Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Reykjavíkurdætur sköpuð til að gefa konum pláss: „Við upplifum okkur ekki sem fórnarlömb“

Meðlimir Reykja­vík­ur­dætra hafa í dag skotið fast á Önnu Svövu Knúts­dóttur, en hún mun hafa gert grín að hljóm­sveit­inni í uppi­stands­sýn­ingu Björns Braga Arn­ars­sonar, en Anna Svava hitar þar upp.

Reykjavíkurdætur sköpuð til að gefa konum pláss: „Við upplifum okkur ekki sem fórnarlömb“
||Þura Stína

Sjá einnig: Reykja­vík­ur­dætur ósáttar við brand­ara Önnu Svövu: „Anna Svava komin í eitt­hvað grín­þrot“

Steiney Skúla­dóttir og Þura Stína gagn­rýndu Önnu Svövu á Twitter og segja hana komna í grín­þrot og hafa stolið fjög­urra ára gömlum brand­ara Emmsjé Gauta. Af orðum þeirra má sjá að Anna Svava hafi gert grín að íslenskum kven­röpp­urum.

„Að segja að það séu engir góðir kven­rapp­arar á Ísland í dag er svo ljótt og ömur­legt djók, við erum að spila útum allan heim fyrir mörg­þús­und manns og vinna alþjóð­leg tón­list­ar­verð­laun og Ísland er ennþá bara: Þið sökkið. Allar,“ skrifar Þura Stína.

Þura Stína Mynd / Facebook

Bendir Steiney á að þó að Reykja­vík­ur­dætur virð­ist ekki njóta mik­illa vin­sælda hér heima, þar sem þær hafa aðeins fengið eina beiðni um bókun það sem af er árinu, þá eigi ekki það sama við erlendis.


„Það er verið að bóka okkur á festi­völ um allan heim, spila okkur á útvarps­stöðvum eins og BBC og við vorum að vinna verð­launin besta up and coming hip hop band í Evrópu. Það er pjúra bara Ísland sem vill ekki sjá okkur. Þetta er svo ljótt kynja­mis­rétti að ég á ekki orð.“

Steiney Skúla­dóttir. Mynd / Heiðdís Guðbjörg

„Gagnrýni á Reykjavíkurdætur þarf að vera á málefnalegum grundvelli“

Þórdís Björk Þor­finns­dóttir með­limur Reykja­vík­ur­dætra og leik­kona tjáir sig um málið í færslu sem hún skrifar á Facebook-síðu sinni. Þar bendir hún á að það sé besta mál að þær stöllur fái á sig gagn­rýni, þó mögu­lega sé gagn­rýnin meiri heldur en flest tón­list­ar­fólk hér á landi hefur fengið.

„Það þurfa ekki allir að ELSKA RVKDTR enda er það ekki okkar mark­mið. Það má líka alveg gera grín “

„En gagn­rýnin þarf að vera á mál­efna­legum grund­velli. Og það á við um alla, hvort sem það eru lista­menn, stjórn­mála­menn eða hvað sem er. Af hvaða kyni sem er. Það er allt í fína að fýla ekki tón­list­ina okkar. Það er bara smekks­at­riði. Það þurfa ekki allir að ELSKA RVKDTR enda er það ekki okkar mark­mið. Það má líka alveg gera grín,segir hún og bætir við að málið snú­ast um meira og stærra en þennan eina litla brand­ara Önnu Svövu eins og Þórdís Björk orðar það.

Segir Þórdís Björk við­horf almenn­ings á Íslandi til Reykja­vík­ur­dætra krist­all­ast í gríni Önnu Svövu og segir hún það sorg­legt að hóp­ur­inn sé enn að glíma við þann stimp­ill sem settur var á þær fyrir sex árum þegar þær gáfu út fyrsta lag sitt.

„Þegar RVKDTR byrj­uðu þá vorum við flestar að stíga okkar fyrstu skref og ég held að ég tali fyrir okkur flestar þegar ég segi að fyrstu lögin okkar hafi bara alls ekki verið góð,“ segir Þórdís Björk og bætir við að allir séu ein­hvern tíma byrj­endur og verði að fá tæki­færi til að vera ófull­komnir og gera mis­tök.

Þórdís Björk Þor­finns­dóttir Mynd / Facebook

Mikil pressa um fullkomnun

Þórdís Björk seg­ist hafa fundið fyrir mik­illi pressu alveg frá byrjun um að vera fill­komin, þær hafi ekki mátt vera lélegar, hún viti þó ekki hvort að pressan hafi verið til­komin vegna þess að þær voru konur.

„Að upp­eldið sem við fengum eða sam­fé­lagið geri það að verkum að okkur finnst við „þurfa“ að vera full­komnar. Það er ekk­ert meira heft­andi en einmitt það, í list­sköpun. Að líða einsog maður þurfi að vera full­komin. Það er frá­bært að fá upp­byggi­lega gagn­rýni og ræða það sem betur má fara og fá að vaxa sem lista­maður. En maður þarf að fá pláss og frelsi til þess að vaxa. Maður þarf að þora að vaxa.“

Vilja ekki vera og upplifa sig ekki sem fórnarlömb

Segir Þórdís Björk að oft­ast taki hún og með­limir sveit­ar­innar nei­kvæðar athuga­semdir ekki til sín. Sigur þeirra liggi í frá­bærum tæki­færum erlendis og fyrir það séu þær þakk­látar.
„Við viljum heldur ekki vera ein­hver fórn­ar­lömb. Og við upp­lifum okkur ekki sem fórn­ar­lömb.“

Reykjavíkurdætur stofnaðar til að gefa konum pláss

Þórdís Björk segir að mark­miðið með stofnun sveit­ar­innar hafi verið að ryðja braut­ina fyrir konur í tón­list, sér­stak­lega í hiphop-i. Og henni sé sama þó að tón­list þeirra sé ekki spiluð á útvarps­stöðvum hér heima, það er þó umræðan og gagn­rýnin sem hún skilur ekki.

„Ég skil ekki afhverju við fáum mjög sær­andi og órök­studda gagn­rýni á borð við „vond tón­list er vond tón­list,“ „það eru engir góðir kven­kyns­rapp­arar á Íslandi,“ „fólk neyð­ist til þess að fýla ykkur því þið eruð svo PC”“eða „ þið eruð krabba­meins­vald­andi hel­vítis fem­inist­arnir ykkar“ (mitt per­sónu­lega upp­á­hald). Ég bara skil þetta ekki. Þetta eru mjög háværar raddir og ég veit að þetta hefur haft mikil áhrif á okkur. Og já – meira að segja grjót­harðir rapp­arar einsog við, eru líka með til­finn­ingar.“

„Mér líður stundum pínu­lítið eins og ég sé með áfallastreituröskun….Þarna voru strákar sem voru vinir mínir sem hlógu að þessu. Og ég þorði ekki að segja neitt.“

Hefur upplifað valdaleysi og niðurlægingu

Nefnir Þórdís Björk að degi eftir að Emmsjé Gauti birti tvít um sveit­ina fyrir fjórum árum hafi hún verið stödd í stráka­hópi og hafi aldrei upp­lifað sig jafn valda­lausa og nið­ur­lægða og þann dag.

„Mér líður stundum pínu­lítið einsog ég sé með áfallastreituröskun….Þarna voru strákar sem voru vinir mínir sem hlógu að þessu. Og ég þorði ekki að segja neitt. Þeim fannst þetta bara fyndið og sögðu „ég meina, þið sökkið nátt­úru­lega!“. Ég held að þetta tvít hafi normalíserað á ein­hvern hátt hvernig fólk leyfði sér að tala um okkur og VIÐ okkur. Og ég held líka að þetta tvít hafi haft mjög djúp­stæð áhrif á okkur sem tón­list­ar­konur. Þetta hafði amk. áhrif á mig og ég hef nú marga fjör­una sopið, and­skot­inn hafi það.“

Bendir hún að sveitin ein­setji sér að þora, að gefa konum pláss, segja og gera það sem þeim sýn­ist, „bara svona einsog strák­arnir gera. Og kannski hafa allir braut­ryðj­endur þurft að þola svip­aðan skít og við. Og já – ég sagði braut­ryðj­endur. Því það er það sem við erum.“

Hvetur hún alla til að gefa ungum konum tæki­færi til að vera þær sjálfar, hvetja þær, styðja við bakið á þeim og veita þeim upp­byggi­lega gagn­rýni og leyfa þeim að þroskast, dafna og taka pláss.

„Annars er ég hrædd um að þessar ungu og upp­renn­andi konur missi áhug­ann á því sem þær brenna fyrir – vegna þess að þær fá ekki pláss til að vera ófull­komnar.“

Að lokum segir Þórdís Björk að sveitin sé á leið til Hamborg að spila fyrir mörg þús­und manns.

„En ég meina, það eru auð­vitað engir góðir kven­kyns­rapp­arar á Íslandi. Ætli þau viti það ekki þarna á meg­in­land­inu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina