Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Inga segir frá heimilisofbeldi: „Börnin horfðu á hann kýla mig í vegginn”

Inga segir frá heimilisofbeldi: „Börnin horfðu á hann kýla mig í vegginn”
Samsett mynd

Inga Hen­rik­sen er 34 gömul, fjög­urra barna móðir, sem búsett hefur verið í Svíþjóð í rúmt ár með íslenskum eig­in­manni og börnum sínum. Í færslu á Facebook segir hún frá heim­il­is­of­beldi sem hún var beitt af eig­in­mann­inum, sem er jafn­framt faðir yngsta barns hennar. Eldri börn hennar þrjú voru einnig beitt ofbeldi af stjúp­föður þeirra og hefur hann verið ákærður fyrir þre­falda lík­ams­árás. Öll börnin urðu vitni að ofbeld­inu.

„Ég vil fá til­baka stjórn á eigin lífi. Allt of lengi hef ég stjórn­ast af fyrr­ver­andi maka,“ segir Inga í sam­tali við Mannlíf.

„Ég vil segja mína sögu sjálf, því ann­ars verður hún aldrei sögð. Ég mun lík­lega særa ein­hvern eða ein­hverja sem tengdir eru ger­and­anum. Sumum mun jafn­vel líða eins og ég hafi svikið þá eða sært og taka sögu minni eins og árás á þá.“

Inga tekur þó fram að reynsla hennar og frá­sögn um hana hefur ekki með neina utan­að­kom­andi að gera, og hún ætli ekki að taka ábyrgð­ina á áliti og skoð­unum ann­arra, heldur liggur ábyrgðin og skömmin ein­göngu hjá ger­and­anum. Inga seg­ist vilja segja frá sinni reynslu, því frá­sögnin eigi stóran þátt í bata­ferli hennar.

„Það er þvinguð þögn í kringum ofbeldi sem hefur ekki bara áhrif á sam­fé­lagið heldur við­heldur ofbeldi gagn­vart þolendum. Með því að pressa á þolendur að segja ekki sína sögu eykur þú á skömm og sárs­auka þolenda,“ segir Inga.

„Þegar ein­stak­lingur verður fyrir ofbeldi er vald þol­and­ans til að segja frá tekið frá honum og með því að ákveða fyrir þolenda hvort og hvenær og ef þeir mega segja frá erum við að við­halda valdi ger­and­ans og ræna þannig valdi þol­anda yfir eigin lífi og áfalli. Á þennan hátt við­heldur sam­fé­lag ofbeldi og að rjúfa þögn­ina verður talið ógn við status quo sem ógnar ger­anda,“ segir Inga.

Handtekinn fyrir heimilisofbeldi

Í færslu sinni segir Inga frá einu kvöldi í lífi fjöl­skyld­unnar, þar sem hún og tvo barna hennar voru beitt ofbeldi af hendi eig­in­manns hennar og barns­föður, og stjúp­föður eldri barna hennar. Ger­and­inn var hand­tek­inn og settur í 72 tíma ein­angrun. Sak­sókn­ari setti á nálg­un­ar­bann, og óskaði eftir fram­leng­ingu á gæslu­varð­haldi en því var hafnað. Ger­and­inn hefur verið ákærður fyrir  þre­falda lík­ams­árás, gegn maka og tveimur börnum.

„Frásögn af þessu kvöldi er þó aðeins brota­brot af því ofbeldi sem hefur átt sér stað og hefur sett sitt mark á líf mitt og barn­anna minna um aldur og ævi,“ segir Inga.

„Hann [eig­in­maður og barns­faðir Ingu] kom heim úr vinnu eins og vana­lega og ang­aði af áfeng­is­lykt. Hann virt­ist pirr­aður svo ég ákvað að halda áfram að horfa á þátt­inn sem ég var nýbúin að kveikja á og leyfa honum að vera í friði. Maðurinn minn kemur fram og spyr hvar sonur minn sé og ég svara honum að hann væri á kló­sett­inu. Hann hækkar þá róm­inn og segir að rétt­ast væri að slökkva á net­inu en það væri víst ekki hægt þar sem ég væri að horfa. Ég sagði honum að son­ur­inn væri nú ekki með sím­ann á sér þannig að slökkva á net­inu væri óþarfi. Hann segir að ég hafi bara ekki hug­mynd um það ég viti bara ekki rass­gat um það og fer og bankar á hurð­ina hjá syn­inum,“ byrjar Inga frá­sögn sína.

Segir hún að þetta hafi farið mikið í taug­arnar á mann­inum hennar, sem fór inn í eld­hús að elda kvöld­mat­inn. Eldri dæt­urnar komu síðan heim úr göngutúr og allir sett­ust við kvöld­verð­ar­borðið, nema maður Ingu sem sett­ist með sím­ann sinn inn í stofu.

Hann svarar ekki og byrjar að öskra að þessir aum­ingjar eigi bara að gera það sem þeim er sagt og hjálpa til

„Þegar mat­ur­inn er að klár­ast sest hann hjá okkur. B [barn þeirra] hendir pasta á gólfið og hann tekur í hana og kippir þannig að aftur koma þessi sker­andi öskur. Hann meiddi hana. Þetta er sami grátur og þegar hann er með hana einn frammi á morgn­anna um helgar og hún að róta í eld­hús­skúff­unni. Þau skipti sagði hann þetta vera frekju­grenj enn mæður þekkja mun­inn. Mér var ekki sama og spyr hvernig dag­ur­inn hefði verið hjá honum meðan ég hugga dótt­ur­ina,“ segir Inga. Maðurinn svar­aði því til að dag­ur­inn hafi verið góður, en hann sé þreyttur eftir dag­inn.

Börnin fara inn á bað­her­bergi og sú yngsta með og biður Inga þau eldri um að passa að hún sturti ekki úr bað­bal­anum, sem enn var fullur af vatni. „Hann öskrar á eftir þeim að þessi aum­ingjar gætu líka alveg tæmt balann þar sem þau gera hvort eð er aldrei neitt. Ég stend upp seg­ist ætla að gera það enda sé þetta eftir mig, labba inn á bað og loka á eftir mér. Hann kemur og seg­ist ætla að tæma balann. Ég segi honum ég geti alveg gert það og hann þver­tekur fyrir það og tekur í balann. Ég færi mig fram og spyr hvort hann vilji setj­ast í kvöld og spila, enn hann svarar ekki og byrjar að öskra að þessir aum­ingjar eigi bara að gera það sem þeim er sagt og hjálpa til. Ég svara og segi honum að það sé rétt að þau megi stundum vera dug­legri, en þau séu dug­leg yfir dag­inn að hjálpa og það sé ekki rétt af honum að kalla þau aum­ingja. Hann öskr­aði að honum værir rass­gat sama hvað mér finnd­ist því þessi svín væru aum­ingjar og hlýddu mér ekki,“ segir Inga.

Bað manninn um fara út í göngutúr

Segist hún næst hafa beðið mann­inn sinn um að fara í göngutúr, kvöldið hafi verið fal­legt og til­valið að fara út og hreinsa hug­ann. Segir hún að hann hafi þá farið að tala um að heim­ilið væri svína­stía og ekki van­þörf á að taka til. Segir Inga að hún hafi hins vegar þrifið heim­ilið fyrr um dag­inn, auk þess sem þeir sem þekki hana viti að hún kunni ekki við að hafa heim­ilið í óreiðu.

„Hann rýkur fram á gang sparkar í hluti, kastar og skellir bað­her­berg­is­hurð­inni þannig að hurð­ar­hún­arnir detta af. Hann rífur upp úti­dyra­hurð­ina þannig að hann brýtur hana og skellir henni svo og neitar að fara út þar sem hann borgi leig­una,“ segir Inga og segir hann næst hafa gengið á sig og „bömpað“ hana með brjóst­kass­anum. Því næst hafi hann tekið af sér hring­ana og til­kynnt að sam­band­inu væri lokið ef hún sett­ist ekki á rass­gatið.

„Hann æsist við það og byrjar aftur að bömpa mig svo ég sný honum við. Hann fer svo og klæðir sig í jakka svo ég hélt að hann væri á leið­inni út og fer inn í stofu og sest í sófann. Hann kemur öskr­andi og stendur fyrir ofan mig otandi fingrinum í and­litið á mér meðan hann öskrar á mig. Viðbrögð mín við öskrum er að frjósa, stama, fara að gráta og heyra ekki orð. Ég sá bara fing­ur­inn á honum og svip­inn sem var óhuggu­legur. Hann potaði í kinn­beinið á mér og meiddi mig svo ég setti hend­ina fyrir. Hann grípur í hana og snýr upp á hana svo ég fríka út og reyni að losa takið og ýta honum frá mér með fæt­inum enn hann grípur um hinn fót­inn kreistir hann og er að reyna að tosa mig á gólfið,“ segir Inga, og bætir við að eitt barna hennar hafi grát­beðið hann um að hætta.

Inga og önnur dóttir hennar grát­báðu ger­and­ann næst um að fara. „Maðurinn minn steytir hnef­ann í loftið og byrjar að öskra á son minn að halda kjafti og kallar hann hel­vítis aum­ingja og labbar hægt að honum svo ég stekk á milli og urra með sömu hljóðum og komu á páska­dag,“ segir Inga. „Sömu hljóð og komu í fæð­ingu barn­anna minna. Hann hafði ráð­ist á son minn í febr­úar þar sem hann skellti honum upp við vegg og í gólfið í þvotta­hús­inu og svo aftur á páska­dag þar sem hann var að rífa af honum sím­ann og endar með að rífa fötin utan af honum.“

Ég fékk skyndi­legan verk í brjóstið og hryn í gólfið. Börnin horfðu á hann kýla mig í vegg­inn með þeim afleið­ingum að haus­inn fór í vegg­inn ég datt út og fékk floga­kast og piss­aði á mig

Skellt í gólfið í viðurvist barnanna

Inga segir ger­and­ann aftur hafa bömpað hana, á sama tíma og hann horfði ógn­andi á son hennar. Hún hafi ýtt á móti, en þá hafi hann tekið í hendur hennar, kreist þær og snúið upp á.

„Ég finn hvernig ég er farin að titra. Hann stendur upp… lyftir mér og skellir mér í gólfið. Ég lendi á herða­blöðum og hnakk­anum og rot­ast. Dóttir okkar fríkar út og ég heyri öskrin hennar í fjar­lægð. Hann segir henni að halda kjafti og reynir að hrinda henni. Hún hleypur inn í her­bergi. Ég man ekki hvernig ég komst fyrir framan her­bergi barn­anna þar sem hann heldur hnef­anum á lofti og segir börn­unum að halda sig inni í her­bergi og halda kjafti,“ segir Inga, sem enn þá bað mann sinn um að yfir­gefa heim­ili þeirra og snerta ekki börnin.

Því næst segir hún ger­and­ann hafa kýlt hana í vegg­inn og börnin stumrað yfir henni.

„Ég fékk skyndi­legan verk í brjóstið og hryn í gólfið. Börnin horfðu á hann kýla mig í vegg­inn með þeim afleið­ingum að haus­inn fór í vegg­inn ég datt út og fékk floga­kast og piss­aði á mig. Meðan önnur dóttir mín var að reyna að strjúka mér til með­vit­undar þar sem hún sagði augun vera upp og ég öll stíf að hris­st­ast og sonur minn lýsir eins og drukkn­un­ar­hljóð koma upp úr mér byrjar hann að öskra á þau aftur… Dóttir mín kallar mamma mamma mamma mamma og þau eru öll grát­andi ég ranka við mér og horfi á hann taka í hana og ég urra aftur á hann að snerta þau ekki. Hann tekur í peys­una hennar, lyftir henni upp og kastar henni í gólfið þannig hún lendir á systur sinni.

Ég berst við sjálfa mig að snúa mér og finnst ég ekki geta hreyft mig nógu hratt enn næ að þrýsta honum upp við vegg­inn með að festa hann með ilj­unum og reyna að hindra hann í að kom­ast inn. Hann ætl­aði í son minn,“ segir Inga.

Á sama tíma seg­ist Inga hafa heyrt dóttur sína frammi á gangi hróp­andi á hjálp og lög­reglu, hrópa að verið sé að drepa mömmu hennar.

„Það var happ að önnur tví­bura­dóttir mín smeygði sér fram hjá honum til að öskra á hjálp og biðja um lögg­una. Nágranna­konan á neðri hæð­inni sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur á bráða­mót­tök­unni hér var á leið­inni upp með sím­ann,” segir Inga við Mannlíf. „Um leið og nágrann­arnir komu inn varð hann sall­ar­ó­legur. Hann sagði þeim að þetta væri bara mis­skiln­ingur, ég hefði dottið og það hefði ekk­ert alvar­legt gerst nema jú að við hefðum bara verið að ríf­ast,“ segir Inga og bætir við að nágrann­arnir hafi heyrt allt og sagt ger­and­anum að þegja, um leið og þau fengu upp­lýs­ingar hjá dóttur hennar og hringdu í lög­regl­una.

Ger­and­inn var hand­tek­inn og fluttur í hand­járnum af heim­il­inu, og settur í ein­angrun í 72 tíma.

„Ég rot­að­ist tvisvar og í hvor­ugt skiptið stopp­aði hann til að athuga hvort allt væri í lagi með mig,” segir Inga við Mannlíf. „Honum var gert skýrt að komi hann nálægt okkur ætti hann yfir höfði sér allt að árs fang­elsi. Það verða svo rétt­ar­höld í haust,“ segir Inga, en ger­and­inn hefur þegar verið ákærður fyrir þre­falda lík­ams­árás, gegn henni, syni hennar og dóttur.

Það þarf að laga þetta gat í kerf­inu, því það eykur á áfallið, áhyggj­urnar, streit­una og álagið, að ekk­ert net grípi okkur heima á Íslandi

Á bakland sem styður hana, en vantar fjárhagslegan stuðning

Inga segir að hún og börnin séu hrædd og sorg­mædd og næsta skref sé að koma fjöl­skyld­unni aftur heim til Íslands. Segir hún að kerfið í Svíþjóð hafi virkað vel og allt sé gert til að hjálpa þeim að kom­ast heim. Hins vegar sé ekk­ert net sem grípi þau hér heima.

Aðspurð nánar um aðstæður hennar og mögu­leika hennar til að kom­ast heim til Íslands með börnin, svarar Inga að staðan sé erfið.

„Mig langar að kom­ast heim áður en nálg­unn­ar­banni lýkur, enn þá er það kerf­is­gapið sem tekur við. Ég fæ aðstoð hér eins mikið og þau geta, en það er ekki hægt að und­ir­búa neitt fyrir mig heima á Ísland­iné hús­næði hjá Félags­þjón­ust­unni né fjár­hags­að­stoð sem grípur mig fyrr en ég hef skráð lög­heim­ili heima á Íslandi. En ef ég myndi gera það núna missi ég öll rétt­indi hér og fæ því enga hjálp,“ segir Inga. „Það er því mikil óvissa og óþæg­indi sem taka við okkur og að vera ein með fjögur börn og í þess­ari stöðu er erfitt. Áhyggj­urnar fyrir eru nægar og eru þau hér hrædd um að ég „crashi“ við heim­komu. Ég á fólk sem tekur utan um mig heima, en þau geta ekki boðið upp á fjár­hags­legan stuðn­ing.

Inga er komin með íbúð hér heima á Íslandi, sem hún getur fengið 1. júní. „Og litla gullið mitt er komin með pláss á leik­skóla eftir sum­ar­lokun sem þýðir að ég geti ekki byrjað að vinna fyrr en um það leyti. Ég væri til í að vinna á leik­skóla, held að það sé gott með námi og gef­andi.“

Fjöl­skyldan þarf í tveggja vikna sótt­kví við heim­komu til Íslands. „Það gerir allt ferli flókn­ara og hæg­ara. Þó að ég hlakki til að kom­ast heim í fang fólks­ins míns er mik­ill kvíði yfir fyrstu mán­uð­unum. Þetta er ekki dásam­leg staða, og sér­stak­lega með fjögur börn.

Aðspurð um hvort hún eigi fjár­magn til að koma fjöl­skyld­unni heim svarar Inga að svo sé ekki.

„Félags­þjón­ustan hér getur borgað flug fyrir okkur heim. En ég hef ekki efni á gámi undir búslóð­ina, sem kostar um hálfa milljón. Félags­þjón­ustan hér er að vinna í því fyrir mig að ég fái fjár­hags­að­stoð, en þar sem við erum gift þá hef ég lít­inn rétt­indi. Ég er búin að sækja um skilnað, en mað­ur­inn minn hefur ekki klárað það ferli, né svarað neinu,“ segir Inga.

Þegar hún kemur til Íslands mun hana vanta fjár­hags­að­stoð, að minnsta kosti í fyrstu. „En ég get ekki sótt um hana fyrr en eftir tveggja vikna sótt­kví. Mér finnst skrýtið að það sé ekki hægt að leggja fram plan sem býður und­ir­skriftar minnar hjá Félags­þjón­ust­unni, svo það sé eitt­hvað ferli, eitt­hvað kerfi, sem grípur mann strax,“ segir Inga. „Ég hafði sam­band við þjón­ustu­mið­stöðvar, en fékk sömu svörin þar. Ekkert hægt að gera. Talaði við Bjark­ar­hlíð sem sendu mig á þjón­ustu­mið­stöð.“

„Við fáum enga hjálp heima á Íslandi fyrr en lög­heim­ilið er skráð þar. Við getum ekki gert það núna því þá missum við rétt­indi okkar hér í Svíþjóð,“ segir Inga.

„Það þarf að laga þetta gat í kerf­inu, því það eykur á áfallið, áhyggj­urnar, streit­una og álagið, að ekk­ert net grípi okkur heima á Íslandi,“ segir Inga, „því þangað viljum við kom­ast, sem fyrst.“

Hvað er heimilisofbeldi?

Heim­il­is­of­beldi er ofbeldi sem ein­stak­lingur verður fyrir af hálfu ein­hvers sem er honum nákom­inn, tengdur eða skyldur. Ofbeldið getur verið lík­am­legt, and­legt, kyn­ferð­is­legt, fjár­hags­legt eða jafn­vel staf­rænt. Þar sem ger­andi og þol­andi tengj­ast á þol­andi oft erf­ið­ara um vik með að slíta tengslum við ger­and­ann og áhrif ofbeld­is­ins verða djúp­stæð­ari. Heim­il­is­of­beldi er ekki bundið við heim­ili ger­anda eða þol­anda og getur átt sér stað hvar sem er.

Lengi var svo litið á að heim­il­is­of­beldi væri einka­mál fólks og var hlut­verk lög­reglu oft að stilla til friðar, ná sáttum eða  koma aðilum í tíma­bundið var.  Undir þessum kring­um­stæðum var ítrekun algeng, börnum var lítt sinnt og ofbeld­is­hring­ur­inn hélt áfram. Á síð­ari árum hefur vit­und­ar­vakn­ing orðið í sam­fé­lag­inu varð­andi heim­il­is­of­beldi og skað­semi þess. Lögregla hefur skipað heim­il­is­of­beld­is­málum í for­gang og gjör­breytt verk­lagi sínu í mála­flokknum. Lögð er áhersla á að tryggja öryggi borg­ar­anna, koma í veg fyrir ítrekuð afbrot og vanda rann­sóknir heim­il­is­of­beld­is­mála, auk þess sem sam­starf við félags­þjón­ustu/barna­vernd sveit­ar­fé­lag­anna tryggir að þolendur, ger­endur og börn hafa greið­ari aðgang að nauð­syn­legri þjón­ustu.

Verk­lags­reglur lög­reglu um með­ferð og skrán­ingu heim­il­is­of­beld­is­mála eru aðgengi­legar hér.

Á neð­an­greindum síðum má finna ýmsar gagn­legar upp­lýs­ingar um heim­il­is­of­beldi og hvert hægt er að leita eftir aðstoð:

Kvenna­at­hvarfið: 561 1205 – https://www.kvennaathvarf.is

Bjark­ar­hlíð Reykja­vík: 553 3000 – https://www.bjarkarhlid.is/

Bjarma­hlíð Akureyri: 551 2520 – https://www.bjarmahlid.is

Stígamót: 562 6868  –  800 6868 – https://www.stigamot.is/

Heim­il­is­friður

Dreka­slóð

Heilsu­vera

Saman gegn ofbeldi

Kvenna­ráð­gjöfin

Réttur þinn – Twoje prawa (útg 2019)

Réttur þinn – Your rights (útg 2019)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ