­lofs­sjóði,“ segir Ásrún. Hún fær stuðn­ing frá móður sinni og móður barns­föður síns í því að sinna dótt­ur­inni, en ekki fjár­hags­legan stuðn­ing. Hann sækir hún stundum til föður síns, en segir það erfitt. „Pabbi aðstoðar mig fjár­hags­lega þegar hann getur, en það er ekki hægt að lifa alltaf á pabba sínum, ég fæ bara sam­visku­bit þegar ég spyr hann.“

„Síðustu daga hefur amma dóttur minnar farið með hana á leik­skól­ann af því að ég hef ekki efni á að fara með hana í strætó og ég er ekki á bíl,“ segir Ásrún. Hún skuldar leigu fyrir tvo mán­uði og sér ekki fram á að geta greitt skuld­ina miðað við núver­andi stöðu. Hún segir að þó að engin skuld væri til staðar myndi hún alltaf þurfa ein­hverja fjár­hags­að­stoð því launin dugi ekki til.

„Ég væri róleg ef leigu­skuldin væri ekki til staðar.“

Sérðu fyrir þér að koma þér úr þeirri stöðu sem þú ert í í dag?  „Ég væri róleg ef leigu­skuldin væri ekki til staðar. Ég get ekki ráðið við þetta samt, ég þarf alltaf ein­hverja aðstoð, ann­ars færi allur pen­ing­ur­inn í leig­una og ég ætti ekk­ert eftir fyrir dóttur mína. Ég er mjög kvíðin, það er alltaf stress í gangi út af þess­ari leigu.“

Hún hefur enn ekki fengið greitt með­lag með dóttur sinni, sem er orðin 17 mán­aða því hún og barns­faðir hennar eru enn skráð saman þrátt fyrir að hafa slitið sam­búð sinni í júní. „Við höfðum verið sundur og saman og vorum ekki kærustupar þegar ég varð ófrísk, en þegar dóttir okkar fædd­ist skráðum við okkur í sam­búð og vorum saman í eitt ár þar til núna í júní,“ segir Ásrún.

Lestu við­talið við Ásrúnu í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ