Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Versta martröð hvers foreldris

Hulda Björk Svans­dóttir hefur í þrjú ár barist fyrir því að sonur hennar, Ægir Þór, fái með­ferð við Duchenne-vöðva­rýrnun en alls staðar er komið að lok­uðum dyrum í heil­brigð­is­kerf­inu. Nú stendur Ægi mögu­lega til boða að taka þátt í til­rauna­með­ferðum bæði í Banda­ríkj­unum og Svíþjóð og fjöl­skyldan stendur því frammi fyrir því að þurfa að flytj­ast af landi brott í nokkur ár. Hulda Björk segir óhugs­andi að leggja árar í bát í bar­átt­unni, það sem bíði Ægis ef hann fær enga hjálp sé versta martröð hvers for­eldris.

Versta martröð hvers foreldris
Mynd / Hallur Karlsson

Hulda Björk hefur síð­ustu þrjú árin verið óþreyt­andi við að berj­ast fyrir því að Ægir Þór fái aðstoð og þegar við spjöllum saman er hún nýkomin frá Banda­ríkj­unum þar sem hún hitti einn færasta tauga­sér­fræð­ing heims í með­ferð við Duchenne-vöðva­rýrnun og segir hann hafa mælt með því að sækja um fyrir Ægi í genatil­raunum.

„Við erum ekki með neitt fast í hendi enn þá en Ægir er á biðlista fyrir tvær genatil­raunir,“ segir hún. „Það eru tveir mögu­leikar í stöð­unni, klínísk til­raun sem hefst í Svíþjóð í októ­ber eða að treysta á það að hann verði val­inn til að taka þátt í genatil­raunum í Banda­ríkj­unum sem er alls óvíst að hann kom­ist í. Þannig að þetta er svo­lítið flókin staða í augna­blik­inu.“

Með­ferðin í Svíþjóð snýst um til­raunir með næstu kyn­slóð af lyf­inu sem Hulda hefur árum saman barist fyrir að Ægir fengi, en beiðni hennar hefur verið hafnað i tvígang af íslenskum heil­brigð­is­yf­ir­völdum eins og fjallað hefur verið um í fréttum.

„Lækn­ir­inn í Banda­ríkj­unum var mjög hrif­inn af því hvað Ægir var dug­legur og hvað hann stendur ótrú­lega vel miðað við aðra stráka á þessum aldri með þennan sjúk­dóm og hvatti okkur til að bíða eftir gena­með­ferð.“

„Það er rosa­lega erfitt að sleppa því tæki­færi að hann geti hafið lyfja­með­ferð í Svíþjóð strax í haust, fyrir utan að það er auð­veld­ara fyrir okkur að fara til Norð­ur­land­anna heldur en til Banda­ríkj­anna, en lækn­ir­inn í Banda­ríkj­unum var mjög hrif­inn af því hvað Ægir var dug­legur og hvað hann stendur ótrú­lega vel miðað við aðra stráka á þessum aldri með þennan sjúk­dóm og hvatti okkur til að bíða eftir gena­með­ferð. Svo við stöndum eig­in­lega á kross­götum í augna­blik­inu og ég get ekki sagt þér á þess­ari stundu hvaða leið við munum velja.“

Einn af hverjum fjögur þúsund drengjum

Duchenne-vöðva­rýrnun er yfir­leitt arf­gengur sjúk­dómur en í til­felli Ægis Þórs er sú ekki raunin, heldur er ástæðan stökk­breyt­ing á fóst­ur­stigi.

„Móðirinn er yfir­leitt arf­beri,“ útskýrir Hulda, „en það er ekki þannig í Ægis til­felli. Það er engin saga um sjúk­dóm­inn í okkar fjöl­skyldu og ég er ekki arf­beri. Við höfðum aldrei heyrt um þennan sjúk­dóm áður en hann greind­ist en okkur var sagt að þetta gæti gerst í hvaða fjöl­skyldu sem er þegar um stökk­breyt­ingu er að ræða sem ger­ist í um það bil þrjá­tíu pró­sent til­vika.“

Spurð hversu algengur sjúk­dóm­ur­inn sé og hvort fleiri íslenskir drengir séu með sjúk­dóm­inn segir Hulda: „Duchenne er stundum kall­aður algeng­asti sjald­gæfi sjúk­dóm­ur­inn. Það er einn af hverjum þrjú til fjögur þús­und drengjum sem fæð­ist með þennan sjúk­dóm. Ég held að hér á Íslandi séu tólf ein­stak­lingar greindir með Duchenne, en það eru ekki mikil sam­skipti á milli þeirra sem hafa greinst á Íslandi þannig að ég þekki það ekki alveg nógu vel. Það eru til sam­tök sem heita Duchenne-vöðva­rýrnun á Íslandi sem eru með Facebook-síðu en hún er lítið virk. Ég og önnur móðir sem á tvo drengi með Duchenne höfum verið að reyna að vekja athygli á sjúk­dómnum með því að hlaupa í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu og safna fé til rann­sókna en það er eng­inn beinn stuðn­ingur fyrir for­eldra eða drengi með sjúk­dóm­inn hér­lendis. Ég held það sé sam­eig­in­leg reynsla íslenskra for­eldra sem eiga börn með sjald­gæfa sjúk­dóma að þeir standa voða­lega einir í bar­átt­unni. Þótt það sé sorg­legt að segja það þá er upp­lifun mín sú að það er illa haldið utan um þá sem eru með sjald­gæfa sjúk­dóma hér á landi.“

„Ég held það sé sam­eig­in­leg reynsla íslenskra for­eldra sem eiga börn með sjald­gæfa sjúk­dóma að þeir standa voða­lega einir í bar­átt­unni.“

Duchenne-vöðva­rýrnun er ban­vænn vöðva­rýrn­un­ar­sjúk­dómur sem nán­ast ein­göngu er bund­inn við drengi. Sjúk­dóm­ur­inn er fram­sæk­inn og smám saman rýrna flestir meg­in­vöðvar lík­am­ans. Gangur sjúk­dóms­ins er mis­jafn en yfir­leitt hætta drengirnir að geta gengið sjálfir 10 til 12 ára og fara þá í hjóla­stól. Með betri umönnun lifa Duchenne-drengir lengur í dag en áður var, en margir sem grein­ast með sjúk­dóm­inn deyja því miður fyrir aldur fram.

„Það virð­ist reyndar vera nokkuð breiður skali sem sjúk­ling­arnir eru á og ein­kennin eru mis­al­var­leg og mis­lengi að koma í ljós,“ útskýrir Hulda. „Ægir virð­ist vera nokkuð „hepp­inn“ enn þá miðað við þennan sjúk­dóm, en það er eng­inn vafi á því hver þró­unin verður. Þetta er mjög ágengur og óvæg­inn sjúk­dómur.“

Þjóðhátíðardagurinn aldrei samur

Ægir Þór greind­ist með Duchenne-vöðva­rýrnun árið 2016, fjög­urra ára gam­all, og Hulda seg­ist hafa álitið að hún ætti heil­brigt barn í þessi fjögur ár, en hana hafi þó verið farið að gruna mun fyrr að eitt­hvað væri að.

Hulda Björk býr á Höfn í Horna­firði og segir sam­fé­lagið og utan­um­haldið þar vera til fyr­ir­myndar. „Ég vona að við getum búið hér sem lengst. Það er sama hvar borið er niður; leik­skól­inn, skól­inn, fólkið sem sér um þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lag­inu hefur allt verið til fyr­ir­myndar og ég get ekki hrósað því nógu mikið.“

„Ég á tví­bura sem eru átján ára og þau voru miklu virk­ari á þessum aldri heldur en Ægir var,“ útskýrir hún. „Hann var alltaf voða­lega rólegur en það var samt ekk­ert sem æpti á mann að eitt­hvað væri að. Þegar hann byrj­aði fyrst að ganga datt hann á höf­uðið og hætti að reyna að ganga þar til hann var 15 mán­aða. Ég tók líka eftir því að hann príl­aði aldrei eða tók lík­am­lega áhættu og grét bara ef við reyndum að ganga eitt­hvað lengra. Þegar hann var orð­inn rúm­lega þriggja ára sá ég mik­inn mun á honum og jafn­öldrum hans þannig að ég fór með hann til sjúkra­þjálf­ara sem sér­hæfir sig í hreyfi- og þroskaprófum fyrir börn. Hann tal­aði um að hann væri alveg tveimur árum á eftir jafn­öldrum sínum í hreyfi­þroska, en kveikti ekki á neinum sjúk­dómi. Það var þó enn þá eitt­hvað að naga mig þannig að ég fór með hann til barna­læknis sem ég held að hafi strax grunað hvað væri að því hann sendi okkur áfram til tauga­læknis sem greindi hann með Duchenne-vöðva­rýrnun þann 17. júní 2016. Það er alveg óhætt að segja að þjóð­há­tíð­ar­dag­ur­inn verður aldrei aftur eins í mínum huga og hann var áður.“

„Ég asnað­ist til að fara að gúgla sjúk­dóm­inn og end­aði nán­ast í tauga­á­falli eftir það. Það hefði ég sko ekki átt að gera áður en ég var búin að tala almenni­lega við lækn­inn.“

Þótt grein­ingin væri komin seg­ist Hulda svo sem hafa verið litlu nær um það hvað biði þeirra enda hafi hún ekki vitað nokkurn skap­aðan hlut um þennan sjúk­dóm.

„Ég asnað­ist til að fara að gúgla sjúk­dóm­inn og end­aði nán­ast í tauga­á­falli eftir það,“ segir hún. „Það hefði ég sko ekki átt að gera áður en ég var búin að tala almenni­lega við lækn­inn. En horf­urnar voru ekki bjartar eftir því sem ég las mér til.“

Fór í varnargírinn

Var fjöl­skyldan þá ekki í algjöru sjokki eftir grein­ing­una? „Jú, ég get alveg við­ur­kennt það,“ segir Hulda. „Ég fór bara í ein­hvern varn­ar­gír og lok­aði á þetta. Gat engan veg­inn tekið á þessu. Systir mín sem er sál­fræð­ingur studdi mig mikið og fann til dæmis heima­síðu hjá Duchenne-sam­tök­unum í Banda­ríkj­unum en það liðu margir mán­uðir áður en ég treysti mér til að skoða hana. Ég var alls ekki til­búin til að opna á þetta og var bara í afneitun, sem eru auð­vitað varn­ar­við­brögð eftir svona alvar­legt sjokk. Ein móðir sem á tvo syni með sjúk­dóm­inn frétti af mér og hafði sam­band við mig en ég gat ekki einu sinni talað við hana. Þetta var bara mjög erfitt til að byrja með. Við erum samt ótrú­lega heppin að mörgu leyti. Hann fékk grein­ing­una í júní og strax um haustið fengum við þessa von, að lyfið Eteplir­sen hafi fengið sam­þykki í Banda­ríkj­unum og virt­ist geta hjálpað við að hægja á sjúk­dómnum. Vonin um að Ægir gæti fengið það hélt mér síðan gang­andi.“

Lyfið hefur enn ekki feng­ist sam­þykkt í Evrópu og þrauta­ganga Huldu við að reyna að fá und­an­þágu til að Ægir geti fengið lyfið hér á landi stóð í tæp þrjú ár. Eftir tvær hafn­anir segir hún að sér hafi orðið ljóst að hún þyrfti að fara að leita að öðrum með­ferð­ar­úr­ræðum, það sé alla vega ekki í boði að gef­ast upp.

„Svörin sem lyfja­nefndin gaf fannst mér ekki inni­halda nein rök,“ segir hún. „Þau voru á þá leið að þótt lyfið hefði sýnt ein­hverja virkni hefði það ekki næga virkni til að rétt­læta það að Ægir fengi und­an­þágu, eins að það væri ekki rann­sakað nægi­lega. Ég varð bara reið, ég við­ur­kenni það. Við vorum að tala um líf barns­ins míns og er þá ein­hver virkni ekki betri en engin? Við vildum bara fá tæki­færi til að prófa lyfið því það var ekk­ert annað í boði og laga­lega var ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að við gætum fengið lyfið hingað. Mér fannst þetta alveg klikkað og auð­vitað grun­aði mann að það spil­aði inn í hvað lyfið var dýrt þó að okkur hefði verið tjáð að pen­ing­arnir skiptu ekki máli, þannig að, já, ég var mjög reið og sár.“

„Svörin sem lyfja­nefndin gaf fannst mér ekki inni­halda nein rök. Þau voru á þá leið að þótt lyfið hefði sýnt ein­hverja virkni hefði það ekki næga virkni til að rétt­læta það að Ægir fengi und­an­þágu.“

Talandi um kostnað, þurfa Hulda og fjöl­skylda sjálf að fjár­magna ferðir til Banda­ríkj­anna og það sem þau hafa gert til að reyna að fá með­ferð fyrir Ægi? „Já, það er ekk­ert gert fyrir okkur hér heima, því miður. Við borg­uðum alla ferð­ina og lækn­is­heim­sókn­ina sjálf,“ segir hún. „Það var ekk­ert í gegnum kerfið hér eða lækn­inn okkar, ég var sjálf búin að standa í því í tvö ár að koma okkur þarna inn. Upplifun mín er sú að lækn­arnir hér hafa bara ekki tíma, það vantar fjár­magn til að ráða fleiri tauga­lækna svo þeir geti sinnt þessu eins og þarf, held ég. Vanda­málið er að hér á Íslandi er þessi hópur með sjald­gæfa sjúk­dóma svo fámennur. Við erum með ynd­is­legan lækni sem reynir sitt besta en hendur hans virð­ast því miður vera bundnar. Ég finn eig­in­lega til með heil­brigð­is­starfs­fólki að þarf að vinna innan þessa kerfis þar sem allt stendur fast.“

Spurði hvort hann gæti dáið úr Duchenne

Spurð hvort hún hafi rætt sjúk­dóm­inn við Ægi sjálfan, hvort hann viti hver staðan er, seg­ist Hulda auð­vitað hafa sagt honum að hann sé með þennan sjúk­dóm en hann sé enn of ungur til að hún vilji fara nánar í saumana á því hvað það þýði.

Þrátt fyrir sjúk­dóm­inn er Ægir Þór lífs­glaður og ótrú­lega dug­legur og þau mæðginin eru mjög náin.

„Grein­inga­stöðin hvatti okkur til að segja honum frá þessu á sínum tíma,“ segir hún. „Það var rosa­lega erfitt fyrir mig, mér fannst alveg hræði­legt að þurfa að segja honum þetta, leið eins og ég væri að taka frá honum æsk­una. En auð­vitað þurfti að útskýra ýmis­legt, til dæmis á leik­skól­anum til að börnin gætu skilið hvers vegna hann gat ekki hlaupið eins og þau. Hann veit að hann er með Duchenne, að vöðvar hans eru ekki eins sterkir og hinna krakk­anna, en ekki mikið meira. Hann er samt far­inn að spyrja erf­iðra spurn­inga, hvort hann geti dáið úr Duchenne og svo fram­vegis. Hann grætur stundum yfir því að geta ekki gert það sama og félagar hans og vill fá að vita hvers vegna. Þau sam­töl sem ég hef átt við hann um sjúk­dóm­inn hafa verið mjög erfið fyrir mig. Ég reyni bara að tala almennt um þetta við hann, það geta allir dáið og að allir deyi ein­hvern tím­ann, reyni ég að útskýra fyrir honum. Það verður auð­vitað alltaf erf­ið­ara og erf­ið­ara eftir því sem hann verður eldri, en mér finnst alltaf of snemmt að útskýra afleið­ingar sjúk­dóms­ins fyrir honum, hann er ekki nema sjö ára og mér fynd­ist ég vera að taka svo mikið frá honum.“

Stuðningur samfélagsins dásamlegur

Oft ber­ast fréttir af því að fólk sem býr á lands­byggð­inni með lang­veik börn þurfi að flytja til Reykja­víkur til að fá þjón­ustu, hefur ekki verið erfitt að vera búsett á Höfn í þessu ferli?

„Ó, nei, það hefur sko ekki verið erfitt,“ segir Hulda og ljómar öll. „Sam­fé­lagið og utan­um­haldið hér hefur verið dásam­legt. Það er allt til fyr­ir­myndar. Ég get eig­in­lega ekki hugsað mér að flytja með hann héðan og vona að við getum búið hér sem lengst. Það er sama hvar borið er niður; leik­skól­inn, skól­inn, fólkið sem sér um þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lag­inu hefur allt verið til fyr­ir­myndar og ég get ekki hrósað því nógu mikið. Þar fyrir utan er þetta lítið sam­fé­lag þar sem allir þekkja Ægi og mér finnst mjög erfið til­hugsun að þurfa að taka hann héðan ef við förum í klínískar til­raunir í Svíþjóð eða Banda­ríkj­unum í þrjú til fjögur ár. Hér er haldið utan um hann af öllum eins og allir eigi hlut­deild í honum. Í fyrra var hald­inn hérna styrkt­ar­dagur fyrir hann og söfn­uð­ust tvær millj­ónir. Það var svo ótrú­lega fal­legur dagur og ég mun aldrei gleyma honum.“

Óttast að taka rangar ákvarðanir

Báðar með­ferð­irnar sem Ægi standa mögu­lega til boða eru til­rauna­með­ferðir, er það ekk­ert ógn­vekj­andi til­hugsun að gera barnið sitt að til­rauna­dýri? „Jú, þú getur rétt ímyndað þér það,“ segir Hulda. „Það er mjög erfið til­hugsun. Það er margt sem getur farið úrskeiðis og öllum til­raunum fylgir auð­vitað áhætta. Gulrótin sem maður fær er að sjúk­ling­ur­inn fær lyfið sér að kostn­að­ar­lausu þangað til það kemur á markað, en þetta er rosa­lega erfið ákvörðun. Hvað er rétt að velja fyrir hann? Maður ótt­ast að taka rangar ákvarð­anir og eyði­leggja kannski fyrir honum aðra mögu­leika í fram­tíð­inni, það er erfitt að ná utan um þetta allt saman. Genatil­raun­irnar eru enn á algjöru frum­stigi, það eru svo mörg ef og margt sem ekki er vitað enn þá, sem er rosa­lega stór áhætta. En á sama tíma getur ávinn­ing­ur­inn líka verið mik­ill, hann gæti grætt tíu til fimmtán góð ár ef allt gengur vel. Og það eru mjög hraðar fram­farir í rann­sóknum á þessum sjúk­dómi þannig að eftir tíu til fimmtán ár gætu verið komnar fram enn þró­aðri gena­með­ferðir. Móð­ur­eðlið í mér vill nátt­úr­lega velja það sem er örugg­ast fyrir hann en hann gæti kannski grætt meira á gena­með­ferð­inni. Þannig að við stöndum frammi fyrir mjög erf­iðri ákvörðun þessa dag­ana.“

En þessar með­ferðir sem þið þurfið að taka ákvörðun um eru eina vonin fyrir Ægi? „Því miður er það þannig,“ segir Hulda og and­varpar. „Það er engin með­ferð fyrir hann hér á landi. Hér eru ekki gerðar neinar klínískar rann­sóknir, engar for­sendur fyrir þeim og eina lausnin sem for­eldrar hafa er að flytja úr landi. Það er sorg­legt að segja það en ef þú átt lang­veikt barn með sjald­gæfan sjúk­dóm er lítið hægt að gera hér á Íslandi. Það eru allir af vilja gerðir og ynd­is­legt fólk sem vinnur í heil­brigð­is­geir­anum en það getur ekk­ert gert fyrir mann. Von mín er að öll þessi bar­átta mín skili ein­hverju, að eitt­hvað breyt­ist svo fólk þurfi ekki að taka þennan slag sem ég hef staðið í í þrjú ár.“

Heldur í vonina og jákvæðnina

Spurð hvort það sé ekki slít­andi að standa í stans­lausri bar­áttu við kerfið árum saman segir Hulda að auð­vitað taki það á, en henni finn­ist hún ekki hafa aðra val­kosti. Hún hafi reynt und­an­farið að vinna í sjálfri sér og byggja sig upp.

„Ég tók þá ákvörðun í októ­ber í fyrra að fara í veik­inda­leyfi og setja þar með súr­efn­is­grímuna á sjálfa mig. Ég fann bara að það var tíma­bært, því ef ég hryndi niður, hver myndi þá berj­ast fyrir Ægi? Ég fór að fara í lík­ams­rækt­ina aftur, stund­aði hug­leiðslu, fór að syngja og gera eitt­hvað í því að styrkja mig. Góð vin­kona mín er mark­þjálfi og hefur gefið mér mörg góð ráð til að vinna í sjálfri mér og ég finn að mér líður miklu betur, sem hjálpar mér að vera enn öfl­ugri í bar­átt­unni fyrir Ægi. Það er svo algengt að for­eldrar lang­veikra barna þrói með sér alls konar veik­indi vegna álags og ég ætl­aði ekki að lenda í því.“

Ætti ekki að þurfa að berjast

Hefur það aldrei legið nærri að Hulda gæf­ist upp á þess­ari bar­áttu? „Nei, maður heldur bara áfram,“ segir hún. „Ef einar dyr lok­ast reynir maður að opna aðrar. Auðvitað ætti maður að eiga þess kost að geta notið þess að vera meira með barn­inu sínu, ég ætti ekk­ert að þurfa að standa í þess­ari bar­áttu en það er bara eng­inn annar sem gerir þetta. Lækn­arnir hafa engan tíma til að beita sér í svona málum þótt þeir vildu, sem er virki­lega sorg­legt. Og það er leið­in­legt hvað þetta tekur mik­inn tíma frá Ægi, ég er mjög glöð að geta komið þessum sjón­ar­miðum á fram­færi og hef reynt að vekja athygli á stöð­unni en það bitnar á tíma mínum með honum. Það vantar ein­hvern umboðs­mann sjúk­linga sem hefði það verk­efni að berj­ast fyrir rétt­indum þeirra. Núna hefur það algjöran for­gang að koma Ægi í ein­hverja með­ferð, það er númer eitt, tvö og þrjú en bar­áttan fyrir því að vekja athygli á stöð­unni í þessum málum heldur líka áfram.“

Burtséð frá heil­brigð­is­kerf­inu, finnst Huldu hún hafa mætt skiln­ingi á bar­áttu sinni almennt í sam­fé­lag­inu? „Já, við höfum fengið ótrú­legan stuðn­ing og erum gríð­ar­lega þakk­lát fyrir það,“ segir hún. „Mjög margt fólk hefur reynt að hjálpa okkur og gera allt sem það getur fyrir okkur. Ég veit stundum ekki hvernig ég á eig­in­lega að geta þakkað fyrir það allt saman. Það er ótrú­lega fal­legt fólk þarna úti sem er búið að gera svo mikið fyrir okkur og Ægi, bæði hér á landi og erlendis. Það er svo margt fal­legt í sög­unni hans Ægis og það gefur manni styrk til að halda áfram að berj­ast.“

Hulda tók þá ákvörðun í októ­ber í fyrra að fara í veik­inda­leyfi og setja þar með súr­efn­is­grímuna á sjálfa sig. „Ég fann bara að það var tíma­bært, því ef ég hryndi niður, hver myndi þá berj­ast fyrir Ægi?“

En þið eruð sem sagt á þessum kross­götum núna og þurfið mjög fljót­lega að ákveða næsta skref? „Já, nú þurfum við að leggj­ast yfir þetta,“ segir Hulda. „Það er svo mikið af flóknum lækn­is­fræði­legum hug­tökum sem notuð eru í sam­bandi við þessar rann­sóknir að það er meiri­háttar mál fyrir mann að skilja um hvað verið er að tala. Auðvitað þurfum við bara að hugsa um hvað hentar okkur best og hvað er best fyrir Ægi, það skiptir mestu máli.“

Ef Ægir kemst ekki í aðra hvora rann­sókn­ina og fær enga með­ferð, hvað bíður hans þá á næstu árum? „Ég vil ekki einu sinni hugsa um það,“ segir Hulda. „Ég reyni að fara ekki þangað. Þá nátt­úr­lega hefur sjúk­dóm­ur­inn bara sinn fram­gang. Það er mjög óhugn­an­legt að hugsa um það sem ann­ars mun bíða hans. Fyrir for­eldra er það versta martröðin. Ég reyni að hugsa sem minnst um þetta, ég ætla bara að vera jákvæð og trúa því að það verði í lagi með Ægi, að hann fái þá með­ferð sem hann þarf. Maður verður að halda í jákvæðn­ina og vera bjart­sýnn, það skiptir mig mestu máli.“

Myndir / Hallur Karlsson

Mannlíf er frí­blað sem er borið út á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og einnig í eft­ir­far­andi versl­anir á lands­byggð­inni:

Krónan Vest­manna­eyjar
Krónan Hvols­velli
Krónan Selfossi
Krónan Akranesi
Krónan Reyð­ar­firði
Nettó Egils­stöðum
Nettó Borg­ar­nes
Nettó Reykja­nesbæ
Nettó Höfn í Horna­firði
Nettó Grinda­vík
Nettó Akureyri
Nettó Selfossi
Fjarð­ar­kaup – Hafn­ar­firði

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina