Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mótlætið styrkir mann

Mótlætið styrkir mann
Bjarni Bene­dikts­son.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er bjart­sýnn þrátt fyrir erf­iða stöðu tengda COVID 19-heims­far­aldr­inum. Hann seg­ist trúa því að Íslend­ingar muni koma hraðar til baka heldur en flestar aðrar þjóðir meðal ann­ars vegna þess að við höfum sjálf­stæðan gjald­miðil. Bjarni er mik­ill fjöl­skyldu­maður, nýorð­inn afi og hann notar úti­vist til að rækta lík­ama og sál.

Spritt­brúsi stendur á skrif­borð­inu. Heims­far­ald­ur­inn COVID-19 sýnir sig með þessum hætti inni á skrif­stofu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

„Það er óum­flýj­an­legt að sam­fé­lagið allt verður fyrir höggi vegna far­ald­urs­ins og atvinnu­leysi er það sem er ástæða til að hafa mestar áhyggjur af. Ég hef hins vegar mjög sterka sann­fær­ingu fyrir því að við getum komið sterk út úr far­aldr­inum; við komum í sterkri stöðu inn í þessa efna­hagslægð en það er gríð­ar­lega dýr­mætt að hafa búið í hag­inn fyrir erf­ið­ari tíma. Við njótum góðs af því núna. Svo fengum við fyrir nokkrum dögum stað­fest­ingu á láns­hæf­is­mati rík­is­sjóðs.“

Í vik­unni var til­kynnt að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið áætli að áhrif mót­vægis ráð­staf­ana stjórn­valda á sjóðs­streymi rík­is­sjóðs á yfir­stand­andi ári vegna kór­ónu­veirunnar nemi ríf­lega 200 millj­örðum króna eða sem svarar til um 7 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu.

Bjarni segir að rík­is­sjóður þoli nokkuð þungt högg. „Við getum tekið mörg lán til þess að fást við skamm­tíma­á­hrifin vegna COVID-19 og við munum taka mjög há lán núna til þess að styðja við fólk og fyr­ir­tæki og sömu­leiðis til þess að fara í fram­kvæmdir. En það sem öllu máli skiptir er að við getum síðan sýnt fram á að við getum verið sjálf­bær þegar við höfum fundið nýtt jafn­vægi. Rík­is­sjóður getur ekki bæði tekið á sig höggið af því sem er núna að ger­ast og rekið sig síðan með ósjálf­bærum hætti í fram­tíð­inni; það er eig­in­lega lyk­il­at­riðið. En við ráðum alveg við það sem við höfum þegar ákveðið en það verður mjög mikil breyt­ing. Skulda­hlut­föllin versna og vaxta­byrðin sömu­leiðis. Það er þó þess virði vegna þess að við náum með þessum aðgerðum að draga úr dýpt efna­hagslægð­ar­innar; ef maður notar sama lík­inga­mál og menn gera með útbreiðslu kór­ónu­veirunnar þá náum við að fletja út þessa kúrfu og munum koma sterk­ari út úr þessu vegna þeirra aðgerða sem við erum að grípa til.“

„Við komum í sterkri stöðu inn í þessa efna­hagslægð en það er gríð­ar­lega dýr­mætt að hafa búið í hag­inn fyrir erf­ið­ari tíma. Við njótum góðs af því núna. Svo fengum við fyrir nokkrum dögum stað­fest­ingu á láns­hæf­is­mati rík­is­sjóðs.“

Bjarni seg­ist trúa því að Íslend­ingar muni koma hraðar til baka heldur en flestar aðrar þjóðir meðal ann­ars vegna þess að hér á landi er sjálf­stæður gjald­miðil. „Það er líka vegna þess að við erum með vel mennt­aða þjóð og við höfum það sem er reyndar mjög dýr­mætt í þess­ari stöðu: Við höfum nýfengna reynslu af því að fara úr því að hafa fáa erlenda ferða­menn yfir í að hafa mjög marga. Þetta gerðum við bara síð­asta ára­tug. Við megum svo ekki gleyma öllu hinu sem bíður okkar á öðrum sviðum; við þurfum að sækja alls staðar fram. Það eru tæki­færi í orku­skiptum, við gerðum nýlega samn­ing um að stór­auka græn­met­is­fram­leiðslu í land­inu og það eru tæki­færi í mat­væla­fram­leiðslu sem fær mann til að hugsa um sjáv­ar­út­veg­inn sem þarf að halda áfram að sækja fram á mörk­uðum og fá betra verð og leiðir til þess að auka verð­mæti sjáv­ar­fangs. Við eigum enn þá tölu­vert mikla orku og ég er sann­færður um að fyrir utan það sem teng­ist mat­væla­fram­leiðslu þá liggi tæki­færi þar.

Svo eru það rann­sóknir og nýsköpun. Við gætum gert svo margt með skil­virk­ari hætti. Mér finnst eitt besta dæmið um það vera það sem við erum að gera með Stafrænu Íslandi sem hefur fengið aukna vigt með allri þeirri þörf sem skap­að­ist fyrir staf­ræna þjón­ustu með COVID-19. Við eigum stöðugt að spyrja okkur hvort við getum gert betur og leita nýrra leiða til að takast á við áskor­anir. Og ekki síst eigum við að nýta auð­lindir í víðu sam­hengi skyn­sam­lega hvort sem þær auð­lindir eru hug­vit, tími eða nátt­úran sjálf. Ég hef stundum sagt að við eigum að koma út úr þessu sem sterkara Ísland og ég get sagt að við ætlum að fara í nýja upp­færslu. Það verður Ísland 2.0. Og það gildir bæði fyrir opin­bera geir­ann og einka­geir­ann.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Samstíga stjórnarflokkar

Stjórn­ar­flokk­arnir þykja hafa verið sam­stiga í aðgerðum gegn COVID-19 og bara almennt. Sumir spáðu rík­is­stjórn­inni ekki lang­lífi og áttu ekki von á að flokk­arnir þrír gætu unnið saman. Friður og traust virð­ist hins vegar ríkja á milli flokk­anna.

„Það hefur tek­ist gott sam­starf við að móta til­lögur til lausnar. Ég held að við höfum snemma sam­mælst um nokkra mik­il­væga þætti eins og að fylgja góðum ráðum þeirra sem best þekkja til, hlusta eftir reynslu ann­arra og líka að draga lær­dóm af því sem við sjálf höfum áður gengið í gegnum. Það hefur slíp­ast til í þessu stjórn­ar­sam­starfi í gegnum öll þau mál sem við höfum þurft að fást við þannig að það er bara gott traust á milli fólks.“
Bjarni segir að gott sam­starf og traust sé á milli hans og Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. „Það að vera góður sam­starfs­maður felur í sér í huga mínum að maður viti hvað við­kom­andi vill þegar við erum sam­mála og líka þegar við erum ósam­mála. Ég held að þannig sam­starf hafi verið milli okkar allra í for­ystu rík­is­stjórn­ar­innar, for­manna flokk­anna þriggja og reyndar bara gott sam­starf á milli ráð­herr­anna almennt.“

Bjarni segir að það sem hafi komið sér mest á óvart í sam­starfi þeirra Katrínar sé hvað þau nálgist oft mál með ólíkum hætti. „Þá á ég til dæmis við að Katrín getur verið smá­muna­sam­ari en ég hef til­einkað mér og það getur verið mik­ill kostur en stundum finnst mér það vera galli.“

Bjarni segir að hann geti ekki sagt að það hafi margt komið sér á óvart varð­andi sam­starf stjórn­ar­flokk­anna en ef hann ætti að nefna eitt­hvað þá segir hann að það geti verið tölu­verð vinna að vera með þrjá flokka við borðið. „Oft og tíðum fer meiri tími og meiri vinna í það að stilla saman strengi en ég hefði kannski gert ráð fyrir. Ég er almennt ánægður í þessu stjórn­ar­sam­starfi. Ég held að við séum með sam­setn­ingu á rík­is­stjórn sem henti lang­best við þær aðstæður sem eru uppi í land­inu og blöstu við eftir síð­ustu kosn­ingar.“

„Ég er almennt ánægður í þessu stjórn­ar­sam­starfi. Ég held að við séum með sam­setn­ingu á rík­is­stjórn sem henti lang­best við þær aðstæður sem eru uppi í land­inu og blöstu við eftir síð­ustu kosn­ingar.“

Bjarni segir að fyrir nokkrum árum hefði hann ekki getað séð fyrir sér að Sjálf­stæð­is­flokku­irnn og Vinstri græn gætu myndað saman rík­is­stjórn.
„Það hafði gengið mjög margt á eftir hrun og auð­velt að nefna dæmi eins og Lands­dóms­málið, aðild­ar­um­sókn­ina að Evr­ópu­sam­band­inu og mjög ólíkar áherslur í skatta­málum svo nokkur dæmi séu tekin sem maður hefði ætlað fyrir fram að úti­lok­uðu sam­starf. Það sem gerð­ist síðan ein­fald­lega eftir snemm­búnar kosn­ingar 2016 og aftur 2017 er að við höfðum ein­fald­lega skyldu til að leggja okkur fram um að gera það sem hægt var í stöð­unni. Við sett­umst niður og þegar við lögðum til hliðar þessi hefð­bundu ágrein­ings­mál þá fundum við alveg nógu marga stóra snertifleti til þess að setja saman rík­is­stjórn. Og ég held að þetta hafi verið hár­rétt mat hjá okkur.“

Makríllinn

Bjarni hefur verið mjög harð­orður í mak­ríl­mál­inu og er hann spurður hvað honum finn­ist um að útgerðir hafi verið að herja á rík­is­sjóð.
„Ég er þeirrar skoð­unar í mak­ríl­mál­inu að ríkið hafi haft mjög góðar varnir. Þær byggð­ust á
sterkum, laga­legum rökum þannig að ég vildi halda því alltaf til haga að við vorum til­búin til þess að taka til varna og ég hafði ágætar vænt­ingar um að við myndum hafa árangur í vörn­inni. Engu að síður verður maður alltaf að gera ráð fyrir því að svona mál geti farið illa. Það voru hafðar uppi þarna gríð­ar­lega háar kröfur sem mér fannst alger­lega óverj­andi að skatt­greið­endur í land­inu myndu bera kostn­að­inn af. Þetta var í raun og veru í grunn­inn ágrein­ingur um það hvernig afla­heim­ildir í mak­ríl­veiðum dreifð­ust inn­byrðis á milli þeirra sem ætl­uðu að stunda veið­arnar.

„Það voru hafðar uppi þarna gríð­ar­lega háar kröfur sem mér fannst alger­lega óverj­andi að skatt­greið­endur í land­inu myndu bera kostn­að­inn af.“

Ef rík­is­sjóður átti að sitja uppi með 10 millj­arða króna kostnað vegna þess hvernig sú ákvörðun var tekin þá vildi ég bara að það væri skýrt að ég myndi leggja til að það kæmi á end­anum með ein­hverjum hætti aftur út úr sjáv­ar­út­veg­inum, og út úr mak­ríl­veið­unum sér­stak­lega, ein­fald­lega vegna þess að mér fannst það vera óverj­andi að sá reikn­ingur end­aði hjá skatt­greið­endum.“

Ýmiss konar gagnrýni

Flokks­for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur und­an­farin ár legið undir ýmiss konar gagn­rýni svo sem frá flokks­mönnum, ann­ars vegar frá þeim sem telja flokk­inn vera of íhalds­saman og hins vegar frá þeim sem telja hann ekki vera nægi­lega íhalds­saman og ekki voru allir ánægðir með þegar flokk­ur­inn fagn­aði 90 ára afmæl­inu að fólk úr öðrum stjórn­mála­flokkum mætti. „Við efndum til mjög lát­lausrar athafnar á Val­hall­ar­reitnum og ef menn geta ekki á svona hátíð­ar­degi lyft sér upp yfir hin dag­legu ágrein­ings­mál á vett­vangi stjórn­mál­anna þá held ég að það sé illa komið fyrir mönnum. Þetta var hátíð­ar­stund og gleði­dagur og ég var bara ánægður með að fá fólk úr öðrum flokkum til að segja að það gledd­ist með okkur þennan dag.“

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, hefur gagn­rýnt for­ystu­menn flokks­ins í rit­stjórn­ar­skrifum og finnst flokk­ur­inn hafa villst af leið í póli­tík. Bjarni segir að sumt af því sem lögð er áhersla á í Morg­un­blað­inu hafi komið sér á óvart. „Mér finnst Morg­un­blaðið heilt yfir almennt vera að tala fyrir til dæmis efna­hags­stefnu sem er lík­leg til árang­urs en mér finnst alveg hafa verið dæmi um áherslur í blað­inu sem ég finn ekki sam­leið með.“ Bjarni er spurður hvort það andi köldu á milli þeirra Davíðs. „Ég upp­lifi það ekki þannig. Það eru ein­fald­lega ekki mikil sam­skipti eins og staðan er.“

Varðandi frek­ari gagn­rýni þá hefur flokks­for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins meðal ann­ars verið gagn­rýnd fyrir að svíkj­ast undan merkjum með því að sam­þykkja Icesave-samn­ing­inn, fyrir að hafa heykst á að aft­ur­kalla umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu, fyrir að hafa farið gegn vilja flokks­ins í þriðja orku­pakka­mál­inu og fyrir að fara ekki gegn þung­un­ar­rofs­frum­varp­inu.
Hvernig finnst Bjarna að sitja undir þess­ari gagn­rýni?

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég verð að lýsa mig ósam­mála á þess­ari lýs­ingu á fram­göngu flokks­ins. Tökum bara Evr­ópu­sam­bands­málið sem dæmi. Við greiddum atkvæði gegn aðild­ar­um­sókn við Evr­ópu­sam­bandið; við lögðum til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um umsókn­ina strax í upp­hafi. Í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins leystum við upp samn­inga­nefnd­ina. Evr­ópu­sam­band­inu var til­kynnt að við­ræð­unum væri lokið og menn benda þá á þetta forms­at­riði að aft­ur­kalla umsókn­ina með sér­stakri þings­á­lyktun sem í mínum huga er orðið algert auka­at­riði í stóra sam­hengi hlut­anna. Það eru engar við­ræður í gangi við Evr­ópu­sam­bandið og það myndi eng­inn flokkur láta sér detta það í hug að fara aftur af stað án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu eins og ég les stöð­una núna. Þannig að ég sé ekki Evr­ópu­sam­bandið sem eitt­hvert mál sem Sjálf­stæð­is­menn sem ekki vilja ganga inn í sam­bandið ættu að vera ósáttir við.

Icesave-málið á sér langa sögu og við börð­umst gríð­ar­lega hart gegn fyrstu samn­ing­unum en við flest í þing­flokknum stóðum með síð­ustu samn­ing­unum í Icesave sem við síðan lögðum til að færi til þjóð­ar­innar í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Og það gerð­ist reyndar ekki nema fyrir til­stilli þáver­andi for­seta. Ég tel að þau rök sem við höfðum fyrir máli okkar á þeim tíma stand­ist vel skoðun. Ég vil meina að bar­átta okkar í því máli hafi skilað gríð­ar­lega miklum árangri.

Önnur mál sem nefnd voru finnst mér ein­fald­lega ekki vera af þeirri stærð­argráðu að það eigi að kalla fram mikla óánægju innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hvort sem það heitir þriðji orku­pakk­inn eða annað.“

Bjarni er kom­inn með harðan skráp og seg­ist hafa lært ákveðna auð­mýkt með tím­anum þegar kemur að gagn­rýni. „Maður lærir að bera virð­ingu fyrir ólíkum sjón­ar­miðum. Ég ætla ekki að segja að þetta sé alltaf auð­velt. En mót­lætið styrkir mann. Með því að sigr­ast á erf­ið­leikum þá verður maður sterk­ari til þess að fást við enn erf­ið­ari mál.“

Femínisti

Flokks­for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur verið hrósað fyrir að fara með flokk­inn í átt til fram­tíðar – að verið sé að breyta ásýnd flokks­ins og nútíma­væða hann.
„Þjóð­fé­lagið hefur breyst. Það er ekki sama stóra málið og áður var að við til dæmis deilum ábyrgð­inni á að stýra sam­fé­lag­inu, karlar og konur. Mér finnst það ekki hafa verið sama stóra, djarfa ákvörð­unin hjá mér að kalla konur úr þing­lið­inu til for­ystu í flokknum eins og það hefði kannski verið fyrir 20 árum. Við vorum með of langa sögu þess að það hall­aði á konur í flokknum og mér fannst þurfa að bregð­ast við því. Þetta er eitt af því sem ég held að margir hugsi um þegar talað er um ásýnd flokks­ins. En kannski líka ekk­ert síður það að við höfum fengið ungt fólk til for­ystu í flokknum og það finnst mér líka mik­il­vægt. Mér finnst mjög mik­il­vægt að senda þau skila­boð út í sam­fé­lagið að við eigum að treysta ungu fólki og ungt fólk með reynd­ara fólki getur haft gríð­ar­legu miklu hlut­verki að gegna. Og fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn skiptir máli að við eigum full­trúa ólíkra ald­urs­hópa til þess að færa inn í umræð­una sjón­ar­mið og áherslur þess­ara ólíku hópa við mótun á lögum og reglum. Þannig hef ég lagt áherslu á að við erum flokkur sem á að geta höfðað til allra Íslend­inga um allt land á öllum aldri. Við erum flokkur sem vill tryggja ákveðið jafn­vægi í sam­fé­lag­inu þar sem við trúum á kraft­mikið efna­hags­líf og þéttriðið vel­ferð­ar­net og frelsi ein­stak­lings­ins.“

Bjarni er umkringdur sterkum konum í rík­is­stjórn og í eigin flokki sem hafa talað fyrir rétt­indum kvenna og jafn­rétti. Er Bjarni femínisti? „Ég er það. Ég hef oft setið með hörðum femínistum og fengið þessa spurn­ingu og ég svara þess­ari spurn­ingu alltaf ját­andi.“

Fótbolti, handbolti og U2

Bjarni Bene­dikts­son er Garð­bæ­ingur og hefur búið þar alla tíð nema þegar hann bjó erlendis upp úr tví­tugu.

Hand­bolti og fót­bolti var aðal­á­huga­málið á æsku- og ung­lings­ár­unum og Bjarni æfði og keppti hjá Stjörn­unni.

Hljóm­sveit­irnar Wham og Duran Duran voru alls­ráð­andi á þessum árum og er ráð­herr­ann spurður hvort hann hafi verið Wham- eða Duran Duran-maður. „Ég man eftir þessu; maður varð að gera upp á milli þess­ara tveggja hljóm­sveita. Ég var frekar Duran Duran-maður en ég var þó mest fyrir U2.“

Faðir Bjarna var hæsta­rétt­ar­lög­maður og sat Bjarni oft á mennta­skóla­ár­unum og lærði á lög­manns­skrif­stofu hans. „Ég hafði svo­lítið drukkið það í mig að lög­manns­starfið væri spenn­andi sem og leynd­ar­dómar lög­fræð­innar sem fylgja því að vera inni á lög­manns­stofu innan um alla skjala­bunk­ana, dóma­safnið og gömlu fræði­bæk­urnar. Það tog­aði dálítið í mig.
Ég hóf nám í lög­fræði við Háskóla Íslands eftir stúd­ents­próf og var dálítið óviss um hvort ég væri að velja rétt en þegar upp var staðið var ég bara mjög ánægður í nám­inu.“

Bjarni seg­ist aðeins hafa tekið þátt í starfi ungra Sjálf­stæð­is­manna í Garða­bænum eftir tví­tugt og var for­maður um hríð. „Ég átti marga vini í Garða­bænum sem tengd­ust starf­inu auk þess sem pabbi var odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í bæj­ar­stjórn­inni. Ég ólst upp við það að bera út Garða, sem er mál­gagn Sjálf­stæð­is­manna í Garðabæ, og gekk auk þess í göt­una okkar og seldi happ­drætt­is­miða fyrir Sjálf­stæð­is­fé­lagið í bænum.“

Sumir hafa sagt í gegnum árin að Bjarni hafi fæðst með silf­ur­skeið í munn­inum og að hann skorti þaf af leið­andi skiln­ing á aðstæðum þeirra sem búa að annarri reynslu. „Ég held að ég njóti góðs af því að hafa alist upp á hóg­væru og öruggu heim­ili. Ég gekk í gegnum sama skóla og íþrótta­starf og aðrir og hef þurft að sækja árangur minn á mínum eigin for­sendum. Þótt fjár­hags­legt öryggi sé mik­il­vægt ver það ekki fólk fyrir áföllum í líf­inu. Ég þekki engan sem er kom­inn á full­orð­insár sem ekki hefur þurft að takast á við ein­hverja erf­ið­leika. Ég hef auð­vitað fundið fyrir því að fólk vísar í þennan bak­grunn minn til þess að halda því á lofti að mann skorti skiln­ing á aðstöðu fólks. En ég hef eig­in­lega ekk­ert annað um þetta að segja en að fara fram á að ég verði dæmdur af verkum mínum. Og þegar fólk fer yfir það sem ég hef verið að beita mér fyrir, svo sem hvernig fram­lög til hinna ýmsu mála­flokka hafa verið að þró­ast þann tíma sem ég hef verið hér í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, þá held ég að það sjá­ist að við höfum lagt metnað í að gera Ísland að betra sam­fé­lagi, fyrir alla.“

Orðinn afi

Æskuást og eig­in­kona Bjarna er Þóra Margrét Bald­vins­dóttir. Þau kynnt­ust í grunn­skóla og voru í sama vina­hópnum. „Svo leiddi eitt af öðru og smám saman fórum við að vera saman.“ Bjarni er spurður hvað sé mest heill­andi við Þóru. „Það er kannski fag­ur­ker­inn í henni og hún nær að gera allt fal­legt og skemmti­legt í kringum sig. Hún er ótrú­lega góð mamma og heldur heim­il­inu gang­andi í fjar­veru minni. Hún er líka traustur vinur.“
Hjónin eign­uð­ust sitt fyrsta barn þegar Bjarni var 21 árs og Þóra Margrét tví­tug. Þau eiga fjögur börn á aldr­inum 8-28 ára.

Fyrsta barna­barnið fædd­ist í vor. Bjarni seg­ist grín­ast með að því fylgi virð­ing­ar­staða í sam­fé­lag­inu að vera orð­inn afi. „Ég finn fyrir því að maður fær aukna vigt við það að verða afi. Það er ekki spurn­ing. Ég upp­lifi mikil tíma­mót. Svo varð ég líka fimm­tugur í upp­hafi árs og lífið heldur áfram. Svona leiðir það mann inn á skemmti­legar, nýjar brautir. Það er ekki síst gaman að sjá hvað for­eldrar afa­barns­ins hafa blómstrað í hlut­verki sínu; þeir fá þarna nýtt hlut­verk og allt breyt­ist.“

„Ég finn fyrir því að maður fær aukna vigt við það að verða afi. Það er ekki spurn­ing. Ég upp­lifi mikil tíma­mót.”

Hvað fjöl­skyldu­lífið varðar segir Bjarni að þau hjónin reyni að hafa börnin glöð og að þau nái árangri í því sem þau séu að fást við. „Við reynum að fá þau til að skilja að það ger­ist ekk­ert nema að leggja sig fram og ef það er gert þá sé allur heim­ur­inn undir og allt sem þau geta látið sig dreyma um gæti orðið að veru­leika. Við reynum að halda hóp­inn og hafa reglu á heim­il­inu þannig að við borðum saman og nýju sam­skipta­for­ritin hjálpa okkur við að deila upp­lifun úr dag­lega líf­inu. Ég myndi segja að við værum sam­rýmd fjöl­skylda.“

Útivistarmaður

Það er mikið að gera hjá ráð­herr­anum og hann segir að sér hafi reynst erfitt að aðskilja vinnu og einka­líf.
„Það er mjög krefj­andi að vera með þetta hlut­verk og sinna á sama tíma stórri fjöl­skyldu. Ég reyni að gera mitt besta. Þetta eru langir dagar og verk­efnin koma með mér heim. Og þau koma með mér í frí. Síminn er harður hús­bóndi, maður er stans­laust í sam­skiptum. Þó að maður hefði viljað hafa meiri tíma til þess að sinna fjöl­skyld­unni þá hefur þetta allt gengið ein­hvern veg­inn.“

Bjarni seg­ist reyna að kúpla sig út úr álag­inu með því að stunda reglu­lega hreyf­ingu. „Ég hef mjög sterka þörf fyrir að hreyfa mig. Það er ekki bara til þess að ég hlaupi ekki í spik heldur fæ ég líka and­lega útrás með því. Ég þarf ein­hverja við­spyrnu. Eitt­hvert við­nám. Lík­am­legt við­nám. Ég lyfti lóðum, hjóla, veiði og fer í fjall­göngur. Ég var uppi á jökli um síð­ustu helgi. Ég hef mjög gaman af golfi en hef lítið getað sinnt því. Ég sæki í úti­veru. Auðvitað notar maður tón­list og hittir góða vini sína, fylgist með íþróttum og við fjöl­skyldan ferð­umst saman. Svo hef ég áhuga á ljós­myndun, mynd­list og bíó­myndum og leita þá yfir­leitt að því sem ekki er fram­leitt í Hollywood.“

Bjarni er spurður göngu­staðir séu í upp­á­haldi. „Ég held ég verði að segja að það sé Lauga­veg­ur­inn. Mögnuð leið og svo fjöl­breytt. Að koma inn í Þórsmörk er líka stór­kost­legt þegar far­inn er Fimm­vörðu­háls. Ég hef farið nokkuð víða, veitt um allt land, gengið á Horn­strandir, farið Strúts­stíg og komið upp á jökla. Í sumar ætla ég í Fljóta­vík en líka á Langanes, svo ég fer horn­anna á milli. Mývatn er einn allra fal­leg­asti staður á Íslandi fyrir utan Þing­velli og báðir staðir magn­aðir jafnt að vetri sem sumri. Mér finnst landið ein­fald­lega vera stór­brotið.“

Bjarni Bene­dikts­son. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Björt framtíð

Bjarni vill halda áfram að vinna fyrir Íslend­inga. „Ég hef gefið það út að ég hygg­ist gefa kost á mér áfram eftir lands­fund og það er í höndum flokks­manna að veita mér þá umboð eða ekki. Staðan hjá mér er ein­fald­lega sú að mér finnst ég vera að fást við mjög mik­il­vægt verk­efni og þau hafa vaxið að mik­il­vægi við þá atburði sem hafa nýlega orðið. Ég finn fyrir stuðn­ingi frá nán­asta sam­starfs­fólki mínu og ég finn fyrir hvatn­ingu frá því til að láta ekki verk úr hendi falla. Og það hjálpar mér. Ég hef líka stuðn­ing að heiman til þess að halda áfram. Við viljum vera áfram leið­andi afl í þessu þjóð­fé­lagi og byggja upp. Og ég er bara bjart­sýnn. Ég er til í slag­inn.“

Bjarni er spurður hvað Ísland sé í huga hans. „Það er fyrst og fremst fólkið sem býr hérna, menn­ingin sem við eigum, sagan okkar frá land­námi og sjálf­stæð­is­bar­áttan, að hafa kom­ist af hérna í gegnum ald­irnar undir ein­okun og í ein­angrun. Við höfum lifað af far­aldra og alls konar nátt­úru­ham­farir. Við Íslend­ingar áttum mjög erfitt um aldir og fyrir rúmri öld fluttu margir brott vegna fátæktar og fárra tæki­færa en við höfum síðan brot­ist til þess­arar ótrú­legu vel­sældar. Ísland er í dag á svo margan hátt fyr­ir­mynd­ar­ríki og á enn bjart­ari fram­tíð fyrir sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi