Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenskir listamenn gera það gott en ríkislögreglustjóri er ósáttur

Í hverri viku til­tekur Mannlíf þá aðila sem átt hafa góða viku og slæma viku. Að þessu sinni eru það íslenskir lista­menn og Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri sem komust á blað.

Íslenskir listamenn gera það gott en ríkislögreglustjóri er ósáttur

Góð vika
Íslenskir lista­menn
Um síð­ustu helgi bár­ust fregnir af því að Íslend­ingar tveir, Aron Hjart­ar­son og Hildur Guðna­dóttir, hefðu unnið til hinna virtu Emmy-verð­launa. Aron, sem er list­rænn stjórn­andi kvik­mynda­fyr­ir­tæk­is­ins Framestore, hlaut verð­launin fyrir 360 gráðu mynd sem tekin var sam­hliða heim­ilda­mynd­inni Free Solo en Hildur bar sigur úr býtum fyrir bestu frum­sömdu tón­list­ina, sem hún samdi fyrir sjón­varps­þætt­ina Chernobyl. Margir bíða nú í eft­ir­vænt­ingu eftir næstu fréttum af Hildi en hún á einnig tón­list­ina í kvik­mynd­inni Joker, sem hefur verið að gera það gott á kvik­mynd­há­tíðum. Þá bár­ust fregnir af því eftir helgi að The Visitors, víd­eó­verk Ragnars Kjart­ans­sonar, hefði verið valið besta verk 21. ald­ar­innar af The Guardian. Í verk­inu koma við sögu níu íslenskir tón­list­ar­menn en þess má geta að The Weather Project, inn­setn­ing eftir Ólaf Elíasson, vermir 11. sæti list­ans. Þrusugóð vika það!

Slæm vika
Haraldur Johann­es­sen
Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri hefur ekki átt sjö dag­ana sæla og virð­ist ekki hátt skrif­aður meðal margra kollega sinna. Haraldur hefur löngum sætt gagn­rýni fyrir fram­göngu sína í starfi; aðgerðir og aðgerða­leysi, en átökin meðal lag­anna varða hafa magn­ast síð­ustu miss­eri og er nú svo komið að Rík­is­end­ur­skoðun hefur ákveðið að gera stjórn­sýslu­út­tekt á Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Um síð­ustu helgi birt­ist við­tal við Harald í Morg­un­blað­inu þar sem hann hélt því meðal ann­ars fram að óvin­sældir hans mætti rekja til þess að hann væri þeirrar skoð­unar að sam­eina ætti öll lög­reglu­emb­ætti lands­ins í eitt. Var hann nokkuð skýr um það að fækka mætti veru­lega meðal yfir­manna lög­regl­unnar. Í við­tal­inu lét Haraldur einnig hafa eftir sér yfir­lýs­ingu sem flestir skildu sem svo að kæmi til þess að hann yrði lát­inn taka pok­ann sinn myndi hann sjá til þess að aðrir fylgdu á eftir en dró hann heldur úr eftir helgi og sagði orð sín tekin úr sam­hengi. Dóms­mála­ráð­herra hefur sagt ástandið óvið­un­andi og staða rík­is­lög­reglu­stjóra virð­ist heldur ótraust eins og sakir standa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina