Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ber engan kala til þessa fólks“

Birgitta Jóns­dóttir segir það vissu­lega hafa verið áfall að hlusta á fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk úthúða sér á opin­berum fundi en hún hafi tek­ist á við erf­ið­ari hluti í líf­inu og hafi ekki áhuga á að munn­höggvast opin­ber­lega. Pólitík sé brú­tal vinnu­um­hverfi og þeir sem ekki geti tekið því end­ist ekki lengi.

„Ber engan kala til þessa fólks“
Mynd / Hallur Karlsson

„Þegar ég hætti á þingi var ég algjör­lega útbrunnin, ég gaf allt sem ég átti og miklu meira en það þannig að ég bara hrundi,“ svarar Birgitta aðspurð hvað hún hafi verið að gera síðan hún hætti sem þing­maður Pírata haustið 2017.

„Það tók mig langan tíma að finna aftur eitt­hvað sem mér fannst spenn­andi. Mér hafa aldrei fund­ist hefð­bundin flokks­stjórn­mál spenn­andi fyr­ir­bæri, bara alls ekki. Núna und­an­farið hefur hellst yfir mig rosa­lega sterk þörf fyrir að skrifa drápu­ljóð á íslensku, ég er alveg and­setin af því sem er það besta sem ég veit. Þegar þetta kemur yfir mig skrifa ég bara og skrifa og get ekki hætt. Þar fyrir utan hef ég verið að vinna í alls konar verk­efnum sem er dálítið erfitt að útskýra. Ég hef verið að vinna með upp­lýs­inga­aktíf­istum, fólki sem er að búa til ný kerfi fyrir blaða­menn sem eru í rann­sókn­ar­blaða­mennsku og svo hef ég fengið að njóta mín dálítið sem rit­höf­undur erlendis. Mér hefur alltaf gengið það illa hérna heima að passa inn sem rit­höf­undur þannig að ég fengi tæki­færi til þess að koma fram. Ég er nefni­lega ágætur „per­for­mer“ og finnst það mjög gaman.“

Það er ekki bara sem rit­höf­undur sem Birgittu hefur ekki fund­ist hún passa inn, hún seg­ist alltaf hafa verið á jaðr­inum.

„Ég hef aldrei passað inn í neitt, hvorki fyrir né eftir minn þing­skálda­feril,“ segir hún og hlær. „Ég er reyndar nýlega komin með mjög spenn­andi vinnu sem ég get ekki alveg sagt frá strax, við eigum eftir að senda út frétta­til­kynn­ingu, en ég var fengin til að vinna fyrir Internet Arhives í sam­starfi við stærstu rétt­inda­sam­tök fyrir staf­rænum mann­rétt­indum í heim­inum. Aðal­starfs­svið mitt verður að kynna fyrir fólki hvað Internet Archives er, það eru svo margir sem vita ekki hvað það er. Ég hlakka mikið til að taka þátt í því.“

Heiftin kom á óvart

Birgitta segir að hún sé að rísa upp úr kuln­un­inni, en hún verði þó að við­ur­kenna það að upp­á­koman á fundi Pírata fyrir skemmstu þar sem þing­menn flokks­ins tóku hana fyrir í opin­berum ræðum hafi verið bakslag í bat­anum.

„Það var ákveðið áfall,“ við­ur­kennir hún. „Það hefði verið í lagi ef þetta hefði bara verið þessi fundur, en þetta virð­ist ekk­ert ætla að hætta. Ég hef verið að vanda mig rosa­lega mikið að fara ekki í mann­eskj­urnar sem sögðu þetta, mér finnst bara asna­legt að vera í opin­berum rifr­ildum við fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk.

Birgitta segir það vissu­lega hafa verið áfall að hlusta á fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk úthúða sér á opin­berum fundi en hún hafi tek­ist á við erf­ið­ari hluti í líf­inu.

Auðvitað gæti ég sagt alls konar hluti en ég bara sé ekki til­gang­inn með því. Ef fólk á eitt­hvað ósagt við mig þá er sím­inn minn alltaf opinn og ég er mjög aðgengi­leg mann­eskja. Ég hef sagt við allan þann fjölda af fólki sem hefur sett sig í sam­band við mig eftir þetta að þetta sé nú bara eins og katt­ar­klór. Ég hef farið í gegnum svo erf­iða hluti í líf­inu að ég hef mun stærri verk­efni að vinna úr heldur en þetta. Það er hins vegar ágætt að fólk átti sig á því að þó svo að ég hafi farið inn í stjórn­mál þá er ég ekki stjórn­mála­mann­eskja og hef aldrei verið. Ég upp­lifði mig aldrei sem valda­mann­eskju og ber mjög litla virð­ingu fyrir valdi af öllu tagi og mér fannst það mjög óþægi­legt á meðan ég var að vinna inni á þingi að upp­lifa alla þessa yfir­færslu á valdi á mig án þess að ég vissi það.

Mig hefur aldrei dreymt um að vera ein­hver leið­togi eða ráð­herra eða eitt­hvað slíkt, það bara er ekki í mér. Ég upp­götv­aði það þegar ég fór í gegnum mína fyrstu erf­iðu reynslu að ég hafði þann val­kost að láta erf­ið­leik­ana brjóta mig niður eða reyna að skilja hvað ég gæti lært af þessu til þess að verða betri mann­eskja. Ég tekst eins á við þetta mál; reyni að skilja hvað ég gerði til þess að eiga þetta skilið.“

Spurð hvort henni finn­ist hún hafa átt eitt­hvað af því sem sagt var skilið verður Birgitta hugsi.

„Ég verð að við­ur­kenna að mér finnst mjög margt af því sem þarna kom fram virka þannig að ég veit ekki hvað fólk er að tala um. Það kom mér rosa­lega á óvart að upp­lifa þessa heift frá fyrrum starfs­fé­laga mínum vegna þess að við áttum mjög fína tíma hjá vinnu­staða­sál­fræð­ingnum á sínum tíma og ég vissi ekki að við­kom­andi væri með svona rosa­lega mikla reiði gagn­vart mér. Ég vildi óska þess að við­kom­andi hefði bara hringt í mig og beðið mig að hitta sig og við hefðum talað saman um þetta.

Það er það sem mér finnst erfitt, ég skil ekki alveg hvað það er sem ég gerði þessu fólki. Eina skýr­ingin sem ég fékk var að ég hefði mik­inn sann­fær­ing­ar­kraft og einn þing­mað­ur­inn kvart­aði yfir því að ég not­aði hann á þing­menn­ina líka. Ég bað við­kom­andi bara að láta mig vita ef ég væri að því, en mér fannst óþægi­legt að heyra þetta og mér fannst svo margt sem var verið að vísa í á þessum fundi vera hlutir sem við vorum búin að ræða saman um og ég hélt að væru leystir. Þegar maður er verk­stjóri þarf maður auð­vitað stundum að segja fólki að standa sig, þannig að ég veit ekki alveg um hvað þetta snýst hjá þeim. En ég ber engan kala til þessa fólks eða heift eða neitt í þá átt­ina, ég melti þetta og hélt bara mína leið og vissi ekki annað en þessu væri lokið.“

„Ber litla virðingu fyrir fólki sem hótar mér“

Eftir upp­þotið á fund­inum marg­um­tal­aða hefur Birgitta líka fengið mik­inn stuðn­ing frá sam­starfs­fólki og óvið­kom­andi aðilum og hún seg­ist óend­an­lega þakk­lát fyrir það.

„Það hefur verið alveg ótrú­legt,“ segir hún. „Mér þykir vænt um að hafa fengið stuðn­ing frá og heyrt í fólki sem ég hef unnið með miklu lengur en þessu fólki sem þarna er um að ræða. Það streyma til mín fal­legar hugs­anir og hlýjar kveðjur og ég finn að fólki er dálítið mis­boðið vegna þess að þetta virð­ist ekki ætla að taka neinn enda. Ég hef ítrekað sagt við blaða­menn að ég vilji ekki tala um þetta, ég hef engan áhuga á að fara á þetta plan. Auðvitað hafa allir eitt­hvert álit á fram­komu fólks en þegar maður er í póli­tík þá er það ofboðs­lega brú­tal vinnu­um­hverfi og maður verður að vera mjög sterkur til þess að geta náð árangri þar, sér­stak­lega þar sem ég og nán­ast allir sem ég var með á þingi voru nýliðar.

„Ég ber sér­stak­lega litla virð­ingu fyrir fólki sem hótar mér og það var mjög skrýtið að þurfa að vera í sam­starfi við fólk sem maður myndi aldrei tala við ann­ars.“

Maður þarf að læra þetta allt saman jafn­óðum og það sem mér finnst baga­leg­ast við það hvernig þingið er orðið núna er hve ofboðs­lega hröð end­ur­nýjun er þar. Þeir sem eru búnir að vera þar lengst kunna á kerfið þannig að það er afskap­lega auð­velt að afvega­leiða nýja fólkið svo að það nær ekki að sinna því sem það brennur fyrir og var kosið til að koma í fram­kvæmd. Þegar það eru svo komnir átta flokkar inn á þing þá er þetta orðið svo brota­kennt að það mynd­ast ekki einu sinni sterk stjórn­ar­and­staða sem nær saman um mál. Það eru engir sam­mála um neitt og allir fullir af óþoli gagn­vart öðrum. Ég lenti sjálf í því á mínu fyrsta kjör­tíma­bili að vera í stjórn­ar­and­stöðu með Bjarna Ben og Sigmundi Davíð sem var auð­vitað fárán­legt. Ég man að við í Borg­ara­hreyf­ing­unni móðg­uðum Sjálf­stæð­is­flokk­inn rosa­lega mikið og ég fékk hót­anir um að þetta yrði mér dýrt, þegar við ákváðum að fara í nefnd­ar­sam­starf við meiri­hlut­ann. Ég ber sér­stak­lega litla virð­ingu fyrir fólki sem hótar mér og það var mjög skrýtið að þurfa að vera í sam­starfi við fólk sem maður myndi aldrei tala við ann­ars. Ég hef reyndar kom­ist að því og finnst það ógeðs­lega fyndið að bók sem ég þýddi einu sinni og heitir Lífs­regl­urnar fjórar er bók sem mínir póli­tísku and­stæð­ingar vitna mikið í og flestir þeirra virð­ast ekki vita að ég þýddi hana. Ég held reyndar að þeir þurfi að lesa hana aftur af meiri kost­gæfni. Ein reglan er til dæmis sú að vera flekk­laus í orðum og gæta að sann­leik­anum. Það er ekki í miklum heiðri haft.“

Var eitt af þessum skrýtnu börnum

Spurð hvað hafi valdið því að hún fór út í póli­tík, hvað hafi heillað hana við þann vett­vang er Birgitta eldsnögg til svars: „Ekki neitt!“ segir hún og útskýrir að það hafi verið fyrir algjöra til­viljun að hún end­aði inni á þingi. Hún hafi verið að vinna fyrir Borg­ara­hreyf­ingu þegar hún var stofnuð eftir hrunið og komið upp sú staða að það vant­aði fleiri konur til að leiða lista. Hún hafi látið til­leið­ast að taka það að sér og síðan bara „vaknað inni á þingi einn morg­un­inn,“ eins og hún orðar það. Hún hafi hins vegar verið mjög ung þegar hún ákvað að verða skáld sem hafi verið fyrir áhrif frá móður hennar Bergþóru Árna­dóttur sem var iðin við að semja lög við ljóð stór­skáld­anna.

„Eitt af því sem er erfitt hér á Íslandi er hvað fólk sem er öðru­vísi hefur litla mögu­leika á að blómstra og við sem þjóð þurfum að læra að vera umburð­ar­lynd­ari gagn­vart fjöl­breyti­leik­anum,“ segir Birgitta.

„Ég fékk þannig æðis­leg ljóð með móð­ur­mjólk­inni,“ útskýrir hún. „Ég var eitt af þessum skrýtnu börnum sem las alls kyns skrýtna hluti, þar á meðal mikið ljóð og fór snemma að skrifa sjálf. Það er fyndin saga, sem sýnir hvað mig dreymdi lítið um að verða stjórn­mála­maður, hvernig fyrsta ljóðið sem ég fékk birt varð til. Þá vorum við í skól­anum í vett­vangs­ferð á Alþingi og ég hafði engan áhuga á því að fara þar inn, enda orðin bull­andi pönk­ari á þeim tíma. Ég sat þess vegna úti í rútu og skrif­aði fyrsta almenni­lega ljóðið mitt sem hét Svartar rósir og fjall­aði um eft­ir­mála kjarn­orku­stríðs. Svo fékk ég þetta ljóð birt í Helg­ar­póst­inum og fékk mjög góð við­brögð frá fólki þannig að ég hugs­aði með mér að ég gæti kannski bara orðið skáld. Svo var ég svo heppin að for­pok­aðir fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjórar tóku mig sem dæmi um ömur­legt skáld í löngum greinum og dálkum og það eig­in­lega land­aði mér bóka­samn­ingi hjá Almenna bóka­fé­lag­inu á útgáfu fyrstu ljóða­bókar minnar. Þá var ég tutt­ugu og eins árs og hugs­aði með mér; vá ég er strax búin að ná mark­mið­inu mínu um að fá fyrstu ljóða­bók­ina gefna út hjá stóru for­lagi, hvað á ég nú að gera?

„Ég hef gert alveg ótrú­lega mikið af mögn­uðum hlutum og fengið að vinna með fólki sem ég ber mikla virð­ingu fyrir sem er alveg ómet­an­legt.“

Og þá fór ég að gera eitt­hvað allt annað, fór að mála og gera til­raunir með alls konar hluti. Svo datt ég óvart inn á Inter­netið 1995 og kol­féll um leið fyrir því. Ég byrj­aði strax að vefa og bjó til minn eigin vef. Ég tók svo þátt í verk­efni 1996 um fyrstu beinu myndút­send­ing­una frá Íslandi og skipu­lagði ásamt öðrum fyrstu mar­miðl­un­ar­há­tíð á Íslandi með ljóðið í for­grunni. Á þeim tíma var auð­vitað miklu minna úrval af efni á Inter­net­inu og allt í einu fór vef­ur­inn að fá alls konar verð­laun, var meðal ann­ars val­inn „cool site of the day“ og við fengum svo mikla traffík inn á vef­inn að við þurftum að dreifa efn­inu á nokkra ser­vera. Þessu fylgdi að ég komst á rad­ar­inn hjá ótrú­lega áhuga­verðu fólki sem var að vinna við tækni­sam­fé­lag og list og fékk fullt af tæki­færum, en ég hef ekki mikla þörf fyrir að vera alltaf að segja öllum frá því sem ég er að gera þannig að þetta vita fáir. Ég hef gert alveg ótrú­lega mikið af mögn­uðum hlutum og fengið að vinna með fólki sem ég ber mikla virð­ingu fyrir sem er alveg ómet­an­legt. Hér heima finnst mér ég alltaf vera svona litli ljóti and­ar­ung­inn, sem er allt í lagi, en það þýðir að flest mín verk­efni hafa verið og verða erlendis, þótt ég geti unnið þau héðan. Mér finnst vera mjög lít­ill far­vegur fyrir mína þekk­ingu og reynslu hérna heima, hvað þá skiln­ingur á því hvaða tengsl ég hef náð að búa til erlendis sem mig lang­aði að færa þjóð­inni minni. En þegar maður kemur að landi og sér að það er eng­inn til að taka við afl­anum þá verður maður að fara með hann eitt­hvert annað. Þess vegna er ég núna komin með annan fót­inn úr landi sem er allt í fína lagi. Eins og sagt er; það er eng­inn spá­maður í sínu heima­landi, þannig að það er ekk­ert áfall.“

Samband fólks við vald óheilbrigt

En er Birgitta þá alveg hætt í póli­tík­inni eða hefur hún í hyggju að setja saman nýja hreyf­ingu og hasla sér völl á þeim vett­vangi aftur?

„Nei, ekki stjórn­mála­hreyf­ingu, alls ekki,“ segir hún ákveðin. „Og ástæðan fyrir því að ég get sagt alveg hart nei við þeirri spurn­ingu er að í fyrsta lagi er það mjög slæmt fyrir hvaða hreyf­ingu sem er sem vill vinna að breyt­ingum á sam­fé­lag­inu að hafa það sem aðal­mark­mið að ná fólki í valda­stöður, það er mjög óhollt og vont vegna þess að sam­band fólks við vald er mjög óheil­brigt. Mesta óham­ingja Pírata var þegar við fórum að skora svona hátt í skoð­ana­könn­unum. Þá fór fólk allt í einu að hafa rosa­legar áhyggjur af því að ein­hver segði eða gerði eitt­hvað sem gæti hugs­an­lega fælt mögu­lega til­von­andi kjós­endur frá. Það er ekki hægt að keyra rót­tæka gras­rót­ar­hreyf­ingu á þeim hugs­un­ar­hætti, það verður að leyfa fólki að vera í þess­ari hvat­vísu orku.

„Mesta óham­ingja Pírata var þegar við fórum að skora svona hátt í skoð­ana­könn­unum.“

Fyrir fólk eins og mig sem gengur út á að lesa í sam­fé­lagið, sem ég er ágæt í, er það mjög óþægi­legt að mega ekki vera í því flæði. Þú veist ekki hvað ég eyddi miklum tíma í að reyna að útskýra fyrir fólki að ég hefði ekki tíma til að tala við hvern ein­asta útlenska fjöl­miðil sem tók upp á því að kalla mig for­mann Pírata. Ég sagði alltaf við þá að við hefðum ekki for­mann, þetta væri flatur strúktúr, en þeir köll­uðu mig samt alltaf for­mann. Það var bara ekk­ert hlustað á mig. Ef maður ætlar að byggja upp eitt­hvert bylt­ing­ar­afl verður mark­miðið að vera það að vald­efla almenn­ing og ef fólk er ekki ánægt með hlut­ina eins og þeir eru þá eru nú þegar til ótrú­lega góð verk­færi til að hafa áhrif. Og ef manni er alvara með að vilja breyta sam­fé­lag­inu og skapa gras­rót­ar­lýð­ræði, verður maður að fara um landið og tala við almenn­ing um hverju hann vilji breyta og hvetja hann til að nýta þessi verk­færi til breyt­inga, til dæmis Betra Ísland. Það hefur mig lengi dreymt um að gera og kannski læt ég verða af því ein­hvern tíma.“

En sérðu eftir þessum átta árum á þingi? Hefðirðu frekar viljað nýta þau í eitt­hvað annað?

„Alls ekki,“ segir Birgitta ákveðin. „Það sem mér þótti svo magnað og ég er óend­an­lega þakk­lát fyrir er það traust sem fólk sýndi mér. Ég hefði bara viljað geta gert miklu meira. Ég hefði viljað geta verið öfl­ugri. Ég veit að ég sáði alls konar fræjum og það eru alls konar hlutir sem hafa lag­ast en mér finnst það bara ekki nóg því nú erum við aftur að fara inn í tíma sem verða erf­iðir og við erum ekki með nein verk­færi til að takast á við þá. Umræðan verður alltaf svo svart­hvít og fólk er ann­að­hvort með eða á móti öllum hlutum sem er fárán­legt. Við erum öll eitt risa­stórt blæ­brigði og það er mjög óhollt að vera alltaf að þvinga aðra inn í eitt­hvað sem er ekki þeir í stað­inn fyrir að fólk reyni að finna ein­hverjar sam­eig­in­legar lausnir.“

„Nokkuð viss um að ég er með Asberger“

Að spyrja Birgittu um einka­líf hennar og nán­asta fólk er eins og að ganga á vegg. Hún seg­ist alltaf hafa passað vel upp á það að blanda ekki einka­málum sínum í opin­bera umræðu.

„Ég er mik­ill varð­hundur frið­helgi einka­lífs­ins,“ segir hún hlæj­andi. „En ég hef verið í flóknu sam­bandi við sjálfa mig all­lengi og þegar maður fer í svona brjál­æði eins og ég hef verið í er eng­inn tími fyrir eitt­hvert til­huga­líf, en ég á þrjú börn sem eru öll orðin meira en átján ára og tókst það sem fáum sem hafa verið áber­andi í stjórn­málum hefur tek­ist að passa vel upp á þau og blanda þeim ekki inn í það drullu­svað sem póli­tíkin er. Það er eitt af því sem fólk gleymir þegar það segir ógeðs­lega ljóta hluti um aðra, oft án þess að hafa nokkurn tíma átt í sam­skiptum við við­kom­andi, að þessir aðilar sem verið er að við­hafa svona stór orð um eiga sitt líf og sínar fjöl­skyldur. Það má vera með harða gagn­rýni á verk stjórn­mála­manna en þegar farið er að sjúk­dóms­greina aðra opin­ber­lega má fólk aðeins fara að hugsa sinn gang. Hafi fólk eitt­hvað út á mann að setja sem mann­eskju er lág­marks­krafa að það sé til­búið að segja það við mann augliti til auglitis í einka­sam­tali. Ef fólk er ekki til­búið til þess þá blokkera ég það, alveg án þess að hika. Fólk verður að geta staðið undir því sem það segir.“

Birgitta hefur unnið mikið í sjálfri sér, segir það gjör­sam­lega hafa bjargað sér. „Ég var svo heppin að detta inn í pró­gramm fyrir aðstand­endur alkó­hólista og það hefur algjör­lega bjargað mér, útskýrir hún.

Birgitta hefur unnið mikið í sjálfri sér og sínum vanda­málum í gegnum árin og segir það gjör­sam­lega hafa bjargað sér.

„Ég var svo heppin að detta inn í pró­gramm fyrir aðstand­endur alkó­hólista og það hefur algjör­lega bjargað mér,“ útskýrir hún. „Það er erfitt að búa í litla sam­fé­lag­inu þar sem allir þekkja alla og allir hafa skoð­anir á öllum og sú sjálfs­vinna sem fylgir því að fara í gegnum 12 spora kerfið hefur hjálpað mér óend­an­lega mikið. Eftir að hafa gengið í gegnum Asberger-grein­ingu með yngsta son minn er ég nokkuð viss um að ég er með Asberger. Ég get ekki logið og trúi alltaf að annað fólk meini það sem það segir. Verð svo rosa­lega hissa þegar það stendur ekki við það. Margir hafa sagt að ég sé óskap­lega naív, en ég er bara svona og hef ekki áhuga á því breyta því. Eitt af því sem er erfitt hér á Íslandi er hvað fólk sem er öðru­vísi hefur litla mögu­leika á að blómstra og við sem þjóð þurfum að læra að vera umburð­ar­lynd­ari gagn­vart fjöl­breyti­leik­anum. Það eru nefni­lega allir öðru­vísi, ég hef aldrei hitt venju­lega mann­eskju. Hún er bara mýta.“

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Hildur Emils­dóttir, förð­un­ar­fræð­ingur fyrir Urban Decay á Íslandi

Mannlíf er frí­blað sem er borið út á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og einnig í eft­ir­far­andi versl­anir á lands­byggð­inni:

Krónan Vest­manna­eyjar
Krónan Hvols­velli
Krónan Selfossi
Krónan Akranesi
Krónan Reyð­ar­firði
Nettó Egils­stöðum
Nettó Borg­ar­nes
Nettó Reykja­nesbæ
Nettó Höfn í Horna­firði
Nettó Grinda­vík
Nettó Akureyri
Nettó Selfossi
Fjarð­ar­kaup – Hafn­ar­firði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi