Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hildur Guðnadóttir: Hafnfirðingurinn sem heillar heimsbyggðina

Hildur Guðna­dóttir, tón­skáld og selló­leik­ari, var á mánu­dag til­nefnd til Ósk­arsverð­launa, en verð­launa­há­tíðin fer fram 9. febr­úar. Hildur hefur hlotið mikið lof, til­nefn­ingar til verð­launa og verð­laun fyrir tón­list­ina í Joker. Hún fékk Golden Globe-verð­laun fyrr í mán­uð­inum og kvöldið fyrir Ósk­ar­stil­nefn­ing­una fékk hún verð­laun Samtaka kvik­mynda­gagn­rýnenda í Banda­ríkj­unum.

Margir telja Hildi lík­lega til að hreppa Óskarinn, ef það ger­ist er hún fyrsti Íslend­ing­ur­inn til að vinna stytt­una eft­ir­sóttu. Þetta er í sjötta sinn sem Íslend­ingar fá til­nefn­ingu til Ósk­ars­ins, en Hildur er átt­undi Íslend­ing­ur­inn. Árið 1992 var Börn nátt­úr­unnar, kvik­mynd Friðrik Þórs Frið­riks­sonar, til­nefnd sem besta erlenda kvik­myndin. Árið 2001 voru söng­konan Björk og Sjón til­nefnd fyrir besta lagið í kvik­mynd fyrir lagið I’ve Seen It All úr kvik­mynd­inni Dancer in the Dark. Pétur Benjamín Hlíðdal var árið 2005 til­nefndur ásamt Tom Fleischman fyrir bestu hljóð­blöndun fyrir The Aviator. Rúnar Rún­ars­son leik­stjóri og Þórir Snær Sig­ur­jóns­son fram­leið­andi voru til­nefndir árið 2006 fyrir stutt­mynd­ina Síðasti bær­inn. Jóhann Jóhanns­son fékk til­nefn­ingar árin 2015 og 2016 fyrir tón­list sína í kvik­mynd­unum The Theory of Everyt­hing og Sicario.

Hildur er fædd 4. sept­em­ber 1982 og er að mestu upp­alin í Hafn­ar­firði. Segja má að tón­listin renni um æðar Hildar, því hún er fædd og upp­alin í tón­list­ar­fjöl­skyldu og fór hún ung að læra tón­list. For­eldrar hennar eru Ing­veldur Guðrún Ólafs­dóttir söng­kona og Guðni Kjartan Franzson tón­list­ar­maður. Bræður Hildar hafa einnig lagt tón­list­ina fyrir sig, Gunnar Tynes er í raf­hljóm­sveit­inni MÚM, Ólafur Kolbeinn Guð­munds­son lauk námi í píanó­leik og Þórarinn Guðnason er gít­ar­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar Agent Fresco.

Hildur fékk Golden Globe-verð­laun fyrr í mán­uð­inum. Mynd /EPA

Í við­tali við Vísi í júlí í fyrra sagð­ist Hildur hafa slys­ast inn í kvik­mynda­brans­ann. „Ég eig­in­lega slys­að­ist bara inn í þetta og eftir því sem að maður vinnur meira innan þessa geira þá kynn­ist fólk manni betur og það vindur svo­lítið upp á sig. Það er voða fljótt að kvis­ast út hver er hvað og hver vill vinna með hverjum og svo­leiðis,“ sagði Hildur og sagði brans­ann í Hollywood minni en fólk héldi miðað við stærð og umfang verk­efna þar.

Tónlist Hildar komst að kjarna Jókersins

Óhætt er að segja að Hildur hafi átt meiri þátt í Joker, en bara að semja tón­list­ina. Aðalstef mynd­ar­innar er leikið á selló, en selló­leikur Hildar hjálp­aði við að skapa eina af eft­ir­minni­legri senum mynd­ar­innar. Todd Phillips leik­stjóri hefur sagt frá því í við­tölum að hann og aðal­leik­ar­inn, Joaquin Phoenix, hafi verið að vand­ræð­ast með hand­rits­sen­una sem tekin er upp á bað­her­bergi. Sagði Phillips þá við Phoenix: „Ég er með tón­list hérna frá Hildi Guðna­dóttur tón­skáld­inu okkar, sem hún var að senda mér,“ og spil­aði hana fyrir Phoenix. Hann hreifst um leið, steig dans og seg­ist þá fyrst hafa kom­ist að kjarna Jókers­ins. Þeir tveir voru þeir einu á bað­her­berg­inu en fyrir utan beið 250 manna teymi mynd­ar­innar. „Hann byrj­aði bara að dansa og við litum hvor á annan og vissum að þetta var senan.“

Stórmyndir á ferilskránni

Joker festi Hildi kyrfi­lega á stjörnu­himni Hollywood og er nafn hennar á allra vörum. Það er þó langt því frá að Joker sé fyrsta og eina verk Hildar sem vakið hefur athygli og lof, til­nefn­ingar og verð­laun. Tónlist hennar í þátta­röð­inni Chernobyl færði henni Emmy-verð­laun í byrjun jan­úar og til­nefn­ingu til Grammy-verð­launa sem fram fara 26. jan­úar. Hildur vann með Jóhanni að tón­list­inni í Sicario. Og á fer­il­skránni eru myndir og þættir eins og Ófærð, Sicario 2, The Revenant og Arrival, svo fátt eitt sé talið. Árið 2019 var þó það stærsta hingað til með Joker og Arrival og er Hildur komin í fremstu röð kvik­mynda­tón­skálda Hollywood.

Chernobyl.
The Revenant .
The Joker.
Arrival,.

Sjöunda konan í karlaveldi

Hildur er sjö­unda konan sem er til­nefnd fyrir bestu tón­list í 92 ára sögu Ósk­ars­ins, alls eru til­nefn­ing­arnar tíu og verð­launin þrenn. Hljóti hún stytt­una eft­ir­sóttu þá verður hún fyrsta konan í meira en 20 ár til að vinna Óskar fyrir bestu tón­list. Þær sem unnið hafa Óskar fyrir bestu tón­list eru Marilyn Bergman (Yentl 1983), Rachel Portman (Emma 1996) Anne Dudley (The Full Monty’s 1997). Angela Morley var til­nefnd 1974 og 1977, Lynn Ahrens 1997, Rachel Portman var einnig til­nefnd 1999 0g 2000 og Mica Levi 2016.

Stórlaxar í sama flokki

Aðrir sem til­nefndir eru í sama flokki og Hildur eru engir nýgræð­ingar í brans­anum, fjórir karl­menn sem allir eiga margar til­nefn­ingar til Ósk­arsverð­launa að baki og tveir þeirra hafa farið heim með stytt­una og það oftar en einu sinni. Alex­andre Desplat (Little Women), Randy Newman (Marriage Story), Thomas Newman (1917) og John Williams (Star Wars: The Rise of Skywalker). Williams hefur verið til­nefndur fyrir bestu tón­list 46 sinnum og unnið fjórum sinnum. Allt í allt hefur hann verið til­nefndur til 53 Ósk­arsverð­launa og er þannig sá sem hefur fengið næst­flestar til­nefn­ingar til Ósk­arsverð­launa, í fyrsta sæti er Walt Disney. Thomas Newman hefur 14 sinnum verið til­nefndur og Randy Newman níu sinnum, en hvor­ugur hefur unnið. Alex­andre Desplat hefur 11 sinnum verið til­nefndur og unnið tvisvar. (Til gam­ans má svo geta að Randy og Thomas eru frændur).

Thomas Newman
John Williams
Alex­andre Desplat
Randy Newman
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ