Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta viðmót hefur alltaf haft ógeðsleg áhrif á líf mitt“

„Þetta viðmót hefur alltaf haft ógeðsleg áhrif á líf mitt“
Mynd / Unnur Magna|

Á æsku­heim­ili Ernu Marínar Bald­urs­dóttur var mikið um drykkju og ofbeldi. Sjálf var hún mis­notuð kyn­ferð­is­lega af stjúp­föður sínum og stjúp­systur. Gögn sem hún hefur undir höndum sýna svart á hvítu að yfir­völdum var kunn­ugt um ástandið en aðhöfð­ust lítið. Þá segir Erna fag­að­ila ítrekað hafa brugð­ist sér þegar hún hefur viljað tala um ofbeldið sem hún var beitt af hendi konu.

Þetta er sagan hennar Ernu. Hún er sú eina sem er nafn­greind, af til­lit­semi við aðra þolendur, mögu­lega þolendur og nákomna sem hafa ekk­ert unnið sér til saka. Við hitt­umst fyrst á rit­stjórn­ar­skrif­stofu Mannlífs, þar sem Erna stiklar á stóru: Hún man fyrst eftir að hafa verið mis­notuð af stjúp­föður sínum þegar hún var fjög­urra ára gömul. Mis­notk­unin stóð yfir í fimm til sex ár, þangað til hún varð ítrekað svo veik að hún var lögð inn á spít­ala. Veik­indin voru lík­am­leg en rakin til and­legrar heilsu Ernu vegna aðstæðna heima fyrir. Skömmu áður en þau gerðu vart við sig var hún mis­notuð af stjúp­systur sinni í nokkur skipti.

Að sögn Ernu lá vit­neskja fyrir um kyn­ferð­is­of­beldið innan fjöl­skyld­unnar. Stjúpinn hafði gert til­raun til að nauðga eldri systur hennar þegar Erna var fimm ára og systir­inn ell­efu ára. Vinkona syst­ur­innar var í heim­sókn og sagði frá. Atvikið var til­kynnt til lög­reglu en málið dag­aði uppi. Erna veit ekki hvers vegna. Hún segir að lík­lega hafi mamma hennar átt hlut að máli; hún vissi hvað var í gangi, segir Erna. Aðrir vissu að ástandið á heim­il­inu var ekki eðli­legt; enda­laust djamm og drykkja. Erna man eftir því að hafa vaknað ein heima með litlu systur sinni, sem lá í rimla­rúm­inu sínu með pel­ann sinn.

Enginn kom Ernu til bjargar. Gögn sem hún hefur undir höndum sýna að yfir­völd vissu þó um stöð­una á heim­il­inu; um drykkj­una og ofbeldið, sem var kyn­ferð­is­legt, lík­am­legt og and­legt.

Eins furðu­lega og það kann að hljóma þá er það ekki ofbeldið af hálfu stjúpans sem hefur skilið eftir sig verstu sárin. „Þetta var eig­in­lega eðli­legt. Þetta var það sem ég ólst upp við. Þetta var það sem ég upp­lifði og ég þekkti ekk­ert annað, af því að ég var ekki farin að hitta pabba aftur,“ útskýrir Erna en for­eldrar hennar skildu að skiptum þegar hún var tveggja ára. Nei, það sem situr eftir er móð­ur­ástin sem hún þráði svo heitt en fékk aldrei að njóta og sú stað­reynd að fá aldrei að vera þol­andi þegar hún hefur reynt að gera upp kyn­ferð­is­of­beldið af hendi stjúp­systur sinnar. Jafnvel ekki hjá fag­að­ilum. Viðbrögð þeirra segir hún hafa verið að finna skýr­ingar, afsak­anir, á því af hverju stjúp­systirin braut á henni.

„Þetta er ómeð­vitað örugg­lega,“ segir hún þegar við ræðum síðar saman á fal­legu heim­ili hennar í höf­uð­borg­inni. „En ég hef ekki lengur skiln­ing á þessu.“ Atvikin áttu sér stað með þeim hætti að hún var leidd afsíðis þegar stjúp­systirin kom í heim­sókn og látin gera hluti sem hana lang­aði ekki til. Hún var átta ára, stjúp­systir­inn 17 ára. Þegar Erna hefur leitað til fag­að­ila með frá­sögn­ina bregð­ast þeir iðu­lega við með því að segja að stúlkan hafi lík­lega sjálf verið fórn­ar­lamb. „Þetta við­mót hefur alltaf haft ógeðs­leg áhrif á líf mitt. Ég er ekki komin til að ræða hvað sé að hjá þess­ari mann­eskju. Ef þér er nauðgað þá ferðu ekki til Stíga­móta til að ræða af hverju við­kom­andi nauðg­aði þér.“ Hún bendir á að hún hafi aldrei lent í því að fag­að­ilar freist­ist til að útskýra ástæður þess að karl­menn hafi brotið á henni.

Þegar við hitt­umst fyrst fell ég sjálf í þessa gryfju; hlusta á frá­sögn­ina í fyrsta sinn og spyr, eins og blaða­maður sem er að leita útskýr­inga, hvort það sé mögu­legt að ástæða þess að fag­fólkið staldri við frá­sögn­ina af stjúp­syst­ur­inni sé ekki kynið heldur sú stað­reynd að hún var sjálf barn, þótt ald­urs­mun­ur­inn hafi vissu­lega verið mik­ill. Það kemur von­leys­is­svipur á Ernu og hún lemur flötum lóf­unum í borðið. „Nú ert þú að gera þetta líka!“ segir hún og ótt­ast aug­ljós­lega að vera að hlaupa á enn einn vegg­inn. Fas hennar minnir mig á barn sem reynir í örvænt­ingu að tjá eitt­hvað mjög mik­il­vægt en full­orðna fólkið gefur sér ekki tíma til að hlusta og skilja.

 „Ég var svo lítil …“

Eftir útskýr­ingar náum við saman og ákveðum að hitt­ast aftur.

Ég spyr hana hvernig þetta byrj­aði; hvort hún eigi ein­hverjar góðar minn­ingar frá sama tíma. Já, segir hún. Það var stundum mik­ill gesta­gangur á heim­il­inu og skemmti­legar frænkur sem komu í heim­sókn. Svo fannst henni gaman að fara í úti­legur og leika sér við aðra krakka. Hún var félags­lynt barn á þessum tíma og glöð. En allt átti þetta sínar skugga­hliðar. Erna er ekki ber­orð í frá­sögnum sínum en þær eru átak­an­legar engu að síður. Hún lýsir því hvernig stjúp­inn sat á sloppnum í sóf­anum og tók hana í kjölt­una á meðan hún var á nær­föt­unum einum saman. Hvernig hann skreið inn í tjald og ofan á hana og þreif­aði á lík­ama hennar í úti­leg­unum.

„Hún bara vill ekki vita af þessu. Ekki þá og ekki í dag. Hún bara afneitar veru­leik­anum.“

„Ég fann alltaf fyrir ein­hverju röngu, ein­hverju óþægi­legu. En ég gat ekki sett það í sam­hengi fyrr en ég var orðin aðeins eldri,“ segir hún um það hvernig hún upp­lifði þetta á sínum tíma, þegar hún var sem yngst. Það var mikil drykkja á heim­il­inu; kannski ekki dag­drykkja, segir Erna, en oft drukkið um helgar og „þá fór allt til hel­vítis.“ Hún talar um hörm­ungar sem blæddu út í næstu viku; bar­smíðar og öskur og grát. „Ég nátt­úr­lega lærði þarna að hlýða og varð bæld því ég sá hvernig hann nídd­ist á systur minni,“ segir Erna. Og þá á hún ekki bara við lík­am­legt ofbeldi. Sú minn­ing sem virð­ist valda henni hvað mestum sárs­auka í dag er að hafa hlustað á systur sína gráta á meðan stjúp­inn var að níð­ast á henni. Á meðan, segir hún, gætti móðir þeirra þess að vera upp­tekin í eld­hús­inu.

En er hún viss um að mamma hennar hafi vitað hvað var í gangi?

„Já,“ svarar Erna og horfir á mig með svip sem segir: Auðvitað vissi hún þetta. „Hún var á heim­il­inu þegar þetta gerð­ist. Bæði ofbeldið og kyn­ferð­is­of­beldið. Ég man bara eftir henni á heim­il­inu og fyrir utan það þá sögðum við henni þetta marg­sinnis.“ Og hvað sagði hún? Erna setur sig í stell­ingar móður sinnar og hummar og hváir. „Svo bara þegar við erum farnar að tala um þetta og þetta er farið að sjást utan á mér þá erum við syst­urnar geð­veikar og eigum bágt og erum athygl­is­sjúkar.“

Erna seg­ist afar ósátt við móður sína sem enn í dag vill ekki við­ur­kenna að nokkuð hafi átt sér stað. „Hún bara vill ekki vita af þessu. Ekki þá og ekki í dag. Hún bara afneitar veru­leik­anum.“ Erna seg­ist telja sig muna eftir því að full­orðnir hafi reynt á sínum tíma að ræða ástandið við móður hennar en án árang­urs.

Erna brotnar að lokum niður við að tala um mömmu sína. „Þetta gerði það að verkum að ég hætti að segja frá. Því ef það ger­ist ekk­ert þá hlýtur þetta að vera í lagi … Ég er að bíða eftir að mamma elski mig og þegar maður er búin að reyna … Maður upp­lifir geð­veika höfnun. Það ger­ist ekki neitt og ég held að það sé það versta. Ég var á tíma­bili farin að halda að ég væri bara geð­veik. Ég var svo lítil og var ekki eins og ég átti að mér að vera. Ég var orðin hokin og inni í mér, full af kvíða og van­líðan. Þá hættir maður að tala; ég hætti að tala. Það var til einskis. Ég fékk alltaf bara höfnun.“

Lestu við­talið í heild í nýju Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi