Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það er eiginlega allt hræðilegt við þetta“

Kvik­myndin Agnes Joy verður frum­sýnd í íslenskum bíó­húsum í næsta mán­uði. Ein af stærstu stjörnum íslenskrar rapp­senu, Kristinn Óli Har­alds­son, betur þekktur sem Króli, fer með hlut­verk í mynd­inni. Hann seg­ist hafa skemmt sér kon­ung­lega við gerð hennar en við­ur­kennir að hann kvíði því að sjá sjálfan sig á hvíta tjald­inu.

„Ég hef ekki gert neitt í lík­ingu við þetta áður, leikið svona stórt hlut­verk og ég veit ekki alveg hvernig ég á að haga mér og við hverju á að búast. Ég var nefni­lega erlendis þegar tökulið­inu, leik­ur­unum og aðstand­endum var boðið á for­sýn­ing­una þannig að ég fer að sjá hana í bíó á sama tíma og allir aðrir, sem er skemmti­legt en líka mjög skerí. Ég á örugg­lega eftir að svitna. Það er eig­in­lega allt hræði­legt við þetta,“ segir Króli blátt áfram þegar hann er spurður hvort hann sé spenntur að sjá mynd­ina.

Agnes Joy er þroska­saga mæðgna frá Skaganum. Myndin er í leik­stjórn Silju Hauks­dóttur en með helstu hlut­verk fara Katla Margrét Þor­geirs­dóttir, Donna Cruz, Þor­steinn Bachmann, Björn Hlynur Har­alds­son og svo Króli, sem leikur Óskar, besta vin aðal­per­són­unnar. „Þau Agnes eru nánir vinir og Óskar er svona rödd skyn­sem­innar í sam­band­inu, talar ekk­ert í kringum hlut­ina, heldur lætur allt flakka. Sem er ólíkt mér, ég er langt frá því að vera svona skyn­samur,“ útskýrir Króli og hlær og játar að það hafi því komið sér vel að geta rætt per­són­una við leik­stjór­ann og hand­rits­höf­undana, það hafi hjálpað honum að skilja hana betur. „Auðvitað verður maður að finna sína nálgun, en ég veit ekki hvað ég hefði gert án þeirra.“

„… ég fer að sjá hana í bíó á sama tíma og allir aðrir sem er skemmti­legt en líka mjög skerí. Ég á örugg­lega eftir að svitna.“

Spurður hvernig það hafi komið til að honum bauðst hlut­verkið, seg­ist hann nú bara hafa fengið sím­tal sum­arið 2018 og verið boð­aður í prufu og farið vel stress­aður í hana. „Svo var ég kall­aður í aðra prufu. Þetta var nú ekk­ert í fyrsta sinn sem ég hef farið í gegnum það ferli,“ tekur hann fram, „þannig að ég gerði mér temmi­legar vænt­ingar. En eftir seinni pruf­una var mér boðið hlut­verkið, sem var geggjað.“

Og fannst þér ekk­ert mál að taka að þér svona stórt hluverk? „Jú, jú, maður er alltaf stress­aður. Ég held að það hverfi aldrei, sama hversu reynslu­mik­ill maður verður. Þannig að ég ætla ekki að ganga svo langt að segja að þetta hafi verið auð­velt. Það hjálp­aði að vera umkringdur fag­fólki. Ég er þakk­látur fyrir það.“

Leiklistin heillar

Þetta er þó langt í frá í fyrsta sinn sem Króli stendur fyrir framan mynda­vélar. Hann hefur leikið í mynd­böndum og er sem tón­list­ar­maður þaul­vanur því að koma fram. Spurður hver sé helsti mun­ur­inn á þessu tvennu er hann fljótur til svars. „Öll þessi rútína sem fólst í því að keyra upp á Akranes, þar sem myndin var tekin upp síð­asta vetur og vinna þar svo í marga tíma. Það er ólíkt því sem ég hef verið að gera. Svo má maður alveg gera mis­tök, þá er bara byrjað að taka upp á nýtt. Sem er til dæmis ekki hægt á sviði.“

Spurður hvort fyrri reynsla hafi hjálpað við gerð mynd­ar­innar hugsar hann sig um. „Ég veit það ekki alveg. Ef ég á að segja eins og er þá held ég að kvik­mynda­leikur sé frekar eitt­hvað sem komi með æfing­unni. Ég held að eng­inn nái að slá allar keilur í fyrstu atrennu. Vonandi stóð ég mig bara bæri­lega. Það kemur í ljós.“

Það er þó auð­heyri­legt að honum fannst gaman að leika í mynd­inni og þegar ég fer að spyrja meira út í það kemur upp úr kaf­inu að leik­list er eitt­vað sem Króli gæti vel hugsað sér að starfa við í fram­tíð­inni. „Já, ég fékk örlitla leik­list­ar­bakt­eríu sem krakki þegar ég lék í mynd­inni Bjarn­freð­ar­son og svo í tveimur leik­ritum í Þjóð­leik­hús­inu. Ég finn alveg að þetta er eitt­hvað sem mig langar til að vinna meira við.“

Gætirðu hugsað þér að snúa þér alfarið að leik­list? „Ja, ég er nú ekki til­bú­inn að segja það. Ég er ekki far­inn að hugsa svo langt. Það var alla vega frá­bært að fá að leika í Agnes Joy. Ég stend í þakk­ar­skuld við fólkið sem veitti mér það tæki­færi og ég væri alveg til í að leika meira. Núna tek ég til dæmis þátt í söng­leiknum We Will Rock You, sem er mjög gaman. Ég hef bara nóg að gera í bili og er mjög sáttur við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina