Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Góðverk fyrir ekkju með ung börn: „Takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna“

Góðverk fyrir ekkju með ung börn: „Takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna“
Mynd / Unsplash|Örvar Þór Guð­munds­son

Örvar Þór Guð­munds­son, sem stofn­aði góð­gerð­ar­sam­tökin Samferða árið 2016 og situr í stjórn þeirra segir frá röð góð­verka til ein­stæðrar móður með tvö ung börn, og verður sagan að telj­ast sú besta sem lesa má í dag.

Á þriðju­dags­kvöldið barst ábend­ing til sam­tak­anna um unga ekkju með tvö ung börn sem átti 17 þús­und krónur til að lifa af út mán­uð­inn. Maður kon­unnar lést í fyrra. „Þessi ábend­ing snerti okkur mikið,“ segir Örvar Þór. „Það sem meira er, sonur hennar fjög­urra ára er með mikla sjón­skekkju og var nýbú­inn að brjóta óvart ódýr gler­augu sem hann átti.“

Örvar Þór Guð­munds­son Mynd / Facebook

Örvar Þór ákvað að fara óhefð­bundna leið í gær og mælti sér mót við fjöl­skyld­una í Kringl­unni í gler­augna­versl­unni Prooptik.

„Ég ræddi við yfir­mann í þeirra verslun og útskýrði stöðu mála. Það stóð ekki á þeirri verslun. Versl­unin gaf barn­inu vönd­uð­ustu gler­augun í búð­inni sem eru óbrjót­an­leg og kosta um 60.000 krónur,“ segir Örvar Þór.

Því var næst farið í fata­verslun í Kringl­unni. Þar fékk móðir að versla boli, sokka, nær­föt og skó fyrir börnin og fyrir sig líka. „Þá var þessu ekki lokið. Ég hafði sam­band við fram­kvæmda­stjóra hjá Cintamani. Eftir að hafa útskýrt fyrir honum stöðu mála þá stóð ekki á þeim heldur. Áttum að koma strax í verslun þeirra inn í Garðabæ. Þar tók hann á móti okkur með sumar og vetr­ar­föt á bæði börnin hennar ásamt úlpu á móðir. Pakki upp á 250.000 krónur.“

Lagði einnig inn á reikning móðurinnar

Örvar Þór kvaddi síðan tár­vota móð­ur­ina og börnin hennar. „Ekki með faðm­lagi (þar sem við hlýðum Víði og virðum 2 metra regl­una) heldur hlý­legu brosi,“ segir Örvar Þór, sem lét síðan móð­ur­ina vita að hún ætti fyrir mat út mán­uð­inn, því hann hefur lagt inn á hana frá Samferða 83 þús­und krónur.

„Hún á því til pen­ing fyrir mat fyrir sig og börnin út þennan apríl mánuð og getur mögu­lega gert eitt­hvað skemmti­legt fyrir börnin sín líka,“ segir Örvar Þór og þakkar Prooptik og Cintamani fyrir góð­vild þeirra.

Móðirin unga, sem kýs að njóta nafn­leyndar, sendi Örvari Þór síðan skila­boð og þakk­aði kær­lega fyrir:

„Sæll Örvar. Mig lang­aði að þakka þér inni­lega fyrir allt sem þú gerðir fyrir litlu fjöl­skyld­una mína í gær. Gleðin hjá krökk­unum er ólýs­an­leg. Allt sem þau fengu voru hlutir sem ég hef þurft að láta sitja á hak­anum þrátt fyrir að það vant­aði nauð­syn­lega. Fór líka í gær og versl­aði stíg­vél á þau bæði.

Langaði líka að segja þér frá sam­tali milli mín og sonar míns í gær­kvöldi. Hann sagði mér að hann væri alveg viss um að þú værir vinur guðs. Því hann var sko búinn að biðja guð að fá svona úlpu (svarta með loð­kraga). Hann er búinn að biðja um svona úlpu í marga mán­uði en ég hef ekki haft efni á henni. Svo spurði hann mig hvort ég gæti ekki beðið þig að skila til pabba að hann elskaði hann og sakn­aði hans. Því jú hann er alveg viss um að þú ert góð­vinur guðs þannig þetta var svo sjálf­sagt í hans unga huga. Ég held að ég geti aldrei komið alminni­lega í orð þakk­læt­inu sem ég finn fyrir. Og hversu ótrú­lega mikil hjálp þetta var. Takk fyrir okkur og takk fyrir gleð­ina sem ríkir hjá mínum börnum núna.“

Ellefu styrkþegar látnir síðustu 14 mánuði

Örvar Þór segir síðan frá því að Samferða hafi í flestum til­vikum síð­ustu ár styrkt þá allra veik­ustu hér á landi.

„Alltaf er um að ræða fjár­styrk. Oft er þetta fólk sem er að berj­ast við krabba­mein. Bara á síð­ustu 14 mán­uðum eru 11 ein­stak­lingar látnir sem við höfum verið að styrkja. Fólk á aldr­inum 25-70 ára. Yndisleg kona sem við höfum styrkt mikið síð­ustu ár tap­aði sinni bar­áttu á mánu­dags­kvöldið og kvaddi okkar jarð­vist – góða ferð elsku Begga,“ segir Örvar Þór.

„Ég líkt og Martin Luther King á mér draum. Ef allir Íslend­ingar myndu deila og styrkja okkar sam­tök um 500 krónur í dag eða á næstu mán­uðum þá getum við auð­veld­lega haldið okkar starfi áfram næstu 10 árin í það minnsta. Getum hjálpað mörg hund­ruð fjöl­skyldum á hverju ári. Það þarf ekki meira til. Bara 500 kall. Ertu til í það?,“ segir Örvar Þór.

Þeir sem vilja styrkja starf Samferða geta lagt inn á
reikn­ingur 0327-26-114
kennitala 651116-2870

Einnig er hægt að hringja í 900 númer Samferða:
907-1081 – gefur 1000 krónur
907-1083 – gefur 3000 krónur
907-1085 – gefur 5000 krónur
907-1090 – gefur 10000 krónur

Allir ein­stak­lingar sem starfa í stjórn Samferða gefa vinnu sína, auk þess er eng­inn kostn­aður. „Sökum þess gefum við alltaf allt sem safn­ast,“ segir Örvar Þór. Ábend­ingar og/eða fyr­ir­spurnir má senda í gegnum Facebook-síðu Samferða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi