Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Barnaníð grasserar á Netinu

Sinnu­leysi, fjársvelti og ráða­leysi valda því að myndir og mynd­brot sem sýna kyn­ferð­is­of­beldi og pynt­ingar á börnum ganga kaupum og sölum á Netinu sem aldrei fyrr. Níð­ing­arnir athafna sig á sam­fé­lags­miðlum og myrka­net­inu og leita að gróf­ara efni í skjóli dulkóð­unnar.

Barnaníð grasserar á Netinu
reyk­ingar

Banda­rískum stjórn­völdum bár­ust í fyrra til­kynn­ingar frá tækni­fyr­ir­tækj­unum um 45 millj­ónir mynda og mynd­brota af barn­a­níði á Netinu. Um er að ræða algjöra spreng­ingu en fyrir ára­tug voru um milljón mynda og mynd­brota til­kynnt og þótti mikið. Vandann má rekja til sinnu­leysis stjórn­valda, fjársveltis lög­gæslu­að­ila og ráða­leysi tækni­fyr­ir­tækj­anna sem reka þá miðla þar sem hryll­ing­ur­inn þrífst.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun New York Times sem birt­ist sl. helgi en þar segir einnig að þrátt fyrir að barn­a­níðs­efni hafi verið fram­leitt og dreift fyrir tíma Inter­nets­ins, hafi sam­skipta­miðlar og svo­kall­aðar skýja­geymslur aukið vand­ann til muna. Glæpa­menn­irnir nota VPN-teng­ingar til að fela slóð sína, dulkóða sam­skipti sín og gögn, og stunda brot sín á svoköll­uðu myrka­neti; und­ir­heimum Inter­nets­ins sem hefð­bundnir vafrar ná ekki til.

Mynd­irnar og mynd­brotin eru hrylli­leg. Þau sýna gróf kyn­ferð­is­brot og pynt­ingar á börnum, sem sum hafa ekki náð leik­skóla­aldri. Geta níð­ing­anna til að fara huldu höfði á Netinu veitir þeim sjálfs­traust til að leita að og deila gróf­ara efni en áður, þar sem yngri börn koma við sögu. „Sögulega séð, þá hefðir þú aldrei getað farið í svarta­mark­aðs­verslun og sagt: Ég vil virki­lega gróft efni með þriggja ára barni,“ hefur NY Times eftir Yolöndu Lippert, sak­sókn­ara í Illinois. „En nú getur þú setið nokkuð öruggur við tækið þitt og leitað að þessu; býtað fyrir þessu.“

„Sögulega séð, þá hefðir þú aldrei getað farið í svarta­mark­aðs­verslun og sagt: Ég vil virki­lega gróft efni með þriggja ára barni“

Árið 2008 sam­þykkti banda­ríska þingið að 60 millj­ónum dala yrði varið árlega til að berj­ast gegn barn­a­níði á Netinu. Aðeins um helm­ingur þeirrar upp­hæðar hefur verið lagður í mála­flokk­inn. Þá hefur eft­ir­fylgni með lög­unum verið stór­kost­lega ábóta­vant. Lög­gæslu­yf­ir­völdum skortir fjár­muni og mann­afla til að takast á við vand­ann, sem hefur leitt til þess að sums staðar hafa þau neyðst til að for­gangs­raða og ein­blína ein­göngu á yngstu fórn­ar­lömbin.

Samfélagsleg afneitun

Tækni­fyr­ir­tækin hafa verið mis­dug­leg í sam­starf­inu við lög­gæslu­yf­ir­völd. Þess eru m.a. dæmi að not­endum hafi verið gert við­vart að þeir hafi vakið athygli yfir­valda, sem gerði við­kom­andi kleift að eyði­leggja sönn­un­ar­gögn áður en til kast­anna kom. Langstærstur hluti til­kynn­ing­anna sem bár­ust yfir­völdum í fyrra, eða tveir þriðju, komu til vegna sam­skipta á Facebook Messen­ger. Fyrr á þessu ári til­kynntu for­svars­menn sam­skipta­mið­ils­ins að til stæði að dulkóða skila­boð á Messen­ger, sem mun gera lög­gæslu­yf­ir­völdum enn erf­ið­ara fyrir.

Í umfjöllun NY Times er m.a. fjallað um mál manns í Ohio sem var hand­tek­inn fyrir vörslu grófs myndefnis, sem sýndi gróft kyn­ferð­is­of­beldi og pynt­ingar á börnum. „Aðal­hljóðið sem heyr­ist er barnið að öskra og gráta,“ sagði í skýrslu lög­gæslu­yf­ir­valda um eitt mynd­brot­anna. Maðurinn var einn stjórn­enda vef­síð­unnar Love Zone en not­endur hennar voru um 30 þús­und tals­ins. Skilyrði aðildar voru að not­endur deildu eigin efni. Á síð­unni var svo sér­svæði fyrir „fram­leið­endur“, þá sem deildu efni sem sýndi þá sjálfa brjóta gegn börnum. Þrjátíu þús­und not­endur kann að virð­ast mik­ill fjöldi en lög­gæslu­yf­ir­völd hafa áður lokað mun umfangs­meiri deilisíðum, þ. á m. einni sem kall­að­ist Child‘s Play en not­endur voru sagðir fleiri en milljón.

Þeir sem hafa helgað sig bar­átt­unni gegn barn­a­níði segja sam­fé­lags­lega afneitun eitt stærsta vanda­málið. Hryll­ing­ur­inn sé svo mik­ill að fólk eigi hrein­lega erfitt með að horfast í augu við hann. „Fólk snýr sér í burtu því speg­il­myndin er svo ljót,“ segir Steven J. Grocki, hjá banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Ábendingalína Barnaheilla

Í nærri tvo ára­tugi hafa Barna­heill – Save the Children á Íslandi rekið ábend­inga­línu þar sem almenn­ingur getur komið á fram­færi upp­lýs­ingum um mögu­legt barn­a­níðs­efni á Netinu.

Ábend­inga­línan er rekin í sam­vinnu við Rík­is­lög­reglu­stjóra en allar til­kynn­ingar sem ber­ast fara til rann­sóknar hjá lög­reglu. Lögregla rekur slóð efn­is­ins, finnur út úr því hvar það er vistað og sér til þess að það sé fjar­lægt.

Ábend­inga­lína Barna­heilla til­heyrir INHOPE, alþjóð­legum regn­hlífa­sam­tökum ábend­inga­lína. Fleiri en 46 ábend­inga­línur í 41 landi til­heyra sam­tök­unum.

Frá upp­hafi hafa 6 þús­und til­kynn­ingar borist í gegnum ábend­inga­lín­una. Í fyrra töldu þær 216 en það sem af er 2019 eru þær 78. Þar af vörð­uðu ein­hverjar hugs­an­legt kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ