Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Til læknis tvisvar á dag, með tilheyrandi sársauka bæði líkamlegum og fjárhagslegum“

„Til læknis tvisvar á dag, með tilheyrandi sársauka bæði líkamlegum og fjárhagslegum“
Héðinn ekur um á mót­or­hjóli til að kom­ast leiðar sinnar og segir það ódýran og afar þægi­legan ferða­máta þar sem hit­inn í strand­bænum þeirra á Kosta Ríska fer sjaldan niður fyrir 30 gráður. „Þá getur einmitt verið til­valið að þeys­ast á milli staða og kæla kropp­inn um leið

„Það fylgir því ákveðið and­legt álag að vita til þess að þú sért mögu­lega að fara að missa útlim,“ segir Héðinn Svarfdal, veit­inga­maður og far­ar­stjóri á Kosta Ríka, sem lenti nýverið í alvar­legu mót­or­hjólaslysi, sem kost­aði hann næstum hægri fót­legg­inn.

„Senni­lega hef ég verið í losti, því að ég hefði átt að vita miklu betur en að fara að sofa eftir þetta slys, eins og ekk­ert væri.“

Héðinn býr með fjöl­skyldu sinni á Kosta Ríka þar sem þau reka veit­inga­stað­inn Xanadu í Guanacaste-hér­aði. Í lok síð­ustu viku fór örygg­is­kerfi stað­ar­ins í gang og eftir að hafa upp­lifað nokkur inn­brot á stuttum tíma þorði Héðinn ekki annað en að bregð­ast skjótt við og kanna málið. Hann rauk því af stað að heiman á mót­or­hjóli en í krappri beygju á leið­inni skaust stór eðla í veg fyrir hjólið þannig að Héðinn snar­heml­aði og sveigði fram hjá henni. Við það missti hann stjórn á hjól­inu og end­aði úti í veg­kanti með hjólið ofan á sér. Meiðslin sem hann hlaut voru það alvar­leg að síðar ótt­uð­ust læknar að fjar­lægja þyrfti annan fót­inn.

Mætti sárkvalinn í vinnuna

Hann seg­ist sem betur fer hafa náð að kom­ast undan hjól­inu og koma því í gang. „Mér þótti nokkuð merki­legt að hjólið fór næstum strax í gang og ég gat haldið ferð­inni áfram á veit­inga­stað­inn. Þar kom í ljós að dauð raf­hlaða í einum skynjar­anum hafði orðið til þess að kerfið fór í gang og ég gat því snúið aftur heim þar sem fjöl­skyldan tók hissa á móti mér.“

Héðinn fékk slæm bruna­sár eftir hljóð­kút hjóls­ins og að auki hafði hluti hjóls­ins skorist inn í hægri fót svo hann var sár­kval­inn. Þrátt fyrir það mætti hann í vinn­una næsta dag eins og ekk­ert hefði ískorist og datt ekki í hug að leita sér aðhlynn­ingar.

„Senni­lega hef ég verið í losti, því að ég hefði átt að vita miklu betur en að fara að sofa eftir þetta slys, eins og ekk­ert væri. Hvað þá að mæta bara í vinn­una næsta dag. „Nei, þetta er bara smá­hnjask,“ svar­aði ég bara þegar starfs­fólkið spurði hvort ég væri ekki þjáður.“

Að lokum var sárs­auk­inn hins vegar orð­inn það óbæri­legur að Héðinn leit­aði á sjúkra­hús. „Ég ákvað að drífa mig þar sem sýk­ing var aug­ljós­lega að mynd­ast í hægri fæt­inum með til­heyr­andi sárs­auka. Þar fékk ég óað­finn­an­lega þjón­ustu en var sagt að ég myndi hugs­an­lega missa hann. Á end­anum komst ég í hendur sér­fræð­ings og þá kom í ljós að ég myndi halda fæt­inum, en sýk­ingin væri alvar­leg og með­ferð bráð­nauð­syn­leg.“

Héðinn og fjöl­skylda opn­uðu veit­inga­stað­inn Xanadu í febr­úar.

Hreyfigetan eykst, sársaukinn minnkar

Héðinn fær sér­staka sára­með­ferð vegna slyss­ins og hefur þurft á lyfja­gjöf að halda.

„Ég fer til læknis tvisvar á dag með til­heyr­andi sárs­auka, bæði lík­am­legum og fjár­hags­legum. En það má ekki van­meta hversu mikil for­rétt­indi það eru að búa í landi þar sem heil­brigð­is­þjón­usta er bæði aðgengi­leg og góð. Nokkuð sem við Íslend­ingar þekkjum vel.“

Héðinn segir sárs­auk­ann minnka jafnt og þétt á meðan hreyfi­geta eykst. „Ég er far­inn að geta gengið um, án mik­illa kvala, og er allur að koma til.“ Hann segir að hann muni þó seint gleyma því að hann hafi næstum misst annan fót­inn. „Næst verður farið hægar á milli staða, þó um hugs­an­legt inn­brot sé að ræða, enda skiptir heilsan auð­vitað mun meira máli en ver­ald­legir hlutir. Maður lifir líka víst bara einu sinni og svona atvik hjálpa að minna mann á það sem skiptir raun­veru­lega máli í líf­inu.“

Nánar er fjallað um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina