Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hildur starfaði sem flugfreyja Icelandair í 21 ár: „Sárt að heyra að það sé mín stétt sem er að stefna fyrirtækinu í gjaldþrot“

Hildur starfaði sem flugfreyja Icelandair í 21 ár: „Sárt að heyra að það sé mín stétt sem er að stefna fyrirtækinu í gjaldþrot“

Hildur Stef­áns­dóttir er ein fjöl­margra fyrrum flug­freyja Icelandair, sem hafa tjáð sig á sam­fé­lags­miðlum, um launa­kjör stétt­ar­innar. Tilefnið er bréf Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair, sem hann birti á innri vef félags­ins til starfs­manna þess. Þar sagði Bogi starfs­menn vera „helstu fyr­ir­stöð­una“ fyrir að hægt sé að bjarga rekstr­inum, en farið hefur verið fram á að flug­freyjur og -þjónar, auk flug­manna, taki á sig tals­verða launa­hækkun svo flug­fé­lag­inu verði bjargað.

Sjá einnig: Segir flug­freyj­ur og flug­menn Icelandair þurfa að taka á sig 50-60 pró­senta launa­lækk­un

„Nú setur mig hljóða. Ligg hér and­vaka og hugsa um ævi­starfið mitt og fyrrum sam­starfs­fé­laga mína. Eins og þið mörg vitið er ég hætt að vinna. Ekki vegna þess að ég valdi mér það heldur vegna þess að ég var óheppin og smit­að­ist af ein­hverri óværu í vinn­unni sem hefur haft afger­andi var­an­legar afleið­ingar,“ byrjar Hildur færslu sína á Facebook.

Hildur er þó ekki ein þeirra nærri 900 flug­freyja sem fengu upp­sögn nýlega, þar sem hún hætti starfi síð­asta vetur. „Ég er hætt að vinna, ég veikt­ist í vinn­unni haustið 2011 og hætti vet­ur­inn 2018/19 vegna sjúk­dóma sem eru afleið­ing þess­arra veik­inda,“ segir Hildur í sam­tali við Mannlíf.

Hún seg­ist alin upp hjá Icelandair, en hún hóf starf á skrif­stof­unni 15. maí árið 1997, þá 21 árs gömul, tveimur árum seinna fór hún að fljúga.

Flugfreyjustarfið varð ævistarfið

„Og það var mitt ævi­starf. Starf sem ég hef alla tíð verið stolt af. Ævistarf með hópi fólks sem mér finnst ég enn til­heyra því í hjarta mínu er ég og verð alltaf flug­freyja.“

Hildur seg­ist vera sorg­mædd og undr­ast fréttir af því að for­stjóri Icelandair haldi því fram að launa­kostn­aður flug­freyja og -þjóna sé að valda því að fyr­ir­tækið stefni í gjald­þrot. Segist hún viss um að eng­inn, nema þeir sem starf­inu sinna, geri sér grein fyrir föstum launum flug­freyja- og þjóna.

„Eftir 21 ár í starfi og sem stjórn­andi um borð eru föstu launin 585.967. Það er hæsta launa­þrep sem flug­liði kemst í. Inní þess­ari tölu er vakta­á­lag,“ segir Hildur. Og til að taka það alveg skýrt fram er hér um að ræða laun í dag. „Ef við tökum hæstu grunn­laun sem mögu­leiki er á eru þau 400.524. Heilar 400.000 krónur. Eftir 21 ár í starfi.“

Hildur miðar launin við laun Eflingar og bendir á að grunn­laun 18 ára ein­stak­lings hjá Eflingu sem hefur unnið í 6 mán­uði hjá sama fyr­ir­tæki séu 335.000 kr. „Og þeir sem ná ekki þess­ari upp­hæð hjá Eflingu eiga að fá auka­greiðslur eða bónusa til að tryggja að þeir fái aldrei lægri laun. Aðeins 65.524 í mun en 20 ½ ár í starfi og ansi mik­ill munur á ábyrgð,“ segir Hildur.

Dagpeningar hækka launin að hluta

Hildur seg­ist gera sér fyrir því að flug­freyjur og -þjónar fá líka greidda dag­pen­inga skv. lögum sem eru skatt­frjálsir og hækka smá ráð­stöf­un­ar­tekjur, en bendi á að þeir eru aðeins greiddir ef við­kom­andi er í flugi.

„Um leið og við förum í fæð­ing­ar­or­lof eða veik­inda­leyfi eða bara sumar/vetr­ar­frí eru þeir ekki greiddir. Föstu launin eru það sem við fáum greitt þá mán­uði sem áður eru nefndir og það er af föstu laun­unum sem við greiðum í líf­eyr­is­sjóð,“ segir Hildur, sem þær í dag úborg­aðar um 220 þús­und krónur, þar sem hún er á fram­reikn­uðum örorku­líf­eyri.

Starfið gefandi, en á sama tíma heilsuspillandi

Hildur bendir einnig á marga heilsu­tengda þætti sem fylgja starf­inu, og segir þá stefna heilsu sinni í hættu bara við það að mæta í vinn­una. „Meiri tíðni krabba­meins og fóst­ur­láta t.d., stytt­ing lífald­urs með því að vinna á svona óreglu­legum tímum og fara svona milli tíma­belta eru ágætis dæmi fyrir utan það hversu útsett­ari við erum fyrir alls­konar smitum en ég ætla ekki að gera það,“ segir Hildur. „Ég ætla heldur ekki að reyna að fara að útskýra ein­hver hvíld­ar­tíma­á­kvæði eða það hvernig þér líður í skrokknum eftir að fara 6 morg­un­flug í röð, hvað þá hversu skerta með­vit­und þú hefur eftir það – meira svona ónot­hæfa með­vit­und. Það er ein­fald­lega ekki hægt að útskýra það fyrir þeim sem ekki hafa prófað.“

Hildur bendir einnig á jákvæða þætti starfs­ins og segir það gef­andi að vera með við­skipta­vinum og geta aðstoðað þá. „Ég get heldur ekki útskýrt fyrir þeim sem ekki hafa prófað hversu gef­andi þessi vinna er. Það að geta aðstoðað fólk, stutt það eða glatt á alls­konar augna­blikum í sínu lífi. Að vera föst með þeim inní röri og deila með þeim gleði og sorg.“

Segir hún orð Boga Nils og þá stefnu sem Icelandair boðar nú vera bæði sára og nið­ur­lægj­andi eftir ára­tuga rétt­inda­bar­áttu.

„Að upp­lifa svo núna að fyr­ir­tækið vilji henda út á hafs­auga öllu – og þá meina ég öllu – sem hefur áunn­ist síð­ustu ára­tugi í rétt­inda­bar­áttu FFÍ er sárt. Það er sárt og það er nið­ur­lægj­andi. Það er eins og verið sé að gera lítið úr öllu sem hefur verið gert. Það er verið að segja okkur að það skiptir engu máli hversu lengi þú hefur unnið, það getur hver sem er unnið þetta. Og þar með er verið að gera lítið úr ævi­starfi fólks,“ segir Hildur og bætir við í kald­hæðni:

„Og það er enn sár­ara að heyra að það sé mín stétt sem er að stefna fyr­ir­tæk­inu í gjald­þrot. Ég vildi óska að sá kostn­aður fyr­ir­tæk­is­ins væri að skila sér í buddur fyrrum sam­starfs­fé­laga en ég er ansi hrædd um að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins verði að leita ann­ar­staðar að þessum gríð­ar­lega launa­kostn­aði sem er að sliga allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina