Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Afglæpavæðing neysluskammta – mun portúgalska leiðin virka hér?

Í nýju frum­varpi er lagt til að varsla á neyslu­skömmtum fíkni­efna verði ekki lengur refsi­verð. Einnig verður lög­reglu óheim­ilt að gera upp­tæk efni neyt­enda, enda hefur þeirra hvorki verið aflað á ólög­mætan hátt né þau í ólög­mætri vörslu.

Afglæpavæðing neysluskammta – mun portúgalska leiðin virka hér?
|Halldóra Mogensen|Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, sem lagt var fram á Alþingi 7. októ­ber og vísað til vel­ferð­ar­nefndar 9. októ­ber. Með­flutn­ings­menn frum­varps­ins eru átta þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.

Halldóra Mogensen

„Það var tekið vel í frum­varpið af flestum þeim sem tóku þátt í umræð­unni enda liggur fyrir þverpóli­tísk sam­staða um að hætta að refsa fólki sem á við fíkni­vanda að stríða. Full­trúar allra flokka í vel­ferð­ar­nefnd skrif­uðu undir nefnd­ar­á­lit með frá­vís­un­ar­til­lögu á sein­asta þingi vegna neyslu­rýma þar sem nefndin beinir því til heil­brigð­is­ráð­herra að vinna mark­visst að því að afnema refs­ingar fyrir vörslu á neyslu­skömmtum fíkni­efna,“ segir Halldóra í sam­tali við Mannlíf. Og bætir við að hún sé von­góð um að frum­varpið verði að lögum. „Þetta snýst um skaða­minnkun, að við­ur­kenna raun­veru­leik­ann og bregð­ast við með aðferðum sem virka og með mann­rétt­indi í fyr­ir­rúmi.“

Tveggja greina frumvarp

Frum­varpið er ein­ungis tvær greinar og sam­kvæmt því er lagt til í fyrstu grein að annarri grein laga um ávana- og fíkni­efni nr. 65/1974 verði breytt á þann veg að:

1. mgr. orð­ast svo: Meðferð ávana- og fíkni­efna, sem talin eru upp í 6. gr., er óheimil á íslensku for­ráða­svæði sam­kvæmt því sem nánar segir í 4. mgr. og 4. mgr. orð­ast svo: Inn­flutn­ingur, útflutn­ingur, sala, skipti, afhend­ing, fram­leiðsla og til­bún­ingur efna er greinir í 6. gr. er bann­aður, með þeirri und­an­tekn­ingu, sem getur um í 3. mgr. Hið sama gildir um vörslu efna þegar magn þeirra er umfram það sem talist getur til eigin nota.

Samkvæmt annarri grein frum­varps­ins munu lögin öðl­ast gildi við sam­þykki þeirra.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að verði það að lögum verði inn­flutn­ingur og útflutn­ingur fíkni­efna, sala þeirra, skipti, afhend­ing, fram­leiðsla og til­bún­ingur efn­anna áfram bann­aður. Hið sama gildir um vörslu efna í svo miklu magni að það geti ekki talist til eigin nota. Þannig er öruggt að áfram verður hægt að sak­fella fyrir það sem kann að telj­ast alvar­legri brot á lögum um ávana- og fíkni­efni, en refs­ingum ekki beitt gegn neyt­endum fíkni­efna.

Lögreglu ekki heimilt að gera neysluskammta upptæka

Aðspurð um við­brögð lög­regl­unnar við frum­varp­inu svarar Halldóra að hún hafi fengið jákvæð við­brögð frá ein­stak­lingum innan lög­regl­unnar, en ein­ungis óform­lega. „Formleg við­brögð koma vænt­an­lega á næstu vikum í formi umsagnar við málið.“

Verði frum­varpið að veru­leika mun lög­reglu vera óheim­ilt að gera upp­tæk efni neyt­enda enda hafi þeirra hvorki verið aflað á ólög­mætan hátt, né þau í ólög­mætri vörslu.

Arin­björn Snorra­son, for­maður Lög­reglu­fé­lags Reykja­víkur, er staddur erlendis í fríi og gat að svo stöddu ekki svarað fyr­ir­spurnum Mannlífs vegna frum­varps­ins.

Heilbrigðismál að afglæpavæða neysluskammta

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að und­an­farin ár hafi íslenskt sam­fé­lag sam­mælst um að mik­il­vægt sé að aðstoða fólk með fíkni­vanda frekar en að refsa því og að veita þeim sjálf­sagða heil­brigð­is­þjón­ustu. Vísað er til Portú­gals sem for­dæmis um góðan árangur af afglæpa­væð­ingu neyslu­skammta. Árið 2001 voru sam­þykkt lög þar í landi um að varsla neyslu­skammta væri ekki refsi­verð. Þrátt fyrir ágrein­ing um lögin á sínum tíma og efa­semdir um árangur þeirra, hafa þær raddir þagnað og í dag er fjöldi vímu­efna­neyt­enda hlut­falls­lega mjög lít­ill miðað við önnur lönd í Evrópu. Einnig hefur glæpum tengdum vímu­efna­neyslu fækkað veru­lega á þeim átta árum sem lögin hafa verið í gildi.

Í lok grein­ar­gerð­ar­innar segir: „Brott­hvarf frá refsi­stefnu sem gengur út á að jað­ar­setja neyt­and­ann víkur því nú um allan heim fyrir stefnu sem bygg­ist á því að veita neyt­endum sem á þurfa að halda við­eig­andi þjón­ustu. Með sam­þykkt frum­varps þessa mundi Ísland skipa sér í fremstu röð hvað varðar heil­brigð­is­þjón­ustu og mann­úð­lega nálgun gagn­vart þeim neyt­endum vímu­efna.“

Hvað er neysluskammtur?

Ekki kemur fram í frum­varp­inu eða lögum um ávana- og fíkni­efni hvað neyslu­skammtur sé eða hvernig lög­reglu beri að meta það á vett­vangi. „Hugtakið neyslu­skammtur verður að end­ur­spegla það magn sem ein­stakur neyt­andi þarf á að halda til eigin neyslu. Þetta getur verið breyti­legt eftir efnum og eftir ein­stak­lingum. Það er nú þegar rík hefð hjá lög­reglu um hversu mikið magn getur talist til dreif­ingar og sölu og hversu mikið getur talist minni háttar og þá til eigin neyslu. En valdið til að túlka þetta frum­varp ef það verður að lögum verður að end­ingu hjá dóm­stólum, til dæmis ef upp koma vafa­mál,“ segir Halldóra.

Í árs­skýrslu Lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir árið 2018 kemur fram að rúm­lega 1600 fíkni­efna­brot voru skráð hjá emb­ætt­inu í fyrra og var mála­fjöld­inn svip­aður og árið á undan. Lang­flest þeirra sneru að vörslu og með­ferð ávana- og fíkni­efna, eða um 1240. Málum vegna flutn­ings milli lands og sölu og dreif­ingar fíkni­efna fækk­aði lít­il­lega milli ára. Verði frum­varpið að veru­leika má því gera ráð fyrir að skráðum fíkni­efna­brotum muni fækka, jafn­vel veru­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi