Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gera tugmilljóna kröfu á Torg

Unnið er að kröfu­gerð fyrir hönd blaða­manna og ann­arra rétt­hafa á Frétta­blað­inu eftir að í ljós kom að Torg ehf., eig­andi Frétta­blaðs­ins, og Sýn, núver­andi eig­andi vísis.is, hefðu gert með sér millj­óna sam­komu­lag um nýt­ingu efnis úr Frétta­blað­inu á visi.is. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs nemur heild­ar­upp­hæð sam­komu­lags­ins um 100 millj­ónum króna.

Gera tugmilljóna kröfu á Torg
Mynd / Hákon Davíð

Blaða­menn og aðrir rétt­hafar á Frétta­blað­inu und­ir­búa nú tug­millj­óna kröfu á hendur Torgi ehf. vegna þess efnis sem birst hefur á vísi.is frá því að gengið var frá kaupum Sýnar á ljós­vaka­miðlum og fjar­skipta­þjón­ustu 365 miðla. Torg ehf. á Frétta­blaðið, Mark­að­inn og Glamour en Sýn er móð­ur­fé­lag Vodafone og hét Fjar­skipti hf. þegar kaupin gengu í gegn.

Gengið var frá kaup­unum í mars 2017 en sam­kvæmt sam­runa­skrá nam kaup­verðið 7,8 millj­örðum króna. Greint var frá því að Torg og Sýn hefðu gert með sér sam­starfs­samn­ing um nýt­ingu efnis úr Frétta­blað­inu á vísi.is til skamms tíma en við umfjöllun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var sam­komu­lagið lagt fram sem fylgi­skjal við kaup­samn­ing­inn og merkt trún­að­ar­mál.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs gætti mik­illar óánægju meðal blaða­manna Frétta­blaðs­ins með til­hög­un­ina en þeim var m.a. tjáð að til­gang­ur­inn væri öðrum þræði að tryggja sýni­leika Frétta­blaðs­ins á Netinu, fram að þeim tíma að fretta­bla­did.is hefði fest sig í sessi. Það var ekki fyrr en spurn­ingar vökn­uðu um höf­und­ar­rétt efn­is­ins að starfs­menn Frétta­blaðs­ins fengu veður af því að í sam­starfs­samn­ingnum hefði verið kveðið á um greiðslur fyrir efnið en Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að heild­ar­virði sam­komu­lags­ins nemi um 100 millj­ónum króna.

Þurfa líklega að sækja málið fyrir dómstólum

Blaða­menn, ljós­mynd­arar og aðrir sem leggja fjöl­miðlum til efni efni eiga á því höf­und­ar­rétt. Oft er kveðið á um notkun efn­is­ins í ráðn­ing­ar­samn­ingi en fjallað er um höf­und­ar­rétt­inn í aðal­kjara­samn­ingi Blaða­manna­fé­lags Íslands og Samtaka atvinnu­lífs­ins. Þar segir í grein 12.3:

„Við sölu á höf­unda­rétt­ar­vörðu efni til þriðja aðila, s.s. ann­arra fjöl­miðla, ein­stak­linga eða sam­taka, skal gera sam­komu­lag um slíka sölu við ein­staka vinnu­hópa, s.s. ljós­mynd­ara eða heild­ar­sam­tök rétt­hafa á hverjum vinnu­stað. Tryggt skal í slíkum samn­ingi að gætt sé í hví­vetna sæmd­ar­réttar rétt­hafa við frek­ari nýt­ingu á efn­inu og sölu­verð skal taka mið af því hvort efnið er notað til eigin nota eða ann­arrar útgáfu. Innkomu fyrir sölu á höf­und­ar­rétt­ar­vörðu efni skal að jafn­aði skipt til helm­inga milli samn­ings­að­ila að frá­dregnum kostn­aði sem haldið skal í lág­marki.“

Heim­ilda­menn Mannlífs segja alveg ljóst að starfs­menn Frétta­blaðs­ins eigi rétt á greiðslum fyrir nýt­ingu efn­is­ins og lesa má úr ákvæð­inu hér fyrir ofan að heild­ar­krafa þeirra gæti hljóðað upp á nærri 50 millj­ónir króna. Samkvæmt við­mæl­endum Mannlífs hafa þreif­ingar milli tals­manna starfs­manna og for­svars­manna Torgs staðið yfir í nokkurn tíma en svo virð­ist sem síð­ar­nefndu hafi ekki gert sér grein fyrir höf­und­ar­rétti starfs­manna þegar sam­starfs­samn­ing­ur­inn var und­ir­rit­aður. Hafa þeir neitað að gera málið upp þannig að starfs­menn Frétta­blaðs­ins geti við unað.

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, trún­að­ar­maður blaða­manna á Frétta­blað­inu, vildi lítið tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Hún stað­festi hins vegar að leitað hefði verið til lög­manns og að Blaða­manna­fé­lagið fylgd­ist með mál­inu. Þá stað­festi hún einnig að unnið væri að kröfu og að krafan hljóð­aði upp á tug­millj­ónir. Hún sagði líkur á að málið rataði til dóm­stóla.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina