Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Kristjón leitar að tík sonar síns: „Syni mínum líður ömurlega og er í sárum“

Kristjón leitar að tík sonar síns: „Syni mínum líður ömurlega og er í sárum“
Flóra og Kristjón|Mynd / Skjáskot Facebook

„Sjaldan hef ég orðið vitni að annarri eins illsku,“ skrifar Kristjón Kormákur Guð­jóns­son rit­stjóri fretta­bla­did.is og hring­braut.is, en hann biðlar til vina sinna, fjöl­skyldu og ann­arra um að hjálpa honum að finna hund Gabríel sonar hans.

Mynd / Skjáskot Facebook

Upphaf máls­ins má rekja til þess að Í júlí 2018 eign­að­ist sonur hans hund­inn Flóru, sem hann fékk fyrir að passa börn hunda­rækt­anda, sem þá bjó á Aust­ur­landi. „Konan leit svo á að Flóra væri „gölluð“ og ekki hægt að rækta undan henni,“ segir Kristjón, en segir hana síðar hafa skipt um skoðun og hún gert samn­ing við Gabríel um að fá tvö got.

„Sonur minn, sem er ein­hverfur, hafði tek­ist á við ýmis áföll í líf­inu og var Flóra alltaf til staðar og þau byggt hvort annað upp. Samband þeirra er virki­lega fal­legt,“ segir Kristjón, en vegna hús­næð­is­að­stæðna son­ar­ins, sem bjó erlendis um tíma fékk hund­ur­inn að dvelja hjá hunda­rækt­and­anum.

Í síð­asta mán­uði var son­ur­inn kom­inn með hús­næði þar sem hunda­hald er leyft og óskaði eftir að fá hund­inn til baka. Segir Kristjón kon­una hafa viljað hafa hund­inn yfir sum­arið og rækta undan henni og eiga hana, en vildi gefa syn­inum annan hvold. Hann neit­aði og vildi fá sinn Flóru, sinn hund.

Fyrir um tveimur vikum sendi Gabríel skila­boð til kon­unnar og kvaðst ætla að koma akandi og ná í sinn besta vin, það væri betra fyrir Flóru en að senda hana með flugi til Reykja­víkur. Konan svar­aði með því að senda skila­boð:

„Flóra varð fyrir bíl í morgun, hunda­girð­ingin fauk aðeins til í rok­inu í morgun og þau sluppu öll út, það var keyrt á FLóru, ég brun­aði með hanna til dýra­læknis en hún dó hjá dýra­læknum. Ömurlegt, ég er alveg í rusli yfir þessu.“

Ótrúverðugt í ljósi fyrri samskipta

Kristjón fannst skila­boð kon­unnar ótrú­verðug, og seg­ist hafa hringt í alla dýra­lækna á Akureyri og á Húsavík og víðar, en eng­inn kann­að­ist við að hafa fengið smá­hund inn á borð til sín eða sögu í þessa veru. Sama var með lög­reglu á svæð­inu. Konan sagð­ist hafa farið með vott­orð frá dýra­lækni til trygg­inga­fé­lags síns, en neit­aði að sýna vott­orðið eða gefa upp­lýs­ingar um hvaða dýra­læknir hefði gefið út vott­orðið.

Á örmerki er Flóra enn skráð lif­andi en týnd og Gabríel er skráður eig­andi.

„Svör hennar eru oft á tíðum yfir­gengi­leg og dóna­leg og ég hlífi ykkur við að birta skjá­skot af furðu­legum útskýr­ingum hennar,“ segir Kristjón, en feðgarnir keyrðu til heim­ilis kon­unnar úti á landi þar sem þeir fengu búr Flóru og leik­föng, en hún vildi engar upp­lýs­ingar gefa um afdrif hunds­ins eða svara spurn­ingum feðganna.

„Við höfum því enga stað­fest­ingu á að Flóra hafi orðið fyrir bíl,“ segir Kristjón. „Það er allt bogið við þetta. Bæði atburða­rás­ina og svörin. Eins og staðan er núna er Flóra ein­fald­lega týnd. Við feðgar óskum eftir hjálp til að leysa þetta mál. Annað hvort til að sonur minn geti fengið dýrið sem hann elskar út á líf­inu eða hann geti syrgt hana Flóru litlu. Syni mínum líður ömur­lega og er í sárum og sveifl­ast á milli þess að syrgja hund­inn eða vona að Flóra sé á lífi.“

Mannlíf leit­aði eftir svörum frá kon­unni, sem vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um málið.

Uppfært 22.30
Sjá einnig: Hunda­rækt­and­inn tjáir sig: „Mark­visst að nota sam­fé­lags­miðla í opin­bera aftöku“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ