Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Það verður að opna umræðuna um sjálfsvíg

Birgitta Jóns­dóttir komst í fréttir á dög­unum þegar stað­fest var að höf­uð­kúpa sem verið hafði í vörslu lög­regl­unnar síðan 1994 var af föður hennar, Jóni Ólafs­syni, sem hvarf á aðfanga­dag 1987. Hvarf hans er þó engan veg­inn eina manns­hvarfið sem snert hefur líf Birgittu djúpt, eig­in­maður hennar, Charles Egill Hirst, hvarf 1993 og fannst ekki fyrr en fimm árum seinna og þegar hún var tólf ára hvarf föð­ur­systir hennar. Hún hefur því sjálf upp­lifað hvað eftir annað hvernig aðstand­endum horf­ins fólks líður og berst fyrir breyt­ingum á þeim verk­ferlum sem farið er eftir í slíkum málum.

Það verður að opna umræðuna um sjálfsvíg
|

„Við erum ekki búin að fá lík­ams­leifar pabba,“ segir Birgitta spurð hvort búið sé að jarð­setja lík­ams­leifar föður hennar. „Það þarf að rann­saka eftir hefð­bundnum leiðum hvort eitt­hvað sak­næmt hafi átt sér stað. Við vitum auð­vitað að svo var ekki en þetta þarf að fylgja réttu ferli. Ég hugsa að við höfum jarð­ar­för­ina ekki fyrr en í sumar þegar hann hefði orðið átt­ræður.“

Beðin að rifja upp dag­inn sem faðir hennar hvarf, aðfanga­dag 1987, seg­ist Birgitta reyndar hafa skrifað mjög nákvæm­lega um þann dag í bók sinni Dagbók kameljóns­ins. „Ég skrif­aði um þetta allt saman í henni,“ útskýrir hún. „Á þessum tíma hélt ég dag­bók og not­aði brot úr henni í bók­ina. Mér fannst það mjög mik­il­vægt því það er enn þá rosa­lega lítið fjallað um sjálfs­víg. Það er enn dálítið tabú og því er alltaf borið við að ef maður tali um sjálfs­víg þá leiði það af sér aukna sjálfs­vígs­tíðni. Ég held að það sé rangt. Það voru notuð svipuð rök varð­andi barn­a­níð á sínum tíma og síðan þegar það komst loks­ins upp á yfir­borðið var eins og það væri út um allt. Ég hef reynt mjög mikið að nota þessa lífs­reynslu til þess að vekja athygli á þessum mála­flokki en þegar bókin Dagbók kameljóns­ins kom út vildi svo óheppi­lega til að það var sama ár og bókin hennar Thelmu Ásdís­ar­dóttur, Myndin af pabba, kom út og mér var hrein­lega sagt það hjá fjöl­miðl­unum að það væri bara hægt að taka einn erf­iðan mála­flokk fyrir í einu.“

„ Það sem mér finnst kannski erf­ið­ast í dag er að hafa vitað af höf­uð­kúp­unni hans pabba í ein­hverri hillu í allan þennan tíma.“ Birgitta Jóns­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Mjög óþægilegt þegar reynt er að gera hvarfið dularfullt

Spurð hvort hún hafi aldrei efast um að faðir hennar hafi svipt sig lífi sér segir Birgitta að á því hafi aldrei leikið nokkur vafi. „Það var alltaf aug­ljóst og mér hefur fund­ist alveg ótrú­lega ósmekk­legt þegar fólk setur and­lát hans í eitt­hvert dul­ar­fullt sam­hengi,“ segir hún. „Það var meira að segja reynt að gera það í nýrri bók um íslensk manns­hvörf og ég bað um að það yrði leið­rétt, en það er enn látið líta svo út að það hafi verið eitt­hvað dul­ar­fullt við hvarf hans, sem er bara alls ekki rétt. Þessi umræða er mjög óþægi­leg. Það er alveg nógu erfitt að díla við sjálfs­víg sem aðstand­andi þótt svona umræða sé ekki í gangi.“

Birgitta segir föður sinn ekki hafa skilið eftir kveðju­bréf, enda hafi hann verið af þeirri kyn­slóð sem ekki flík­aði til­finn­ingum sínum. „Sjómenn á pabba aldri eru ekki mikið í því að skrifa um til­finn­ingar,“ segir hún og brosir. „Hann var mjög dulur með sína líðan og þegar hann kom ekki til baka eftir að hafa sagst ætla að fara með jóla­pakka til fólks, var það síð­asta sem okkur datt í hug að hann hefði farið í sjálfs­vígs­leið­angur. Pabbi var reglu­maður og skipti nán­ast aldrei skapi, var algjör klettur svo það hvarfl­aði ekki einu sinni að okkur að honum hefði liðið svona illa. Það var brjálað veður, bylur og erfitt að leita en þegar bíll­inn fannst við Sogið nálægt Þrast­ar­lundi kom í ljós að hann hafði farið úr jakk­anum, tekið veskið sitt og úrið og sett í hanska­hólfið og svo röktu hundar slóð hans niður að ánni, þannig að þetta lá ljóst fyrir frá upp­hafi. Það sem mér finnst kannski erf­ið­ast í dag er að hafa vitað af höf­uð­kúp­unni hans í ein­hverri hillu allan þennan tíma. Hún fannst 1994 og ef við hefðum getað lokið mál­inu fyrr hefði það breytt miklu. Tæknin til að kom­ast að því hverjum höf­uð­kúpan til­heyrði hefur verið til staðar lengi og manni finnst mjög skrýtið að þetta hafi tekið svona langan tíma. Ég vona að það muni ekki ger­ast aftur hjá yfir­völdum að lík­ams­leifar séu geymdar svona lengi án þess að vera rann­sak­aðar.“

Bergþóra Árna­dóttir, móðir Birgittu, og Jón voru skilin þegar hann hvarf en voru góðir vinir og höfðu ákveðið að verja saman jól­unum með börnum sínum tveimur í húsi afa og ömmu Birgittu í Hvera­gerði sem voru á ferða­lagi. Þannig að þau þrjú gátu stutt hvert annað, en engin áfalla­hjálp var í boði.

„Bróðir minn sem var þá fimmtán ára bjó hjá pabba en hann hafði keyrt hann til okkar mömmu áður en hann fór sína síð­ustu ferð. Ég hef oft hugsað að lík­lega gerði hann þetta þennan dag vegna þess að hann vissi að við vorum öll saman,“ segir Birgitta. „Það var engin áfalla­hjálp fyrir fólk í þessum aðstæðum og er reyndar ekki enn í dag. Það þykir mér mjög und­ar­legt. Það er boðin áfalla­hjálp ef það veltur rúta með túristum en það er ekk­ert slíkt sett í gang þegar um manns­hvörf er að ræða. Ég vona að þeir sem sjá um þennan mála­flokk fari að sjá að það þarf að hafa frum­kvæði að því að bjóða aðstand­endum hjálp í þess­ari stöðu. Þeir þurfa stuðn­ing, ekki bara á meðan þetta er að ger­ast heldur líka í fram­hald­inu, þegar leit­inni er hætt og svo fram­vegis. Það er nefni­lega alltaf ein­hver ólógísk von inni í manni um að skýr­ingin á hvarf­inu sé ein­hver önnur en dauði. Í heilan ára­tug eftir að pabbi hvarf var ég alltaf að sjá hann í ein­hverju öðru fólki og gekk á eftir ein­hverjum mönnum sem litu út eins og hann til að sjá hvort þetta væri kannski hann, þótt ég vissi að það væri algjör­lega órök­rétt. Þetta er bara svo djúp­stæð von.“

„ Svona mál á ekki að þurfa að reka fyrir dóm­stólum, það hlýtur að vera hægt að finna ein­hverja aðra leið til að úrskurða ein­hvern lát­inn.“

Fékk enga viðurkenningu á láti eiginmannsins

Annar kerf­is­galli sem Birgittu er umhugað um að verði breytt er að aðstand­endur þurfa að fara fyrir dóm­stóla og færa sönnur á að við­kom­andi sé lát­inn. „Lögin eru enn þá dálítið sniðin að þeim tíma þegar það var mjög algengt að sjó­menn hyrfu úti á sjó,“ segir hún. „Og í dag er það enn þá þannig að hálfu ári eftir að við­kom­andi hverfur þurfa aðstand­endur að sækja mál þar sem þeir sýna fram á að aðstand­andi þeirra sé lát­inn. Sönn­un­ar­byrðin er öll á þeim og þeir þurfa að afla sér gagna frá lög­reglu, eða ein­hverri slíkri stofnun sem sannar að farið hafi fram leit og svo fram­vegis. Það er bara hræði­leg upp­lifun. Í fyrsta lagi langar mann ekki að þurfa að færa sönnur á að við­kom­andi sé lát­inn, það er mjög erfið reynsla og mér finnst full­kom­lega óeðli­legt að færa sönn­un­ar­byrð­ina yfir á aðstand­endur á þennan hátt. Svona mál á ekki að þurfa að reka fyrir dóm­stólum, það hlýtur að vera hægt að finna ein­hverja aðra leið til að úrskurða ein­hvern lát­inn, án þess að setja það þannig upp að aðstand­endur óski þess. En þetta verður maður að gera því ann­ars fær maður engin rétt­indi, maður getur ekki gert upp dán­ar­búið, fær engar bætur og getur ekk­ert gert.“

Hér leiðum við talið að öðru hvarfi náins ást­vinar Birgittu, þegar eig­in­maður hennar, Charles Egill Hirst, hvarf á Snæ­fells­nesi sum­arið 1993.

„Þegar mað­ur­inn minn heit­inn hvarf var ég með lítið barn og ég átti ekki rétt á hans barna­bótum, eða leik­skóla­plássi sem ein­stætt for­eldri eða ekkja fyrr en ég gat farið með málið fyrir dóm­stóla. Það er bara algjör­lega óboð­leg staða fyrir unga konu í þessum aðstæðum.“

Charles Egill fannst ekki fyrr en fimm árum eftir að hann hvarf og Birgitta segir að þótt hún hafi vitað að hann hefði svipt sig lífi þar sem hann hafi skilið eftir skila­boð hafi sá tími verið mjög erf­iður bæði fyrir hana og son hennar. „Sem betur fer fannst hann,“ segir hún. „Það er alveg hræði­legt að fara í gegnum svona tíma­bil svona lengi, sér­stak­lega fyrir börn. Og þegar Kalli fannst fór ég líka að geta unnið í sjálfri mér varð­andi hvarf pabba. Ég var auð­vitað mjög ung, tví­tug þegar pabbi hvarf og tutt­ugu og fimm ára þegar mað­ur­inn minn hvarf og kunni ekk­ert að takast á við þetta.“

Leitin að Charles Agli var stærsta leit Íslands­sög­unnar og Birgitta segir að eftir hana hafi verk­reglum um slíkar leitir verið breytt. „Hann fannst rétt fyrir utan svæðið þar sem leitað hafði verið,“ útskýrir hún. „En ekki fyrr en fimm árum síðar. Það var reyndar þriðja manns­hvarfið sem ég upp­lifði því þegar ég var tólf ára hvarf systir hans pabba. Hún og kærast­inn hennar voru í bíltúr í Þor­láks­höfn og hurfu en síðar kom í ljós að bíll­inn hafði fokið út í höfn­ina í hálku og roki. Þau voru bæði mjög ung og alveg ynd­is­legt fólk. Leitin að þeim tók nokkra daga en við mamma vorum nýfluttar í bæinn og ekki með síma þannig að við vissum ekki af þessu. En akkúrat á þeim tíma sem hún hvarf fékk mamma óskap­lega sterka til­finn­ingu fyrir því að hún yrði að semja lag og úr því varð lagið Veistu að þinn vinur er að deyja?“

„Það er boðin áfalla­hjálp ef það veltur rúta með túristum en það er ekk­ert slíkt sett í gang þegar um manns­hvörf er að ræða.“

Fengu enga áfallahjálp, bara svefnpillur

Birgitta seg­ist alltaf finna fyrir mjög sterkri sam­kennd með fólki sem sé að ganga í gegnum það sama og hún hefur gert og hún segir lær­dóm­inn sem hún hafi dregið af sinni reynslu vera þann að það sé hægt að funkera í mik­illi óvissu. „Það er mjög mik­il­vægur lær­dómur því það eru alltaf að koma upp ein­hverjar krísur í líf­inu,“ segir hún. „Sá eig­in­leiki að geta verið klettur fyrir aðra í slíkum krísum er mjög mik­il­vægur og ég náði að þróa hann með mér í gegnum öll þessi áföll. Ég fékk nátt­úr­lega aldrei neina áfalla­hjálp, það eina sem við systk­inin og mamma fengum þegar pabbi hvarf voru svefn­pillur. Ég vil nota tæki­færið og skora á þá sem stjórna þessum mála­flokki að búa til nýjar verk­lags­reglur, bæði fyrir aðstand­endur þeirra sem hverfa og aðstand­endur þeirra sem fremja sjálfs­víg. Vegna þess að það að glíma við sjálfs­víg ást­vinar er öðru­vísi en allt annað. Ég hef upp­lifað mörg and­lát í líf­inu og hef oft sagt við vini mína að ég sé með svarta beltið í dauð­anum þannig að ég veit hver mun­ur­inn er. Ég er samt þakk­lát fyrir að hafa fengið að læra hvernig maður vinnur úr því fyrir fer­tugt því þegar maður eld­ist hverfa alltaf úr líf­inu fleiri og fleiri af þeim sem maður elskar og lítur upp til.“

Birgitta hefur lengi barist fyrir breyt­ingum á verk­ferlum varð­andi manns­hvörf og sjálfs­víg en alltaf talað fyrir daufum eyrum. Hverju vill hún helst breyta? „Mér finnst að það þurfi að vera eitt­hvert ákveðið pró­gramm sem fer í gang þegar ást­vinir hverfa eða fyr­ir­fara sér. Nú erum við komin með þetta stór­kost­lega hús, Pieta-húsið, þangað sem bæði þeir sem eru í sjálfs­vígs­hug­leið­ingum og aðstand­endur geta leitað sér aðstoðar og mér finnst að lög­reglan eigi að láta fólk vita að það geti leitað þangað ef ein­hver fellur frá á þennan hátt. Það er svo erfitt að leita sér hjálpar, sér­stak­lega þegar fólk er í því lim­bói að vita ekki um afdrif náins ætt­ingja eða vinar. Á þeim tíma er fólk í svo miklu áfalli að það er ekki fært um að sækja sér fag­lega hjálp. Auðvitað vilja sumir fá til sín prest, en alls ekki allir. Stundum er aðkoman eftir sjálfs­víg ólýs­an­lega hræði­leg og fólk er bara skilið eftir til að þrífa það upp sjálft. Þetta er veru­leiki sem eng­inn vill tala um en þarf að tala um og kippa í lag. Ég hef verið að reyna að vekja athygli á þessu mjög lengi og benda á að það þurfi að gera eitt­hvað, en þetta breyt­ist ekk­ert. Það gæti til dæmis verið snið­ugt að Rauði kross­inn og Pieta-húsið myndu útbúa bæk­ling fyrir lög­regl­una, sem auð­vitað er oft­ast fyrst á vett­vang, til að útdeila til aðstand­and­enda svo þeir viti hvert þeir geta snúið sér. Og lög­reglan ætti líka að hafa sam­band við ein­hvern sér­fræð­ing í áföllum sem gæti síðan aðstoðað aðstand­endur. Þetta er ekk­ert flókið. Svo þarf aug­ljós­lega líka að breyta þessum lögum um horfna menn því að þeir sem standa frammi fyrir því að ást­vinur er horf­inn eru yfir­leitt ekki í neinum bar­áttu­hug og til­búnir að berj­ast fyrir því að breyta kerf­inu. Það verða aðrir að gera.“

Birgitta segir líka nauð­syn­legt að opna á umræðu um sjálfs­víg, það sé óásætt­an­legt að sú umræða sé tabú enn þá. „Ég hef alltaf talað hrein­skiln­is­lega um þetta,“ segir hún. „Ég er leið­in­lega týpan sem er allt í einu farin að tala um sjálfs­víg í kok­teil­boðum. Það talar eng­inn um þetta en nán­ast alltaf þegar ég tala um þetta kemur í ljós að sá eða sú sem ég er að tala við hefur átt ein­hverja ást­vini sem hafa framið sjálfs­víg en það hefur verið falið. Enn er sem sagt ekki sam­fé­lags­lega sam­þykkt að tala um þessa hluti og það bara gengur alls ekki lengur. Við verðum að hjálp­ast að við að breyta því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð