Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég féll á föstudaginn langa“

„Ég átti ekki að fæð­ast. Ég var slysa­barn, yngsta barn for­eldra minna. Tilkoma mín frestaði löngu tíma­bærum skiln­aði þeirra. Það var eng­inn mögu­leiki fyrir konur í þá daga að skilja með ung­börn. Það var ekki til það örygg­is­net sem gat tekið við móður minni með fjögur börn, þar af eitt á brjósti,“ segir Gunnar Smári Egilsson, stofn­andi Sós­í­alista­flokks Íslands.

„Ég féll á föstudaginn langa“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

Gunnar Smári er umdeildur maður. Hann á að baki langan feril sem blaða­maður, rit­stjóri og fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­sam­steypu. Það hefur löngum gustað um hann. Hann á langan feril sem harð­skeyttur blaða­maður og rit­stjóri, ýmist dáður eða jafn­vel hat­aður. Hann féllst á við­tal við Mannlíf þar sem allt væri til umræðu frá löngum ferli hans í fram­línu íslenskra fjöl­miðla og seinna á sviði stjórn­mála og verka­lýðs­bar­áttu. Fyrsta spurn­ingin er hvað það sé sem hefur mótað hann. Hann vísar til barn­æsku sinnar þar sem drykkja föður hans, Egils H. Hansen, lit­aði dag­legt líf og fátæktin var skammt undan þrátt fyrir bar­áttu móður hans, Guðrúnar Rann­veigar Guð­munds­dóttur.

„Enginn hjálp­aði eða skeytti um lít­inn dreng sem var að reyna að reisa föður sinn á fætur“

„Þegar ég fædd­ist var alkó­hól­ismi föður míns orð­inn mjög slæmur og hann vann ekki nema aðra hverja viku. Hann eyddi nán­ast öllu sem hann afl­aði í drykkj­una. Mér finnst þegar ég hugsa til baka að mamma var, fyrst þegar ég man eftir henni, í ástandi sem nú kall­ast áfallastreituröskun. Hún stóð sig þrátt fyrir það eins og hetja og hélt fjöl­skyld­unni saman. Hún hélt fjöl­skyldufundi yfir kvöld­matnum og fór yfir við­burði dags­ins hjá hverjum og einum. En það var ekki alltaf til matur. Við áttum ekki fyrir nýjum fötum og við höfðum ekki efni á því að fara til tann­læknis.“

For­eldrar Gunnars Smára skildu. Þá reyndi faðir hans sitt besta til að standa sig sem helg­arpabbi. En það gekk á ýmsu.

„Mamma er af fyrstu kyn­slóð kvenna sem skilur við von­lausa mann­inn. Áður var slíkt varla í boði. Hún sýndi þá hetju­lund að stíga út í óviss­una og skilja við karl­inn. Mér þykir afar vænt um þau bæði og ber ekki nokkurn kala til þeirra þótt ég hafi komið illa nestaður úr æsk­unni. Pabbi var með ill­kynja sjúk­dóm sem engin með­ferð var til við í þá daga. Þau voru bæði að glíma við mjög erf­iðar aðstæður. Eftir skiln­að­inn reyndi pabbi að halda sam­skiptum við okkur börnin. Hann sótti mig oft­ast þar sem ég var yngstur, stundum okkur tvo yngstu. Í fæstum til­vikum gekk þetta vel hjá honum. Oftast datt hann í það og þá sátum við uppi með hjálp­ar­lausan drukk­inn mann á und­ar­leg­ustu stöðum, á tjald­stæði, í bíó, úti í Viðey.“

„Lífs­glíma mín fyrstu ára­tugi full­orð­ins­ár­anna sner­ist að stóru leyti um að losna undan þess­ari skömm sem ég bar þó aldrei neina ábyrgð á. Það var sam­fé­lagið sem tróð þessu upp á mig.“

Gunnar Smári rifjar upp sára minn­ingu frá því faðir hans fór með hann á íþrótta­við­burð í Laug­ar­dags­höll­inni. Hann var sjö ára.

„Við vorum á hand­bolta­leik. Hann þurfti að fara á sal­ernið og ég fór með honum niður. Hann datt í stig­anum, lá bjarg­ar­laus á stiga­pall­inum og piss­aði í bux­urnar. Fólkið sem gekk fram hjá hló að honum. Enginn hjálp­aði eða skeytti um lít­inn dreng sem var að reyna að reisa föður sinn á fætur. Það eru svona atburðir sem ég losna ekki við. Ég er alltaf með þennan dreng inni í mér og ég heyri hlát­ur­inn enn. Það er inn­gróið í mig að van­treysta múgnum, þessu sam­komu­lagi og hvað er boð­legt og hvað ekki, hver fær að vera með og hverjum er haldið úti. Og niðri.“

Fyr­ir­gefn­ingin „Ég er ekki dóm­stóll og það er ekki mitt að fyr­ir­gefa. Ég gat aðeins vonað að pabbi minn fyr­ir­gæfi sjálfum sér. Með þessu við­horfi náði ég sátt.“ Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar Smári segir að fátækt barn­æsk­unnar hafi fylgt honum upp úr æsk­unni sem skömm. En að það hafi verið skömm sem hengd var á hann.

„Mamma varð fyrir fátækt sem sam­fé­lagið þröngvaði upp á hana. Eins er með skömm­ina út af pabba. Hann valdi sér ekki sitt hlut­skipti. Það eina sem hann gerði af sér var að bera þennan ban­væna sjúk­dóm sem sam­fé­lagið neit­aði að veita með­ferð við. Ég upp­lifði skömm vegna þess að fötin mín voru slitin og gat á skónum. Í minn­ing­unni var ég votur í fæt­urna frá því ég var fimm ára og fram að ferm­ingu. Lífs­glíma mín fyrstu ára­tugi full­orð­ins­ár­anna sner­ist að stóru leyti um að losna undan þess­ari skömm sem ég bar þó aldrei neina ábyrgð á: Það var sam­fé­lagið sem tróð þessu upp á mig. Í dag skamm­ast ég mín ekki fyrir hvaðan ég kem og enn síður fyrir for­eldra mína. Enda ætti ég frekar að skamm­ast mín fyrir sam­fé­lagið.“

Móðir Gunnars Smára leit­aði allra leiða til að fá lækn­ingu fyrir mann sinn. Hún ræddi við konur sem voru í sömu stöðu.

„Þetta var skömmu eftir að ég fædd­ist. Þau bjuggu þá í Hafn­ar­firði. Mamma gekk þá á milli kvenna sem áttu svona drykkju­menn. „Hvernig get­urðu lifað við þetta?“ spurði mamma þá fyrstu. Sú sagð­ist hafa farið til læknis og fengið töflur sem leystu málin og létu henni líða vel. Það var val­íum. Mömmu leist ekki á að taka sjálf lyf við veik­indum pabba. Hún leit­aði því til þeirrar næstu. Maðurinn hennar hafði hætt að drekka eftir að hann gekk í Hvíta­sunnu­söfn­uð­inn. Mamma spurði hvort það væri ekki allt annað líf. Konan þvertók fyrir það. „Nú stendur hann yfir mat­ar­borð­inu og messar yfir okkar, hvetur okkur til að taka Jesú Krist inn í hjarta okkar. Stundum velti ég fyrir mér hvort það væri ekki skárra að hafa hann drukk­inn,“ svar­aði konan. Sú þriðja sem mamma leit­aði til sagði að hennar maður hefði gengið í AA-sam­tökin. Í þá daga var sú lausn ekki að allra vit­orði eins og seinna varð. Konan sagði að það hefði breytt öllu. Mamma sá að þarna var von og lagði að pabba að mæta á fund. Hann gerði það fyrir mömmu en kom heim ósáttur. „Þarna voru tómar fylli­byttur,“ sagði hann og hélt áfram að drekka og mamma skildi við hann.

Móðir Gunnars Smára barð­ist um á hæl og hnakka í til­veru sem bauð ekki upp á mörg tæki­færi. Það var mik­il­vægt fyrir hana að kom­ast yfir íbúð og búa börnum sínum skjól. Hún ákvað að sækja um verka­manna­bú­stað. Þá komst hún að því að til að það yrði þurfti póli­tík til. Hún varð að fara bón­ar­veg.

„Hún þurfti þá að fara og hitta bæði Guðmund J. Guð­munds­son, for­mann Dags­brúnar og alþýðu­banda­lags­mann, og líka Magnús L. Sveins­son, for­mann Versl­un­ar­manna­fé­lags Reykja­víkur og sjálf­stæð­is­mann, af því að þeir sátu í úthlut­un­ar­nefnd­inni. Full­trúar fjór­flokks­ins áttu þarna síð­asta orðið og vildu að mömmu væri ljóst að hún væri að þiggja þessa íbúð úr þeirra hendi. Þegar hún kom heim var hún eldrauð af reiði, fannst hún hafa nið­ur­lægt sig við að beygja sig fyrir þess­ari lygi. Auðvitað var hún ekk­ert að þiggja frá þessum mönnum. Hún átti allan rétt á þess­ari íbúð sem var byggð fyrir fátækt fólk með sam­stilltu átaki og fyrir skattfé og kom þessum körlum ekk­ert við. Það hefði frekar mátt skamma Sjálf­stæð­is­menn fyrir að hafa staðið í vegi fyrir því ára­tugum saman að byggðar væru félags­legar íbúðir. Loksins þegar þeir létu undan not­uðu þeir sér aðstöðu sína til að gera fólk að þiggj­endum sínum.“

Faðir Gunnars Smára hætti að drekka á sex­tugs­aldri, marker­aður af sjúk­dóm­inum, langvar­andi drykkju og erf­ið­leikum.

„Hann átti samt mörg ágæt ár eftir það en gerði ekki upp við okkur syni sína eða aðra. Ég held að hann hafi ein­fald­lega ekki ráðið við það. Meðan við bræð­urnir drukkum gátum við ekki rætt æsk­una ógrát­andi og það tók okkur langan tíma að fá frelsi frá henni. En ég dæmi pabba ekki og hef þar af leið­andi ekki ástæðu til að fyr­ir­gefa honum. Ég er ekki dóm­stóll og það er því ekki heldur mitt að fyr­ir­gefa. Ég gat aðeins vonað að pabba myndi auðn­ast að þiggja þá fyr­ir­gefn­ingu sem ég held að okkur standi öllum til boða, fyrir að vera mann­leg og breisk. Ég náði alla vega sátt með þessu við­horfi.“

Sam­starfið við Jón Ásgeir „Ég fór aldrei í veiði­ferðir eða á fyll­erí með honum. Ég hef bara unnið að minni blaða­mennsku.“ Mynd / Hallur Karlsson

Ungur alkóhólisti

Gunnar Smári hefur þurft á fyr­ir­gefn­ingu að halda sjálfur. Hann byrj­aði að drekka mjög ungur og alkó­hól­ism­inn hafði mikil áhrif á líf hans.

„Ég gerði margt sem hefði ekki átt að gera og lét ógert annað sem hefði átt að gera. Ég vissi ekki betur en að ég gæti drukkið. Ég byrj­aði með fín­manns­drykkju. Ég hélt það lyfti mér upp yfir ástandið á pabba, sem var aðeins skör fyrir ofan það að vera róni. Ég sá hann teyga í sig Hvanna­rót­ar­brenni­vín niður í hálfa flösku. Ég gat því aldrei drukkið Hvanna­rót­ar­brenni­vín, kúg­að­ist ef ég fann lykt­ina. Ég drakk viskí með klaka og aðrar fínar teg­undir og spjall­aði við vini mína um stjórn­mál og bók­menntir. Ég hafði á þessum tíma enga inn­sýn í sjúk­dóm föður míns, taldi hann mislukk­aðan mann. Ef ég gætti mín á að verða ekki mislukk­aður hlyti ég að geta drukkið. Eftir barna­drykkju slapp ég að mestu við ung­linga­drykkju þar sem ég var í heima­vist­ar­skóla í Reykja­nesi við Ísa­fjarð­ar­djúp en svo tók við svona óhófsneysla ung­karla þegar ég fór á Súg­anda­fjörð að vinna í fiski þegar ég var sextán ára. Eftir þetta sumar vildi fjöl­skyldan að ég færi í mennta­skóla en ég flosn­aði fljótt upp frá námi. Vinur minn smyglaði inn hassi um haustið. Ég kom til hans í heim­sókn og var þar mán­uðum saman. Eða þannig man ég þetta alla vega. Ég veit ekki hvort ég var orð­inn alkó­hólisti þarna en næstu árin bar ég þennan sjúk­dóm, reyndi að vinna og standa mig, axla ábyrgð og vera elsku­legur og almenni­legur maður en neyslan þvæld­ist alltaf fyrir og skemmdi. Ég var að breyt­ast í föður minn. Ég reyndi að lifa sem alkó­hólisti en gat það svo ekki, sjúk­dóm­ur­inn var sterk­ari en ég. Þegar ég var 28 ára fór ég loks í með­ferð og átt­aði mig eins og margir aðrir á fyrsta fyr­ir­lestri hvað það var að vera alkó­hólisti.“

Gunnar Smári var alls­gáður í rúm tvö ár. Svo kom fallið.

„Ég féll og það átti sér langan aðdrag­anda. Ég gerði allt eftir bók­inni, reyndi að gera allt rétt, en var and­lega og til­finn­inga­lega ófull­nægður. Ég lifði lífi brodd­borg­ara, en vant­aði ein­hvern til­gang. Ég ákvað í raun hálfu ári áður að ég yrði að byrja aftur að drekka, var að verða klikk­aður og þurfti lyfið sem ég hafði notað áður í sömu aðstæðum, áfengið. Ég fór því í partí starfs­fólks­ins á knæp­unni Tveimur vinum og öðrum í fríi, á föstu­dag­inn langa og fékk mér gin í tónik. Ég fann ekki til áhrifa og hugs­aði með mér að ég gæti höndlað þetta. Þá fékk ég mér auð­vitað aftur að drekka næstu helgi og það gekk ágæt­lega. Þá datt ég í það helg­ina þar á eftir og þá hófst þriggja ára tíma­bil þar sem ég drakk nán­ast upp á dag.“

Þremur árum eftir fallið fór Gunnar Smári aftur í með­ferð. Þá hætti hann alveg og hefur verið edrú í rúm 24 ár.

Rekinn af Pressunni

Gunnar Smári varð rit­stjóri með Krist­jáni Þor­valds­syni á Press­unni skömmu eftir að hann hætti að drekka. Innan við þrí­tugt var hann kom­inn með mikla ábyrgð og hafði haslað sér völl á vett­vangi fjöl­miðl­anna þar sem hann átti eftir að starfa næstu ára­tug­ina. Pressan var í þann tíma í eigu Alþýðu­flokks­ins og hafði gengið illa um tíma.

„Kristján kom frá Sunnu­dags­blaði Moggans en ég kom frá DV þar sem ég hafði verið læri­sveinn Jónasar Krist­jáns­sonar. Áður hafði ég unnið á NT og Helg­ar­póst­inum með Halldóri Hall­dórs­syni rit­stjóra. Halldór hafði þann hátt á að hann las hluta úr setn­ingum í greinum sem ég hafði skrifað og spurði hvaðan ég hefði þetta. Þannig þurfti ég að verja hverja ein­ustu setn­ingu mörgum sinnum. Ég fékk því ótrú­lega góða skólun sem ungur blaða­maður. Við fengum strax með­byr á Press­unni. Blaðið hafði þá aðeins selst í um 2000 ein­tökum. Við gjör­breyttum blað­inu. Á fimmtu viku seldum við yfir níu þús­und ein­tök. Pressan stækk­aði mjög hratt. Seinna keypti Friðrik Frið­riks­son blaðið af flokknum. Alþýðu­flokk­ur­inn var ein­hver besti útgef­andi sem ég hef haft. Það var aldrei svo mikið sem andað á rit­stjórn­ina þótt við værum stöðugt að rugga bátum.“

Sam­starfið við Friðrik gekk vel framan af. En smám saman þyngd­ist and­rúms­loftið.

„Þá byrj­aði tíma­bil sem ég hef lent í síðar. Ég var lyk­il­maður í að halda rit­stjórn­inni saman og þróa blaðið og útgef­and­inn beygði sig undir það. En eftir því sem tím­inn leið jókst vilji hans til að taka þetta allt yfir. Það end­aði með því að Friðrik rak mig og ég tók við sem afleys­inga­rit­stjóri á tíma­rit­inu Heims­mynd, sem Herdís Þor­geirs­dóttir átti á þessum tíma. Ég leysti hana af í barn­eigna­leyfi en þegar því sleppti stofn­aði ég tíma­ritið Eintak. Egill Helgason, seinna sjón­varps­maður, var rit­stjóri með mér og Andrés Magn­ús­son skaff­aði umbrots­tölvu og var með okkur í þessu. Fljót­lega átt­aði ég mig á að tíma­ritið gekk ekki upp og við breyttum Eintaki í viku­blað milli jóla og nýárs. Ég lýsti því þá yfir af nokkrum hroka að ég væri að fara í sam­keppni við líkið af sjálfum mér, Pressuna. Friðrik sá við mér og vik­una sem Eintak kom út var Pressan með nekt­ar­myndir af Lindu Pét­urs­dóttur feg­urð­ar­drottn­ingu. Við misstum af þeirri athygli sem fylgja hefði átt nýju blaði. Nokkrum mán­uðum seinna neyddi Prent­smiðjan Oddi okkur í sam­ein­ingu við Pressuna og Morg­un­póst­ur­inn varð til. Páll Magn­ús­son var settur inn sem rit­stjóri við hlið mér að kröfu fjár­festa. Hann átti að passa strák­inn.“

Friðrik varð útgef­andi nýja blaðs­ins. Pálmi Jónasson blaða­maður hafði skrifað grein um Jón Ólafsson athafna­mann og tengsl hans við und­ir­heima og fíkni­efna­sölu á árum áður. Jón Ólafsson hafði sam­band við Gunnar Smára og sýndi því skiln­ing að málið færi út. Gunnar Smári seg­ist hafa verið nokkuð undr­andi á þessum við­brögðum, hafði ekki áður lent í manni sem tók ótíð­indum jafn vel. En svo dró til tíð­inda.

„Blaðið var farið í prentun þegar Friðrik birt­ist náfölur og spurði hvort ég ætl­aði að drepa hann. „Veistu ekki að ég stend illa fjár­hags­lega?“ spurði hann. Jón hafði þá metið það svo að hann myndi ekki ná að stöðva mig og þess í stað náð til útgef­and­ans og snúið upp á hann. Ég sagði að blaðið væri farið. Friðrik greip þá til þess að stöðva prentun blaðs­ins í krafti stöðu sinnar sem útgef­andi. Þar með myndi hann sýna þessum mönnum að hann hefði gert allt sem hann gat. Ég hringdi í stjórn­ar­menn útgáf­unnar og óskaði eftir stjórn­ar­fundi sem var hald­inn um morg­un­inn þar sem ákvörðun útgef­and­ans var hnekkt og blaðið prentað. Friðrik hætti og síðan hef ég varla séð hann.“

Gunnar Smári seg­ist aldrei hafa verið bún­ings­her­bergja­maður eða veiði­kof­a­maður. Í gegnum tíð­ina hafi hann átt sam­skipti við auð­menn og fólk úr við­skipta­líf­inu, en ekki bundið trúss sitt við þá umfram það sem starfið kall­aði á.

„Ég var í stjórn Frétta­blaðs­ins frá upp­hafi með Jóni Ásgeiri, en ég fór aldrei í veiði­ferðir eða á fyll­erí með honum, við vorum ekki félagar. En við unnum saman að því að byggja upp Frétta­blaðið, fjölg­uðum útgáfu­dögum, stækk­uðum dreifi­s­væðið og svo fram­vegis. Þess á milli vann ég bara að minni blaða­mennsku. Eitt helsta hlut­verk rit­stjóra og útgef­anda er að gæta þess að blöðin fái að vera í friði og verja rit­stjórnir gegn pen­inga­vald­inu, stjórn­mála­fólki og alls­konar liði sem vill ráðg­ast með fjöl­miðl­ana.“

Gjald­þrot Frétta­tím­ans „Ég var sak­aður um að hlaupa frá launa­greiðslum þótt ég væri aðeins einn eig­enda. Ég afði lagt hluta af ævisparn­aði mínum í rekst­ur­inn og hann tap­að­ist.“ Mynd / Hallur Karlsson

Aftur í meðferð

Eftir að Morg­un­póst­inum sleppti hófst hálf­gerð eyði­merk­ur­ganga. Gunnar Smári fór í seinni með­ferð­ina. Eftir það fékk hann hvergi vinnu.

„Ég sótti meira segja um á Mogganum og sem umbrots­maður á DV en hvorki Jónas Krist­jáns­son né Styrmir Gunn­ars­son vildu ráða mig. Styrmir sagði að Mogganum væru fengur að fá mig en spurði svo: „En held­urðu að þér liði vel á Mogganum?“ Ég skildi að þetta var aðferð hans til að segja mér að ég væri ekki vel­kom­inn þangað. Og þótt ég hafi sagt að mér myndi örugg­lega líða vel á Mogganum fékk ég ekki vinn­una.“

Eitt stærsta ævin­týrið á ferli Gunnars Smára var stofnun Frétta­blaðs­ins. DV-feðgar, Sveinn R. Eyj­ólfs­son og Eyjólfur Sveins­son fengu hann til liðs við sig til að gera frí­blað. Frétta­blað­inu var stefnt gegn Morg­un­blað­inu sem var ris­inn á fjöl­miðla­mark­aði. Blaðið sá dags­ins ljós en feðgarnir voru settir út af sakra­ment­inu. Útgáfan fór í þrot en Gunnar Smári var þess viss að blaðið ætti mikla mögu­leika á mark­aði. Hann leit­aði leiða til að end­ur­reisa blaðið. Hann hafði að leið­ar­ljósi að fá kaup­menn í Reykja­vík til liðs við sig.

„Davíð Oddsson for­sæt­is­ráð­herra var á þessum tíma við það að beygja alla fjöl­miðla undir sig. Og hann þoldi ekki Frétta­blaðið. Það varð einmitt okkar stærsta eign, að mínu mati, það að Davíð var í nöp við blaðið. Það skap­aði skjálfta í kringum það.“

„Ég þekkti sög­una frá því Morg­un­blaðið var við það að fara í þrot snemma á sein­ustu öld og var bjargað af kaup­mönn­unum í Reykja­vík. Ástæðan er sú að kaup­menn­irnir þurfa að hafa fjöl­miðil til að halda uppi sam­bandi við sína kúnna. Kaup­menn­irnir í Reykja­vík höfðu sömu hags­muni af því að halda Frétta­blað­inu gang­andi, þótt ekki væri nema til að halda niðri aug­lýs­inga­verð­inu hjá Morg­un­blað­inu. Við Ragnar Tómasson lög­maður keyptum Frétta­blaðið gegn lof­orði um að gera upp við blað­burð­ar­börnin. Ragnar kom á fundi með okkur og Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, eig­anda Baugs. Hann lýsti því seinna að það hefði tekið mig 15 sek­úndur að selja Jóni Ásgeiri hug­mynd­ina. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hitti Jón Ásgeir. Í fram­hald­inu fékk ég Árna Hauksson, einn eig­enda Húsa­smiðj­unnar, til að taka þátt í að byggja brú svo við gætum komið blað­inu aftur af stað. Rekst­ur­inn gekk vel frá fyrsta degi. Blaðið var rekið með hagn­aði fyrsta hálfa árið eftir end­ur­reisn og ætíð eftir það. Það þurfti því ekki alla þá pen­inga sem reiknað var með í upp­hafi og reynd­ist vera frá­bær fjár­fest­ing fyrir þessa kaup­menn. Þetta varð algjört ævin­týri. Og við höfðum allt í einu tæki­færi til að fella Moggann sem hafði drottnað yfir íslenskum fjöl­miðla­mark­aði ára­tugum saman og Mogginn hefur ekki borið sitt barr síðan. Það var óend­an­lega mik­il­vægt, Mogginn hafði legið eins og mara yfir sam­fé­lag­inu með sín íhalds­sömu við­horf. Davíð Oddsson for­sæt­is­ráð­herra var á þessum tíma við það að beygja alla fjöl­miðla undir sig. Og hann þoldi ekki Frétta­blaðið. Það varð einmitt okkar stærsta eign, að mínu mati, það að Davíð var í nöp við blaðið. Það skap­aði skjálfta í kringum það. Og ég gagn­rýndi Davíð linnu­laust, fyrst og fremst frá hægri því þar var hann veik­ari fyrir. Hann átti auð­velt með að verj­ast and­mælum frá vinstri. Í dag vilja sumir halda því fram að ég hafi verið sturl­aður nýfrjáls­hyggju­maður en rökin fyrir því eru flest sótt í þessa gagn­rýni á Davíð, þar sem ég var að snúa nýfrjáls­hyggj­unni upp á Davíð. Hann sveik allt sem hann þótt­ist standa fyrir, þótt­ist vilja sam­keppni en vildi drepa allt sem ekki beygði sig undir vilja hans og flokks­ins. Ég leyfði mér sem blaða­maður að nota sjón­ar­horn til að kasta ljósi á stöðu mála og með því að meta verk Davíðs frá sjón­ar­horni nýfrjáls­hyggj­unnar var aug­ljós­ast að það var ekki nokkurn skap­aðan hlut að marka mann­inn. En eins og flestir blaða­menn aðhyllt­ist ég engan flokk og í raun engar kenn­ingar. Ef ég mætti á kjör­stað á þessum tíma, skil­aði ég auðu. Ég hef aldrei kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn og myndi örugg­lega panta tíma hjá sál­fræð­ingi ef mér dytti það í hug. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er póli­tískur armur kol­krabbans, sem var eitrað afl í því sam­fé­lagi sem ég ólst upp í.“

Svikin loforð

Gunnar Smári segir að afleið­ingin af upp­risu Frétta­blaðs­ins hafi orðið sú að þar hafi orðið til eign sem hægt var að leika sér með. Fyrst tók Frétta­blaðið yfir Vísi og DV og síðan keyptu Jón Ásgeir og Pálmi Har­alds­son í Fons Norð­ur­ljós með Stöð 2, Bylgj­unni og fleiri miðlum inn­an­borðs. Þá keyptu eig­end­urnir Vodafone og þá voru fjöl­miðl­arnir orðnir hluti af skráðu félagi í kaup­höll. „Með sam­ein­ing­unni var svínað á okkur í minni­hlut­anum í Frétta­blað­inu, t.d. mér og Árna Hauks­syni. Frétta­blaðið var skuld­laust í góðum rekstri en Norð­ur­ljós í raun sokkin í skuldir og miðlar þess í mik­illi stöðnun. Við reyndum árang­urs­laust að búa okkur til stöðu með því að setja hlut­ina okkar saman, en urðum auð­vitað undir. Höfðum ekk­ert afl í stóru karl­ana. En á þessum tíma trúði ég að fjöl­miðl­arnir væru vel settir innan skráðs félags, rit­stjórn­ar­legt frelsi þeirra var varið í sam­þykktum. Þegar hrunið kom reynd­ist þetta blekk­ing. Þá tóku auð­menn­irnir miðl­ana ein­fald­lega af mark­aði og ráðg­uð­ust með þá að vild.“

Gunnar Smári hætti sem rit­stjóri Frétta­blaðs­ins í árs­lok 2005 og var gerður að yfir­manni 365, fjöl­miðla­hluta félags­ins, sem seinna var skírt Dagsbrún. Ári síðar var hann gerður að for­stjóra Dags­brúnar. Fyrir lá stjórn­ar­sam­þykkt að stækka fyr­ir­tækið með sam­runa og kaupum á fyr­ir­tækjum. Sena var keypt og einnig Kögun. Dagsbrún var orðið að fyr­ir­tæki sem var með media, telecom og IT. Þá lá líka fyrir sam­þykkt um að kaupa prent­smiðju í Englandi og að starta Frétta­blaði í Danmörku, blaði sem seinna var nefnt Nyhedsa­visen.

„Eftir hrun var ég flokk­aður meðal helstu ger­enda í bólunni sem leiddi til hruns­ins, var settur á lista í fjöl­miðlum með stór­kap­ít­alistum eins og ég hafi verið ein­hver auð­maður. Það segir hins vegar allt um stöðu mína að mín er hvergi getið í rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis, bland­að­ist á engan hátt í nokk­urt af hrun­málum sak­sókn­ara, var ekki einu sinni vitni, var ekki í Panama­skjöl­unum og tengd­ist engum slíkum málum.“

„Allt var þetta gert á fáeinum mán­uðum í árs­byrjun 2006. Svo kom Íslands­kreppan um pásk­ana og hlut­bréf féllu í kaup­höll­inni. Fyrir lá hluta­fjár­lof­orð frá eig­endum um að bakka upp þessi kaup á fyr­ir­tækjum en þegar hluta­bréfa­verðið féll varð ljóst að þeir gátu ekki sótt meira lánsfé í bank­ann á móti hækkun bréf­anna sem þeir áttu. Þessi leið, sem ákveðin hafði verið, að stækka Dagsbrún hratt féll þar með. Eig­end­urnir gátu ekki eða ætl­uðu ekki að standa við hluta­fjár­lof­orðin og þar með var fyr­ir­tækið allt of skuld­sett. Og þeir hlut­uðu félagið niður til að fela slóð­ina. Og kenndu mér um hvernig fór, eins og ég hafi verið eins­konar dávaldur sem hafi gabbað her manna til að vaða út í mýri. Ég var þá í þeirri stöðu að ég hafði fengið alls­konar fólk til að koma til liðs við okkur í Danmörku til að und­ir­búa Nyhedsa­visen en treysti ekki lengur þeim sem voru að bakka útgáf­una upp. Ég kom því á milli­liða­lausum tengslum milli dönsku fjár­fest­anna og yfir­mann­anna við Baug, svo þeim yrði lofað stuðn­ingi án minnar milli­göngu. Nyhedsa­visen kom út um haustið og ég vann hjá félagi sem hélt utan um verk­efnið í rúmt ár en þátt­taka mín fjar­aði út. Blaðið kom út fram á haust 2008, en þá var tæpt ár síðan ég hætti. Ég fór til Afríku þar sem ég og Alda Lóa, konan mín, ætt­leiddum dóttur. Það var það mark­verð­asta sem gerð­ist hjá mér 2007. Ég seldi hlut­ina mína í Dagsbrún fyrir árs­lok 2006, lifði á þeim pen­ingum en tók aldrei út launin mín í Danmörku. Við hrunið tvö­föld­uð­ust þau síðan vegna falls krón­unnar. Það er saga mín sem kap­ít­alista.

Eftir hrun var ég flokk­aður meðal helstu ger­enda í bólunni sem leiddi til hruns­ins, var settur á lista í fjöl­miðlum með stór­kap­ít­alistum eins og ég hafi verið ein­hver auð­maður. Það segir hins vegar allt um stöðu mína að mín er hvergi getið í rann­sókn­ar­skýrslum Alþingis, bland­að­ist á engan hátt í nokk­urt af hrun­málum sak­sókn­ara, var ekki einu sinni vitni, var ekki í Panama­skjöl­unum og tengd­ist engum slíkum málum. Samt bý ég enn þá við það í dag að fólk talar til mín eins og ég sé einn af helstu ger­endum hruns­ins.“

Gunnar Smári Egilsson Mynd / Hallur Karlsson

Gjaldþrot Fréttatímans

Gunnar Smári snéri aftur á fjöl­miðla eftir nokk­urt hlé þegar hann hóf að skrifa um mat í viku­blaðið Frétta­tím­ann, sem stofnað hafði verið til með fram­lagi frá banda­ríska auð­mann­inum Robert Jenkins. „Ég missti í raun mál­frelsið eftir hrun en reyndi að end­ur­heimta það með því að skrifa um mat, en var kannski fyrst og fremst að skrifa um áhrif kap­ít­al­ism­ans á neyslu okkar og menn­ingu,“ segir Gunnar Smári. Hann var kos­inn í stjórn SÁÁ og varð svo for­maður sam­tak­anna í tvö ár. Síðar keypti hann hlut í Frétta­tím­anum og var rit­stjóri blaðs­ins í rúmt ár, breytti blað­inu og bætti við útgáfu­dögum en blaðið fór í þrot. Gunnar Smári var gagn­rýndur fyrir að hafa hafa stokkið frá borði og skilið starfs­fólkið eftir bjarg­ar­laust.

„Við Alda Lóa bjuggum í París í ár en hún vildi fara aftur heim. Um það leyti var lagt að mér að koma að Frétta­tím­anum. Ég fékk Árna Hauksson og Sigurð Gísla Pálmason til að koma að þessu sem fjár­festar. Ég átti 29 pró­sent í félag­inu, ef ég man rétt. Við ákváðum að fjölga útgáfu­dögum í tvo og seinna í þrjá. Hugsunin var sú að ná að auka tekj­urnar meira en kostn­að­inn og ná þannig ein­hverjum rekstr­ar­grunni undir blaðið. En eins og með Frétta­blaðið í upp­hafi þá er fjár­fest í tapi á leið­inni, það tekur tíma fyrir tekj­urnar að brúa kostn­að­inn. Þetta gekk ágæt­lega til að byrja með en þegar stytt­ist í kosn­ingar 2016 féllu allar tekju­á­ætl­anir og aug­lýs­ing­arnar dróg­ust saman. Mér var sagt að aug­lýsendur hefðu sagt að þeir ætl­uðu ekki að aug­lýsa í þessum komm­ún­ista­snepli. Það sem átti að verða nokkuð jafn vöxtur á vax­andi mark­aði varð að nauð­vörn. Ég reyndi flest til að bjarga rekstr­inum og sótt­ist meðal ann­ars eftir fram­lögum frá almenn­ingi og það leit ágæt­lega út. Eig­end­urnir féllust á að fella niður skuldir, allir nema Jenkins sem átti enn 90 millj­óna króna kröfu á félagið, stofn­fram­lagið. Þar með var ekki hægt að safna fé meðal almenn­ings, því það átti að fara í rekstur en ekki til að borga niður skuldir. Menn Jenkins til­kynntu að þeir ætl­uðu að taka yfir félagið og kröfð­ust þess að ég myndi hætta. Ég fór því heim en gat ekki sagt neinum ástæð­una, því menn Jenkins ætl­uðu að til­kynna breyt­ing­arnar eftir nokkra daga. Það dróst og á end­anum hættu þeir við. Þá ákvað fram­kvæmda­stjór­inn með öðrum stjórn­ar­mönnum að koma út blað­inu sem var í vinnslu og bað mig að raska því ekki. Þegar blaðið var á leið í prent­smiðju og ég ætl­aði niður á blað til að segja starfs­fólk­inu frá stöð­unni sagði hann mér að hann hefði sent starfs­fólkið heim. Um morg­un­inn las ég síðan fréttir um stór­kost­leg svik mín, að ég hefði svikið starfs­fólkið um laun og flúið af hólmi. Gefið var í skyn að ég hefði stungið af með launin. Hið rétta er að ég lagði það litla sem ég átti í rekst­ur­inn síð­ustu vik­urnar og borg­aði því starfs­fólk­inu í raun úr eigin vasa og gekk frá þess­ari útgáfu án þess að hafa tekið eina krónu úr fyr­ir­tæk­inu. Ekki einu sinni launin mín, því ég borg­aði þau í reynd sjálfur. En ég sé ekki eftir því. Frétta­tím­inn var mjög gott blað, rót­tæk­asta og besta frí­blað sem gefið hefur verið út. Í gegnum það drógum við mikla sam­fé­lags­gagn­rýni og í tengslum við það kynnt­ist ég mörgu fólki sem ég hef unnið með síðan í ýmiss konar bar­áttu.“

„Sólveig hafði komið að stofnun Sós­í­alista­flokks­ins og ég lagði að henni að leiða fram­boð til stjórnar. Hún neit­aði í fyrstu en ég lagði hart að henni. Ég reyndi allt og þótt­ist meira að segja hafa dreymt pabba hennar, Jón Múla Árnason.“

Hallarbylting í Eflingu

Eftir þetta lauk afskiptum Gunnars Smára af fjöl­miðlum. En þá tók við nýr kafli. Hann stofn­aði Sós­í­alista­flokk Íslands stuttu síðar og sneri sér meðal ann­ars að end­ur­nýjun verka­lýðs­for­yst­unnar. Gunnar Smári beitti sér fyrir hall­ar­bylt­ingu í Eflingu þegar Sólveig Anna Jóns­dóttir tók þar við stjórn­ar­taumunum sem for­maður. Seinna reyndi hann að hjálpa Heið­veigu Maríu Ein­ars­dóttur til að ná kjöri til for­manns Sjó­manna­fé­lags Reykja­víkur. Hann seg­ist vera stoltur af þeim afskiptum.

„Það var aug­lýst eftir fram­boði til stjórnar Dags­brúnar. Það var vika til stefnu. Ég spurði fólk hvort það hefði ekki áhuga á því að bjóða sig fram. Á örfáum dögum form­að­ist fram­boð. Sólveig hafði komið að stofnun Sós­í­alista­flokks­ins og ég lagði að henni að leiða fram­boð til stjórnar. Hún neit­aði í fyrstu en ég lagði hart að henni. Ég reyndi allt og þótt­ist meira að segja hafa dreymt pabba hennar, Jón Múla Árnason. Mér fannst óend­an­lega mik­il­vægt að hún byði sig fram, bæði sem lág­launa­kona á leik­skóla og sem sá snill­ingur sem hún er. Hún sam­þykkti á end­anum og náði glæsi­legu kjöri. Ég var eins­konar kosn­inga­stjóri B-list­ans og saman bjuggum við til frá­bæra kosn­inga­bar­áttu. Síðar sat ég undir þeim áróðri Björns Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, og fleiri að þetta væri plott hjá mér til að kom­ast yfir þrjá millj­arða í sjóðum Eflingar. Áróður þess­ara karla tekur á sig ævin­týra­legar myndir. Seinna þegar Heiðveig María sagði mér hvernig hún vildi efla kjara­bar­áttu sjó­manna vildi ég strax allt gera til að hjálpa henni. Hún hefði orðið frá­bær tals­kona sjó­manna en ein­hverri spillt­ustu for­ystu nokk­urs verka­lýðs­fé­lags ver­aldar tókst að verj­ast því að sjó­menn fengju að kjósa sér for­ystu í Sjó­manna­fé­lagi Íslands. Það má segja að for­ystan hafi rænt völdum með því að reka Heið­veigu úr félag­inu og kom­ast þannig hjá kosn­ingu.“

Hin Reykjavík

Það gustar enn um Gunnar Smára. Eins og áður sagði stofn­aði hann Sós­í­alista­flokk­inn strax eftir fall Frétta­tím­ans. Forsaga þess er að hann hafði áður stofnað hóp á Facebook sem hann kall­aði Ísland – tuttug­asta fylki Noregs og var í orði kveðnu vett­vangur Fylk­is­flokks­ins, sem sagð­ist ætla að berj­ast fyrir inn­limun Íslands í Noreg. Gunnar Smári segir að það hafi verið gjörn­ingur til að und­ir­strika fárán­leik­ann í full­veld­isum­ræð­unni á þessum árum, en í reynd hafi þetta orðið vett­vangur til að draga fram ólík kjör almenn­ings á Íslandi, í Noregi og á Norð­ur­lönd­unum. Á nýárs­dag 2017 ákvað hann hins vegar að breyta nafn­inu á þessum hópi í Sós­í­alista­flokk Íslands og þegar við­tök­urnar urðu glimr­andi gerði hann alvöru úr þessu. „Við höfum síðan verið að byggja upp hreyf­ingu, fremur en flokk. Það vantar ekki fleiri flokka sem kópí­era gömlu flokk­ana á hnign­un­ar­stigi þeirra, eru aðeins for­ysta án jarð­sam­bands. Það sést t.d. á svip­legum örlögum Besta flokks­ins og Bjartrar fram­tíðar. Við höfum því lagt áherslu á end­ur­reisn verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og ann­ara almanna­sam­taka sem berj­ast fyrir hags­munum almenn­ings. Það er ekki gert til að tryggja áhrif Sós­í­alista­flokks­ins í þessum sam­tökum heldur vegna þess að því hærra sem bar­átta almenn­ings rís, því virk­ari verður póli­tísk þátt­taka almenn­ings og það er for­senda þess að Sós­í­alista­flokk­ur­inn geti vaxið.“

Fæstir trúðu því að Sós­í­alista­flokk­ur­inn ætti sér lífs­mögu­leika, en annað kom á dag­inn. Flokk­ur­inn náði í fyrstu kosn­inga­bar­áttu sinni manni inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

„Við ákváðum að bjóða fram full­trúa þess þriðj­ungs fólks sem hefur það verst í Reykja­vík. Við köllum það Hin Reykja­vík. Það er verið að byggja lúxus­í­búðir og hótel í Reykja­vík – en það er ekk­ert byggt í Hinni Reykja­vík. Það er góð­ær­is­bóla í Reykja­vík – en það er ekk­ert góð­æri í Hinni Reykja­vík, þar ríkir stöðnun og kaup­mátt­ur­inn rýrnar. Þetta var svona grunn­tón­inn, upp­risa hinna kúg­uðu gegn auð­vald­inu og elítu­stjórn­mál­unum sem töl­uðu mest um að Reykja­vík væri skemmti­leg. Flokk­ur­inn mæld­ist með nán­ast ekk­ert fylgi sex vikum fyrir kosn­ingar en við fengum meira fylgi en Framsókn, VG, Flokkur fólks­ins og Mið­flokk­ur­inn.

Gunnar Smári segir að and­stæð­ingar hans og flokks­ins hafi reynt að skaða flokk­inn með því að þrá­stag­ast á að hann væri hættu­legur maður.

„Í kosn­inga­sjón­varp­inu spurði Einar Þor­steins­son, sem ætíð gengur fram eins og sér­stakur full­trúi Val­hallar í Rík­is­sjón­varp­inu, Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, odd­vita Sós­í­alista, hvernig hún gæti boði sig fram fyrir flokk sem Gunnar Smári Egilsson tengd­ist, eins og ég væri barn­a­níð­ingur eða marg­dæmdur þjófur. Einar hefur verið lyk­il­maður í kosn­inga­um­fjöllun RÚV í mörgum kosn­ingum, en hann spurði aldrei í kosn­inga­sjón­varpi út í Panama­skjölin, sem þó voru ástæða kosn­inga, aldrei um upp­reist æru-málið, þótt það væri líka ástæða kosn­inga, aldrei um fjár­málafor­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar, sem þó var til­efni lög­banns í aðdrag­anda kosn­inga og fór í raun aldrei út í stór­kost­lega spill­ingu spill­inga­flokk­anna. En honum fannst við hæfi að draga gjald­þrot rót­tæks frí­blaðs inn í umræð­una eins og ein­hvert stór­kost­legt svika­mál. Kannast ein­hver við það? Þetta var lítið gjald­þrot á allan mæli­kvarða miðað við umfang rekstr­ar­ins og af því urðu engin eft­ir­mál, eig­end­urnir sjálfir töp­uðu 60% af því fé sem tap­að­ist.“

Stefnir ekki á þing

Gunnar Smári seg­ist ekki vera í vafa um að Sós­í­alista­flokk­ur­inn nái inn á þing. Hann segir að flokk­ur­inn sé í raun kom­inn yfir þann þrösk­uld og sé enn að vaxa. Hann sjái það ein­fald­lega á fjölgun félaga í flokknum. Hann segir ástæð­una vera að flokk­ur­inn eigi raun­veru­legt erindi, það sé kom­inn tími til að vinstri snúi aftur eftir nið­ur­læg­ingu nýfrjáls­hyggj­unnar.

Gunnar Smári seg­ist ekki eiga sér draum um að verða þing­maður eða ráð­herra.

„Ég hef sjálfur engin áform um að fara á þing. Ég sé mig ekki fyrir mér í ræðu­stól Alþingis að tala um fund­ar­stjórn for­seta. Ég er bestur í að byggja upp bar­átt­una og halda utan um hana, ekk­ert ósvipað og ég byggði upp blöð á sínum tíma, blöð sem voru í raun í sífelldri end­ur­sköpun, Pressan, Eintak, Fókus, Frétta­blaðið, Frétta­tím­inn. Mik­il­væg­asta verk­efnið er að byggja upp virka stjórn­mála­þát­töku almenn­ings og fylkja ólíkum hópum saman til bar­áttu gegn þeim sem hafa rænt almenn­ing völdum sínum og lífs­af­komu. Það er verk­efnið, fram­boð til þings er aðeins hluti af þess­ari bar­áttu, alls ekki loka­mark­mið. Loka­mark­mið er að alþýðan taki völdin sem til­heyra henni, taki þau af auð­vald­inu, og sendi­sveinum þess, og móti sam­fé­lag að eigin hags­munum og vænt­ingum.“

Sú spurn­ing vaknar hvað það sé sem Gunnar Smári vilji með stofnun stjórn­mála­flokks og upp­stokkun í verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Hann vísar til æsku sinnar.

„Það eru sjálf­sagt mörg svör við þessu. Við erum öll flókin og marglaga. En af því þú spurðir í upp­hafi um æsk­una get ég sagt að ég er enn með litla dreng­inn hennar mömmu inn í mér, þennan sem var alltaf votur vegna þess að hann átti ekki góða skó. Og líka son­inn hans pabba, þann sem hlust­aði á hlát­ur­inn þegar fólk gekk fram hjá honum, skyldi eftir hjá honum skömm í stað þess að hjálpa honum. Sam­fé­lagið okkar er ekki alltaf gott og það er óþarf­lega oft vont við þau sem síst eiga það skilið. Við eigum betra skilið. Sós­í­al­ismi er í raun lítið annað en einmitt sú sann­fær­ing, að við eigum betra skilið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi