Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Með beinagrindurnar á borðinu

Eyþór Laxdal Arnalds, odd­viti borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið milli tanna fólks und­an­farið eftir við­brögð hans við græn­kera­væð­ingu skóla­mál­tíða. Minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn hefur líka fengið gagn­rýni fyrir að vera á móti öllu sem meiri­hlut­inn gerir án þess þó að leggja fram neinar til­lögur um það hvernig hægt væri að gera betur. Eyþór er þó sall­ar­ó­legur yfir þessu, segir þetta meira og minna á mis­skiln­ingi byggt, fjöl­miðlar fjalli nefni­lega aldrei um það þegar fólk sé sam­mála.

Með beinagrindurnar á borðinu
Eyþór Arnalds fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Mynd: Hallur Karlsson

Eyþór er nýkom­inn af löngum fundi í borg­ar­stjórn þar sem fjár­hags­staða borg­ar­innar eftir fyrri helm­ing árs­ins var til umræðu þegar blaða­maður nær sam­bandi við hann. Hann er þó ekki með neinn æsing yfir nið­ur­stöð­unum, þótt hann sé ekki alls­kostar sáttur við þær.

„Við bendum til dæmis á það að skuldir borg­ar­innar eru að vaxa þótt það hafi verið góð­æri,“ segir hann. „Svo var innri end­ur­skoðun borg­ar­innar að benda á að fram­lög Reykja­vík­ur­borgar til skól­anna eru frekar lítil miðað við með­al­tal lands­ins og við­hald þeirra í mjög slæmu ástandi, sem er alvar­legt mál sem þarf að skoða.“

Spurður hvort það sé ekki þraut­leið­in­legt að standa í svona þvargi alla daga dregur Eyþór við sig svarið.

„Nei, nei,“ segir hann svo. „Það er eins með þetta og allt annað, það er hægt að gera sér öll störf leið­in­leg eða skemmti­leg hvort sem það er upp­vask eða að spila á selló eða að vera í borg­ar­stjórn og ég reyni yfir­leitt að hafa gaman af því sem ég geri vegna þess að það er svo verð­mætt að hafa gaman af öllu sem maður gerir, jafn­vel bara að fara út með ruslið. Borg­ar­stjórn­ar­starfið tekur hins vegar á og tekur mik­inn tíma og það sem mér finnst kannski taka mest á þol­in­mæð­ina eru þessir löngu fundir. Þeir eru oft fimm tímar eða svipað langir og flug til New York og það er svo­lítið langur tími til að sitja kyrr, en þá fer maður bara í rækt­ina á eftir og fær útrás.“

Pönkari og anarkisti

Áður en Eyþór hellti sér út í póli­tík­ina var hann þekktur sem tón­list­ar­maður, spil­aði meðal ann­ars með Tappa tík­arrassi og Tod­mobile árum saman, hvað fékk hann til að söðla um og fara út í póli­tík? Eru þessir heimar ekki algjörar and­stæður?

„Jú, jú, ég er fullur af and­stæðum,“ segir hann hlæj­andi. „Ég lærði fyrst á fiðlu og fór síðan í pönkið með Tappa tík­arrassi og Björk og hætti því svo og fór að læra á selló. Eftir það fór ég í Tod­mobile. En þegar ég var pönk­ari var ég svo­lít­ill anar­kisti, var á móti rík­inu, boðum og bönnum og yfir­valdi og vildi meira frelsi. Það var mjög lítið frelsi þegar við vorum ung­lingar í Rokk í Reykja­vík. Það mátti ekki einu sinni selja erlent súkkulaði. Þegar ég var þrettán ára fór ég niður í bæ með vini mínum og við höfðum með­ferðis lak sem mamma átti sem á var skrifað „Hvar er frelsið?“ Lög­reglan kom og kvart­aði yfir því að við værum að mót­mæla svo það má segja að þarna strax hafi maður verið orð­inn aktí­visti og mín póli­tík er ein­fald­lega sú að ég treysti fólki – stundum of mikið reyndar – og trúi því að fólk eigi að fá að ráða sínum málum sem mest sjálft. Þegar maður verður eldri kemst maður síðan að því að ef maður vill breyta ein­hverju verður maður að gera það í gegnum kerfið. Ég fór í póli­tík í Árborg, þar sem ég bjó þá, og þar náðum við að breyta mörgu sem ég er mjög ánægður með. Ég sé það líka að sveit­ar­fé­lagið er að vaxa út frá þeim ákvörð­unum sem voru teknar þegar við vorum í meiri­hluta og það eru bestu launin að sjá það sem maður gerir skila sér.“

„Þegar ég var pönk­ari var ég svo­lít­ill anar­kisti, var á móti rík­inu, boðum og bönnum og yfir­valdi og vildi meira frelsi.“

Fólk þarf að fá svör

Eyþór var alinn upp í Reykja­vík, bjó á Selfossi í tíu ár en er fluttur aftur til Reykja­víkur. Hann langar að leggja sitt af mörkum til að sjá svip­aðar skipu­lags­breyt­ingar í rekstri borg­ar­innar og þær sem meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins kom á í Árborg.

„Ég bar aldrei stóla í Valhöll, var aldrei virkur í Heimdalli eða ung­liða­hreyf­ing­unni eins og svo margir. Ég kem bara beint úr atvinnu­líf­inu og lista­líf­inu án þess að hafa klifrað upp neinn stiga,“ segir Eyþór.

„Eitt af því sem við gerðum í Árborg var að reyna að ein­falda stjórn­kerfið,“ útskýrir hann. „Eða það sem við köll­uðum að stytta boð­leið­irnar þannig að mál séu ekki að þvæl­ast í ein­hverju ómann­eskju­legu kerfi í óra­tíma. Við ein­föld­uðum kerfið, lækk­uðum skatt­ana á heim­ilin og borg­uðum niður skuldir og þetta væri allt saman rétt að gera í Reykja­vík. Fast­eigna­skatt­arnir eru mjög háir hér í borg­inni, skuldir borg­ar­sjóðs aukast um millj­arð á mán­uði og við sjáum það að fólk fær ekki svör, hvort sem það eru versl­un­ar­rek­endur við Laugaveg eða Hverf­is­götu eða þeir sem eru á biðlista ein­hvers staðar eða þeir sem vilja byggja. Kerfið er orðið allt of flókið og enda­laust að tala við sjálft sig og ég hef trú á því að við getum ein­faldað það og um leið gert það betra og ódýr­ara.“

Það kom mörgum á óvart þegar Eyþór var val­inn sem odd­viti fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hann hafði ekki verið áber­andi innan flokks­ins fram að því. Hann segir það eiga sér ein­falda skýr­ingu.

„Kerfið er orðið allt of flókið og enda­laust að tala við sjálft sig og ég hef trú á því að við getum ein­faldað það og um leið gert það betra og ódýr­ara.“

„Ég tók þátt í próf­kjöri í Árborg á sínum tíma og vann það og gerði svo það sama í Reykja­vík,“ útskýrir hann. „Í báðum til­fellum fékk ég mjög góðan stuðn­ing, meira en helm­ing atkvæða þótt það væru margir að keppa, en ég bar aldrei stóla í Valhöll, var aldrei virkur í Heimdalli eða ung­liða­hreyf­ing­unni eins og svo margir. Ég kem bara beint úr atvinnu­líf­inu og lista­líf­inu án þess að hafa klifrað upp neinn stiga.“

Sumir höfðu á orði þegar ljóst var að Eyþór var odd­vita­efni flokks­ins í Reykja­vík eftir að Halldór Hall­dórs­son hafði verið sóttur til Ísa­fjarðar til að leiða flokk­inn í kosn­ing­unum þar á undan, hvort ekki væru neinir fram­bæri­legir Sjálf­stæð­is­menn í Reykja­vík. Telur Eyþór það vera vanda­mál innan flokks­ins?

„Nei, það held ég nú ekki,“ segir Eyþór og brosir. „Það er nú sem betur fer þannig á Íslandi að menn flytja milli staða. Ég hef búið á mörgum stöðum í Reykja­vík; alinn upp í Árbænum, hef búið í Vest­ur­bænum og Graf­ar­holt­inu og þekki Reykja­vík vel. Ég hef búið erlendis líka, í London og San Francisco, en mér þykir mjög vænt um Reykja­vík. Ég myndi segja að hún væri minnsta stór­borg í heimi og hún hefur mikil tæki­færi til þess að þró­ast í góða átt.“

Megum ekki vera fölsk

Kom reynslan úr við­skipta­líf­inu og tón­list­ar­heim­inum Eyþóri til góða eftir að hann lagði póli­tík­ina fyrir sig?

„Ef maður kann að nýta sér reynslu úr listum eða við­skiptum í póli­tík þá held ég að það sé mjög gott,“ segir Eyþór. „Vegna þess að þegar við vinnum í hóp þá spilum við saman eins og við séum í hljóm­sveit, við verðum að spila sama lagið og við megum ekki vera fölsk, verðum að vera heið­ar­leg. Maður getur líka lært af við­skipta­líf­inu að það skiptir máli hvernig farið er með pen­inga. Þeir sem hafa verið í atvinnu­líf­inu hafa oft þurft að hafa áhyggjur af því að borga laun og annað og það er góð reynsla þegar kemur að því að fara með almannafé. Maður er með­vit­aður um það að pen­ingar vaxa ekki á trjánum.“

Eyþór seg­ist vilja gera ýmsar breyt­ingar. „Fast­eigna­skatt­arnir eru mjög háir hér í borg­inni, skuldir borg­ar­sjóðs aukast um millj­arð á mán­uði og við sjáum það að fólk fær ekki svör, hvort sem það eru versl­un­ar­rek­endur við Laugaveg eða Hverf­is­götu eða þeir sem eru á biðlista ein­hvers staðar eða þeir sem vilja byggja.“

Þessi full­yrð­ing Eyþórs um að fólk í póli­tík verði að vera sam­taka og spila saman skýtur dálítið skökku við í ljósi þeirrar gagn­rýni sem minni­hlut­inn í borg­ar­stjórn hefur orðið fyrir, að vera á móti öllu sem meiri­hlut­inn gerir bara til þess að vera á móti því. Hvaða skýr­ingu hefur hann á þeirri gagn­rýni?

„Það er nátt­úr­lega töl­fræði­lega rangt,“ segir hann sall­ar­ó­legur. „Ef það er farið yfir fund­ar­gerðir borg­ar­stjórnar sést að í átta­tíu til níu­tíu pró­sent til­fella er minni­hlut­inn sam­mála meiri­hlut­anum. Hins vegar ratar það ekki í fréttir. Ég er stoltur af því að við höfum bent á hluti sem ekki voru í lagi og ég finn það að það eru alltaf fleiri og fleiri sem eru sam­mála því að það er hægt að gera betur.“

Trump er víða

Fyrir hinn almenna borg­ara sem les um málin í fjöl­miðlum lyktar þetta engu að síður dálítið af Trump­isma. Að það sé verið að afvega­leiða umræð­una til að vekja athygli á sjálfum sér. Er póli­tíkin að breyt­ast í þá átt?

„Póli­tíkin í heim­inum er að breyt­ast, já,“ segir Eyþór. „En ég passa mig alla vega á því að vera lítið á Twitter því þar er svo mikið rif­ist og hlut­irnir slitnir úr sam­hengi. Ég hef til dæmis ekk­ert á móti vegan­isma, eins og ætla mætti af umfjöllun fjöl­miðla um skólamat­inn, ég vil bara að fólk hafi val. Það er nýbúið að sam­þykkja stefnu sem allir flokk­arnir voru sam­mála um, að það ætti að vera fiskur í mötu­neytum skól­anna tvisvar í viku, kjöt einu sinni og svo egg og skyr og ávextir og svo fram­vegis. Síðan kemur einn odd­vit­inn úr meiri­hlut­anum í Rík­is­út­varpið og segir að það eigi að draga veru­lega úr öllum dýra­af­urðum og það sé full sam­staða um það hjá meiri­hlut­anum. Það er svo­lítil bomba og ég myndi segja að það væri lík­ara Trump en það sem minni­hlut­inn hefur verið að gera. Þannig að Trump er víða.“

Enginn flokkur fullkominn

Nú finnst mér nóg komið af póli­tískri umræðu og fer að for­vitn­ast um bak­grunn Eyþórs og upp­hafið á póli­tískum áhuga hans, kemur hann úr póli­tísku umhverfi?

„Á vissan hátt, já,“ við­ur­kennir hann. „Heims­málin voru alltaf rædd á mínu heim­ili. Mamma mín, Sigríður Eyþórs­dóttir, var mik­ill umhverf­is­sinni og föð­ur­bróðir minn, Ragnar Arnalds, var for­maður Alþýðu­banda­lags­ins þannig að við fylgd­umst alltaf vel með kosn­ingum. Svo var pabbi, Jón Laxdal Arnalds, ráðu­neyt­is­stjóri og hafði marga ráð­herra sem maður sá að voru mjög mis­mun­andi. Hann tal­aði reyndar aldrei um póli­tík út á við, var praktískur ráðu­neyt­is­stjóri og dóm­ari og mjög orð­var, en það var samt alltaf verið að tala um heims­málin.“

Eyþór var alinn upp í Reykja­vík, bjó á Selfossi í tíu ár en er fluttur aftur til Reykja­víkur. Hann langar að leggja sitt af mörkum til að sjá svip­aðar skipu­lags­breyt­ingar í rekstri borg­ar­innar og þær sem meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins kom á í Árborg.

Bak­grunnur þinn er sem sagt ekki í Sjálf­stæð­is­flokknum, vald­irðu hann til þess að vinna að auknu frelsi ein­stak­lings­ins í sam­ræmi við anar­kista­hug­sjón ung­lings­ár­anna?

„Já, mér fannst hann helst tala fyrir því,“ segir Eyþór. „En það er eng­inn flokkur full­kom­inn og það er alltaf hægt að gera betur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur talað fyrir ein­stak­lings­frelsi og ég bara ákvað að trúa því og beita mér fyrir því á vegum flokks­ins.“

Talandi um að eng­inn flokkur sé full­kom­inn, utan frá séð virð­ist hver höndin vera upp á móti annarri innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þessi miss­erin, hvar stendur Eyþór í þeirri tog­streitu?

„Eins og við ræddum áðan þá eru stjórn­málin að breyt­ast og miklu fleiri flokkar komnir til sög­unnar,“ segir Eyþór. „Það eru átta flokkar í borg­ar­stjórn og það má segja að í síð­ustu kosn­ingum hafi tveir flokkar, Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn, sótt að Sjálf­stæð­is­flokknum. Mjög ólíkir flokkar en fá báðir atkvæði frá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks­ins þannig að hann þarf að hafa skýra rödd og að mínu mati á hann standa fyrir val­frelsi ein­stak­lings­ins og að minnka kerfið.“

Fer of mikið púður í tal um sundrungu

Eyþór er enn þá einn af eig­endum Morg­un­blaðs­ins þar sem rit­stjór­inn rekur nán­ast opin­bera stefnu gegn núver­andi ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Er hann ekki í dálít­illi klemmu innan flokks­ins vegna þess?

„Nei, ég tók klemm­una af mér með því að fara úr stjórn Morg­un­blaðs­ins og skipa engan í minn stað,“ segir Eyþór. „Ég hef engin afskipti af Morg­un­blað­inu. Það hefur bara sína rit­stjórn­ar­stefnu sem ég kem ekki nálægt. Mér finnst hins vegar að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þurfi að tala skýrri röddu fyrir því sem sam­einar okkur. Mér finnst allt of mikið púður fara í það sem sundar okkur. Ef flokk­ur­inn er að berj­ast við aðra flokka um mál sem kljúfa sam­stöðu fólks þá er hann í vanda. Ef hann er í stöðugri varn­ar­bar­áttu þá getur hann ekki stækkað.“

Stefnir þú á frek­ari frama innan flokks­ins? Langar þig til að verða for­maður hans og hugs­an­lega for­sæt­is­ráð­herra?

„Nei, ég hef ekki verið að stefna á neinn frama,“ full­yrðir Eyþór. „Ég hef fengið ágætis útrás fyrir egóið í gegnum tíð­ina, bæði með því að vera í tón­list og að skila góðu búi í Árborg. Það eina sem mig langar að gera er að láta gott af mér leiða og gleyma ekki að lifa líf­inu í leið­inni. Ég hugsa þetta bara frá ári til árs, er ekki með nein lang­tíma­mark­mið.“

Alltaf eitthvað á bak við misnotkun áfengis

Meðan Eyþór var í bæj­ar­stjórn Árborgar var hann tek­inn fyrir ölv­un­arakstur og hætti í kjöl­farið að drekka, breytti það atvik að ein­hverju leyti sýn hans á sjálfan sig og lífið?

„Þetta atvik breytti lífs­sýn­inni alveg klár­lega,“ segir Eyþór með áherslu. „Þegar maður gerir eitt­hvað af sér, eins og ég gerði, þá á maður tvo val­mögu­leika, ann­ars vegar að fara í fýlu eða þá að segja ég ætla að læra af þessu. Ég ákvað að læra af þessu og ég held ég hafi komið auð­mjúk­ari út úr því og þakk­lát­ari fyrir það sem ég hef. Það var lyk­il­at­riði.“

Það hlýtur samt að vera pirr­andi að það sé stöðugt verið að rifja þetta atvik upp og nota það gegn þér?

„Nei, það er við­búið,“ segir Eyþór. „En sem betur fer er ég ekki með beina­grind­urnar inni í skápnum, er bara með þær hérna á borð­inu þannig að þetta er ekki neitt leynd­ar­mál. Ég braut af mér og ég við­ur­kenni það og ég lærði af því. Það er hægt að læra af mis­tökum en það er líka hægt að læra ekki af þeim.“

„Ég braut af mér og ég við­ur­kenni það og ég lærði af því.“

Eyþór fór í áfeng­is­með­ferð eftir atvikið og segir það hafa hjálpað sér mikið, er hann ennþá áfeng­is­laus?

„Ég fór í gegnum með­ferð hjá SÁÁ og síðan í AA,“ útskýrir hann. „Það hefur komið fyrir að ég hef drukkið síðan, en ég hef náð allt öðrum tökum á sjálfum mér. Ég held það sé alltaf eitt­hvað á bak við það þegar fólk mis­notar áfengi eða önnur vímu­efni, það er ein­hver rót, menn verða að stunda mann­rækt ef þeir ætla að ná tökum á fíkn eða kaosi og AA gerði mér mjög gott.“

Verður alltaf að svara kjósendum

Spurður hvort þetta mál og annað áreiti sem fylgir lífi stjórn­mála­manns­ins hafi að ein­hverju leyti bitnað á fjöl­skyldu hans neitar Eyþór því.

„Ég á fjögur börn á aldr­inum tíu til átján ára og þau hafa alveg fengið að vera í friði,“ segir hann. „Ég vona að sam­fé­lagið virði einka­líf fólks og þá sér­stak­lega barna. Ég er mjög stoltur af börn­unum mínum og finnst þeim ganga mjög vel í því sem þau eru að gera. Við konan mín erum skilin að borði og sæng þannig að þetta starf mitt hefur lítið bitnað á heim­il­is­líf­inu. Það er sama hvert maður fer það er alltaf ein­hver sem vill ræða málin við mann og maður verður að svara hverju sem er, hvenær sem er, hvar sem er. Fólk gerir þá kröfu að kjörnir full­trúar þess séu aðgengi­legir. Það er eitt af því sem ég hef gagn­rýnt núver­andi borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta fyrir. Ég heyri að fólk er óánægt með að geta ekki náð í borg­ar­stjór­ann eða aðra sem fara með stjórn­ina og þá kemur það til okkar. Ég er til dæmis með við­tals­tíma alltaf á mánu­dögum í Ráð­hús­inu og það kemur oft til mín fólk sem seg­ist ekki geta náð í neinn sem ræður. Borg­ar­stjóri er ekki með fastan við­tals­tíma, það þarf að panta þá sér­stak­lega og mér skilst að það sé mjög erfitt að fá slíkan tíma. Það er ekki nógu gott.“

Hvað með per­sónu­leg sam­skipti Eyþórs og borg­ar­stjór­ans? Eru þeir and­stæð­ingar utan funda borga­stjórnar líka?

„Nei, alls ekki, við erum ágætis félagar,“ segir Eyþór og hlær. „Við vinnum saman þó svo við séum ekki sam­mála um allt. Og þegar meiri­hlut­inn leggur fram góð mál þá styðjum við þau. Við erum ekki í ein­hverjum hnefa­leikum heldur stefnum öll að sama marki, þótt fjöl­miðlar birti ekki fréttir af því. Það er nefni­lega „catch 22“ að ef fjöl­miðlar birta bara fréttir af því þegar ein­hver læti verða þá freist­ast sumir til þess að vera með læti til að kom­ast í frétt­irnar. Ég tel mig ekki vera einn af þeim en ég hins vegar tala hreint út, ég held það sé best að vera ekk­ert að flækja þetta.“

Gagnrýndur fyrir að vera ekki leiðinlegur

Beðinn að lýsa karakter sjálfs sín vefst Eyþóri tunga um tönn.

„Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ segir hann. „Ég held ég sé frekar rólegur, get alveg verið einn og það er erfitt að ríf­ast við mig því ég rífst ekki á móti. Ég hef verið gagn­rýndur fyrir að vera ekki nógu leið­in­legur í póli­tík­inni.“

Ef þú heldur áfram og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær meiri­hluta í næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum verður þú vænt­an­lega borg­ar­stjóri. Hver yrði fyrsta breyt­ingin sem Reyk­vík­ingar yrðu varir við?

Mynd / Hallur Karlsson

„Ég myndi breyta stjórn­kerf­inu,“ segir Eyþór ákveð­inn. „Það er orðið allt of stórt og það þarf að ein­falda það þannig að það verði auð­veld­ara að klára mál. Núna tekur stundum mörg ár að klára lítil skipu­lags­mál og það voru þrjú hund­ruð stýri­hópar og nefndir að vinna að því og eng­inn vissi hvað hinar nefnd­irnar voru að gera þannig að það var stofnuð önnur nefnd til að fara yfir þetta og sú nefnd komst að því að það væri best að skipa þrjár nefndir til að fara í saumana á þessu. Þetta er svipað og ef þú værir með tölv­una þína fyrir framan þig og lykla­borðið væri með tíu sinnum fleiri tökkum en það er, væri það betra eða verra? Það væri verra vegna þess að flækju­stigið væri svo mikið, það er mun betra að hafa hlut­ina ein­falda og kerfið á að klára mál en ekki flækja þau meira.“

Langar að einbeita sér að klassíkinni

Sérðu póli­tík­ina fyrir þér sem fram­tíð­ar­starfs­vett­vang og ef ekki hvað hef­urðu hugsað þér að gera þegar þú hættir?

„Nei, ég fór í þetta til að ná árangri og þegar hann næst mun ég hætta,“ segir Eyþór. „Og það er ekki spurn­ing hvað þá tæki við. Tón­listin er auð­vitað alltaf með mér og ég sinni henni alveg þótt ég sé í póli­tík,“ segir Eyþór. „Við félag­arnir í Tappa tík­arrass ætlum til dæmis að taka upp nokkur lög núna í sept­em­ber og koma með eitt­hvað skemmti­legt á mark­að­inn fyrir jólin. Og ef ég hætti í póli­tík­inni myndi ég ein­beita mér meira að klass­ískri tón­list. Ég byrj­aði þar, var ekki bara selló­leik­ari heldur samdi fyrir Sin­fón­í­una og gerði tón­list við leik­rit og kvik­myndir. Ég var aldrei alveg búinn að klára þann pakka og ef ég hefði nægan tíma myndi ég vilja semja meira fyrir klass­ísk hljóð­færi. En það verður að bíða á meðan ég ein­beiti mér að því að ná árangri í póli­tík­inni.“

Myndir / Hallur Karlsson
Mynda­taka/ Hákon Davíð Björns­son og Hallur Karlsson
Klipping / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi