Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Komur á bráðamóttöku vegna fíkniefna og sterkra lyfja hafa aukist um 96,4%

Sam­an­tekt á mis­notkun ung­menna á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og öðrum fíkni­efnum er slá­andi en veru­leg aukn­ing er í komum á bráða­mót­töku, sjúkra­flutn­ingum og alvar­legum slysum vegna akst­urs undir áhrifum ávana- og fíkni­efna.

Komur á bráðamóttöku vegna fíkniefna og sterkra lyfja hafa aukist um 96,4%
||

Aukin mis­notkun á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og öðrum fíkni­efnum hefur verið gríð­ar­leg síð­ustu ár. Sífellt fleiri fréttir um ein­stak­linga í neyslu, jafn­vel á barns­aldri, og aukin dán­ar­tíðni vegna lyf­seð­ils­skyldra lyfja vekur óhug í sam­fé­lag­inu og kröfur um aukin og bætt úrræði verða sífellt hávær­ari. Langir biðlistar í með­ferð og úrræða­leysi veldur ein­stak­lingum í neyslu sem vilja bata og aðstand­endum þeirra kvíða og von­leysi.

Í sam­an­tekt sem sam­tökin Eitt líf hafa tekið saman um mis­notkun á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og öðrum fíkni­efnum kemur fram aukn­ing í tölum milli ára hvar sem borið er niður: dán­ar­tíðni vegna lyfja, sjúkra­flutn­ingar, komur á bráða­mót­töku, akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna og alvar­leg slys vegna slíks akst­urs.

Heimild / Sam­göngu­stofa

Markmið Eitt líf fræðslu­átaks­ins er að ná til grunn­skóla­nema í 7.–10. bekk ásamt for­eldrum og kenn­urum barn­anna og sporna við mis­notkun á lyfs­seð­il­skyldum lyfjum og öðrum fíkni­efnum.

Í sam­an­tekt þeirra kemur fram að væn­leg­ast sé talið að ná til ung­menna áður en þau prófa, sam­an­borið við að ná til þeirra eftir að þau hafa prófað. Flestar nei­kvæðar afleið­ingar sem mis­notkun á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og öðrum fíkni­efnum hefur í för með sér má helst rekja til þeirra sem eru á fram­halds­skóla­aldri og eldri og það er sá ald­urs­hópur sem Eitt líf hefur áhyggjur af.

Heimild / Talna­brunnur emb­ætti Land­læknis, maí 2019

Verndandi þættir eru að dala

Nið­ur­stöður rann­sókna á meðal grunn­skóla­nem­enda sýna að vernd­andi þættir eins og góð and­leg líðan, að for­eldrar viti hvar börn þeirra séu á laug­ar­dags­kvöldum, sam­veru­stundir með for­eldrum og fleira eru að dala. Á sama tíma eru áhættu­þættir eins og auð­velt aðgengi að lyfjum og fíkni­efnum, van­líðan og fleira að aukast. Kaup og sala hefur aldrei verið auð­veld­ari og fer fram á sam­fé­lags­miðlum, í appi og milli vina og kunn­ingja.

Vanlíðan meðal ung­menna er áhættu­þáttur, í dag er hún verri en nokkru sinni fyrr. Hátt í 40% tíundu bekk­inga finna fyrir dep­urð viku­lega eða oftar, 38% glíma við svefnerf­ið­leika og 17% segj­ast vera ein­mana mjög oft.

Notkun á lyfseðilsskyldum lyfjum fer vaxandi

Almenn notkun á lyf­seð­ils­skyldum lyfjum fer ört vax­andi um allan heim og sama á við á Íslandi. Í skýrslu Vel­ferð­ar­ráðs frá maí 2018 segir: „gera má ráð fyrir að þróun sam­fé­lags­ins og heil­brigð­is­kerf­is­ins á síð­ast­liðnum ára­tugum eigi þátt í að skapa vænt­ingar og menn­ingu sem lítur á lyf sem lausn margra vanda­mála og leitt hefur til mik­illar aukn­ingar á notkun þeirra. Þessi þróun ásamt miklu magni ávana­bind­andi lyfja í umferð skapar hættu á of- og mis­notkun þess­ara lyfja.“

Nýir tímar, nýjar áskoranir, breytt neysla

Með for­vörnum, fræðslu og auk­inni sam­fé­lags­vit­und hafa Íslend­ingar náð góðum árangri í að draga úr áfeng­is­neyslu og tóbaks­reyk­ingum meðal ung­menna. Í dag eru hins vegar breyttir tímar og hafa lyf­seð­ils­skyldu lyfin og mis­notkun þeirra leitt til nýrra áskor­ana og for­varna á breyttan hátt.

Í rann­sókn sem Rannsókn og grein­ing lagði fyrir fram­halds­skóla­nema árið 2018 kemur fram að 11% fram­halds­skóla­nema höfðu notað mor­fín­skyld verkja­lyf án lyf­seð­ils einu sinni eða oftar. Þá not­uðu 20% háskóla­nema örvandi lyf til þess að minnka svefn­þörf og bæta náms­ár­angur sam­kvæmt könnun Lyfja­stofn­unar sama ár. Alls 11% nem­enda í tíunda bekk hafa tekið svefn­töflur eða róandi lyf án lyf­seð­ils einu sinni eða oftar, sem ekki var ávísað á þau og 1,5% hafa reynt örvandi lyf, eins og rita­lín, sem ekki voru ætluð þeim.

Í könnun Gallup á vegum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins í lok árs 2018 kom fram að rúm­lega þriðj­ungur Íslend­inga á aldr­inum 18-67 ára hefur notað ólög­leg vímu­efni ein­hvern tíma um ævina. Flestir svör­uðu því til að hafa fengið ávísað lyfjum frá lækni aðspurðir um aðgengi að lyf­seð­ils­skyldum lyfjum.

Dánartíðni vegna lyfja eykst

Lyfja­tengd and­lát voru 39 árið 2018 en með­al­tal and­láta síð­ustu tíu ár eru 27. Það sem af er árinu 2019 eru 23 dauðs­föll til skoð­unar hjá Embætti land­læknis. Dán­ar­tíðni ung­menna vegna lyfja­tengdra and­láta, sér­stak­lega ungra karl­manna, var mjög há á síð­asta ári. Þá lét­ust 10 karl­menn á aldr­inum 15-29 ára.

„Fikt getur í aðeins eitt skipti reynst dýr­keypt og óaft­ur­kræft“

Sjúkra­flutn­ingar vegna ofneyslu juk­ust um 7% árið 2018, en útköll voru 453 tals­ins. Auknar komur á bráða­mót­töku LSH eru gríð­ar­legar, en ef miðað er við árin 2013-2017 er aukn­ingin 96,4% vegna fíkni­efna og sterkra lyfja. „Þetta eru ekki lengur jað­ar­hópar sem eru að fikta við vímu­efni, þetta er orðið svo algengt meðal flottra ungra krakka sem koma frá heim­ilum þar sem þau hafa fengið góðan stuðn­ing, hafa góðar ein­kunnir og hafa allt til brunns að bera,“ segir Jón Magnús Krist­jáns­son, yfir­læknir bráða­lækn­inga á LSH, í fyr­ir­lestri sem hann hélt í nóv­em­ber 2018.

Aukning í alvarlegum umferðarslysum

Síðustu ár hefur akstur undir áhrifum áfengis lækkað á sama tíma og akstur undir áhrifum ávana- og fíkni­efna verður algeng­ari. Í tölum Sam­göngu­stofu kemur fram að alvar­legum umferð­ar­slysum vegna akst­urs undir áhrifum fíkni­efna hefur fjölgað gríð­ar­lega. Árið 2017 slös­uð­ust 52 af völdum fíkni­efna­akst­urs en árið 2017 var sá fjöldi kom­inn í 85 ein­stak­linga. Þegar bráða­birgða­tölur eru skoð­aðar fyrir árið 2019 má sjá að ástandið hefur batnað og telur Sam­göngu­stofa að það megi þakka vit­und­ar­vakn­ingu, bættri lög­gæslu, sam­ráðs­fundi aðila sem að mál­efn­inu koma og átak­inu Eitt líf.

„Betur má ef duga skal og við verðum að halda áfram að berj­ast. Sam­göngu­stofa mun styðja við verk­efnið af fullum krafti áfram,“ segir Hildur Guð­jóns­dóttir, hóp­stjóri í öryggis- og fræðslu­deild Sam­göngu­stofu.

Hvað er til ráða?

Virkja þarf nær­sam­fé­lagið og styrkja vernd­andi þætti í umhverfi barna og ung­menna, auk þess að auka líkur á að þau nýti tíma sinn á jákvæðan og upp­byggj­andi hátt. For­varn­ar­líkanið, Íslenska mód­elið, sem byggir á sam­starfi aðila í nærum­hverfi barna og ung­menna, gengur út á að styrkja vernd­andi þætti í umhverfi barna og ung­menna, meðal ann­ars með því að styrkja stuðn­ings­hlut­verk for­eldra og skóla og fjölga tæki­færum barna og ung­menna til að stunda skipu­lagt tóm­stunda­starf.

Með auknum úrræðum, fjár­magni og for­vörnum, auk betra aðgengis ung­menna og aðstand­enda að ráð­gjöf ætti að vera vel hægt að draga úr neyslu ung­menna. Aukin vit­und­ar­vakn­ing og sam­kennd sam­fé­lags­ins með vanda þeim sem steðjar að ung­mennum í dag, auk þess sem umræðan um vand­ann verður sífellt opn­ari um leið og skömminni og leynd­inni er svipt af mála­flokknum veitir von um að draga megi veru­lega úr þeim háu tölum sem sam­an­tekt Eitt líf sýnir fram á. Það er í það minnsta vilji allra þeirra sem að mál­efn­inu koma.

Sam­an­tekt Eitt líf má finna í heild sinni inn á vef sam­tak­anna eittlif.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina