Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Fólk er ekkert öruggara á veitingastöðum en á skemmtistöðum og krám“

„Fólk er ekkert öruggara á veitingastöðum en á skemmtistöðum og krám“
Mynd / Unnur Magna

„Það er ekk­ert grín að vera í þving­aðri rekstr­ar­stöðvun í lengri tíma.“ Þetta segir Þór­hallur Við­ars­son, rekstr­ar­stjóri og einn eig­enda skemmti­stað­ar­ins B5 í Banka­stræti 5 í sam­tali við Mannlíf. Þeim stöðum sem eru skil­greindir sem krár og skemmti­staðir hefur verið gert að loka á meðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gengur yfir og óvissa er uppi um hvenær þessir staðir fá að hefja rekstur aftur.

Arnar Þór Gísason sem rekur ásamt fleirum stað­ina Kalda bar, Den Danske Kro, Enska bar­inn, The Irishman Pub og Lebowski bar segir það vera „óskilj­an­legt“ að fólk fái að drekka bjór á veit­inga­stöðum en ekki á krám og skemmti­stöðum. Þór­hallur tekur undir með honum.

„Ferða­þjón­ustan hefur lam­ast en líka ákveð­inn angi veit­inga­brans­ans,“ segir Þór­hallur um þá stöðu sem er komin upp vegna sam­komu­banns­ins.

Þór­hallur tekur fram að allir sem komi að rekstri B5 séu með yfir­völdum í liði en að það sé þó erfitt að skilja af hverju það sama gildi ekki um alla staði hvað tak­mark­anir varða.

„Af hverju mega staðir sem eru skil­greindir sem skemmti­staðir eða krár ekki starfa með sömu tak­mörk­unum og veit­inga­staðir,“ spyr Þór­hallur. „Ég skil vel að við getum ekki sinnt aðal­starf­semi okkar, sem er skemmt­ana­líf á næt­urnar, en af hverju fáum við ekki að hafa opið fyrir 50 manns, virt tveggja metra regl­una og lokað kl 23:00 eins og aðrir staðir,“ spyr Þór­hallur. „Fólk er ekk­ert örugg­ara á veit­inga­stöðum en á skemmti­stöðum og krám,“ bendir Þór­hallur á. „Svo lengi sem tak­mark­anir eru virtar að öllu leyti,“ leggur hann áherslu á.

Spurður út í hvort að honum finn­ist skemmti­staðir og krár hafa gleymst í dæm­inu segir hann: „Það er alla­vega skrítið að við fáum ekki að krafsa eitt­hvað eins og aðrir. Það er ein­kenni­legt að í okkar bransa fái ekki allir að starfa undir sömu tak­mörk­unum.“

Húsaleigan hækkuð „verulega“

Til að bæta gráu ofan á svart hefur leigusal­inn sem á hús­næðið sem B5 er í hækkað leig­una. Þór­hallur segir hækk­un­ina vera „veru­lega“.

„Leigusal­inn, Eik fast­eigna­fé­lag, inn­heimtir hækk­aða leigu með krepptum hnefa, á þessum tíma sem talað er um að allir eigi að standa saman. Við höfum alltaf staðið í skilum þannig að við erum ósáttir með þessa veru­legu hækkun sem kemur á þessum tíma­punkti.“

Óvissan verst

Þór­hallur segir óviss­una sem ríkir vera það versta. „Ég er búinn með negl­urnar, ég hef ekki fleiri neglur til að naga. Þetta er lífs­við­ur­væri manns sem hverfur. Svo er verið að veifa ein­hverjum dag­setn­ingum framan í mann, það hefur verið talað um 25. maí og svo 2. júní en ekk­ert hefur verið stað­fest,“ segir Þór­hallur.

„Ég er búinn með negl­urnar, ég hef ekki fleiri neglur til að naga.“

Aðspurður hversu lengi þeir geti þraukað í þess­ari stöðu segir Þór­hallur: „Það fer svo­lítið eftir því hvort að leigu­fé­lagið komi eitt­hvað til móts við okkur. Og svo hvenær við fáum að opna aftur. Þetta er mikil óvissa og maður tekur bara einn dag í einu.“

Hann segir að rekst­ur­inn hafi sem betur fer gengið vel und­an­farin ár og þess vegna séu eig­endur B5 í ágætri aðstöðu til að takast á við áföll.

Þór­hallur leggur áherslu á að sér og öðrum í sömu stöðu, sem reka staði sem eru skil­greindir sem krár eða skemmti­staðir, þyki verst að þeir fái ekki mögu­leika á að reka sína staði áfram með tak­mörk­unum líkt og veit­inga­húsin. „Það er svo­lítið ein­kenni­legt.“

Sjá einnig: „Óskilj­an­legt“ að fólk fái að drekka bjór á veit­inga­stöðum en ekki á krám

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum