Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ég hef aldrei séð mál í líkingu við Guðmundar- og Geirfinnsmálið“

Íslensk yfir­völd hafa aldrei með form­legum hætti óskað gagna eða aðstoðar þýskra yfir­valda við upp­gjör Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins þrátt fyrir aðkomu þýska rann­sókn­ar­ráð­gjafans Karl Schütz að rann­sókn máls­ins. Þetta kemur fram í svari við fyr­ir­spurn Andrej Hunko, þing­manns Die Linke, í þýska þing­inu.

„Ég hef aldrei séð mál í líkingu við Guðmundar- og Geirfinnsmálið“
Bræð­urnir Viktor Bjarni og Vincent Kári van der Valk hafa fengið afbragðs­dóma fyrir mynd­ina Nocturne. Myndin er fyrsta mynd Viktors Bjarna í fullri lengd

Í svar­inu kemur þó fram að slík aðstoð yrði veitt ef eftir henni yrði leitað. „Svarið sem ég fékk er að form­leg beiðni hafi aldrei borist,“ segir Andrej Hunko í sam­tali við Mannlíf um svörin. „Spurn­ingin snýst sér­stak­lega um þýsku alrík­is­lög­regl­una, BKA, en ráð­herra myndi hafa vit­neskju af slíkri beiðni. Við getum því skilið á þessu svari að form­leg beiðni til við­eig­andi yfir­valda hefur aldrei borist frá íslenskum stjórn­völdum.“

Rannsókn Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins hefur árum saman verið gagn­rýnd og nokkur dæmi eru um end­ur­skoðun á rann­sókn­inni. Frá árinu 1997 hafa starfað end­ur­upp­töku­nefndir, starfs­hópur skip­aður af inn­an­rík­is­ráð­herra og sátta­nefnd í kjöl­far sýkn­unar Hæsta­réttar árið 2018.

Karl Schütz var að form­inu til sestur í helgan stein þegar hann var ráð­inn sem ráð­gjafi við rann­sókn Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins. Utan­rík­is­ráðu­neytið hafði milli­göngu um ráðn­ing­una. Þá voru sönn­un­ar­gögn send til Þýska­lands við rann­sókn máls­ins auk þess sem Schütz var feng­inn til að skila áliti vegna fyr­ir­hug­aðar end­ur­skipu­lagn­ingar lög­regl­unnar á Íslandi. Þá er vert að nefna sér­stak­lega að Schütz virð­ist hafa kennt íslenskum lög­reglu­mönnum pynt­ingar sem voru nýttar við yfir­heyrslur yfir sak­born­ingum í mál­inu.

Þýsk lög­reglu­yf­ir­völd gætu því haft nokkuð af gögnum er varða rann­sókn máls­ins á átt­unda ára­tugnum.

Alvarlegasta réttarmorð í Evrópu

„Ég hef aldrei séð mál í lík­ingu við Guð­mundar- og Geir­finns­málið,“ segir Hunko. Hann segir málið hafa komið sér á óvart eftir að honum var bent á það. „Ég las umfjöllun BBC sem sagði málið alvar­leg­asta rétt­ar­morð í Evrópu.“

Hunko seg­ist ekki vita hvort eða hvernig verði haldið áfram með málið af hans hálfu. Hins vegar telji hann eðli­legt að aðkoma þýska yfir­valda sé skoðuð. „Svo virð­ist sem þýski ráð­gjaf­inn hafi haft aðkomu að notkun pynt­inga við rann­sókn máls­ins. Þetta vekur að sjálf­sögðu upp spurn­ingar og er óeðli­legt. Það vekur líka athygli mína að svo virð­ist sem mik­ill póli­tískur þrýst­ingur hafi verið á íslensk stjórn­völd að ljúka mál­inu,“ segir Hunko og bætir við að áhugi hans á aðkomu þýskra yfir­valda snúi líka að því hvort hér hafi verið póli­tísk aðstoð. Hávær póli­tísk krafa hafi verið hér á landi um að ljúka mál­inu.

„Hér vitum við að pynt­ingar voru not­aðar til að fá fram játn­ingar. Það er ótrú­legt að hugsa til þess.“

„Minn skiln­ingur er sá að hið sanna sé ekki vitað í þessum málum. Það veit eng­inn hver ber ábyrgð á hvarfi mann­anna. Þá vakna spurn­ingar um hvort það hafi verið póli­tískt að afhenda almenn­ingi ein­hverja sak­born­inga til að ljúka mál­inu en ekki leysa. Slíkt er ekki í sam­ræmi við hug­myndir um rétt­ar­ríkið. Hér vitum við að pynt­ingar voru not­aðar til að fá fram játn­ingar. Það er ótrú­legt að hugsa til þess. Ég veit ekki betur en að Ísland sé með­limur Evr­ópu­ráðs­ins,“ segir Hunko. Ísland varð með­limur Evr­ópu­ráðs­ins árið 1950 og tekur meðal ann­ars þátt í svari Evr­ópu­nefndar Evr­ópu­ráðs­ins um for­varnir gegn pynt­ingum og ómann­úð­legri eða nið­ur­lægj­andi með­ferð eða refs­ingu.

Hann bendir á að málið geti hugs­an­lega haft teng­ingu í stærra sam­hengi þýskra stjórn­mála. Þjóð­verjar séu virkir í alþjóð­legu sam­starfi lög­reglu­yf­ir­valda um heim allan.

„Ég segi það stundum í gríni að Kúba flytji út lækna en Þýska­land flytji út lög­reglu­menn,“ segir Hunko og bendir á að Þjóð­verjar séu fram­ar­lega er varðar útflutn­ing á tækni­lausnum til eft­ir­lits með almenn­ing. Hann nefnir Sýrland sem dæmi en þýsk fyr­ir­tæki seldu eft­ir­lit­s­tækni til sýr­lenskra yfir­valda auk þess sem Þjóð­verjar tóku þátt í þjálfun þar­lendrar lög­reglu. „Við getum kallað þetta útflutn­ing á kúg­un­ar­tækjum og það er mál­efni sem ég spyr svo­lítið út í. Þýska­land flytur enn út vopn en þjálfun og tækni til kúg­unar er annað. Auðvitað er svona sam­starf alltaf rétt­lætt með því að við séum nú að kenna öðrum stjórn­völdum um mann­rétt­indi.“

Nánari umfjöll­unar um málið er að vænta á man.is á næst­unni.

Texti / Atli Þór Fanndal

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina