Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hélt ég myndi aldrei segja: Ég er ólétt“

Salka Sól Eyfeld og Arnar Freyr Frosta­son eru nýgift og eiga von á sínu fyrsta barni. Ham­ingjan er algjör en það hefur tekið þau þrjú ár og kostað blóð, svita og tár, djúpa sorg og mikla erf­ið­leika að ná þessu mark­miði.

„Hélt ég myndi aldrei segja: Ég er ólétt“
Mynd / Unnur Magna

Salka og Arnar Freyr Frosta­son giftu sig fyrir nokkrum vikum og eiga, eins og alþjóð veit, von á sínu fyrsta barni, dóttur. Það hefur verið langt og strangt ferli að verða barns­haf­andi og Salka Sól hefur tjáð sig um sorg­ina sem fylgir því að geta ekki orðið ólétt í ein­lægum færslum á sam­fé­lags­miðlum. En hversu langt og erfitt hefur það ferli verið og eru þau ekki að springa úr ham­ingju yfir að því skuli vera lokið?

„Ég er bara á bleiku skýi, annað er ekki hægt,“ segir Salka Sól og bók­staf­lega ljómar öll. „Maður þyrfti eig­in­lega að taka sér svona mán­að­ar­frí eftir brúð­kaup bara til að ná sér niður. Við erum reyndar ekki búin að fara í brúð­kaups­ferð­ina, ætlum að bíða með það þangað til litli lurk­ur­inn mætir en þá ætlum við að fara til Balí og reyna að vera þar í ein­hvern tíma í húsi sem vinur okkar á, vitum ekki alveg enn þá hversu lengi. En við förum örugg­lega. Það hafa margir sagt mér að þeir hafi ætlað að bíða með brúð­kaups­ferð­ina og séu ekki enn farnir tutt­ugu árum síðar þannig að við ætlum að passa að það ger­ist ekki.“

Salka Sól er nýgift og á von á sínu fyrsta barni. Ham­ingjan er algjör en það hefur tekið hana þrjú ár og kostað mikla erf­ið­leika að ná þessu mark­miði.

Spurð hvenær von sé á erf­ingj­anum í heim­inn dregur Salka Sól við sig svarið, en segir svo að það verði í lok árs, hún vilji þó ekki gefa neina opin­ber­lega yfir­lýs­ingu um nákvæma tíma­setn­ingu. „Ég er að reyna að halda ein­hverju prí­vat,“ segir hún og hlær.

Rosalegur kvíði og andlegur sársauki

Salka Sól og Arnar Freyr byrj­uðu saman fyrir fjórum árum, en höfðu vitað hvort af öðru áður ver­andi í sama bransa.

„Við áttum fjög­urra ára skotaf­mæli á sunnu­deg­inum um versl­un­ar­manna­helg­ina,“ segir hún. „Við könn­uð­umst við hvort annað en þessa versl­un­ar­manna­helgi vorum við að spila á sama giggi á Akureyri og þá urðum við skotin hvort í öðru. Þannig að sunnu­dag­ur­inn um versló er alltaf svo­lítið dag­ur­inn okkar og við reynum að verja honum saman þótt það sé oft mjög erfitt þar sem við erum alltaf að spila hvort á sínum end­anum á land­inu um þá helgi. Það er eig­in­lega óheppi­leg­asti dagur árs­ins fyrir okkur tón­list­ar­verka­fólkið.“

Fljót­lega eftir að alvara var komin í sam­bandið fóru Salka og Arnar að leggja drög að því að eign­ast barn en það gekk ekki átaka­laust fyrir sig.

„Við vissum alveg frá byrjun að okkur lang­aði til að vera saman og stofna fjöl­skyldu,“ útskýrir Salka. „Mig hafði reyndar grunað í þónokkurn tíma að ég gæti átt erfitt með að verða ólétt, en ég hafði aldrei látið reyna á það. Þegar við Arnar byrj­uðum saman sagði ég honum fljót­lega frá því og þegar við vorum búin að vera saman í um það bil ár ákváðum við að þetta mætti alveg ger­ast. Það hins vegar gerð­ist ekki neitt þannig að ég fór að fara til kven­sjúk­dóma­lækn­is­ins míns en hann fann aldrei neitt að.

„Það var orðið mjög erfitt að upp­lifa þessa sorg á fjög­urra vikna fresti og ég fékk enn fleiri lyf…“

Ég var alveg hætt að trúa honum svo ég ákvað að fara til ann­ars læknis og þá var ég send í aðgerð á eggja­leiður­unum því þeir voru alveg stífl­aðir. Þá héldum við að þetta myndi nú ger­ast en ekk­ert gerð­ist þannig ég fór á alls kyns horm­óna­lyf og töflur og sprautur sem var alveg hrika­legt álag. Í hverjum ein­asta mán­uði mætti túr­inn hins vegar á hár­réttum tíma og mér leið eins og ég væri í ást­ar­sorg í hvert ein­asta skipti. Það var orðið mjög erfitt að upp­lifa þessa sorg á fjög­urra vikna fresti og ég fékk enn fleiri lyf, alls kyns meðöl sem áttu að vera krafta­verka­for­múlur en ekk­ert gerð­ist. Þetta var farið að taka svo mikið á og ferlið þegar maður var að upp­götva ófrjó­sem­ina var hræði­lega langt. Þá fer maður að lesa sér til og því fylgir rosa­legur kvíði því þá fær maður sög­urnar af öllum pör­unum sem hættu saman eftir að hafa farið í fimmtán aðgerðir og tækni­frjóvgun og allt það. Maður varð bara alveg skít­hræddur við þetta allt saman og kvíð­inn og and­legi sárs­auk­inn varð nán­ast óbæri­legur, fyrir nú utan allt þetta horm­óna­fokk sem ég var að sprauta í mig og taka inn.

Á þessum tíma­punkti vorum við Arnar alveg viss um að okkur lang­aði til að eign­ast barn og mjög upp­tekin af því. Það kom samt að því að ég hugs­aði að ég gæti ekki meira og stakk upp á því að við færum á fund hjá Íslenskri ætt­leið­ingu til að athuga hvort sú leið væri fær, ég bara gat ekki látið lík­ama minn ganga í gegnum meira. Gat ekki hugsað mér að ganga í gegnum tækni­frjóvg­un­ar­ferlið, hvorki and­lega né lík­am­lega. Þótt Arnar stæði við hlið­ina á mér eins og algjör klettur þá gat ég bara ekki lagt þessar enda­lausu skap­sveiflur á sam­bandið. Og þessa ást­ar­sorg, ég get ekki lýst til­finn­ing­unni betur, ég hef verið í ást­ar­sorg og þetta var nákvæm­lega sama til­finn­ingin.“

Reyndi að eignast frjósemisstyttu

Þau Salka og Arnar mættu því á fund hjá Íslenskri ætt­leið­ingu en komust þá að því að sú leið var hvorki auð­veld né fljót­farin.

„Þá rák­umst við á nýjan vegg,“ segir Salka og and­varpar. „Til að mega sækja um þurftum við að hafa verið skráð í sam­búð í fimm ár eða gift í þrjú ár þannig að við sáum fram á að það gæti hugs­an­lega gerst eftir sjö ár að við fengjum að ætt­leiða barn. Það var ekki beint það sem okkur lang­aði til. Þá kom í mig upp­gjöf, ég bara sá ekki leið út úr þessu.“

Spurð hvort hún hafi þá verið búin að sætta sig við að þetta myndi aldrei ganga neitar Salka því.

„Ég bara skil ekki hvernig konur geta beðið eftir barn­inu svona lengi, ég vil fá að sjá hana núna,“ segir Salka full til­hlökk­unar.

„Nei, nei, það gerði ég nú aldrei,“ segir hún. „Ég vissi að þetta myndi ganga ein­hvern veg­inn, ein­hvern tím­ann, en vá, hvað það var erfitt að byrja að sætta sig við það að þetta gæti tekið mjög langan tíma. Ég var alltaf að lesa mér til um reynslu ann­arra af þessu en ég veit ekki hversu mikið það hjálp­aði að lesa allar hryll­ings­sög­urnar.

Ég var komin á það stig að ég var farin að reyna að redda mér frjó­sem­is­styttum og ég veit ekki hvað og hvað. Ég hafði heyrt af ein­hverri konu sem hafði eign­ast þrí­bura eftir að hafa eign­ast frjó­sem­is­styttu og var hand­viss að það væri það sem ég þyrfti. Svo sá ég grein um ein­hverja styttu í Flórída sem hafði þann töfra­mátt að pör sem snertu hana urðu ólétt á stund­inni og vildi endi­lega að við færum til Flórída. Ég var orðin svo þreytt á að eitra fyrir lík­ama mínum og koma honum úr jafn­vægi og vildi bara finna ein­hverja aðra lausn.“

Ákváðu á staðnum að fara í tæknifrjóvgun

Svo kom að því að þau ákváðu að hætta að vera svona upp­tekin af því að eign­ast barn og fara bara að njóta þess að vera par aðeins lengur. Málin eru þó engan veg­inn svo ein­föld.

„Eins mikið og maður reynir að hætta að hugsa um þetta þá er það bara ekk­ert hægt,“ útskýrir Salka. „Þú ert bara stans­laust að ljúga að sjálfri þér að þú sért hætt því. Ég veit ekki hversu margir hafa sagt mér sögur af því þegar ein­hver frænka þeirra var að reyna að eign­ast barn og hætti svo að hugsa um það og þá það. Ég var orðin mjög þreytt á þeirri sögu. Maður hættir ekk­ert bara allt í einu að hugsa um þetta. Á þessum tíma ákváðum við að gifta okkur með pompi og prakt og biðja fólk að gefa okkur ekki gjafir heldur leggja pen­ing í frjó­sem­is­sjóð og stefna að tækni­frjóvgun. Ég var búin að reyna öll trixin í bók­inni; breyta matar­æð­inu, hætta að drekka, borða ekki kol­vetni og svo fram­vegis, og svo fram­vegis, ég var búin að prófa allt, en ekk­ert gekk og varð að sætta mig við að tækni­frjóvgun væri eina leiðin, ég var bara ekki til­búin í hana strax.“

Þegar hér var komið komið sögu gripu örlögin í taumana og Salka og Arnar ákváðu að láta slag standa og reyna tækni­frjóvgun.

„Já, það var vegna þess að vina­fók okkar til­kynnti að þau ættu von á barni – alveg óvart,“ segir Salka og hlær. „Ég man að við Arnar litum hvort á annað og bara ákváðum á staðnum að fara á fund um tækni­frjóvgun og kynna okkur ferlið. Ég var búin að núll­stilla lík­ama minn aðeins og alveg til­búin að fara í það ferli þannig að við ákváðum að láta reyna á þetta fyrir brúð­kaupið. Við byrj­uðum á því að fara á fund í októ­ber á síð­asta ári. Ég setti mig líka í sam­band við stelpu sem ég þekki ekki neitt en hafði séð á Instagram að væri að ganga í gegnum þetta ferli og við fórum og hittum það par. Þau sögðu okkur frá því hvernig þetta hefði verið hjá þeim og við ákváðum að láta reyna á þetta. Og það gekk upp í fyrstu til­raun! Þetta var samt eng­inn hægð­ar­leikur, þetta var erfitt ferli og maður var bara á nálum í nokkra mán­uði og alveg óskap­lega hræddur. Svo þurftu allir að vera að segja manni enda­lausar sögur af frænda systur mömmu sinnar sem hafði gengið í gegnum þetta og lent í þessu og hinu og það er ekki beint það sem maður vill heyra á þessum tíma­punkti. Ég var farin að segja fólki að sleppa þessum sögum, ég þyrfti ekk­ert á því að halda að heyra þær. Mér finnst fínt að ræða þetta við fólk sem hefur sjálft gengið í gegnum þetta en ég nenni ekki að heyra sögur af ein­hverjum fjar­skyldum ætt­ingja sem gerði þetta ein­hvern tím­ann. Ég veit alveg að fólk meinar þetta vel, en þetta er bara svo inni­lega ekki það sem maður vill heyra.“

Trúði ekki að hún hefði sagt „ég er ólétt“

Spurð hvernig til­finn­ing það hafi verið þegar kom í ljós að upp­setn­ingin hafði tek­ist fer Salka öll á flug.

„Þetta var þannig að við fórum í upp­setn­ingu og það náð­ist bara eitt egg í frysti,“ útskýrir hún. „Og ef það hefði ekki tek­ist hefðum við þurft að ganga í gegnum allt horm­óna­ferlið aftur. Ég hélt reyndar að það myndi fara verr í mig en það gerði en ég held að spenn­ing­ur­inn og æðru­leysið hafi hjálpað mér í gegnum það.

„Ég var svo ofboðs­lega hrædd um að ég myndi missa fóstrið. Eig­in­lega alveg skelf­ingu lostin.“

Eftir upp­setn­ing­una fórum við í fjöl­skyldu­ferð til Berlínar með fjöl­skyld­unni hans Arnars. Við þurftum að bíða í tvær vikur áður en ég mátti pissa á óléttu­próf og sjá hvort eggið hefði fest sig. Við vorum auð­vitað á nálum, ég held að þetta séu erf­ið­ustu tvær vikur sem við höfum þurft að lifa. Einn dag­inn gat ég ekki beðið lengur og stalst til að nota óléttu­prófið aðeins fyrr en ég átti að gera og fékk jákvætt svar. Við bara trúðum þessu ekki! En gleðin var svaka­leg. Svo komu tólf vikur af kvíða­kasti hjá mér. Ég var svo ofboðs­lega hrædd um að ég myndi missa fóstrið. Eig­in­lega alveg skelf­ingu lostin. Margir reyndu að róa mig með því að sá ótti væri nú bara eðli­legur, og það er sjálf­sagt rétt, en þetta er samt ógeðs­lega óþægi­legt því þráin og löng­unin eftir því að þetta myndi ger­ast var svo sterk. Ég trúði ekki fyrst að ég hefði sagt upp­hátt að ég væri ólétt, ég hélt ég myndi aldrei fá að segja það. Við vorum búin að bíða svo lengi og þetta var efst á óska­list­anum okkar. En eftir þrjá mán­uði jafn­aði ég mig nú, sem betur fer.“

„Ég trúði ekki fyrst að ég hefði sagt upp­hátt að ég væri ólétt, ég hélt ég myndi aldrei fá að segja það.“

Salka segir með­göng­una hafa gengið eins og í sögu og hún ekki fengið neina með­göngu­kvilla.

„Ég var auð­vitað gríð­ar­lega þreytt þarna fyrstu þrjá mán­uð­ina,“ segir hún. „Það voru nokkrar sýn­ingar á Ronju sem ég þurfti virki­lega að harka af mér til að kom­ast í gegnum. Á einni sýn­ing­unni var ég næstum búin að leika að það liði yfir mig til að tjaldið yrði dregið fyrir, en sem betur fer gerði ég það nú ekki, ég náði að halda þetta út. Annars hefur allt gengið vel og allt er eins og það á að vera eftir því sem ljós­móð­irin segir.“

Spurð hvort þetta ferli sé ekki hræði­lega dýrt við­ur­kennir Salka að vissu­lega kosti þetta mikið og ekki hafi bætt úr skák að á meðan þau voru í ferl­inu hafi lögum um nið­ur­greiðslur verið breytt.

„Við byrj­uðum í ferl­inu fyrir ára­mótin síð­ustu og um ára­mótin var lög­unum breytt þannig að nið­ur­greiðslur til fólks sem fer í tækni­frjóvgun voru felldar niður,“ segir hún. „Ég skil það að vissu leyti. Það eru for­rétt­indi að eign­ast barn, það eru ekki mann­rétt­indi. En á sama tíma eru það bara einka­reknar stofur sem bjóða upp á tækni­frjóvgun hér heima sem hækkar auð­vitað verðið. Mér finnst þetta vera lýð­heilsu­mál vegna þess að þetta fer afskap­lega illa í mann. Maður er brjál­aður í skap­inu, óskap­lega kvíð­inn og þetta veldur ótrú­legri van­líðan, bæði að kom­ast að því að maður geti ekki eign­ast barn eftir venju­legum leiðum og að ganga í gegnum tækni­frjóvg­un­ar­ferlið.

„Maður er brjál­aður í skap­inu, óskap­lega kvíð­inn og þetta veldur ótrú­legri van­líðan…“

Ég treysti mér aldrei til að tala um þetta á meðan ég var í ferl­inu, ég gat ekki hugsað mér það vegna þess að ég var svo hrædd um að þetta myndi ekki ganga. Svo ákvað ég bara mjög með­vitað að fyrst að þetta gekk nú hjá okkur þá væri rétt að segja frá því. Líka vegna þess að það und­ir­býr mann eng­inn undir þetta, maður lærir bara að fólk verði ást­fangið og ákveði að vera saman og eign­ast barn, en það er bara alls ekk­ert svo ein­falt. Ég hef upp­götvað mjög margt í gegnum þessa reynslu og fannst rétt að deila því vegna þess að ég veit að það eru mörg pör í sömu stöðu og við vorum.“

Vildi ekki bera harm sinn í hljóði

Þrátt fyrir ótt­ann við að missa fóstrið fyrstu þrjá mán­uð­ina seg­ist Salka hafa ákveðið að segja öllum sem skiptu hana máli frá því að hún ætti von á barni og takast ekki ein á við ótt­ann.

„Ég var ótrú­lega opin með þetta, veit að ég er opin­ber mann­eskja og allt sem segi á Twitter og Instagram fer í fréttir, en ég ákvað að vera ekki í neinum felu­leik. Ég hafði til dæmis kom­ist að því í gegnum allan aðdrag­and­ann að 15-20 pró­sent þung­ana enda í fóst­ur­láti, sú tala er ótrú­lega há og mér finnst ekki rétt að það sé aldrei talað um það hvað þetta er algeng reynsla. Ég vildi geta sagt fólk­inu mínu frá þessu og ef eitt­hvað hefði komið upp á hefði ég bara sagt þeim það líka í stað­inn fyrir að bera harm minn í hljóði. Ég held að það sé holl­ara.“

„Ég tal­aði ekki um sorg­ina opin­ber­lega en ég var mjög opin um hana við fólkið mitt, það vissu allir af þessu.“

Salka sagði frá því í Instagram-færslu eftir að hún varð ólétt að hún hefði aldrei talað um sorg­ina sem fylgdi því að verða ekki ólétt, bar hún þann harm alveg í hljóði?

„Nei, ég gerði það nú ekki,“ segir hún. „Ég tal­aði ekki um sorg­ina opin­ber­lega en ég var mjög opin um hana við fólkið mitt, það vissu allir af þessu. Og for­eldrar mínir og nán­ustu vinir hafa vitað af ólétt­unni alveg síðan við pissuðum á prófið. Ferðin til Berlínar breytt­ist í algjöra gleði­sprengju við þær fréttir. Það var æðis­legt.“

Verður þráhyggja á háu stigi

Salka segir reynsl­una af því að takast á við ófrjó­sem­ina og síðan upp­lifa það að verða ólétt að mörgu leyti hafa breytt sýn hennar á lífið.

„Auðvitað breytir þetta manni,“ segir hún hálf­hneyksluð á svona fárán­legri spurn­ingu. „En ófrjó­semin er bara eitt af þeim áföllum sem maður tekst á við í líf­inu. Það er hins vegar áfall sem ég bjóst aldrei við að þurfa að takast á við og ég hafði aldrei heyrt um. Maður heyrir af því þegar ein­hver í fjöl­skyld­unni veik­ist en það er ekki mikið talað um það að geta ekki eign­ast börn. Það eru hins vegar ótrú­lega margir sem ganga í gegnum þetta og mér finnst alveg kom­inn tími til að við förum að tala um það. Þetta hefur svo djúp­stæð áhrif á mann. Maður sér börn út um allt og finnst allir vera að óléttir eða nýbúnir að eign­ast barn. Svo verður maður pínu reiður við fólk sem hefur eign­ast börn utan sam­bands án þess að vera neitt að reyna það, maður hugsar ekki voða­lega rök­rétt. Það var til dæmis ótrú­lega erfitt að sam­gleðj­ast vinum sínum sem urðu óléttir. Maður gerði það auð­vitað en samt var maður pirr­aður út í þau og pínd­ist yfir þessu. En það hafði líka þær jákvæðu afleið­ingar, eins og ég sagði áðan, að ýta okkur af stað í tækni­frjóvg­un­ina. Þetta verður nefni­lega þrá­hyggja á háu stigi og yfir­tekur allt líf manns meira og minna.“

Það eru enn nokkrir mán­uðir í fæð­ingu dótt­ur­innar, hvernig ætlar Salka að verja þeim tíma? Er hún byrjuð á hinni frægu hreið­ur­gerð?

Mynd / Unnur Magna

„Já, ég er aðeins byrjuð,“ segir hún hlæj­andi. „Ég leyfði mér ekki að kaupa neitt sem tengd­ist barn­inu fyrr en eftir rúmar tutt­ugu vikur, en er að byrja á því. Ég bara skil ekki hvernig konur geta beðið eftir barn­inu svona lengi, ég vil fá að sjá hana núna! Ég veit alltaf af henni, sé hana þegar ég lít í spegil, finn fyrir henni og er alltaf að hugsa um hana. Eina ráðið til að geta þraukað þessa mán­uði er að halda mér upp­tek­inni. Ég er hress og elska að geta gert það sem mér finnst skemmti­leg­ast að gera og er að „per­for­mera“ á fullu.

Ég nýt þess í botn að vera með bumb­una út í loftið, er búin að draga fram alla þröngu kjól­ana mína og ber hana eins og heið­ursverð­laun. Ég hef alveg fengið nóg að gera þótt konur í brans­anum væru búnar að segja mér að bíða með að til­kynna ólétt­una eins lengi og ég gæti, því þegar fólk veit að þú ert ólétt hættir sím­inn að hringja. Það er sjálf­sagt rétt hjá þeim í mörgum til­fellum en ég hef verið dug­leg að láta fólkið sem ræður mig í vinnu vita að ég sé við góða heilsu og alveg nógu hraust til að vinna og syngja. Það hafa flestir verið alveg ótrú­lega almenni­legir og ég ætla rétt að vona að sím­inn hætti ekki að hringja þótt maður sé óléttur. Ef ég treysti mér ekki til að vinna þá segi ég bara nei, ekki flókn­ara en það. Ég verð svo með ein­elt­is­verk­efnið okkar í skólum í haust og mun leika Ronju fyrsta mán­uð­inn eftir að sýn­ingar hefj­ast aftur, þannig að tím­inn verður von­andi fljótur að líða þótt ég sé svona spennt fyrir að fá að sjá dóttur mína.“

Myndir / Unnur Magna
Förðun / Hildur Emils­dóttir, förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð