Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Enginn tími fyrir samband: „Hugsa ekki um slíkt fyrr en á næsta ári“

Már Gunn­ars­son lauk árinu 2019 með því að sigra í jóla­laga­keppni Rásar 2, ásamt Ísold systur sinni, og sama dag vera val­inn íþrótta­maður árs­ins í röðum fatl­aðra á Íslandi. Már var einnig kjör­inn íþrótta­maður árs­ins í Reykja­nesbæ árið 2019, og lenti í 11. sæti í kjöri íþrótta­manns árs­ins á Íslandi. Nýja árið fór líka af stað með látum er hann var val­inn Suð­ur­nesja­maður árs­ins 2019. Már hefur þó engan tíma til að slaka á og njóta upp­sker­unnar af afrekum sínum því að hann stefnir á Ólymp­íu­leika fatl­aðra í Tókýó í lok ágúst og æfir því í sex tíma á dag, auk þess að vera að und­ir­búa stór-stór­tón­leika í Hljóma­höll­inni í mars.

Enginn tími fyrir samband: „Hugsa ekki um slíkt fyrr en á næsta ári“
Már Gunn­ars­son

Í for­síðu­við­tali við Mannlíf ræðir hann tón­listar- og sund­fer­il­inn, mun­inn á Lúx­em­borg og Suð­ur­nesjum, lífið almennt og pabba sinn, sem fylgir honum hvert sem er.

En þrátt fyrir brenn­andi áhug­ann og góðan árangur í tón­list­inni er það að sjálf­sögðu sundið sem tekur mestan tíma og ástundun hjá Má í aðdrag­anda Ólymp­íu­leik­anna. Hvaða sund­greinum keppir hann í?

„Ég syndi í raun og veru allt,“ segir Már og hlær aftur. „Aðal­greinin mín er samt 100 metra baksund. Á heims­meist­ara­mót­inu í London í fyrra sló ég tíu Íslands­met og lenti í þriðja sæti í 100 metra baksundi og var þar eini Norð­ur­landa­bú­inn sem komst á pall. Ég komst í úrslit í öllum hinum grein­unum. Það var mjög næs. Ég mun örugg­lega keppa í færri greinum í Tókýó, enda er mun meira undir þar og áherslan hjá mér á gæði fremur en magn.“

Gunnar Már faðir Más er með honum á öllum æfingum, eins og fram hefur komið, og fylgir honum á öll mót. Er hann pabba­strákur?

„Úff, þetta er mjög póli­tísk spurn­ing,“ segir Már og glottir. „En pabbi er íþrótta- og hreyfi­fræð­ingur þannig að hann sér um alla lík­ams­rækt hjá mér. Þar að auki er hann vel að sér í nær­ing­ar­fræði og passar upp á að ég borði rétt. Síðan er hann alltaf að banka mig í laug­inni til þess að ég syndi ekki á veggi og slasi mig. Þannig að það er algjör­lega nauð­syn­legt að hafa hann mér til halds og trausts.“

Það er aug­ljóst að Már er upp­tek­inn frá morgni til kvölds við æfingar og tón­list­ar­iðkun, hvað með ásta­málin, hefur hann ein­hvern tíma til þess að vera í sam­bandi?

„Nei, ekki lengur,“ segir hann. „Ég hef samt verið í tveimur sam­böndum.  Næstu sjö mán­uði þarf ég að passa allt slíkt vegna þess að því fylgir nátt­úr­lega ákveð­inn rússi­bani og það er hættu­legt fyrir fólk sem er komið eins langt og ég. Ég veit um fullt af góðu íþrótta­fólki sem hefur farið í klessu rétt fyrir mót út af ein­hverju sam­bandsves­eni. Þannig að ég þarf að passa mig mjög vel og hugsa ekki um slíkt fyrr en á næsta ári.“

Lestu við­talið við Má í heild sinni í nýjasta Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við