Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Á hælaskónum í Smuguna

Á hælaskónum í Smuguna
Inga Sæland.

„Þarna missti ég minn albesta vin og gekk í gegnum hrika­legt áfall þegar hann dó. Þegar dauð­inn kom og ást­vinur fór stóð ég algjör­lega tóm og varn­ar­laus eftir,“ segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, um sáran bróð­ur­missi þegar hún var á þrí­tugs­aldri. Á barns­aldri missti hún sjón og upp­lifði erfitt ein­elti í æsku vegna fötl­unar sinnar. Eftir að hafa sjálf alist upp við fátækt og erf­ið­leika er það ein­lægt mark­mið stjórn­málafor­ingj­ans að útrýma fátækt á Íslandi. Inga rifjar upp í við­tali við Mannlíf erf­iðar minn­ingar og nýrri sár sem til urðu á hinum fræga Klaust­ur­bar.

Inga er í for­síðu­við­tali Mannlífs.

Inga fædd­ist 3. ágúst 1959 á Ólafs­firði og ólst upp á sex manna heim­ili, lengst af í 40 fer­metra hús­næði án bað­að­stöðu. Móðir hennar var heima­vinn­andi hús­móðir eins og tíðk­að­ist í þá daga og faðir hennar afl­aði einn tekna til heim­il­is­ins með verka­vinnu og sjó­mennsku. „Ein­hverra hluta vegna var það svo að við fengum ekki mjög margt sem aðrir fengu. Alla mína æsku bað­aði ég mig í þvotta­bala því það var engin sturta. Við höfðum alltaf nóg að bíta og brenna en það var ekk­ert umfram það. Aðeins keypt það nauð­syn­lega sem þurfti, stíg­vél og svona, en við fengum aldrei nein tísku­föt,“ segir Inga alvar­leg í bragði. „Við vorum aldrei í þeirri stöðu að geta farið í ferða­lög eða eign­ast bíl, til dæmis. Ýmislegt sem mörgum þykir eði­legt er eitt­hvað sem ég upp­lifði aldrei. Það var alveg erfitt því maður sá hina fá nýtt hjól og nýja skauta en for­gangs­röðin heima var að við yrðum aldrei svöng eða okkur kalt.“

Hefði ekki þurft að missa sjón

Á aðfanga­dags­kvöld þegar Inga Sæland var á fimm mán­aða, veikt­ist hún illa af heila­himnu­bólgu sem varð til þess að hún missti sjón. Inga seg­ist eiga erfitt með að hugsa til þess að ef henni hefði þá verið gefið sýkla­lyf hefði hún sjálf­sagt haldið sjón­inni. „Ég missti sjón­ina vegna lækna­mistaka. Löngu síðar var mér sagt að hefði ég bara fengið sýkla­sprautu þegar ég var rænu­laust lítið barn með heila­himnu­bólgu hefði ég lík­lega ekki misst sjón­ina. Ég finn fyrir ólg­andi reiði þegar ég hugsa til þess og held það hefði verið betra að vita það bara alls ekki,“ segir Inga.

Fátæktin og sjón­miss­ir­inn hefur allar götur síðan hamlað Ingu í mörgu því sem hún hefur viljað taka sér fyrir hendur. Þannig gat hún ekki upp­fyllt drauma sína í bæði námi og tón­list, ekki nema fyrir eigin dugnað og kapp­semi á síð­ari árum. Að vera hálf­sjón­laus varð jafn­framt til þess að Inga upp­lifði tals­vert ein­elti í æsku.

Lærði að skrifa í deig

„Ég var alltaf mjög sjálf­bjarga og sjálfri mér næg. Þurfti líka að vera það því ég var svo sjón­skert að ég gat lítið fylgt krökk­unum og þau nenntu ekk­ert að hafa mig með í leikjum. Ég kynnt­ist alveg ein­elti þar sem mér var rosa­mikið strítt. Börn eru börn og átta sig kannski ekki alltaf á þegar þau særa eða meiða. Ég var sem barn stundum leið og sorg­mædd en reyndi alltaf að vera glöð og dug­leg,“ segir Inga sem er enda­laust þakk­lát fyrir þá hlýju sem hún upp­lifði með­fram erf­ið­leik­unum.

„Ég var mikið hjá ömmu og hún kenndi mér að skrifa stafi í deigið þegar hún var að gera klein­urnar. Það eru ynd­is­legar minn­ingar úr eld­hús­inu hennar. Mig lang­aði til að læra á hljóð­færi en gat það ekki því ég gat ekki séð nót­urnar. Ég lærði að lifa með minni eigin getu og hef í raun aldrei þekkt annað en þessa sjón­depru. Eig­in­lega er ég samt þakk­lát fyrir það í dag að hafa ekki þekkt annað, höggið hefði lík­lega verið meira hefði ég misst sjón­ina síðar á lífs­leið­inni.“

Setti manninum afarkosti

Þegar Inga rifjar æsku sína upp man hún eftir því að hafa verið vin­sæl barnapía á Ólafs­firði enda hafi hún haft svo gaman af söng að það hjálp­aði mikið til við barnapöss­un­ina.

Hún og maður hennar, Óli Már Guð­munds­son, tóku saman er Inga var 16 ára gömul og tveimur árum síðar gengu þau í hjóna­band. „Ég sagði við mann­inn minn að ann­að­hvort skyldi hann gift­ast mér eða við myndum hætta saman. Ég held að hann hafi ekki þorað annað en að gift­ast mér, slíkir voru afar­kost­irnir. En á þessum tíma var þetta voða mikið svona og þótti eðli­legt að unga fólkið væri að binda sig enda lítið annað í boði þarna. Það voru allir að gera það og mér fannst þetta eðli­leg­asti hlutur í heimi,“ segir Inga, sem var orðin fjög­urra barna móðir 28 ára gömul.

Á hælaskónum í Smuguna

Óli Már, eig­in­maður Ingu, var í fyrstu á neta­bát og fór þá í dag­róðra en síðar meir fór hann í lengri túra á tog­urum. Aðspurð seg­ist hún aldrei hafa aðlag­ast því almenni­lega að vera sjó­manns­kona. „Ég get alveg fífl­ast með að það hafi verið ynd­is­legt að vera laus við hann af heim­il­inu en mér fannst aldrei gott þegar hann var á þessum tog­urum og að hafa hann aldrei heima. Ég var eig­in­lega í byrjun alltaf hálf­feimin við hann þegar hann kom í land en það vand­ist auð­vitað eins og annað. Það hjálp­aði að það voru margar konur í kringum mig í sömu sporum og við vorum mjög nánar,“ segir Inga sem fór nokkrar veiði­ferðir sem kokkur og þar með talið með Sig­ur­björg­inni ÓF í Barents­hafi.

„Þarna mætti ég í hæla­skóm og söngdívu­dress­inu. Það var algjört auka­at­riði að ég kynni eitt­hvað að elda því það bráð­vant­aði kokk á síð­ustu stundu. Ég fékk vin­konu mína til að passa og skellti mér bara með því okkur sár­vant­aði pen­ing. Tog­ara­lífið fannst mér mjög skemmti­legt og strák­arnir voru mjög hrekkj­óttir. Þetta var algjört ævin­týri.“

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Grasið ekkert grænna

Árið 1994 flutti Inga með fjöl­skyld­unni til Reykja­víkur og fór þá að leigja íbúð hjá Öryrkja­banda­lag­inu. Óli Már maður hennar stefndi á að klára nám sitt í raf­einda­virkjun. Í flutn­ing­unum vildi ekki betur til en svo að hann hand­leggs­brotn­aði og það átti heldur betur eftir að draga dilk á eftir sér. „Lækna­mis­tök ofan á lækna­mis­tök urðu til þess að hann glímdi við þetta í sex ár. Aldrei fengum við það bætt. Við gengum þarna í gegnum algjöran hryll­ing, nýflutt í borg­ina og höfðum litla sem enga fram­færslu. Þetta var alveg hræði­legt tíma­bil og mjög erfitt að rifja upp þar sem við gátum ekki veitt börn­unum okkar það sem við vildum. Við gátum ekki einu sinni nurlað saman í strætókort svo að elsti sonur okkar gæti kom­ist í það iðn­nám sem hann lang­aði virki­lega til,“ segir Inga sem aug­ljós­lega á erfitt með að rifja upp þetta tíma­bil ævinnar. „Þetta var mikið áfall fyrir okkur og von­brigðin svo mikil að mað­ur­inn minn hrundi algjör­lega í allri þess­ari fátækt. Hremm­ing­arnar voru svo hrika­legar að við skildum. Þessi tími var alveg hræði­legur. Löngu síðar átt­aði ég mig á því að grasið er ekk­ert grænna hinum megin við læk­inn, heima er best. Ég segi auð­vitað stundum við Óla Má hversu hund­leið­in­legur hann sé en fæ bara fal­legt bros til baka og með því fylgir alltaf: „ég elska þig líka“.“

Gítarfingurinn fór í X-Factor

Árið 1991 varð Inga fyrsti og eini Íslands­meist­ar­inn í kara­ókí. Hún sigr­aði með lag­inu Greatest Love of All með söng­kon­unni sál­ugu Whitney Houston, í Ölveri í Glæsibæ. Hún gerði síðan garð­inn frægan í hæfi­leika­keppn­inni X-Factor árið 2007 þar sem hún missti framan af fingri er hún lék í aug­lýs­ingu með öðrum kepp­endum. „Ég man vel að þegar ég var kynnt sem Íslands­meist­ari í kara­ókí þá brosti ég svo mikið að mig verkj­aði bak við eyrun, hug­hrifin voru svo mikil. Það var svo vin­kona mín sem skráði mig í þessa X-Factorkeppni en sjálf vissi ég ekk­ert hvað þetta var. Ég komst nú alveg gletti­lega langt í keppn­inni. Þetta var mikið ævin­týri en ég hefði sleppt því hefði ég vitað að ég myndi missa af fingrinum því þar fór aðal­gít­ar­putt­inn minn. Aldrei fékk ég neinar bætur fyrir.

Ég er voða­lega hvat­vís og ef ég tek eitt­hvað að mér, sér­stak­lega ef ég held að það sé eitt­hvað skemmti­legt, þá fær mig ekk­ert ofan af því,“ segir Inga bros­andi.

Fátækt og fötlun hindraði nám

Ingu fannst dásam­legt að kom­ast í nám, orðin mið­aldra, eftir að hafa upp­lifað von­brigði í æsku þar sem ekki voru til pen­ingar til að kosta hana til náms. Inga ætl­aði sér aldrei að verða stjórn­mála­maður heldur var stóri draum­ur­inn að læra lækn­is­fræði. „Fátæktin á heiml­inu var svo mikil að það var ekki hægt að senda okkur í fram­halds­skóla. For­eldrar mínir þurftu að velja á mili mín og eldri bróður míns. Hann fékk að fara þó að ég hefði grát­beðið þau um að leyfa mér að fara, mig lang­aði svo til að læra. En það var bara ekki hægt og það var auð­vitað mjög sárt og dap­urt,“ segir Inga.

„Ég hef alltaf haft mikla náms­þrá og mig lang­aði ávallt til að verða læknir. Fötlun mín kom hins vegar í veg fyrir það og laga­deildin vildi heldur ekki sjá mig, þar rak ég mig á veggi þar sem sjónin háði mér. Í gegnum stjórn­mála­fræð­ina náði ég svo að smygla mér bak­dyra­megin inn í laga­deild­ina og kláraði hana á afmæl­is­degi mömmu rétt áður en ég álp­að­ist inn í póli­tík­ina.“

Algjör skömm

Þegar Inga heyrði fjallað um fjölda barna á Íslandi sem lifðu í fátækt ákvað hún að stofna stjórn­mála­flokk. Hún segir skömm­ina sem fátækt­inni fylgir vera ömur­lega. „Það er algjör­lega ömur­leg upp­lifun að geta ekki keypt neitt fyrir barnið sitt og leyft því að kom­ast í dans, tón­list, íþróttir eða tóm­stundir. Maður finnur algjöran van­mátt. Skömmin sem þessu fylgdi hjá mér var svo mikil að ég þorði ekki að fara í röð til að biðja um mat. En ein­hvern veg­inn þrauk­uðum við gegnum þetta og lifðum ein­hvern veg­inn af,“ segir Inga og heldur áfram: „Erf­ið­leikar okkar voru hví­líkir að ég skil af öllu hjarta þann skort sem fátækir upp­lifa í sam­fé­lag­inu í dag. Þegar ég heyrði þessar svaka­legu tölur um raun­veru­lega fátækt barna ákvað ég að stofna stjórn­mála­flokk með það að mark­miði að útrýma fátækt á Íslandi. Ég sagði það við Óla og hann svar­aði: „Já, já, gerðu það bara,“ og trúði því ekk­ert endi­lega. Í dag seg­ist hann auð­vitað alltaf hafa verið hand­viss um að ég myndi rjúka á þing.“

„Ég skil af öllu hjarta þann skort sem fátækir upp­lifa í sam­fé­lag­inu í dag.“

Erfiður bróðurmissir

Það er ljóst á frá­sögn Ingu að fátæktin hefur markað djúp spor í hennar sögu. Aðspurð hver hafi verið erf­ið­asta lífs­reynslan fram til þessa segir Inga það hafa verið bróð­ur­missi árið 1988. Eldri bróðir hennar, Sigurjón Helgi Ást­valds­son, drukkn­aði þá við annan mann við Siglunes í miklu óveðri sem skyndi­lega skall á. „Þarna missti ég minn albesta vin og gekk í gegnum hrika­legt áfall þegar hann dó. Þegar dauð­inn kom og ást­vinur fór stóð ég algjör­lega tóm og varn­ar­laus eftir. Hann var mik­ill tón­list­ar­maður og svo ótrú­lega glæsi­legur maður, eig­in­lega allar stelp­urnar skotnar í honum. Þetta hafði gríð­ar­lega mikil áhrif á mig og þarna lærði ég að taka líf­inu aldrei sem sjálf­sögðum hlut. Frá þessum tíma­punkti hætti ég að vor­kenna sjálfri mér, brosti framan í alla og ákvað að gera allt sem mér dytti í hug,“ segir Inga.

Eftir að hafa sjálf alist upp við fátækt og erf­ið­leika er það ein­lægt mark­mið Ingu að útrýma fátækt á Íslandi. Mynd / Hallur Karlsson

Alltaf að berjast

Inga segir það hafa verið algjör for­rétt­indi að hafa alist upp á Ólafs­firði og hennar draumur sé að snúa þangað aftur í ell­inni. Áður en hún gerir það ætlar hún sér að útrýma fátækt á Íslandi. Hún stofn­aði Flokk fólks­ins árið 2016 og sett­ist ári síðar inn á þing.

„Það var svo mikil nánd, kær­leikur og vin­skapur þar sem ég ólst upp. Þessu fylgdi svo mikið frelsi líka. Draum­ur­inn er að þegar ég verð gömul þá ætla ég að fara heim til Ólafs­fjarðar og njóta mín í gamla hús­inu mínu,“ segir Inga dreymin en snýr sér fljótt aftur að alvör­unni. „Ég berst gegn fátækt á Íslandi, bæði út frá erf­ið­leik­unum og fátækt­inni sem ég upp­lifði í æsku og einnig vegna þeirra erf­ið­leika og fátæktar sem ég hef barist við sjálf með mína fjöl­skyldu og börn. Ég hef í raun­inni alltaf þurft að berj­ast.“

Öryrki á ofurlaunum

Borið hefur á gagn­rýni á Ingu eftir að hún sett­ist á þing fyrir það að búa áfram í íbúð sem hún og Óli Már fengu úthlutað á vegum Öryrkja­banda­lags­ins er þau fluttu til Reykja­víkur. Hún segir öfund­ina og ill­girn­ina tak­marka­lausa. „Það er mjög erfitt og tekur tíma með fötlun að aðlaga sig nýju umhverfi og fyrir mér var óljóst hversu lengi ég yrði þarna á þingi. Það hefði því verið mjög erfitt að þurfa að fara annað en í stað­inn fór ég fram á að borga meira í leigu á meðan ég væri öryrki á ofur­launum. Það hefði ég aldrei þurft að gera og eng­inn talar um það,“ segir Inga. „Ég er hins vegar ekki öryrki sem á fullt af pen­ingum í skatta­skjóli. Vegna fötl­unar hef ég leigt þarna frá 1994 og það er bara verið að reyna með öllum ráðum að ata mig auri. Ég hef baslað meira og minna alla ævi. Ég er ekk­ert viss um að fókið sem talar svona um mig öfundi mig líka vegna allra erf­ið­leik­ana sem ég hef upp­lifað. En þrátt fyrir þá og alla fátækt­ina er ég samt þakk­lát.“

„Ég brotn­aði bara niður enda er ég bara mann­leg. Ég skamm­ast mín alls ekki fyrir þetta.“

Mega kalla mig grenjuskjóðu

Ingu verður heitt í hamsi þegar fjöl­miðla­um­ræðu ber á góma sem hún telur vera oft og tíðum afar ósann­gjarna í sinn garð. Hún segir Flokk fólks­ins lít­inn flokk sem hafi unnið stóra sigra fyrir eldra fólk og öryrkja. „Við erum svo jað­ar­sett og fáum alveg ofboðs­lega litla fjöl­miðlaum­fjöllun. Það er alveg ein­stakt hvað við höfum gert en um það ríkir algjör þöggun. Ég er til vand­ræða og menn vilja losna við okkur. En ég er komin með svo þykkan skráp og fjöl­miðla­menn virð­ast bara vilja skrifa með slá­andi fyr­ir­sögnum um mig,“ segir Inga ákveðin. Aðspurð um það þegar hún beygði af í beinni útsend­ingu kosn­inga­sjón­varps seg­ist hún bara ekk­ert hafa ráðið við sig. „Það segja margir að ég hafi grátið mig inn á þing og það má alveg kalla mig grenju­skjóðu. Það er skrítið að rifja þetta upp því það var ekki til í mér að ætla að beygja af þarna en mér var eitt­hvað svo nóg boðið vegna allra þess­ara sviknu lof­orða og allra þess­ara lyga að þjóð­inni. Ég brotn­aði bara niður enda er ég bara mann­leg. Ég skamm­ast mín alls ekki fyrir þetta.“

„Því miður eru stjórn­mála­menn gegn­um­heilt miklir lygarar og mér ofbýður oft slæm fram­koman og rang­indin.“

Þingið er fáránlegt

Inga segir Klaust­urs­málið fræga hafa kennt sér að ekki séu allir við­hlæj­endur í póli­tík vinir hennar. Hún er enn að jafna sig eftir áfallið sem hún varð fyrir. „Ég virð­ist vera svo mik­ill töffari að ég var þarna aðal­um­ræðu­efnið í langan tíma. Þetta kom mér mjög á óvart en ég mun jafna mig. Mér þykir alltaf jafn­óþægi­legt að horfa á þetta fólk og þurfa að vinna í návígi við það. Það ýfir alltaf upp sárin og ég tel að þau óþæg­indi hverfi aldrei. Helst hefði ég viljað að ég þyrfti aldrei að sjá fólkið aftur því það er því miður þannig að ég kann ekki vel við það eftir þessa upp­lifun,“ segir Inga sem skilur ekki mikið í Alþingi sem vinnu­stað.

„Því miður eru stjórn­mála­menn gegn­um­heilt miklir lygarar og mér ofbýður oft slæm fram­koman og rang­indin. Hér hefur fátækt verið við­haldið í ára­tugi og þetta er mann­anna verk. Mér finnst svo dap­urt stundum að geta ekki gert meira í því að bæta hlut­ina fyrir þá sem það þurfa. Á þing­inu hef ég verið að berj­ast við vind­myllur því það er aldrei hægt að laga neitt, hvorki í góð­æri né kreppu. Ég hef aldrei vitað annan eins vinnu­stað og þingið, það er eig­in­lega alveg fárán­legt.“

Ætlar að útrýma fátækt

Inga lýsir sér sjálfri sem til­finn­inga­ríkum mann­vini sem sé á sama tíma nagli. Fyrir þremur árum ætl­aði hún að gift­ast Óla Má á nýjan leik eftir að þau tóku saman aftur en hefur ekki haft tíma til þess eftir að hún fór á þing. Aðspurð um hvert hún stefni er Inga með hug­ann við meist­ara­nám í lög­fræð­inni en umfram allt ætlar hún að berj­ast áfram í því að hjálpa fátækum á Íslandi. Hún seg­ist samt ekki ætla að hætta að vera góð móðir og amma. „Ég á ótrú­lega sæta krakka og hrika­lega flottan kall. Ég ætla mér að útrýma fátækt á Íslandi og mun ekki gef­ast upp fyrr en ég hef náð því. Þá langar mig til að verða lög­maður og kom­ast í að hjálpa akkúrat þeim sem lenda í þeim aðstæðum sem ég hef sjálf upp­lifað. Þá ætla ég að halda áfram að brosa framan í óvin­ina því þeim veitir ekki af því.“

Lestu við­talið við Ingu í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ