Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Svara gagnrýni og segja meirihluta framleiðslunnar fara fram hér

Svara gagnrýni og segja meirihluta framleiðslunnar fara fram hér
Mynd / Hallur Karlsson

Íslenska aug­lýs­inga­stofan Peel hyggst ráða önnur inn­lend fram­leiðslu­fyr­ir­tæki og fleira vant aug­lýs­inga­fólk til að vinna með sér að mark­aðsátaki sem ætlað er að laða erlenda ferða­menn aftur til lands­ins. Eins og kom fram í frétt Mannlífs í gær var Peel hlut­skörpust í félagi við alþjóð­legu aug­lýs­inga­stof­una M&C Saatchi í útboði Íslands­stofu vegna her­ferð­ar­innar sem á að hefj­ast um það leyti sem landið verður opnað að nýju.

Sjá einnig: Erlend aug­lýs­inga­stofa fær það verk­efni að kynna Ísland – 1,5 millj­arður úr landi

„Ég er sam­mála Guðmundi Pálssyni hjá Pipar, sem hefur tjáð sig um úrslit útboðs­ins í fjöl­miðlum í dag, um að það skiptir miklu máli að hafa öfl­ugan aug­lýs­inga- og mark­aðs­geira á Íslandi,“ segir Magnús Magn­ús­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Peel í til­kynn­ingu.

Við ætlum að ráða til okkar fjölda íslenskra und­ir­verk­taka á ýmsum sviðum fram­leiðsl­unnar og því munu margir fleiri njóta góðs af verk­efn­inu

Samkeppnin sýnir metnað íslenskra auglýsingastofa

„Sú mikla sam­keppni sem sást í útboð­inu er í mínum huga til vitnis um hversu öfl­ugar og metn­að­ar­fullar íslenskar aug­lýs­inga­stofur eru. Þetta er verk­efni sem allar íslensku stof­urnar vildu fá og flestar buðu fram sam­starf erlendra og inn­lendra aðila. Við erum afar auð­mjúk yfir því að hafa orðið fyrir val­inu í sam­keppni við svo margar flottar stofur. Okkar sýn á þetta er sú að við varð­veitum best gæðin í íslenskum aug­lýs­inga­geira með því að eiga í sam­starfi við fremsta aug­lýs­inga­fólk í heimi,“ segir Magnús.

Magnús Magn­ús­son

„Rétt eins og íslensk kvik­mynda­gerð og dag­skrár­gerð hefur notið þess ríku­lega að þekk­ing hefur byggst upp í stórum alþjóð­legum kvik­mynda- og sjón­varps­verk­efnum sem tekin hafa verið upp hér á landi, eins og Star Wars og Game of Thrones. Verk­efnið sem við erum að takast á hendur snýst um að mark­aðs­setja Ísland í útlöndum og til að ná góðum árangri þá þurfum við að vinna með fólki sem þekkir vel til á þessum mörk­uðum og starfar þar alla daga. Öll íslensk flug­fé­lög hafa til dæmis í gegnum árin leitað til erlendra fyr­ir­tækja varð­andi aðstoð við að koma sér á fram­færi við ferða­menn í hverju landi fyrir sig. Að sama skapi vinna flestar íslenskar aug­lýs­inga­stofur fyrir erlend vöru­merki sem leit­ast eftir þekk­ingu þeirra við að mark­aðs­setja sig og aug­lýsa hér á landi. Domino‘s í Bret­landi, sem er eig­andi Domino‘s keðj­unnar hér, not­ast við íslenska aug­lýs­inga­stofu, íslenskt vef­fyr­ir­tæki og íslenska sam­fé­lags­miðla­stofu. Sama má segja um Coke, Pepsi, IKEA eða Uncle Ben‘s hrís­grjón,“ segir Magnús og segir verk­efnið nú ekk­ert öðru­vísi.

Til standi að aug­lýsa Ísland sem áfanga­stað í öðrum löndum og stór hluti af fram­leiðsl­unni muni fara fram hér því þekk­ingin á land­inu sem mark­aðs­sett er skipti máli.

„Við ætlum að ráða til okkar fjölda íslenskra und­ir­verk­taka á ýmsum sviðum fram­leiðsl­unnar og því munu margir fleiri njóta góðs af verk­efn­inu. Stað­reyndin er líka bara sú að íslenskt aug­lýs­inga­fólk er mjög öfl­ugt og félagar okkar í þessu verk­efni á M&C Saatchi hafa nefnt það sér­stak­lega við okkur að þeim finn­ist magnað hvað aug­lýs­ingar eru í háum gæða­flokki hér, miðað við hvað þetta er fámennt sam­fé­lag.“

Peel varð í efsta sæti í útboð­inu sem hljóð­aði upp á 300 millj­ónir króna og þar sem val­nefnd skipuð 13 ólíkum sér­fræð­ingum, auk Rík­is­kaupa, völdu á milli fimmtán bjóð­enda. Flest til­boðin sem bár­ust byggð­ust ein­hvers konar á sam­starfi inn­lendra og erlendra aug­lýs­inga­stofa. Peel varð efst í 9 af 11 val­þáttum en aug­lýs­inga­stofan Pipar var númer tvö í röð­inni og mun­aði mjóu á þessum tveimur fyr­ir­tækjum. Mats­þætt­irnir, voru sem áður segir, fjöl­margir og tóku meðal ann­ars til­lit til gæði hug­mynda­vinnu, verðs, reynslu og styrk­leika tey­manna.

Peel kom að Inspired by Iceland herferðinni

Starfs­menn og stofn­endur Peel eru fyrr­ver­andi starfs­menn Íslensku aug­lýs­inga­stof­unnar og komu þeir að Inspired by Iceland her­ferð­inni sem stjórn­völd settu af stað, í sam­vinnu við ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, sum­arið 2010 til að fá fólk til að ferð­ast hingað til lands eftir gosið í Eyja­fjalla­jökli. Inspired by Iceland hlaut fjölda virtra verð­launa og var unnin í sam­starfi við alþjóð­legu aug­lýs­inga­stof­una The Brooklyn Brothers.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina