Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bára stofnar Kærleikur í hverri lykkju – Þú getur verið með

Bára Tóm­as­dóttir hefur hrundið af stað verk­efn­inu Kær­leikur í hverri lykkju, þar sem hún og allir sem vilja taka þátt prjóna peysu, sem gefnar verða ein­stak­lingum sem dvelja á með­ferð­ar­heim­ilum.

Bára stofnar Kærleikur í hverri lykkju – Þú getur verið með
|

„Prjóna­skapur hefur reynst mér viss heilun í sorg minni þegar ég missti Einar Darra son minn 18 ára vegna lyfja­eitr­unar í maí 2018. Mér hefur alltaf fund­ist prjónuð flík ein fal­leg­asta gjöf sem hægt er að gefa/þiggja og ég tala nú ekki um heim­ferða­sett fyrir nýfætt barn,“ segir Bára í við­tali við Mannlíf.

Bára er byrjuð að prjóna.

„Fyrir nokkrum mán­uðum fékk ég fal­legt prjónað sjal og bréf frá vin­konu minni þar sem hún tjáði mér að hún væri að hugsa til mín, mér þótti svo ótrú­lega vænt um þetta og jafn­framt fann ég styrk í þess­ari prjón­uðu flík sem hún hafði lagt vinnu í. Á erf­iðum tímum og í vanda­sömum málum er svo dýr­mætt að finna að maður hafi stuðn­ing og fólk sé að hugsa til manns. Ég ákvað að mig lang­aði að gera eitt­hvað til að láta þennan kær­leika sem fólst í þess­ari gjöf halda áfram til þeirra sem á þurfa að halda. Svo er ég líka svo óþol­andi væmin,“ segir Bára hlæj­andi.

„Við munum gefa peys­urnar inn á með­ferð­ar­heim­ili. Ég tel að þessi hópur þurfi á stuðn­ingi okkar að halda og mín von er að kær­leiks­peys­urnar geti veitt fólki stuðn­ing í skref­unum í átt að bata.“

Einar Darri, sonur Báru, var 18 ára þegar hann lést.

Viðbrögð við verkefninu ótrú­leg strax í upp­hafi

„Í starfi mínu í minn­ing­ar­sjóðnum hef ég hitt svo margar hetjur sem eru að vinna í bata sínum og margar ótrú­lega fal­legar sögur þar sem fólk hefur eign­ast heil­brigt edrú líf en því miður eru líka sorg­legu sög­urnar allt of margar. Við­brögðin hafa verið ótrú­leg og margir strax byrj­aðir að prjóna. Það er greini­lega mikið af kær­leiks­ríku fólki í sam­fé­lag­inu okkar og dýr­mætt finnst mér að finna hversu margir eru til­búnir að standa með og styðja þá sem eru veikir.“

Allir mega leggja lykkju á prjón

„Við vorum að enda við að mynda hóp á Facebook sem nefn­ist Kær­leikur í hverri lykkju sem allir sem vilja taka þátt geta sótt um aðgang að, einnig er hægt að senda mér skila­boð á Facebook eða á net­fangið [email protected]. Í hópnum mun ég taka saman hvað stærðir helst vanti en í fljótu bragði vantar meira af herra­peysum í öllum stærðum.“

Prjónarar hafa frjálsar hendur

„Það er alveg frjálst hvaða munstur eða litir eru not­aðir í peys­urnar bara gaman að þær séu sem fjöl­breyttastar eins og við mann­fólkið. Bara eitt skil­yrði að þær séu með kær­leika í hverri lykkju,“ segir Bára.

„Peys­urnar verða ekki merktar frá hverjum þær koma enda finnst mér feg­urðin líka liggja í því að sá sem þiggur peys­una upp­lifi að það sé fullt af fólki út í sam­fé­lag­inu sem þau þekki ekki enn styðji þau í bata sínum og hugsi til þeirra. Það er alveg í boði fyrir gef­and­ann að skrifa með fal­lega orð­send­ingu ef hann vill það en alls ekki skil­yrði.“

Prjón­a­rar sem vilja leggja verk­efn­inu lið geta komið peysum til Bára, sem mun sjá um að koma þeim til ein­stak­linga á með­ferð­ar­heim­ilum. Einnig verður tekið á móti peysum í Reykja­vík. Nánari upp­lýs­ingar má finna í Facebook-hópnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag