Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Flúði slökkviliðið vegna áreitis

Flúði slökkviliðið vegna áreitis
Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir

„Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig,“ segir Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, sem var eina konan í slökkvi­liði Fjarða­byggðar þegar hún hóf störf þar sum­arið 2017. Hún hafði reynslu af sjúkra­flutn­ingum og brenn­andi áhuga á starf­inu, sótti sér aukna menntun í því og lagði sig alla fram. Fljót­lega fór þó að bera á því að ýmsir sam­starfs­menn hennar voru ekki hrifnir af því að fá konu sem starfs­fé­laga og Andrea upp­lifði síend­ur­tekið áreiti innan slökkvi­liðs­ins sem end­aði með því að hún brotn­aði saman og hætti sam­kvæmt lækn­is­ráði.

Hún hefur nú lagt fram form­lega kvörtun vegna kyn­bund­ins áreitis og ein­eltis eftir að hafa ítrekað verið hunsuð af yfir­mönnum slökkvi­liðs­ins þegar hún kvart­aði. Á end­anum hrökkl­að­ist hún úr bænum og flutti til Dalvíkur ásamt eig­in­manni og börnum, en hún er enn óvinnu­fær og treystir sér ekki ein út í búð, hvað þá meira, svo djúp­stæð áhrif hafði ein­eltið á hana.

Mynd / Auðunn Níelsson

„Ég fór að vinna hjá Slökkvi­liði Fjarða­byggðar strax eftir að ég útskrif­að­ist sem þroska­þjálfi,“ útskýrir Andrea beðin að segja frá til­drögum þess að hún hóf störf hjá slökkvi­lið­inu.

„Ég hafði verið í sjúkra­flutn­ingum á Þórshöfn, þar sem ég bjó áður en ég flutti til Reyð­ar­fjarðar, og var menntuð sem slíkur. Til að byrja með var ég í hluta­starfi hjá slökkvi­liði Fjarða­byggðar, sinnti milli­stofn­ana­flutn­ingum og öðrum til­fallandi störfum. Þann 1. ágúst 2017 réði ég mig inn á vaktir, var eina konan í slökkvi­lið­inu og þurfti nátt­úr­lega að mæta öllum þeim áskor­unum sem því fylgdu. Ég er mjög grönn og lít ekki út fyrir að vera sterk lík­am­lega og fljót­lega eftir að ég byrj­aði fór ég að finna fyrir leið­inda­skotum um að ég væri nokk­urs konar aðskota­hlutur í lið­inu. Mér var haldið utan við það sem aðrir voru að gera, var í raun­inni bara á hlið­ar­lín­unni, og það var mjög áþreif­an­legt að nokkrir mann­anna í lið­inu vildu ekki hafa konu í þessu starfi.“

Var hætt að þora á kaffistofuna

Andrea lagði fram kvörtun til yfir­manns síns vegna kyn­bund­ins áreitis eftir að hafa reynt án árang­urs að vera metin að verð­leikum innan liðs­ins. „Ég var farin að heyra hvernig var talað um mig,“ útskýrir hún.

„Að ég gæti ekk­ert gert, væri ekki nógu sterk og svo fram­vegis. Ég lagði mig alla fram í starf­inu, reyndi að vera allra en það var ekki hægt. Ég varð því mjög ánægð þegar slökkvi­liðs­stjór­inn kall­aði mig inn á skrif­stofu og sagð­ist vera búinn að taka eftir áreit­inu og vildi heyra hvernig ég hefði það. Áreitið kom aðal­lega frá einum starfs­manni til að byrja með en það vatt upp á sig og ég ákvað að leggja fram form­lega kvörtun. Ég var þá byrjuð í atvinnu­námi slökkvi­liðs­manna sem er árslangt lotu­nám, til að fá lög­gild­ingu sem atvinnu­slökkvi­liðs­maður.

„Einn starfs­maður var far­inn að sýna mér ógn­andi fram­komu og mér leið sífellt verr.“

Þá þurfti ég að vera alla daga á slökkvi­lið­stöð­inni og mæta á allar vaktir, ekki bara mína vakt en þar mætti ég alltaf fullum skiln­ingi og stuðn­ingi. Aðrar vaktir voru ekki á þeirri línu og ég mætti mjög leið­in­legri fram­komu frá þeim. Ég var hætt að fara inn í kaffi­stofu, fór heim í mat­ar­tím­anum og gerði allt til að forð­ast að vera í sam­skiptum við þá. Einn starfs­maður var far­inn að sýna mér ógn­andi fram­komu og mér leið sífellt verr. Lengi reyndi ég að rétt­læta þetta með því að þetta væri eðli­legt þar sem ég væri kona sem væri að ráð­ast inn í karla­veldi og þess vegna þyrfti ég bara að læra að höndla þetta áreiti sem eðli­legan hluta af því að vera í slökkvi­liði, sem var nátt­úr­lega fárán­leg hugsun. Auk þess að ég var hrein­lega farin að velta fyrir mér hvort þetta væri ímyndun í mér, staðan væri alls ekki svona slæm. Það er nefni­lega ótrú­legt hvað kvíði getur brenglað hugs­un­ina hjá manni.“

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Eftir að Andrea lagði fram kvörtun­ina kall­aði slökkvi­liðs­stjór­inn hana og þann sem atkvæða­mestur var í áreit­inu á sinn fund til að ræða málið og reyna að koma á sáttum.

„Það var nátt­úr­lega alls ekki þægi­legur fundur,“ segir Andrea. „Eig­in­lega bara mjög óþægi­legur. Hann við­ur­kenndi ekki að hann væri að gera neitt rangt, sagði að kannski þyrfti hann að venja sig á að vera aðeins blíð­legri í fram­komu við alla, hann væri bara svona. Slökkvi­liðs­stjór­inn vildi allt í einu ekk­ert kann­ast við að hann hefði áður rætt við mig um áreitið. Það var skrifuð fund­ar­gerð og við kvitt­uðum undir en sá aðili sem ég kvart­aði undan kvitt­aði undir með því skil­yrði að þessi fund­ar­gerð yrði ekki sýnd neinum öðrum en okkur og slökkvi­liðs­stjór­inn lof­aði því. Þannig að ég fékk ekk­ert út úr þessum fundi nema auk­inn kvíða. Ég var auð­vitað í enn verri stöðu eftir að hafa kvartað og fann vel fyrir því að menn lögðu sig fram um að hunsa leið­in­legu kell­ing­una sem kvart­aði við yfir­mann­inn.“

Lestu viðtalið í heild sinni í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ