Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Lífsbjörgin segir mér að ég á greinilega að gera meira í lífinu en að fá flog“

Daníel Örn Wirkner Jóhann­es­son gull­smiður var hætt kom­inn um borð í vél Icelandair í byrjun sept­em­ber þegar hann fékk floga­kast yfir Atl­ants­haf­inu í 20 þús­und feta hæð. Lífi hans var bjargað með skjótum við­brögðum læknis og hjúkr­un­ar­fræð­ings, en aðeins nokkrar mín­útur skildi milli lífs og dauða.

„Lífsbjörgin segir mér að ég á greinilega að gera meira í lífinu en að fá flog“
Daníel Örn Wirkner Jóhann­es­son Mynd / Hallur Karlsson

Blaða­maður heim­sótti Daníel og Rakel Dögg Þor­varð­ar­dóttur Tamimi, unn­ustu hans, á heim­ili þeirra. Hann er aug­ljós­lega dauð­þreyttur og enn að ná sér eftir lífs­reynsl­una, þrátt fyrir að tvær vikur séu liðnar frá atvik­inu.

„Ég man eftir því að við gengum sam­ferða lækn­inum og fjöl­skyldu hans upp ramp­inn inn í vél­ina. Sonur hans var eitt­hvað óró­legur og ég grín­að­ist svona í honum sem róaði hann aðeins. Síðan man ég næst eftir mér þar sem ég vakn­aði tveimur sól­ar­hringum seinna á gjör­gæslu­deild á spít­ala í Dublin,“ segir Daníel. Þar á hann við Hlyn Davíð Löve skurð­lækni og fjöl­skyldu hans, en það var Hlynur sem bjarg­aði lífi Daníels um borð í vél­inni.

Daníel og Rakel kynnt­ust fyrst fyrir mörgum árum en hitt­ust aftur á Tinder-stefnu­móti í byrjun árs. „Ég var ekki búinn að átta mig á að þetta væri hún. Hjartað í mér stopp­aði í nokkrar sek­úndur þegar ég átt­aði mig á hver hún væri og ég fann hvernig ég roðn­aði. Og þegar ég keyrði heim hugs­aði ég: Það er ekki séns að ég fari að sleppa henni. Sjö mán­uðum seinna eru þau trú­lofuð og sam­mála um að þeim hafi verið ætlað að hitt­ast aftur. Mynd / Hallur Karlsson
„Þetta stóð mjög tæpt og írsku lækn­arnir segja að þetta hafi verið mín­útu­spurs­mál“

Fyrirburi sem var ekki hugað líf

Daníel er fæddur árið 1984 í Vest­manna­eyjum og var fyr­ir­buri, fæddur tveimur og hálfum mán­uði fyrir tím­ann. „Ég átti í raun ekki að fá að lifa. Á þessum tíma var nýbúið að kaupa hita­kassa í Eyjum og það var hringt í afa minn sem var raf­virki og honum sagt að drífa sig og koma og tengja kass­ann, dreng­ur­inn væri á leið í heim­inn og í sjúkra­flug. Síðan var flogið með mig í kass­anum á sjúkra­hús til Reykja­víkur.“

Daníel bragg­að­ist og flutti ungur til Reykja­víkur. Á sama tíma og hann stund­aði nám í Borg­ar­holts­skóla, byrj­aði hann að spila sem plötu­snúður og tók síðan þátt í stofnun hljóm­sveit­ar­innar Igore, þegar hann er 17 ára. Sveitin varð feikna vin­sæl og með­limir hennar lands­þekktir. „Maður lifði popp­stjörnu­lífi og við vorum oft að grín­ast með hvað þetta væri klikkað. Maður fór ekki í Kringl­una nema ein­hverjir hóp­uð­ust að manni. Þetta var mjög skemmti­legur tími, en skól­inn fór nú eitt­hvað fyrir lítið.“

„Hrunið var flott ár“

Árið 2008 breytt­ist líf Daníels hins vegar til fram­búðar þegar hann lenti í vinnu­slysi og datt þrjá og hálfa metra niður af vinnu­palli. „Eftir slysið þurfti ég að finna algjör­lega upp á nýtt hvað ég ætl­aði að gera í líf­inu. Þarna var ég að vinna við skilta­gerð, en ég er mennt­aður suðu­maður í grunn­inn. Ég náði að klára það nám, svona með djamm­inu,“ segir Daníel.

Hann var á Grens­ás­deild LSH í fjórar vikur, óbrot­inn en seg­ist hafa slitið allt sem hægt var að slíta: „ökklann, hnéð og öxl­ina, það þurfti að færa til æðar og taugar og alls konar drasl.

Þarna stóð ég einn allt í einu árið 2008, ég hafði eign­ast þrjú börn, en skildi, og missti íbúð­ina, vinn­una og heils­una. Það fór allt árið 2008, hrunið var flott ár.“

Varanlegar afleiðingar vinnuslyssins

Vinnu­slysið hafði var­an­legar afleið­ingar fyrir heilsu, vinnu og líf Daníels. Floga­köstin eru afleið­ingar þess, en fyrstu krampana fékk hann árið 2009 í aðgerð. „Ég fékk CRSD, sem er alvar­legur og mjög sjald­gæfur tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómur. Allt eru þetta afleið­ingar slyss­ins og mögu­lega voru gerð mis­tök í svæf­ing­unni þá. Það er verið að skoða það án þess að sé hægt að full­yrða neitt þegar svona langur tími er lið­inn og það er ekki verið að ásaka neinn, þetta er bara eins og það er. Ég hóf nám í gull- og silf­ur­smíði og stund­aði það á mínum hraða vegna veik­ind­anna, ég missti vel úr skól­anum annað árið, þá var ég enda­laust í aðgerðum.“

Þegar hann var á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum árið 2012 lenti hann í fyrsta hjarta­stopp­inu. „Þar var ég í heima­húsi með vinum mínum í rólegri stemn­ingu þegar ég fékk floga­krampa sem leiddi til þess að ég fór í önd­un­ar­stopp og síðar hjarta­stopp. Lækn­ir­inn sem tók á móti mér þegar ég fædd­ist var á vakt á sjúkra­hús­inu í Eyjum og sagði við mig að hann vildi aldrei þurfa að upp­lifa þetta aftur, að þurfa að hnoða í mig lífi,“ segir Daníel

Í hjartastoppi yfir Hellisheiði

Árið 2015 lenti Daníel í sínu öðru hjarta­stoppi, á balli á Selfossi, og seg­ist hann muna eftir lækni sem kom­inn var til að ákvarða dán­ar­stund­ina. „Það er kannski asna­legt að segja þetta, en ég man eftir að heyra hann segj­ast ætla að kalla dán­ar­stund. Þarna hafði ég verið í hjarta­stoppi í dágóðan tíma, þegar lög­reglu­maður á staðnum sagð­ist vilja prófa eitt. Sá lamdi mig kröft­ug­lega með báðum hnefum og braut á mér brjóst­kass­ann en það dugði til, það fannst veikur púls og það var keyrt með mig til Reykja­víkur,“ segir Daníel.

Fjöldi sjúkra­bila var kom­inn á stað­inn. Leiðin til Reykja­víkur var lokuð fyrir annarri umferð en sjúkra­bílnum sem flutti Daníel og hefur hann eftir kon­unni sem keyrði að hún hafi aldrei ekið þessa leið jafn­hratt. „Það var verið að hnoða í mig lífi alla leið­ina og ástandið var það slæmt að það var íhugað að kalla út þyrlu og láta hana mæta sjúkra­bílnum á miðri leið,“ segir hann.

„Lífs­björgin segir mér að ég á greini­lega að gera meira í líf­inu en að fá flog. Ég vil alla vega trúa því, ég vil vera lengur með ykkur,“ segir Daníel og lítur ást­ar­augum á Rakel og bætir við: „Ég átti líka eftir að hitta hana. Sem er merki­legt út af fyrir sig, því ég hafði verið skot­inn í henni í mjög mörg ár.“

Skortur á fræðslu um flogaveiki

Eftir atvikið á Selfossi árið 2015 var Daníel laus við stærri floga­köst þar til núna í ár. „Ég fékk floga­kast í byrjun mars. Ég hafði verið að vinna mikið sem er ekki gott fyrir floga­veika, en maður gleymir sér í sköp­un­inni. Ég hringdi í Rakel um klukkan hálf­tólf um kvöldið og sagð­ist vera að ganga frá. Síðan rank­aði ég við mér um sjö morg­un­inn eftir og man ekk­ert. Allur blautur af froðu og með fínt horn á hausnum,“ segir Daníel og segir Rakel ekki hafa farið að ótt­ast um hann því hann eigi til að gleyma sér og lof­orðum um tíma­setn­ingar.

Daníel segir að fræðsla um floga­veiki og við­brögð við henni mætti vera betri bæði í skólum og á skyndi­hjálp­ar­nám­skeiðum, sem hann telur eiga að vera skyldu­nám í grunn­skóla. „Ég beit næstum fingur af konu, sem ætl­aði að vera svo elsku­leg og aðstoða mig. Hún hafði lært að setja ætti eitt­hvað í munn ein­stak­lings sem fær floga­kast, en það eru kol­röng við­brögð. Við fórum bæði með sjúkra­bíl í það skipti,“ segir Daníel. „Það á að leggja mann­eskju í læsta hlið­ar­legu, halda önd­un­ar­vegi opnum, passa höf­uðið og hringja á sjúkra­bíl. Rétt við­brögð og fræðsla skipta miklu máli þegar eitt­hvað kemur upp á, hvort sem um floga­veiki er að ræða eða annað. Því miður hafa orðið dauðs­föll sem þurftu ekki að verða, ein­göngu vegna rangra við­bragða.“

Daníel er greindur með þrenns konar floga­veiki: sál­ræna floga­veiki, störu­flog og alvöru­flog (e. grand mal). „Þau sál­rænu stafa af áfalli, lík­lega frá öllum aðgerð­unum sem ég hef geng­ist undir. Þau eru ein­fald­lega varn­ar­við­bragð lík­am­ans, sem hljómar mjög ein­kenni­lega.“

Rakel tekur við og lýsir störu­flog­unum. „Þá starir hann og það er eins og það sé ekk­ert þarna inni, svo hummar hann og eins og smjattar. Svo eftir 10 sek­úndur, 30 sek­úndur hámark, dettur hann inn aftur. Þessi flog fær hann oft á dag og þau juk­ust eftir atvikið í flug­inu, en eru farin að minnka aftur,“ segir hún.

„Ég er mein­gall­aður,“ skýtur Daníel inn í. Rakel seg­ist þó ekki geta skilað honum, því for­eldrar hans hafi sagt henni að hún mætti eiga hann og það væri eng­inn skila­frestur.

Er ekk­ert hægt að tempra floga­köstin?

„Jú, með lyfja­gjöf og utan­um­haldi er það hægt og margir hafa verið floga­lausir í yfir 20 ár, en í mínu til­viki hefur það ekki tek­ist. Ég var á einu lyfi og hafði verið á því í eitt og hálft ár og löngu búinn að byggja upp þol auk þess sem lyfið dugði alls ekki,“ segir Daníel. „Lækn­arnir úti telja að það sé ástæðan fyrir að ég fékk floga­kastið í mars. Þeir segja að ég eigi að vera lág­mark á tveimur lyfjum, jafn­vel þremur, þeir ætl­uðu ekki að trúa að ég væri bara á einu lyfi og búinn að vera á því svona lengi. Staðan er sú að ég verð á lyfjum ævi­langt.“

Er ein­hver fyr­ir­vari á flog­unum?

„Hann er oft­ast eng­inn, stundum er eins og sjónin til hlið­anna byrji að víbra og ég fæ bit­urt bragð en það er kannski ein sek­únda, þá er floga­kastið byrjað.“

Máttu keyra floga­veikur?

„Ég er með gild öku­rétt­indi og almennt má ég keyra. En mér dettur ekki í hug að setj­ast undir stýri í núver­andi ástandi og stofna lífi ann­arra í hættu með slíkum glæfra­skap.“

„Hlynur er algjör hetja og græj­aði þetta eins og sannur fag­maður og það er honum að þakka að ég er hér í dag“

Bjargað í 20 þúsund fetum við ótrúlegar aðstæður

Talið berst aftur að atvik­inu um borð í vél­inni í byrjun sept­em­ber. „Það hafði verið mikið álag á mér í vinnu þannig að við ákváðum að nú væri kom­inn tími á frí. Fjöl­skylda mín á hús á Spáni og við dvöldum þar í viku með vina­fólki okkar. Síðan vorum við í flug­inu heim, búin að vera rúm­lega klukku­stund í loft­inu og rétt komin yfir Írland, þegar ég fékk floga­kast,“ segir Daníel.

Rakel seg­ist hafa litið til hliðar og séð að hann var far­inn að froðu­fella í krampakasti. „Ég leysti hann úr belt­inu og hugs­aði um að ná honum niður á gólf í læsta hlið­ar­legu. Ég man ekki hvort ég eða ein­hver annar kall­aði á hjálp, en það var strax kom­inn hópur af fólki í kringum okkur.“

Þar á meðal var fyrr­nefndur Hlynur Davíð Löve skurð­læknir sem bjarg­aði lífi Daníels við ótrú­legar aðstæður.

„Daníel lá á gólf­inu á milli sætarað­anna, með fæt­urna þar sem við höfðum setið, kvið­inn í gang­veg­inum og höfuð og hendur í næstu sæta­röð. Ég, flug­freyja og maður sem sat hjá okkur skipt­umst á að blása í hann með belg og síðan reyndu Hlynur og hjúkr­un­ar­fræð­ingur að bjarga honum. Við vitum engin deili á mann­inum sem sat hjá okkur eða hjúkr­un­ar­fræð­ingnum, en ef þau lesa þetta, mega þau endi­lega gefa sig fram við okkur,“ segir Rakel.

Daníel sjálfur man ekk­ert og hefur því vit­neskju um lífs­björg­ina frá Rakel, skýrslu sem gerð var og frá­sögn lækn­anna í Dublin, en flug­vél­inni var snúið þangað, því flug­tím­inn þangað var styttri, en að halda áfram til Íslands. En hvað ef vélin hefði verið komin nær Íslandi? „Þá sæti ég lík­lega ekki hér,“ segir Daníel.

„Þetta stóð mjög tæpt og írsku lækn­arnir segja að þetta hafi verið mín­útu­spurs­mál. Ég tæmdi tvær súr­efn­is­flöskur sem voru um borð og því var pumpað í mig með belg. Ég var orð­inn hel­blár í framan og það áður en vélin hafði náð að lenda. Hlynur reyndi að setja upp æða­legg, sem lík­lega var ekki auð­velt, en hann kom nál­inni upp sem betur fer af því þá var hægt að gefa mér lyf til að reyna að stoppa köstin.“

Blóðug föt Rakelar sem hún var í í flug­vél­inni sýna vel hvað gekk á um borð og nefna þau að lík­lega hafi vélin sjálf ekki litið vel út eftir hama­gang­inn. Þegar lent var tók síðan um 5-6 mín­útur að koma Daníel frá borði og ekið var í for­gangi með hann og Rakel á spít­ala, þar sem hann rank­aði við sér tveimur dögum seinna á gjör­gæslu. Þar dvaldi hann í níu sól­ar­hringa og segir allt hafa verið til fyr­ir­myndar, vel um sig hugsað og starfs­fólkið ynd­is­legt.

Rakel vék ekki frá hlið hans og borð­aði hvorki né svaf í fyrstu. Að lokum þótti lækni Daníels nóg um og kall­aði til félags­ráð­gjafa til að hugsa um Rakel og voru henni útveg­aðar mál­tíðir og gist­ing á nálægu gisti­heim­ili.

Daníel á spít­al­anum í Dublin, degi eftir flug­ferð­ina afdrifa­ríku.
„Ég er bara enn að átta mig á hvað gerð­ist. Ég var á Spáni og svo man ég næst eftir mér á spít­ala í Dublin“

Flogakast á gjörgæsludeild

Áföllin voru þó ekki yfir­staðin, því Daníel fékk floga­kast á spít­al­anum. „Ég þurfti að fara á sal­ernið og taldi mig vera í standi til að fara einn. Það voru tvær konur á vakt og önnur gaf mér leyfi að fara,“ segir Daníel sem fékk floga­kast á leið­inni til baka í rúmið, sló höfð­inu í stól í fall­inu og lenti með vinstri fót­inn undir sér og þunga lík­am­ans ofan á fót­inn.

„Hann hafði ekki staðið upp í marga daga og mátti því ekki ganga einn, heldur þurfti að fá stuðn­ing,“ segir Rakel.

Daníel kom til Íslands fyrr í vik­unni og er þegar búinn að bóka skoð­anir og rann­sóknir. „Ég var hjá bækl­un­ar­skurð­lækni í dag, fer í mynd­grein­ingu á föstu­dag og hjarta­ómun fljót­lega. Lækn­arnir úti vilja úti­loka að floga­köstin teng­ist hjart­anu.“

Í dag gengur Rakel um með lyfja­penna, en þau komu heim með fjóra slíka frá írska sjúkra­hús­inu. „Mér finnst merki­legt að þeir séu ekki til hér heima,“ segir Daníel. „Ef ég fæ alvöru­floga­kast, þá eru mér ein­fald­lega gefin 5 milli­grömm í hvora kinn með penn­anum, kinn­arnar nudd­aðar og hringt strax á sjúkra­bil. Í penn­anum er sama lyf og notað er í sjúkra­bílum hér.“

Hvað tekur við eftir lífs­björg­ina? „Ég er bara enn að átta mig á hvað gerð­ist. Ég var á Spáni og svo man ég næst eftir mér á spít­ala í Dublin og það var rign­ing, þetta er allt slitr­ótt. Ég hef stamað mjög mikið, en það er farið að ganga til baka. Og ég hef aldrei sofið jafn­mikið og núna, en ég næ að halda mér vak­andi svona 10 tíma á sól­ar­hring í tveimur skorpum,“ segir Daníel.

„Nú tekur við bata­ferli og þegar það er búið tekur við brjáluð smíði og að koma verk­stæð­inu í gott horf. Svo taka bara við skemmti­legir tímar og ég ætla að njóta lífs­ins með Rakel.

Ég vil koma sér­stöku þakk­læti til Hlyns, hjúkr­un­ar­fræð­ings­ins sem ég veit engin deili á, starfs­fólks Icelandair og bara allra um borð. Það héldu allir ró sinni, sem skiptir höf­uð­máli við svona aðstæður, svo sjúk­ling­ur­inn upp­lifi ekki paniká­stand og verði enn skelk­aðri. Hlynur er algjör hetja og græj­aði þetta eins og sannur fag­maður og það er honum að þakka að ég er hér í dag.“

Hlynur Davíð Löve er lækn­ir­inn sem bjarg­aði lífi Daníels. Hlynur sem er þrí­tugur fædd­ist með tvo hjarta­galla og þurfti að gang­ast undir fjölda aðgerða sem barn og ung­lingur. Í dag er hann unglæknir við skurð­lækn­inga­deild LSH, þar sem hann hefur meðal ann­ars notið leið­sagnar lækn­is­ins sem bjarg­aði lífi hans, Bjarna Torfa­sonar skurð­læknis.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð