Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ef við getum lært rasisma þá er líka hægt að læra að vera ekki rasisti“

Bar­áttu­konan Sema Erla Serdar, stofn­andi hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris, sem eru hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, hefur eins og svo margir aðrir fylgst með þróun mót­mæl­anna sem hafa brot­ist út í Banda­ríkj­unum og víðar í kjöl­far and­láts George Floyd.

„Þetta er ekk­ert nýtt vanda­mál þó að þetta sé að brjót­ast út núna með þessum hætti,“ segir Sema í sam­tali við Mannlíf um mót­mælin sem hafa brot­ist út víða um Banda­ríkin í kjöl­far and­láts Floyd sem lést í haldi lög­reglu þann 25. maí síð­ast­lið­inn. Floyd lést þegar lög­reglu­mað­ur­inn Derek Chauvin lét þunga sinn hvíla á hálsi hans í níu mín­útur við hand­töku. Atvikið náð­ist á mynd­band.

Sema bendir á að lög­reglu­of­beldi gagn­vart þeldökkum Banda­ríkja­mönnum sé dag­legt brauð og að Floyd sé ekki fyrsti þeldökki mað­ur­inn sem sé myrtur á hrotta­legan hátt af lög­reglu­manni.

„Þetta er eins átak­an­legt og það ger­ist.“

„Rasismi og ofbeldi sem þetta hefur loðað við banda­rískt sam­fé­lag í aldir en hérna í þessu mynd­bandi þá sjáum við mann bók­staf­lega deyja. Mann sem hefur ekk­ert gert til að verð­skulda þetta ofbeldi. Þarna er ekki hægt að afneita því sem gerð­ist. Í mynd­band­inu má heyra hann segj­ast ekki geta andað. Þetta er eins átak­an­legt og það ger­ist.“

Mótmæli hafa bort­ist út víða í Banda­ríkj­unum í kjöl­far and­láts George Floyd. Mynd / EPA

Sema segir fólk orðið „þreytt, reitt og sárt“. Hún segir fólk hafa beitt ýmsum aðferðum til að knýja fram breyt­ingar og tekur sem dæmi þegar NFL-leik­mað­ur­inn Colin Kaepernick kraup niður árið 2016 þegar banda­ríski þjóð­söng­ur­inn var spil­aður til að mót­mæla lög­reglu­of­beldi.

„Þá fór allt á hlið­ina. Þetta voru tákn­ræn og frið­sæl mót­mæli en samt varð allt vit­laust. Það er búið að reyna að fara ýmsar leiðir en bar­áttan er alltaf þögguð niður. Núna dugar ekk­ert minna, fólk þráir að ná fram breyt­ingum og reynir að sporna gegn þessum kerf­is­læga ras­isma,“ útskýrir Sema.

Alltaf einhver sem móðgast

Mótmælin hafa vakið mikla athygli og umræðu á sam­fé­lags­miðlum eins og við var að búast og aðferðir mót­mæl­enda hafa verið gagn­rýndar.

„Þetta ger­ist alltaf í allri rétt­inda­bar­áttu. Það er alltaf ein­hver sem móðg­ast. En það er nákvæm­lega þessi hópur, sem móðg­ast og reynir að segja öðrum hvern­ing þeir eiga að berj­ast fyrir rétt­indum sínum, sem veldur því að minni­hluta­hópar og jað­ar­settir hópar eru kúg­aðir. En fyrsta reglan í því að iðka and-ras­isma er að styðja þá sem eru að berj­ast fyrir rétt­indum sínum en ekki segja fólki hvernig það á að berj­ast fyrir þeim. Ef þú hefur ekki upp­lifað það sem þessi hópur þarf að upp­lifa á hverjum degi, hvernig í ósköp­unum áttu þá að vita hvernig er best fyrir þennan hóp að berj­ast fyrir rétt­indum sínum? Sá sem talar niður rétt­inda­bar­áttu minni­hluta­hópa hlýtur að vera sá sem skilur ekki hvernig ástandið er. En þó að þú hafir ekki upp­lifað þessa for­dóma og mis­munun á eigin skinni þá þýðir það ekki að vanda­málið sé ekki til staðar. Það þýðir að þú búir við for­rétt­indi.“

Hún bætir við að það sé löngu kom­inn tími til að horfast í augu við vanda­málið sem ras­ismi er. „Nú þurfa allir að taka höndum saman. Rasismi er sam­fé­lags­legt og kerf­is­lægt vanda­mál, ras­ismi finnst alls staðar en er mis­sýni­legur. Rasismi er kerfi sem felur í sér að skipta fólki niður í æðri og óæðri hópa og felur meðal ann­ars í sér kerf­is­bundna valda­bar­áttu, kúgun, fyr­ir­litn­ingu, jað­ar­setn­ingu, mis­munun og aðskiln­að­ar­stefnu. Ef fólk ætlar að iðka and-ras­isma þá þarf það að horfa inn á við og spyrja sjálft sig hvað það geti gert til að aðstoða í vinn­unni gegn ras­isma í sínu dag­lega lífi. Það er ekki nóg að segj­ast ekki vera ras­isti.“

„Hlustaðu. Lærðu.“

Aðspurð hvað fólk geti gert í bar­átt­unni gegn ras­isma og for­dómum segir Sema: „Hlustaðu. Lærðu. Skoðaðu fræðin og vís­indin. Fyrsta skrefið er að skilja það sem við erum að tala um. Lestu bækur og horfðu á kvik­myndir um þessi mál­efni. Ekki styðja flokka og stjórn­mála­fólk eða fara í við­töl hjá fjöl­miðlum sem ala á for­dómum og ras­isma. Ef þú gerir það ertu hluti af vanda­mál­inu. Ef þú gerir það ekki ertu að iðka and-ras­isma. Mættu á mót­mæla­sam­komur. Taktu þátt með þeim hætti sem hinir kúg­uðu óska eftir að þú takir þátt. Fáðu fræðslu fyrir þig og hóp­inn þinn, hvort sem það er vinnu­stað­ur­inn, skól­inn, íþrótta­fé­lagið eða sauma­klúbb­ur­inn. Þetta snýst allt um hvað við sem ein­stak­lingar getum gert. Styddu við ein­stak­linga og sam­tök sem berj­ast gegn ras­isma. Þetta eru nokkur dæmi,“ segir Sema.

„Ekki reyna að skýra ras­isma þannig að allir ras­istar séu bara geð­veikir ein­stak­lingar. Þannig ertu að gera lítið úr vanda­mál­inu sem kerf­is­lægur ras­ismi er, þján­ingum þolenda og bar­áttu þeirra sem berj­ast gegn for­dómum og ras­isma Það er ekki hægt að loka aug­unum lengur.“

Rasismi lærð hegðun

Sema hefur lengi verið bar­áttu­kona gagn­vart ras­isma og for­dómum almennt. Sjálf hefur hún fundið á eigin skinni hvernig er að verða fyrir for­dómum. „Ég hef upp­lifað for­dóma alla mína tíð og menn­ing­ar­legan ras­isma sem felur í sér að upp­runi, þjóð­erni og menn­ing­ar­legir þættir er not­aðir til að aðgreina fólk í æðri og óæðri hópa í stað kyn­þáttar. Þegar þú þekkir þetta af eigin raun og talar við fólk sem hefur upp­lifað sömu og oft miklu verri hluti en þú þá er ekki hægt að líta undan. Þetta snýst um rétt­læti og sam­kennd og hvernig við getum  búið til betri heim fyrir kom­andi kyn­slóðir.“

Sema bætir við að ras­ismi sé lærð hegðun. „Það sem er svo merki­legt er að það fæð­ist eng­inn ras­isti. En ef við getum lært ras­isma þá er líka hægt að læra að vera ekki ras­isti og kenna öðrum að vera ekki ras­istar“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi