Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hverjir eru atvinnumöguleikar Harry og Meghan?

Hverjir eru atvinnumöguleikar Harry og Meghan?
Mynd / EPA

Síðan Harry og Meghan Markle, her­toga­hjónin af Sussex, greindu frá því að þau ætli að draga sig í hlé frá kon­ungs­fjöl­skyld­unni hafa ýmsar spurn­ingar vaknað sem breskir fjöl­miðlar kepp­ast við að reyna að svara, t.d. hvað munu Harry og Meghan fást við í fram­tíð­inni.

Eftir fundi og gaum­gæfi­lega ígrundað mál með Elísa­betu Bret­lands­drottn­ingu, ömmu Harrys, er nið­ur­staðan sú að Harry og Meghan munu frá og með vor­inu segja skilið við kon­ung­legar skyldur og titla ásamt því að missa allt opin­bert fjár­magn.

Þá þurfa hjónin að end­ur­greiða þann kostnað sem fór í end­ur­bætur á Frogmore-setr­inu eða um 2,4 millj­ónir punda sem gerir tæp­lega 390 millj­ónir króna. Til við­bótar við það þurfa þau að byrja að greiða leigu að Frogmore-setr­inu sem verður áfram heim­ili þeirra í Bret­landi.

Hjónin sögðu í til­kynn­ingu sinni að þau ætli að freista þess að öðl­ast fjár­hags­legt sjálf­stæði og frelsi og þannig verja meiri tíma í Norður-Ameríku. En hvað gætu Harry og Meghan starfað við?

Í nýrri grein á vef BBC er gerð til­raun til að svara þeirri spurn­ingu. Þar er haft eftir almanna­tengli að Harry og Meghan verði alltaf stór­stjörnur og það hafi sína kosti hvað tekju­mögu­leika varðar.

Mega lík­lega ekki nota orðið „royal“

Breska blaða­konan Elizabeth Holmes spáir því að hjónin munu nýta sér ýmis við­skipta­tæki­færi þar sem gert verður út á þau sjálf sem vöru­merki. Hún bendir þó á að þau hafi afsalað sér rétt­inum til að nota kon­ung­legu titl­ana sína þegar þau ákváðu að segja sig frá emb­ætt­is­skyldum innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Harry og Meghan sóttu um skrán­ingu á vöru­merk­inu Sussex Royal í des­em­ber en Holmes reiknar með að þau fái ekki að nota orðið „royal“ áfram á sölu­varn­ing sinn. Holmes segir að hjónin þurfi að vanda vel til verka í þessum efnum.

„Hvaða vöru­merki sem er myndi vilja vinna með þeim“ segir Holmes og bendir á að þau séu sér­stak­lega áhrifa­mikil þegar kemur að tísku­straumum.

Sjá einnig: Meghan Markle mesti tísku­á­hrifa­vald­ur­inn

Holmes reiknar þó ekki með að hjónin fari að skapa sér tekjur með því að birta aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðlum á borð við Instagram þó að sá mögu­leiki sé fyrir hendi. „Það væri ekki við­eig­andi.“

Harry og Meghan hafa greint frá því að nú ætli þau að ein­beita sér meira að góð­gerð­ar­málum. Holmes segir að þau muni vissu­lega geta skapað sér tekjur á því sviði þó að hefðin sé ekki sú að fólk í þeirra stöðu greiði sér laun fyrir slíka vinnu.

Tækifæri í skemmtanabransanum

Þar sem Meghan Markle er leik­kona hafa margir spáð því að hún muni fara aftur út í skemmt­ana­brans­ann. Fregnir herma að Meghan hafi nú þegar gert samn­ing við Disney um að tal­setja teikni­myndir en sam­kvæmt frétt BBC myndu sú laun renna til góð­gerða­mála.

Fram­kvæmda­stjóri Netflix, Ted Sarandos, hefur þá lýst yfir áhuga sínum á því að vinna með hjón­unum.

Bækur og blöð

Mögu­leikar í bóka­út­gáfu gætu þá verið miklir fyrir hjónin. Bók Michelle Obama, fyrr­ver­andi for­seta­frúar Banda­ríkj­anna, er þá tekin sem dæmi. Bók Obama, Becoming, kom út árið 2017 en í mars árið 2019 hafði bókin selst í meira en 10 milljón ein­tökum. Meghan hefur sagt frá því að hún elski að skrifa og hafi mik­inn áhuga á útgáfu af ýmsu tagi en hún tók sem dæmi að sér að vera gesta­rit­stjóri Vogue í sept­em­ber í fyrra.

Þá hélt Meghan úti lífs­stíls­bloggi áður en hún kynnt­ist Harry. Fólki þykir því ekki ólík­legt að hún muni taka sér ein­hvers konar útgáfu fyrir hendur.

Ræðuhöld og fyrirlestrar

Jeremy Lee, fram­kvæmda­stjóri umboðs­skrif­stof­unnar JLA, segir að hjónin geti þá klár­lega skapað sér miklar tekjur með fyr­ir­lestrum og ræðu­höldum á ýmsum sam­komum og við­burðum.

Hann reiknar með að þau gæti fengið allt að 380.000 pund fyrir hvern við­burð. Hann segir tekju­mögu­leika þeirra þá vera meiri í Banda­ríkj­unum heldur en Bret­landi

Sjá einnig: Harry og Meghan draga sig í hlé

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Megxit

HeimurMegxit

Harry og Meghan sam­einuð í Kanada

Harry Breta­prins lenti í Kanada í gær þar sem eig­in­kona hans, Meghan Markle, og sonur þeirra, Archie, hafa verið und­an­farna daga á meðan Harry gekk frá lausum endum með bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Ljós­mynd­arar breskra miðla hafa fylgt Harry og Meghan hvert fót­mál síðan þau greindu frá því að þau ætli segja sig frá opin­berum emb­ætt­is­skyldum innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og skapa sér...
HeimurMegxit

Ekki „nauð­syn­legt“ að Meghan sæti fund­inn

Elísabet Bret­lands­drottn­ing boð­aði til krísufundar í gær í Sandring­ham­höll til að reyna að finna lausn á málum Harrys og Meghan Markle, her­toga­hjón­anna af Sussex, sem til­kynntu í síð­ustu viku að þau ætla að draga sig í hlé frá hef­bundnum störfum innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar og verja meiri tíma í Banda­ríkj­unum. Eftir fund­inn sendi Elísabet frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kom...
HeimurMegxit

Fundað vegna Harry og Meghan í Sandring­ham­höll í dag – Elísabet vill finna lausn sem fyrst

Elísabet Bret­lands­drottn­ing mun reyna að finna lausn á máli Harry og Meghan Markle, her­toga­hjón­anna af Sussex, í dag á fundi í Sandring­ham­höll. Málið snýst um fram­tíð Harrys og Meghan en þau sendu frá sér frétta­til­kynn­ingu í síð­ustu viku þess efnis að þau ætla að segja sig frá opin­berum emb­ætt­is­skyldum innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar. Síðar kom í ljós að þau höfðu ekki...
HeimurMegxit

Telja óvægna fjöl­miðlaum­fjöllun og ras­isma vera ástæð­una fyrir #megxit

Ákvörðun Harrys og Meghan Markle, her­toga­hjón­anna af Sussex, um að draga sig í hlé og segja sig frá opin­berum emb­ætt­is­skyldum innan bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar kom mörgum í opna skjöldu í gær. Hjónin sögðu frá ákvörðun sinni í til­kynn­ingu á Instagram og í ljós kom síðar að þau höfðu ekki ráð­fært sig við neinn í kon­ungs­fjöl­skuld­unni áður en til­kynn­ingin var send út....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð