Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Börnin sem eignast Samherja – Dagný Linda afreksskíðakona um árabil

Börnin sem eignast Samherja – Dagný Linda afreksskíðakona um árabil

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri, og Kristján Vil­helms­son útgerð­ar­stjóri, aðal­eig­endur Samherja, hafa afsalað sér hluta­bréfa­eign sinni í Samherja hf. til barna sinna. Börnin sex halda því á 84,5 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Mútumál Samherja tengt Namibíu er enn til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, en hefur taf­ist vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins.

Mannlíf skoðar hverjir sex­menn­ing­arnir eru sem halda nú um stjórn­ar­taumana í einu stærsta og valda­mesta fyr­ir­tæki lands­ins. Samkvæmt heim­ilda­manni Mannlífs sem þekkir til systk­in­anna eru þau öll jarð­bundin og hörku­dug­leg í því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur.

Dagný Linda Krist­jáns­dóttir. Mynd / vefur Sál­fræði­þjón­ustu Norð­ur­lands

Dagný Linda – Afreks­skíða­kona um ára­bil   10,375 % /  7,3-8,6 millj­arðar kr.

Dagný Linda Krist­jáns­dóttir er fædd 1980 og var ein fremsta skíða­kona lands­ins um ára­bil, en árið 2008 lagði hún skíða­skóna á hill­una vegna meiðsla. Dagný Linda keppti á 316 alþjóð­legum mótum í þrettán þjóð­löndum, tók þátt í tvennum Ólymp­íu­leikum, þremur heims­meist­ara­mótum, rúm­lega 30 heims­bik­ar­mótum og um 40 Evr­ópu­bik­ar­mótum. Hún var 18 sinnum Íslands­meist­ari á skíðum, var sjö sinnum valin skíða­kona árs­ins og þrisvar Íþrótta­maður Akur­eyrar.
Í júní 2013 útskrif­að­ist hún með BS-próf í iðju­þjálf­un­ar­fræði við Háskól­ann á Akureyri og hlaut  heið­ursverð­laun Góðvina HA. Hún starf­aði sem iðju­þjálfi hjá Öldr­un­ar­heim­ili Akur­eyrar – Lög­manns­hlíð í fimm ár og sinnti stunda­kennslu við Háskól­ann á Akureyri. Í dag starfar hún hjá Sál­fræði­þjón­ustu Norð­ur­lands þar sem hún er með nám­skeið, fyr­ir­lestra og ein­stak­lings­tíma með það að marki að ýta undir virkni og þátt­töku og auka lífs­gæði barna/ung­menna/full­orð­inna í dag­legu lífi heima fyrir og úti í sam­fé­lag­inu.
Dagný Linda býr á jörð­inni Hólshús II í Eyja­firði ásamt eig­in­manni og fjórum börnum þeirra, eign­ina keyptu þau árið 2007 og þar er hesta­mennskan í hávegum höfð.

Sjá einnig: Afsal hluta­bréfa í Samherja – Stærsta sum­ar­gjöf Íslands­sög­unnar

Sjá einnig: Börnin sem eign­ast Samherja – Baldvin erfða­prins­inn 

Sjá einnig: Börnin sem eign­ast Samherja – Katla sjálf­stæður sjúkra­nudd­ari   

Sjá einnig: Börnin sem eign­ast Samherja – Halldór Örn bíl­stjór­inn 

Sjá einnig: Börnin sem eign­ast Samherja – Katrín öflug afreks­kona

Sjá einnig: Börnin sem eign­ast Samherja – Kristján Bjarni með tækn­ina á hreinu 

Lestu úttekt­ina í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Lesa Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag